Morgunblaðið - 01.04.1982, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
33
Starfsemi Ingersoll-
Rand kynnt á íslandi
DAGANA 24. og 25. mars var haldin að Hótel Esju kynning á
framleiðslu og starfsemi fjölþjóðafyrirtækisins Ingersoll-Rand, en
þetta fyrirtæki gerði fyrir um það bil ári umboðssamning við Heklu
hf. Það var Norðurlandadeild fyrirtækisins sem hélt þessa kynn-
ingu ásamt Heklu.
Jarðbor fri Ingersoll-Rand, stfmu gerðar og notaður var við virkjunarfram-
kvæmdir við Hrauneyjafoss.
Almenn ánægja þátttakenda
með Iðnþróunarverkefni SMS
„HVAÐA þýðingu telur þú að það
starf, sem unnið hefur verið á vegum
Iðnþróunarverkefnis SMS í fyrir-
tækinu hafi haft?“ l'essi spurning
var lögð fyrir fimm forsvarsmenn
fyrirtækja í málmiðnaði og hirtust
svör þeirra í fréttabréfi SMS nú ný-
verið.
Bjarni Einarsson, Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur, sagði: „Starf það
sem unnið hefur verið í mínu
fyrirtæki á vegum Iðnþróunar-
verkefnis SMS hefur skapað skýra
og afmarkaða þróunarleið að
breyttu og endurbættu skipulagi,
sem hefur auðveldað okkur að ná
þeim árangri, sem við náðum á
síðasta ári og því sem við sjáum að
við náum í næstu framtíð."
Július Snorrason, Bílaverkstæði
Dalvíkur, sagði: „Þótt ekki séu
liðnir nema röskir tveir mánuðir
síðan við byrjuðum aðgerðirnar og
við ekki búnir að koma nema hluta
þeirra í framkvæmd þá liggur nú
fyrir, að t.a.m. nýting vinnutíma
hefur gjörbreytzt til batnaðar og
umtalsverður árangur hefur þegar
náðst. Ef framhaldið verður svip-
að, þá tel ég að áður en varir verði
rekstrarstaða þessa fyrirtækis öll
önnur og betri."
Haukur Sveinbjörnsson, Báta-
lóni hf., sagði: „Þetta starf er tví-
mælalaust spor i rétta átt og hjá
okkur hefur það leitt til þess, að
mun betur tekst að halda utan um
vinnutíma, efnissölu o.þ.h. og
flokkun verkþáttanna hefur auð-
veldað okkur mjög alla tilboðsgerð
og uppgjör. Eftir að hafa búið við
þær breytingar, sem af þessu
starfi leiða á annað ár er ljóst, að
við getum bókstaflega ekki án
þeirra vinnubragða verið, sem
leitt hafa í kjölfarið."
Gestur Halldórsson, Vélsmiðj-
unni Þór á ísafirði, sagði: „Þessu
er erfitt að lýsa í fáum orðum. En
ég vil þó telja upp nokkur atriði,
sem færst hafa til mun betri veg-
ar, eftir að við hófum þátttöku í
Iðnþróunarverkefni SMS fyrir að-
eins tveimur mánuðum. 1. Mun
betra yfirlit er yfir starfsemina og
stöðu fyrirtækisins eins og hún er
á hverjum tíma. 2. Stjórnun á
verkefnum, mannafla og fjár-
magni er mun markvissari og ör-
uggari en áður. 3. Örugg vitneskja
liggur nú fyrir jafnóðum um hver
vélasala og tímanýting í fyrirtæk-
inu er á hverjum tíma og í hverju
verki. Vélasala og tímanýting hef-
ur lagast til muna og nálgast nú
þegar að vera komið í viðunandi
horf. 4. Innra skipulag og eftirlit
hefur lagast og auk þess er starfs-
andinn í fyrirtækinu nú mun betri
en áður, sem m.a. kemur fram í
betri mætingu starfsmanna og
auknum almennum áhuga. Þótt
framangreind atriði séu komin i
gott lag, þá eru enn á dagskránni
ýmsar frekari lagfæringar og
kerfisbundin söfnun upplýsinga,
sem grundvöllur tilboðsgerðar,
getur nú farið af stað. Við erum
því mjög bjartsýnir með árangur
þessa starfs."
