Morgunblaðið - 16.04.1982, Side 1
56 SIÐUR
81. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982
Prentsmiója Morgunblaðsins.
Falklandseyjar:
„Allir vilja yfírgefa eyjarnar
áður en til átaka kemur“
Hosni Mubarak Egypta-
landsforseti og Ariel Sharon,
varnarmálaráðherra ísraeis,
á fundi í Kaíró í gærmorgun.
Þeir ræddust við í 90 mínút-
ur um deilumál landanna og
fyrirhugaðan brottflutning
Israelsmanna frá Sínaískaga.
Úrslitafundur Haigs í
Buenos Aires í dag
London, Washington, Buenos Aires, 15. aprík AP.
ALEXANDER Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt í dag frá
Washington í 16 tíma flugferð til Buenos Aires í annað sinn á
skömmum tíma til að revna að koma á sáttum í deilu Argentínu-
manna og Breta um Falklandseyjar. Margrét Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, sagði fyrir ferð Haigs, að fundur hans og ráðamanna
í Argentínu að þessu sinni myndi skipta sköpum í deilunni.
Brezka fréttastofan BBC hafði
það eftir hernaðarlegum heimild-
um í Argentínu í dag, að fjöldi
skipa í flota landsins hefði látið úr
höfn, en ekki kom fram hvort
skipin sigldu í suðurátt í átt til
Falklandseyja.
Brezka varnarmálaráðuneytið
sagði í dag, að vera kynni að arg-
entínsku skipin hygðu á áróðurs-
siglingu til að skapa hrifningu
heima fyrir, en þau myndu vart
hætta sér inn á 200 mílna svæðið
umhverfis Falklandseyjar, sem
Bretár hafa lýst hernaðarsvæði.
Brezki flotinn, sem siglir á
fullri ferð í átt til eyjanna, á nú
eftir tæplega viku siglingu á svæð-
ið. Fleiri skip og flugvélar hafa
verið sendar til liðs við flotann og
Nimrod-þotur brezka sjóhersins
fylgjast með svæðinu, sem flot-
inn siglir til. Hafa þoturnar aðset-
ur á Uppstigningareyju á Suður-
Atlantshafi, en hún er eign Breta.
Brezk herskip og kafbátar
hafa fyrirmæli um að skjóta að
fyrra bragði fari argentínsk skip
inn á hernaðarsvæðið við
Falklandseyjar.
Hópur fólks frá Falklandseyjum
kom til Bretlands í dag eftir að
Argentínumenn vísuðu þeim úr
landi. Hér var mest megnis um að
ræða embættismenn brezku
stjórnarinnar á eyjunum og fjöl-
skyldur þeirra. Dick Baker, vara-
ríkisstjóri á eyjunum, sagði við
komuna til London, að eyjaskeggj-
ar væru reiðir og sárir í garð arg-
entínska innrásarliðsins, en engin
átök hefðu orðið. Sagði hann að
Argentínumennirnir kæmu að
flestu leyti vel fram, en væru hins
vegar illa vistaðir og leituðu til
heimamanna um matvæli og
hefðu auk þess slátrað sauðfé íbú-
anna.
John Fowler, fræðslustjóri á
eyjunum, sagði í bréfi til foreldra
sinna, að allir þeir, sem eftir væru
á Falklandseyjum vildu komast
þaðan á brott áður en bardagar
um þær hæfust.
Kínverska stjórnin lýsti í dag
yfir stuðningi við málstað Argent-
ínu í deiiunni, en lét jafnframt í
ljós von um að ekki kæmi til bar-
daga. Sovézka fréttastofan Tass
sakaði Bandaríkin um að láta
stjórnast af eigingjörnum hvötum
í deilu þessari, sem lýsti sér í
óeðlilegum afskiptum af henni.
(Símarmnd AP.)
Bjartsýni ríkjandi um lausn
deilu Egypta og Israelsmanna
Jerúsalem, 15. apríl. AP.
Varnarmálaráöherra ísra-
els, Ariel Sharon, kom í dag
aftur til Jerúsalem eftir
stutta ferð til Kaíró, þar sem
hann átti vidræður við Mub-
arak Egyptalandsforseta og
aðra ráðamenn. Sharon sagði
við komuna til ísraels, að Eg-
yptar hefðu heitið sér að gera
breytingar á stöðu herliðs
þeirra á vesturhluta Sínaí-
skaga í samræmi við friðar-
samning ríkjanna.
Egyptar munu einnig senda
háttsettan yfirmann í hernum
til ísraels til að reyna að
stemma stigu við vopnasmygli
frá yfirráðasvæði Egypta á Sín-
aískaga til Palestínuaraba á
Gaza-svæðinu.
ísraelsmenn hafa undanfarið
sakað Egypta um brot á friðar-
samningi ríkjanna og gefið í
Brezka herskipið „HMS Fearless“, sem nú er í leið til Falklandseyja.
Harðir
bardagar
í Beirút
Beirút, 15. apríl. AP.
HAKDIK bardagar voru víðs veg-
ar í Beirút í dag og kvöld milli
vinstri sinnaðra stuðningsmanna
íraks og hins svokallaða „am-
al“-hóps, sem styður málstað fr-
ans í stríði landanna. Að sögn
lögreglu var vitað um 27
fallna í þessum átökum í borg-
inni og a.m.k. 80 særða. Barizt
var á ftmm stöðum í íbúðarhverf-
um og nálægt alþjóðaflugvellin-
um í Beirút.
Hóparnir tveir berjast um
völd innan hóps shííta meðal
múhameðstrúarmanna í land-
inu, en þeir munu um 950 þús-
und talsins. Barizt hefur verið í
16 þorpum í Suður-Líbanon
undanfarna daga og hafa bar-
dagarnir nú borizt til höfuð-
borgarinnar. Frelsissamtök
Palestínu, PLO, sem hafa höf-
uðstöðvar í Beirút, segjast vera
hlutlaus í þessum átökum.
Sprengja sprakk í dag í fjöl-
býlishúsi í Vestur-Beirút í dag
og fórust þar fimm manns,
þeirra á meðal hjón ásamt 11
ára dóttur þeirra. Upphaflega
var talið að maðurinn hefði
verið háttsettur innan PLO, en
lögreglan upplýsti siðdegis að
svo væri ekki, heldur væri
bróðir hins látna virkur í PLO.
skyn að þeir muni ekki láta af
hendi síðasta hluta Sínaískagans
25. apríl nk. eins og samningur-
inn gerir ráð fyrir. Hafa tvö
ofannefnd atriði einkum verið
nefnd í þessu sambandi.
Walter Stoessel, staðgengill
Haigs, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, átti í dag viðræður við
Begin, forsætisráðherra ísraels,
um mál þetta og sagðist að þeim
loknum vera vongóður um að
málið leystist farsællega.
Stoessel heldur á morgun til
Kaíró og mun hafa meðferðis
upplýsingar um önnur þau at-
riði, sem Israelsmenn hafa
kvartað undan varðandi fram-
ferði Egypta að undanförnu.
Nokkur bjartsýni virðist ríkj-
andi um að takast muni að leysa
öll vandamál fyrir 25. apríl. „All-
ir virðast á því, að vandamálin
séu le.vsanleg," sagði ísraelskur
embættismaður í dag.
Frakkland:
Fyrrum ráðherra
fyrirfór sér
París, 15. apríl. AP.
LOllIS de Guiringaud, sem var utan-
ríkisráðherra Frakklands á árunutn
1976—1978 fyrirfór sér í París í
morgun. Hann var 71 árs að aldri. De
Guiringaud skaut sig með byssu
sinni, en ekki er vitað um ástæður
verknaðarins, að sögn frönsku lög-
reglunnar.
Louis de Guiringaud átti að baki
langan og farsælan feril innan
frönsku utanríkisþjónustunnar og
var m.a. sendiherra landsins í
Ghana, Alsír og Japan auk þess
sem hann var sendiherra Frakka
hjá Sameinuðu þjóðunum
1972-1976.
Brottvikningu háskóla-
rektors mótmælt í Varsjá
Varsjá, 15. apríl. AP.
STUDENTAR og kennarar við há-
skólann í Varsjá lögðu niður vinnu í
15 mínútur í dag til að mótmæla því
að rektor skólans, Henryk Samson-
owicz, hefur verið neyddur til að
segja af sér. Afsögn Samsonowicz var
formlega samþykkt af stjórninni í
gær, en Samsonowicz, sem er þekkt-
ur sagnfræðingur, tók við embætti í
fyrra og var fyrsti rektorinn í landinu,
sem kosinn var í lýðræðislegri kosn-
ingu.
Yfirvöld í landinu höfðu ekki af-
skipti af mótmælunum í dag, en
háskólakennarar og stúdentar
safna nú undirskriftum til stuðn-
ings Samsonowicz. Rektornum
hafði áður verið vikið úr kommún-
istaflokknum fyrir að neita að
grennslast fyrir um skoðanir kenn-
ara skömmu eftir að herlög tóku
gildi í landinu í desember sl.