Morgunblaðið - 01.04.1982, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
Lára Eyjólfsdóttir
Múlakoti — Áttræð
Árið 1923 kom ung glæsileg
kaupakona, Lára Eyjólfsdóttir, að
Árkvörn í Fljótshlíð.
í fegurð Inn-Hlíðarinnar kynnt-
ist hún Ólafi Túbals, listmálara,
einkasyni sæmdarhjónanna í
Múlakoti. Giftust þau og hófu
búskap í sambýli við foreldra
Ólafs til ársins 1934, en þá tóku
þau við jörðinni.
Múlakotsheimilið var menning-
arheimili, þar sem fagrar listir
voru í heiðri hafðar og trjá- og
blómarækt stunduð í þeim mæli,
að eftir var tekið.
í dag er heiðurskonan Lára í
Múlakoti áttræð. Langar mig í því
tilefni að senda henni kveðju mína
og þökk.
Fyrir um það bil hálfum fjórða
áratug réðst ég vankunnandi
stelpuhnáta að gistihúsinu í Múla-
koti. Ætlaði að vinna þar í hálfan
mánuð, en dvöl mín þar varð fimm
sumur. Það var gleðiríkur tími.
í minningunni þykir mér, sem
hver dagur þar hafi borið með sér
sólskin og fuglasöng og allar næt-
ur hljóti að hafa verið kyrrar og
hlýjar.
Eins og margir þekkja er fegurð
mikil á þessum slóðum og hefur
Múlakot þar sína sérstæðu töfra.
Nú er það einu sinni svo að þótt
fegurð lands sé ríkuleg, þykir mér
þó enn meira um vert að þar búi
gott fólk. Var ég í engu svikin af
kynnum mínum af heimilisfólkinu
f Múlakoti.
Lára í Múlakoti er mörgum góð-
um kostum búin. Enga manneskju
þekki ég sem eins dyggilega tekur
upp hanskann fyrir þann, sem á er
haliað í orðræðum. Hvers konar
sýndarmennska og lágkúra er
henni fjarri skapi.
Vissulega hefur lífsvegur henn-
ar ekki ævinlega verið greiður yf-
irferðar. Þegar þannig hagar til
þarf mikinn styrk til að halda
fullri reisn. I hvert sinn er ég held
heim af samfundum okkar í Múla-
koti lít ég bjartari augum á lífið
og tilveruna, en jafnframt með ör-
litla sektarkennd fyrir að þurfa að
nærast á andlegu þreki hennar.
Svo mikill er sálarstyrkur Láru að
ósjálfrátt kemur upp í hugann að
hún hafi tileinkað sér þau orð úr
bók bókanna, þar sem stendur:
„Hefjið augu yðar til fjallanna",
svo undarlegt er hversu henni hef-
ur tekist að horfa yfir erfiðleikana
og varðveita heiðríkju sálarinnar.
Hvar sem hún fer ber hún með sér
hressilegt viðmót og um leið skiln-
ing á högum samferðafólksins, og
cf eitthvað hefur farið úrskeiðis,
sýnir hún mildi og skilning, leitar
orsakanna, en dæmir ekki.
Mættum við margt af henni
læra.
Að síðustu þakka ég vinkonu
minni óborganlegar samveru-
stundir fyrr og síðar og óska
henni, börnum hennar og öðrum
ástvinum guðs blessunar.
Vilborg Björgvinsdóttir
Hún ætlar að taka á móti afmælis
gestum að Sæviðarsundi 52 hér í
bæ, eftir kl. 15 í dag.
Auðbrekku 44-46, Kópavogi - Sími póstverslunar 453Ú0
TÍSKUSÝNING
OG ÓKEYPIS VEITINGAR
í verslun okkar
kl. 20.30 í kvöld.
Póstsendum samdægurs
VÖRUHÚSIÐ
Majtasín
Vorum að taka upp:
4124 Léttan og þægilegan langerma sumar-
kjól í mussusníði.
Litir. H-hvítt.
Stærðir: 34—36—38—40.
Verð: 560,-
4164 Teinótt hneppt vesti, dregiö saman í
mittiö meö belti.
Litir: N-dökkblátt, R-rautt, A-grænt.
Stærðir: 34—36—38—40.
Verð: 270 -
4125 Teinóttur skyrtublússujakki úr 100% bómull.
Litir: N-dökkblátt, R-rautt, A-grænt.
Stærðir: 36—38—40—41.
Verð: 419,-
4122 Buxur í kálfasidd.
Litir: N-dökkblátt, R-rautt, A-grænt.
Stærðir: 36—38—40—42.
Verð: 455,-
4123 Hvitur hlírabolur meö blúndu úr 100% bóm-
ull.
Stærðir: 36—38—40—42.
Verð: 118-
Nær daglega tökum viö upp nýjar vörur, því viö
viljum eiga nóg til þegar nýi vörulistinn okkar
kemur út.
Komið og skoðiö nýju vörurnar, fatnaö á
alla fjölskylduna búsáhöld og Hanaoggið,
nýja páskaeggiö sem fæst bara hjá okkur.
Kl. 20.30 í kvöld bjóöa Módel-
samtökin upp á frábæra tískusýn-
ingu, og um leiö er boöiö upp á
veitingar.
Verið velkomin — aýningin og
veitingarnar eru ókeypial
Verslunin er
opin til kl. 22.00.
Bankavaldið brot-
ið á bak aftur
í
Skák
21 v.
Margeir Pétursson
Ríkisspítalarnir urðu hlutskarp-
astir i skákkeppni stofnana og
fvrirta kja sem lauk fyrr í vikunni.
Bankaveldið sem ríkt hefur i þess-
ari keppni undanfarin ár var þar
með brotið á bak aftur, en i öðru
sæti hafnaði sigursveitin tvö und-
anfarin ár, sveit Búnaðarbankans
sem flestir höfðu fyrirfram álitið
sigurstranglegasta.
2. Bifreiðastöð Steindórs
3. -6. Flugleiðir, B-sveit,
Sláturfélag Suðurlands,
Prentsmiðjan Oddi og
Endurskoðun hf., 15% v.
7,—10. Breiðholtsskóli,
Unglingaheimili ríkisins,
Hönnun hf. og
Landsb., B-sveit 15 v.
Fyrir sigursveitina tefldu fjórir
vel þekktir skákmenn, þeir Sævar
Bjarnason, l)an Hansson, Kóbert
Harðarson og síðast en ekki sízt
Lárus Johnsen, fyrrverandi ís-
landsmeistari, sem var drjúgur á
fjórða borðinu. Vera hans þar sýnir
bezt styrkleika sveitarinnar.
Stofnanakeppnin var sam-
kvæmt venju tefld í tveim flokk-
um og tóku alls 48 sveitir þátt í
mótinu, 22 í A-flokki og 26 í
B-flokki. Um nokkurs konar
deildaskiptingu er því að ræða,
því sex neðstu sveitirnar í A-
flokki falla niður í B-flokk, en
sex efstu þar tefla í A-flokki
næst.
Helstu úrslit urðu sem hér
segir:
A-flokkur:
af 28 mögulegum
1. Ríkisspítalarnir, A-sveit 23 v.
2. Bún.bankinn, A-sveit 20% v.
3. Verkamannabústaðirnir 20 v.
4. Grunnskólar Reykjavíkur 17 v.
5. Landsbankinn, A-sveit 16% v.
6. Útvegsbankinn, A-sveit 16 v.
7. Þjóðviljinn 15 v.
8. Morgunblaðið 14% v.
9. —10. Flugleiðir, A-sveit
og Veðurstofan 14 v.
