Morgunblaðið - 01.04.1982, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
umboð á íslandi
Um sídustu áramót geröist SindrastáI hf. um-
boösaöili fyrir sænsku verksmiöjurnar
WELAND & Son a/b.
Framleiösluvörur WELAND eru helstar:
galvaniseruö ristarefni og þrep.
Efni þessi munum viö kappkosta aö hafa fyrir-
liggjandi í birgöastöö okkar eftir föngum eöa
panta sérstaklega sé þess þörf.
SINDRA-STÁL HF. Borgartúni 31 símar 27222 21684
SINDRA
STALHF
Koupfcu
Lionsconnbursto
um hðlgino
/CS\
i
til styrktor
öldruóum
si
R|
|
í§
m
.4?t
I
0f% 3
LIONSKLÚBBURINN
FJÖLNIR
Q>
Garðyrkjuskóli ríkisins:
Skólaslit og
pottaplöntusala
llveragerði, 29. marz.
GARÐYRKJUSKÓLA Ríkisins,
Reykjum, Ölfusi, verður slitið
laugardaginn 3. apríl og útskrif-
ast þá 33 nemendur frá skólan-
um, eftir tveggja vetra nám. Fé-
lagslíf í skólanum hefur verið
mjög fjölskrúðugt enda mörg
sameiginleg markmið sem unnið
var að.
Fyrri veturinn (80—81) unnu
nemendur hörðum höndum að
því að fjármagna náms- og
kynnisferð sem farin var til Sví-
þjóðar og Finnlands síðastliðið
sumar, og heppnaðist sú ferð
mjög vel. Vilja nemendur nota
tækifærið og þakka öllum þeim
mörgu sem studdu við bakið á
þeim, fyrir aðstoðina, sem gerði
þeim kleift að fara þessa ferð.
Fjáröflunarleiðir voru ýmsar
s.s. rekstur krambúðar í skólan-
um, aðventukransasala, sala á
þurrskreytingum og potta-
plöntusala. Allt voru þetta verk
nemenda sem þarna voru seld,
hlutir sem tengdust meira og
minna náminu við skólann.
I ár hefur rekstur skólafélags-
ins verið fjármagnaður með
krambúðarrekstri og sölu jóla-
korta.
Til að reka endahnútinn á
góða samvinnu þessa árgangs er
ætlunin að hafa hina árlegu
pottaplöntusölu í Breiðfirð-
ingabúð, Skólavörðusstíg 6b,
fimmtudaginn 1. og föstudaginn
2. apríl frá kl. 1—6 hvorn dag.
Verða þar seldar pottaplöntur af
ýmsum stærðum og gerðum á
gjafverði. Ætlunin er að nota
hagnaðinn til þess að gera öllum
á skólanum útskriftina sem eft-
irminnilegasta, m.a. ætla nem-
endur að gefa skólanum gjöf til
minningar um veru þeirra þar,
sem hefur í heild sinni verið
bæði skemmtileg og fræðandi.
Opið
Dr. Björn Sigurbjörnsson, for-
stöðumaður Rannsóknar-
stofnunar Landbúnaðarins!
Vegna ummæla þinna í kvöld-
fréttum útvarps, föstudag 19.
mars, þar sem þú gerðir athuga-
semdir við ummæli Ólafs Dýr-
mundssonar, landnýtingarráðu-
nauts, viljum við vinsamlega biðja
þig að svara eftirfarandi spurn-
ingum:
1. Varst þú að túlka niðurstöður
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins eða eigin skoðanir?
2. Á hvaða rannsóknum byggist
fullyrðing þín um að nóg sé að
bera á annað hvert ár til þess
að viðhalda gróðri og notagildi
uppgræðslu (2 ærgildi ha) á ör-
foka landi á hálendinu 400—600
m yfir sjó?
3. Hvaða grasstofnar og tegundir
eru það harðgerir og þolnir að
þola þá meðferð sem þú heldur
fram að sé nægjanleg svo þeir
skili uppskeru sem að framan
greinir?
4. Hvaða menntun hefur þú á
sviði uppgræðslu og land-
græðslu, dr. Björn?
bréf
5. Landgræðslustjóri, Sveinn
Runólfsson, sem hefur sér-
menntun á því sviði, hefur ít-
rekað staðhæft að á umrætt
land verði að bera árlega og
verði samt fullerfitt að við-
halda þar gróðri. (Umsögn um
Blönduvirkjun 1978 og fundur í
Húnaveri 7. des. 1980.) Hefur
þú þekkingu eða reynslu á því
sviði umfram landgræðslu-
stjóra?
6. Flokkast ekki 10% vaxtataka
ofan á verðtryggingu undir
ólögmæta viðskiptahætti? Eru
ekki 2—3% vextir taldir all-
háir?
Afrit af þessu bréfi sendist
stjórn RALA og stjórnin beðin að
gera grein fyrir því hvort hún sé
ábyrg fyrir málflutningi þínum.
Væntum svars jafn fljótt og svar-
að var viðtali við Ólaf Dýrmunds-
son.
23.3. 1982
Gunnar Oddsson,
Flatartungu,
Magnús Óskarsson,
Sölvanesi.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU