Morgunblaðið - 16.01.1982, Qupperneq 40
Síminná QQflOQ
afgreiðslunni er OOUOO
JHor£TmbI(ií>ií> ^
' Símiáritstjórn Hfliflfl
og skrifstofu: I U I UU
JRorjjimblnbib
LAUGARDAGUR, 16. JANÚAR 1982
Fjölmennasti fundur sjómanna á Islandi:
l'tn 900 sjómenn sátu fund Sjómannasambands Islands og Karmanna og fiskimannasambandsins í Reykjavík í gær, en á myndinni, sem Emilía Björnsdóttir
Ijósmyndari Mbl. tók, sést hluti fundarmanna á fjölmennasta fundi sem sjómenn hafa haldið á íslandi.
Aðilar bjartsýnir og búizt
við fiskverðsákvörðun í dag
SKÖMMII FYRIR miðnætti í nótt voru taldar miklar líkur á því, að
samkomulag næðist um nýtt fiskverð í dag. Reynt var að samræma sjónar
mið sjómanna, útgerðar og vinnslu á fundi yfirnefndar verðlagsráðsins seint
í gærkvöldi og voru aðilar bjartsýnir á lausn á fundi nefndarinnar, sem
boðað hefur verið til í dag. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsinsvarrætt
um 17—18% fiskverðshækkun.
Er viðbrögð fiskseljenda, sjó-
manna og útgerðar við hugmyndum
stjórnvalda og kaupenda um 15%
hækkun fiskverðs í fyrrinótt urðu
ljós og kjaradeilu sjómanna var
stefnt í óleysanlegan hnút, var málið
tekið upp að nýju í gær. Stjórnvöld
gerðu seljendum tilboð um 17%
hækkun fiskverðs og lofuðu jafn-
framt að tryggja, að ekki yrði gengið
á hlut vinnslunnar, þannig að þeirra
hlutur yrði ekki gerður verri en
stjórnvöld og kaupendur sömdu um
RIKISSTJÓRNIN leggur höfuðáherslu
á að koma í veg fyrir grunnkaupshækk-
anir á árinu. Af þeirri ástæðu var fallið
frá þeirri hugmynd að skerða verðbóta-
vísilöluna um 7% I. mars. I'ess í stað
verður hún lækkuð um 3% 1. febrúar
með niðurgreiðslum og tollalækkunum
og síðan á ný um 3% I. maí með sömu
aðferðum. Efnahagspakki ríkisstjórn-
arinnar hljóðar upp á 300—400 millj.
kr. Fjár lil hans verður aflað með
niðurskurði opinberra framkvæmda,
einnig eru uppi hugmyndir um hækkun
söluskatts, skattlagningu á banka
stofnanir og sérstakan skatt á innflutn
ingsverslun, sem gæft nokkra tugi
milljóna. Ekki hefur þó náðst sam-
staða um annað en niðurskurðinn og
sjálfstæðismenn og framsoknarmenn
hafa staðið gegn hugmynd alþýðu-
handalagsmanna um skattinn á inn-
flutningsverslunina.
á fimmtudag. í gær var því leitað
leiða til að tryggja að flotinn héldi á
ný til veiða, en þó án þess að gengið
yrði gegn fiskvinnslunni. A fundi
sjómanna í gær kom fram, að þeir
gætu ekki samþykkt lægra fiskverð
en 18% og í gærdag lögðu útvegs-
menn fram tilboð um 18% hækkun
fiskverðs og lækkun oliugjalds úr
7,5% í 7%.
I sjónvarpsþætti í gærkvöldi
ræddu þeir Kristján Ragnarsson,
Efnahagspakkinn á að vera til-
húinn áður en Alþingi kemur saman
um miðja næstu viku og miðar ríkis-
stjórnin við, að hann geti haldið
verðbólgunni í 35%' í árslok. Um 200
millj. kr. eru fyrir hendi í pakkann á
fjárlögum í formi niðurskurðar-
heimilda o.fl., og sem eftirstöðvar af
niðurgreiðslum.
Aðeins hefur náðst samstaða um
50 millj. kr. til viðbótar í formi auk-
ins niðurskurðar. Helst er talað um
til viðbótar hækkun söluskatts upp á
'h %, sem gæfi 60 millj. kr., og skatt-
lagningu bankastofnana um 20—40
millj. kr. Mestur styrr hefur staðið
um skatt á innflutningsverslun, sem
Alþýðubandalagið hefur lagt til, en
talið er, að hvorki Gunnar Thorodd-
sen né Tómas Árnason muni sam-
þykkja þá tillögu.
Ráðherrarnir hafa alveg horfið frá
Ingólfur Ingólfsson og Steingrímur
Hermannsson um fiskverðið og
samningamálin, en þessir aðilar
hafa vænt hvern annan um ósann-
indi siðustu daga, fiskseljendur
segja Steingrím hafa lofað því, að
fiskverð yrði ákveðið með þeim, en
Steingrímur segir það rangt. í þætt-
inum sló í brýnu með Ingólfi og
sjávarútvegsráðherra og sagði Ing-
ólfur, að orð ráðherrans um ákvörð-
un fiskverðs með seljendum væru
„eins og annað, sem frá þér hefur
komið, en fæst af því hefur farið eft-
ir“. Hann sagði, að sjómenn væru
tilbúnir að semja, en ekki að láta
svínbeygja sig. Steingrímur sagðist
vona, að menn gætu mætzt á miðri
leið og tók Ingólfur undir það.
Kristján Ragnarsson sagðist ekki
hugmyndum um skerðingu verðbóta-
vísitölunnar 1. mars, en sú hugmynd
kom bæði fram hjá sjálfstæðis-
mönnum og framsóknarmönnum.