Unglingasveit TR fékk að vera
með í keppninni vegna þess að
stóð á stöku og nýttu ungl-
ingarnir sér þetta tækifæri til
hins ýtrasta. Sveitina skipuðu:
Tómas Björnsson, Davíð Olafs-
son, Þröstur Þórhallsson, Gunn-
ar Björnsson, Hjalti Bjarnason
og Sigurbjörn Árnason.
Hin öfluga Búnaðarbankasveit
lét ekki efsta sætið í A-riðlinum
baráttulaust af hendi. Uppgjör
hennar við Spítalasveitina fór
fram í næstsíðustu umferð, en
fyrir hana var munurinn einn
vinningur Ríkisspítölunum í
hag. Búnaðarbankamönnum
tókst snemma að jafna metin,
því Jóhann Hjartarson vann
Sævar Bjarnason í furðu stuttri
viðureign á fyrsta borði. Hilmar
Karlsson og Róbert Harðarson
sömdu síðan um jafntefli á
þriðja borði en niðurstaða á hin-
um tveimur borðunum fékkst
ekki fyrr en út í glórulaust tíma-
hrak var komið.
Þá tókst Lárusi Johnsen að
snúa á andstæðing sinn, Guð-
mund Halldórsson, og banka-
menn bundu nú allar vonir sínar
við Braga Kristjánsson sem virt-
ist hafa töglin og hagldirnar í
skák sinni við Dan Hansson á
öðru borði. Af klukkutíma skák
að vera er þessi skák mjög
skemmtileg og þá sérstaklega
umskiptin í lokin.
B-riðill:
1. Unglingasveit TR
23%
Hvítt: Dan Hansson
(Kíkisspítölunum)
Svart: Bragi Kristjánsson
(Búnaðarbankanum)
Krönsk vörn.
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. e5 — c5,
4. c3 — Db6,
Hér er oftast leikið 4. — Rc6,
Laugarásbíó sýnir
„U ppv akn ingi nn44
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á bandarísku kvikmyndinni
„llppvakningurinn**, sem á frum-
málinu heitir „Incubus". Aðalhlut-
verk leikur John ('assavetes. Leik-
stjóri er John Hough.
Umsögn bíósins segir að kvik-
myndin sé hrottafengin og hörku-
spennandi. Myndin lýsir lífinu í
smábæ einum í Bandaríkjunum,
þar sem venjulega er tíðindalaust,
en skyndilega dynur yfir hvert
reiðarslagið af öðru, konum er
misþyrmt og karlar vegnir. Mynd-
in er bönnuð börnum.
John Cassavetes í hlutverki sfnu í
„Uppvakningnum“.
Fundur um húshit-
un í Stykkishólmi
SAMTÖK sveitarfélaga í Vestur-
landskjördæmi boða til fundar um
húshitunarmál á Snæfellsnesi og í
Dölum föstudaginn 2. apríl nk. kl.
13.00 í Hótel Stykkishólmi. Tilgang-
ur fundarins er að ræða ýtarlega um
þá mögulcika, sem nú eru fyrir
hendi á húshitun á svæðinu og
stuðla þannig að sem beztri stefnu-
mótum hlutaðeigandi.
Til umræðu verður almenn
stefnumörkun ríkisvaldsins í hús-
hitunarmálum, mögulegar orku-
sparnaðaraðgerðir, orkuöflunar-
möguleikar, niðurstöður og horfur
á jarðhitaleit, rafhitunarmögu-
leikar, reynsla af RO-veitum, laus-
legur kostnaðarsamanburður,
gjaldskrármál o.fl.
Framsögumenn verða fulltrúar
frá Iðnaðarráðuneyti, Orkustofn-
un og Rafmagnsveitum ríkisins.
Auk þeirra er alþingismönnum
Vesturlandskjördæmis, sveitar-
stjórnarmönnum á svæðinu og
öðrum áhugamönnum sérstaklega
boðið á fundinn.