Guðbjartur Einarsson, Véltaki
hf. í Grindavík, sagði: „Sá hluti
aðgerðanna, sem kominn er í
gagnið hér í Véltaki hf. hefur leitt
til mikilla bóta. Verkbeiðnakerfið
og það sem af því leiðir virkar
mjög vel og gagnstætt ótta
margra hefur það létt mikið allt
starfið, jafnframt því sem eftirlit
er mun markvissara. Starfsmenn
hafa látið í ljós ánægju með þann
hluta aðgerðanna sem að þeim
snýr. Við munum því hiklaust
halda áfram á þessari braut."
Kynningin var mjög vel sótt og
þar fluttu ýmsir fulltrúar IR er-
indi.
í samtali blm. Morgunblaðsins
við Roar Koppang, blaðafulltrúa
Norðurlandadeildar Ingersoll-
Rand, kom fram m.a., að félagið
hefur mikinn hug á að komast inn
á íslenska markaðinn, þrátt fyrir
að hann sé ekki mjög stór. En IR
framleiðir m.a. ýmiss konar loft-
verkfæri, loftpressur og bora sem
m.a. hafa verið notaðir við fram-
kvæmdir við Hrauneyjafossvirkj-
un.
Koppang sagði, að það væri nú
stefna stórfyrirtækja á borð við
Ingersoll-Rand, að skipta heimin-
um niður í viðskiptasvæði og
starfrækja síðan markaðs- og
söludeildir á hverju svæði. Þannig
væri Norðurlandadeildin til kom-
in.
Koppang sagði, að samvkæmt
skýrslum tímaritsins „Fortune
Magazine" væri IR númer þréttan
á lista yfir þau fyrirtæki sem
flyttu mest út frá Bandaríkjunum,
en þar eru höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins. Sagði hann að fyrirtækið
væri rúmlega aldargamalt og
stundaði nú alls kyns framleiðslu,
allt frá stórum jarðborum og
niður í saumnálar og hefði um
47.000 starfsmenn á sínum snær-
um.
Ingersoll-Rand hefur m.a. séð
fyrir búnaði til borunar eftir vatni
á vegum hjálparstofnunar norsku
kirkjunnar í Eþíópíu og telja for-
ráðamenn þess, að mikill grund-
völlur sé fyrir notkun jarðbora frá
fyrirtækinu hér á landi, sem og
annarra tækja og áhalda ýmiss
konar.
IR rekur umfangsmikla rann-
sóknastarfsemi og útgáfustarf-
semi og í spjallinu við Koppang
kom fram að á síðasta ári varði
samsteypan andvirði u.þ.b. 90
milljóna dollara til rannsókna.
Sýnishorn nf loftverkfænim frá Ing-
ersoll-Rand.
Verzlunarráð Islands:
Hörður Sigurgestsson varaformaður
NÝKJÖRIN stjórn Verzlunarráðs ís-
lands kom saman til fyrsta fundar
mánudaginn 8. marz sl. A þeim
fundi var Hörður SigurgesLsson, for-
stjóri Kimskipafélags Islands, ein-
róma kjörinn varaformaður Verzlun-
arráðsins, en eins og kunnugt er, var
Ragnar S. Halldórsson, forstjóri ÍS-
AL, kjörinn formaður ráðsins á aðal-
fundi fyrr á árinu.
A fundi stjórnarinnar voru þrír
meðstjórnendur kosnir í fram-
kvæmdastjórn Verzlunarráðsins,
sem er auk þeirra skipuð af for-
manni og varaformanni. Kosnir
voru þeir Jóhann J. Ólafsson, stór-
kaupmaður, sem átti sæti í fram-
kvæmdastjórninni fyrir, Vil-
hjálmur Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri ísbjarnarins, og
Eggert Hauksson, framkvæmda-
stjóri Plastprents. Þeir Hjalti
Geir Kristjánsson, fráfarandi
formaður Verzlunarráðsins, og
Ólafur B. Ólafsson, framkvæmda-
stjóri, gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs í framkvæmdastjórn-
ina.
