Morgunblaðið - 01.04.1982, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
27
Aukasýning á „Elskaðu mig“
AUKASÝNING verður á föstu-
dagskvöld á leikritinu „Elskaðu
mig“ eftir Vitu Andersen, í Al-
þýðuleikhúsinu. Verkið hefur nú
verið sýnt alls 36 sinnum fyrir
fullu húsi áhorfenda. Þetta verður
síðasta sýningin á verkinu í
Reykjavík, en farið verður með
sýninguna í leikför um landið á
næstunni. Það eru Arnar Jónsson
og Tinna Gunnlaugsdóttir sem
fara með hlutverkin tvö í sýning-
unni, en leikstjóri er Sigrún Val-
bergsdóttir.
Þursaflokkurinn í Háskólabíói
LAUGARDAGINN 3. apríl, mun
Þursaflokkurinn halda hljómleika i
Iláskólabíói, og hefjast þeir kl. 17.
Þetta verða fyrstu opinberu
hljómleikar hljómsveitarinnar i
Reykjavík á þessu ári. Á hljóm-
leikunum verða flutt lög af nýút-
kominni hljómplötu Þursaflokks-
ins „Gæti eins verið“ auk nýrra og
eldri tónsmíða.
Forsala miða er í Karnabæ,
Austurstræti, og í Háskólabíói
laugardag eftir kl. 4.
ALLT í ÚTILÍFIÐ
Gönguskór í úrvali
frá
MEIIMOL
Brenta
St. 36—42
Kr. 710,-
Lhoste
St. 41—46
Kr. 827,-
Raichle
Combi-skór
Turing — skíöa
Kr. 1.834,-
Karwendel
St. 41—47
Kr. 829,-
Futura
plast-gönguskór
Kr. 1.410,-
5- T
útilJf
Glæsibæ, sími 82922.
Heilbrigðisráðuneytið:
Blekkingar í
auglýsingum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá heilbrigdis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu:
„Að gefnu tilefni vill heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytið
koma á framfæri athugasemdum
vegna villandi fullyrðinga í aug-
lýsingum um vörutegundina
Decimin.
I stórum áberandi auglýsingum
um ágæti framangreindrar vöru-
tegundar er að því látið liggja, að
ýmsir opinberir aðilar, þ.m.t. heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið, hafi samþykkt eða sé með-
mælt innflutningi og gæðum vör-
unnar. Ilið rétta er, að ráðuneytið
hefur látið innflutninginn óátal-
inn, enda inniheldur varan ekki
önnur efni en þau , sem til eru í
hverju eldhúsi.
Það er álit ráðuneytisins, að hér
sé verið að blekkja almenning og
fullyrðingar innflytjanda brjóti
jafnvel í bága við landslög.
Ráðuneytið lítur það alvarleg-
um augum að nafn þess og stofn-
ana skuli notað á þennan hátt í
þeim augljósa tilgangi að auka
sölu.“
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
FRONSK
FYRIR FERMINGARBÖRNIN
Á 100 ára afmælinu hefur Rosenthal hafiö framleiðslu á
einstaklega skemmtilegum postulínsmunum meö léttum og
Ijúfum skreytingum eftirfranska listamanninn Peynet.
Vasar, skálar, plattar o.fl. fyrir bæöi cftengi og stúlkur.
Gott verð
studio-linie
A EINARSSON & FUNK
Laugavegi 85