Kom þeim saman um, að slík skerð-
ing myndi gera samningsstöðu við
verkalýðshreyfinguna erfiðari, en
allt kapp er nú lagt á að halda
grunnkaupshækkunum í lágmarki,
— semja um allt annað en grunn-
kaup, þegar til samninga kemur.
í niðurskurði opinberra fram-
kvæmda verður víða borið niður.
Allir opinberir sjóðir verða skornir
niður með ákveðinni prósentutölu,
annars staðar verða upphæðir tíund-
aðar. Tekið verður af öllum ráðu-
neytum. Þá þarf til að koma breyt-
ing á fjárlögum í sameinuðu þingi og
er talið að þar geti á stundum orðið
spurning um meirihluta.
fyrr hafa kynnzt vinnubrögðum eins
og þeim sem verið hafa af hálfu
ráðherra við þessa fiskverðsákvörð-
un, ráðherrar hefðu sagt „ég vil, ég
get“ og þeir hefðu gert aðilum verð-
lagsráðsins tilboð á fundum, án að-
ildar oddamanns. Þá sagði hann, að
ráðherrar segðu tölur Þjóðhags-
stofnunar rangar og minntu vinnu-
hrögðin á það sem tíðkaðist fyrir
austan járntjald, ef tölur hentuðu
ekki, þá væru þær sagðar rangar.
Kristján sagði, að það hefði verið
mikið ábyrgðarleysi af hálfu stjórn-
valda að ætla sér að ákveða fiskverð
með kaupendum, fiskverð sem sjó-
menn og útgerðarmenn gætu ekki
sætzt á. Það þjónaði engum tilgangi
að leysa fiskverðsmálið, ef kjaramál-
in væru óleyst og flotinn í höfn.
í tengslum við efnahagspakkann
hafa verið ræddir ýmsir aðrir þætt-
ir, svo sem hömlur í peningamálum
svo og verðlagsmál. Sjálfstæðismenn
í ríkisstjórn, auk Tómasar Árnason-
ar, leggja mikið upp úr að rýmkað
verði til í verðmyndunarkerfinu og
vilja þeir koma í gildi lögum um
frjálsa verðmyndun, sem sett voru í
ríkisstjórnartíð Geirs Hallgrímsson-
ar í árslok 1978. Alþýðubandalagið
hefur ekki samþykkt þessa tillögu
þeirra.
Nokkur styrr er því enn um efna-
hagspakka ríkisstjórnarinnar. Ár-
degis kemur efnahagsnefnd ríkis-
stjórnarinnar, ráðherranefnd og
efnahagssérfræðingar saman til
fundar, en ekki er talið líklegt að
samstaða náist fyrr en um miðja
næstu viku.
Ríkisstjórnin ætlaði
að brjóta niður verk-
fall okkar - sagði Ing-
ólfur Ingólfsson
UM 900 sjómenn sóttu fjöl-
mennasta fund sem haldinn
hefur verið hérlendis á veg-
um sjómanna í Sigtúni í
Reykjavfk í gær, en þar
ræddu sjómenn stöðuna í
málum sjómanna og fjölluðu
forystumenn sjómanna um
gang mála. Höfðu forystu-
mennirnir kjarnyrtar lýs-
ingar á samskiptum við
stjórnvöld landsins að und-
anfórnu.
Oskar Vigfússon, forseti
Sjómannasambands Islands
sagði að á sl. þremur mánuð-
um hefði keyrt um þverbak í
aðför stjórnvalda að sjómönn-
um og á því stutta tímabili
hefðu sjómenn orðið fyrir
18,3% tekjuskerðingu í fisk-
verði. Þá sagði Óskar að þegar
samningar sjómanna og út-
vegsmanna hefðu legið fyrir
hefði þriðji aðilinn, ríkistjórn-
in, komið til skjalanna og
ómerkt allt á einni klukku-
stund.
„Sjávarútvegsráðherra, for-
sætisráðherra og Svavar
Gestsson, félagsmálaráðherra,
sem virðast vera í einhverju
þrístirni innan ríkisstjórnar-
innar, hafa rætt málið, því án
samþykkis þessara manna
hefði fyrrgreind ákvörðun ekki
verið tekin, en allt er þetta mál
þannig vaxið að með ólíkindum
er og ótrúlegt. Þessari afstöðu
ráðherranna getur aðeins ráð-
ið heiftrækni og hatur og slíkt
vil ég ekki ætla neinum,“ sagði
Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi
sjómanna í Verðlagsráði. Þá
sagði Ingólfur að Steingrímur
Hermannsson hefði boðið 17%
fiskverðshækkun fyrr um dag-
inn, en hann kvaðst ekki vita
hvort það væri hugmynd þing-
flokks framsóknarmanna eða
ríkisstjórnarinnar allrar.
Spurði Ingólfur hvort vilji
væri ekki allt sem þyrfti til að
leysa málið eins og forsætis-
ráðherra hefði sagt um með-
ferð vandamála, en Ingólfur
lagði áherslu á að allt málið
væri í miklu verri hnút en það
gæti verið vegna ótímabærra
yfirlýsinga stjórnvalda.
„Sjávarútvegsráðherra er
búinn að segja sjómönnum
stríð á hendur og ríkisstjórnin
ætlar að brjóta niður verkfall
okkar, svei svona viðhorfum,
svei þeim,“ sagði Ingólfur Ing-
ólfsson.
Guðmundur Hallvarðsson,
varaforseti Sjómannasam-
bandsins áréttaði að ráðherr-
arnir mættu hafa skömm fyrir
að reyna að brjóta niður sam-
stöðu sjómanna.
Sjá opnu blaðsins í dag.
Efnahagspakki rfkisstjórnarinnar:
Komið verði í veg íýrir
grunnkaupshækkanir í ár