VIDEO VIDEO VIDEO VIDEO
Höfum fengiö mikiö úrval af myndefni í VHS mynd-
tæki. Leigjum einnig út myndsegulbönd. Kynniö ykk-
ur úrvaliö. Opiö mánud.—föstud. frá 14.30 til 20.30
laugard. og sunnud. frá 14 til 18.
VIDEOVAL
Hverfisgötu 49
Sími 29622
Fáskrúðsfirðingar og aðrir
Austfirðingar á Suðurlandi
halda sína árlegu vorskemmtun í Fóstbræöra-
heimilinu laugardaginn 3. apríi kl. 20.30.
Félasvist, skemmtiatriöi, kaffiveitingar. Dans.
Ágóöinn rennur til Styrktarfélags vangefinna á
Austurlandi.
Allir velkomnir. f Skemmtinefndin.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Síöumúla 13 — 105 Reykjavík. Sími 82970
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar neðangreindar
stööur viö Vinnueftirlit ríkisins:
Umdæmiseftirlitsmaður á
Suðurlandi
með aðsetri sem næst miðsvæöis í umdæminu.
Umdæmið nær yfir Árnes-, Rangárvalla- og Vest-
ur-Skaftafellssýslur. Krafist er staögóörar tækni-
menntunar, a.m.k. vélstjóra IV. stigs meö sveins-
prófi eöa jafngildrar menntunar auk starfsreynslu.
Umdæmiseftirlitsmaður á
Reykjanesi
meö aösetri sem næst miðvæðis í umdæminu.
Umdæmiö er Gullbringusýsla, Grindavik, Keflavík
og Njarövíkur. Krafist er staðgóörar tæknimennt-
unar, a.m.k. vélstjóra IV. stigs meö sveinsprófi eöa
jafngildrar menntunar auk starfsreynslu.
Umdæmiseftsirlitsmenn þurfa aö gangast undir
námskeiö sem haldin verða á vegum Vinnueftirlits
ríkisins.
Launakjör veröa samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir meö upplýsingum um menntun og
starfsreynslu, skulu sendar Vinnueftirliti ríkisins,
Síöumúla 13, Reykjavík, eigi síöar en 1. maí nk.
T^ífcamatlzacJutLnn
<^-lattLsg'ótu 12-18 sími
25252 (4 línutj
Mazda 626 1600 1979
Verö 90 þúsund.
Galant GLX 1979
Verð 110 þúsund.
Citroén CX 2000 1976
Verð 85 þúsund.
Honda Accord 1979
Verð 105 þúsund.
Blazer K5 1974
Verð 95 þúsund.
Mustang Mll 1974
Verð 55 þúsund.
BMW 518 1980
Verð 160 þúsund.
Volvo 245 st. 1978
Verð 125 þúsund.
Colt 1981
Verð 98 þúsund.
Mazda Rx 5 Cosmo 1976
Verð 90 þúsund.
Plymouth Valari St. 1979
Verð 160 þúsund.
Range Rover1974
Verð 125 þúsund.
Citroén GS 1977
Verð 65 þúsund.
Chevrolet Nova 2ja dyra
Concourse 1978
Verð 120 þúsund.
BMW 320 1978. Litur rauður, ek-
inn 69 þúeund, útvarp, snjó- og
sumardekk. Veró 120 þúsund.
Subaru 1800 st. 1981. Litur rauð-
ur, ekinn 19 þúsund. Verö 135
þúsund.
Toyota Corolla 1980. Litur blér,
ekinn 30 þúsund, sjáifskipt,
útvarp. Veró 100 þúsund.
Golf L8 1977. Litur gullsanz,
ekinn 78 þúsund, útvarp, snjó-
og sumardekk. Veró 78 þúsund.