Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982 17 Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdasfjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakið. Flýtur fram á haust Yfirlýsingar forystumanna Framsóknarflokksins og Alþýðu- bandalagsins, starfshættir ráðherra og framganga stjórn- arsinna á Alþingi benda eindregið til þess, að í stjórnar- herbúðunum ríki sá andi, að rétt sé að vera við öllu búinn og þar með kosningum næsta haust. Hvorki Steingrímur Hermannsson né Svavar Gestsson slá því raunar föstu, að ríkisstjórnin sitji einu sinni fram á haust, því að báðir hafa þeir látið í það skína, svo ekki sé meira sagt, að úrslit sveitarstjórnakosninganna geti haft afdrifarík áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. í störfum sínum eru ráðherrar farnir að búa í haginn fyrir sig í eigin kjördæm- um — þeir eru hættir að líta yfir landið allt og farnir á atkvæða- veiðar hvort heldur um er að ræða leyfi til innflutnings á fiskiskipum, ákvarðanir um virkjanir eða iðnfyrirtæki. Þing- mönnum Alþýðubandalagsins er mikið kappsmál, að menn gleymi því ekki, að þeir séu „hernámsandstæðingar". Atkvæða- veiðar einstakra ráðherra leiða svo til þess að þeir lenda í átökum við þingmenn úr stjórnarliðinu, jafnt flokksbræður sem fulltrúa samstarfsaðila. Þegar þannig er komið fyrir ríkisstjórn, hefur hún ekki lengur innra þrek til að takast á við meiriháttar verkefni. Sú ríkis- stjórn, sem nú situr, hefur farið mjög illa með álit sitt meðal almennings og þann siðferðilega styrk, sem fjölmargir sýndust reiðubúnir að veita henni, ef skynsamlega yrði á málum tekið. Embættisgjörðir einstakra ráðherra síðustu daga og vikur ganga þvert á hugmyndir manna um siðferði í stjórnmálum. Almenningi er nú ljóst, að á bak við glansmyndina, sem stjórn- arherrarnir hafa reynt að draga upp, er óstjórn, ráðleysi og valdastreita. Meira að segja þeir, sem vörðu stjórnina og gerðu blað sitt, Dagblaðið, að málgagni hennar, lýsa því nú yfir, að ríkisstjórnin virðist vera að leysast upp og orð þeirra má skilja á þann veg, að farið hafi fé betra. Það hefur verið sérstakt einkenni þessarar ríkisstjórnar, að ráðherrarnir hafa alltaf látið eins og þeir hefðu ekki við nein alvarleg vandamál að stríða, þeirra helsta verkefni væri að láta alit eftir öllum, svo lengi sem nokkuð væri til skiptanna, raunar lengur, því að skuldir þjóðarbúsins í útlöndum hafa vaxið gífur- lega síðustu misseri. Lokaspretturinn i þessu kapphlaupi milli framsóknarmanna og kommúnista getur svo sannarlega orðið dýrkeyptur. Sviðsetningin er gamalkunn: Kommúnistar segja, að í þeim kjaraviðræðum, sem nú fara fram, verði að samþykkja kröfur verkalýðsins, auðvitað þoli þjóðarbúið það. Framsókn- armenn þegja þunnu hljóði um þetta en segja, að nýtt skref til niðurtalningar verði að taka í haust, eigi að ná verðbólgu- markmiði ríkisstjórnarinnar. Svikamyllan hefur sem sé verið sett upp. Kommúnistar ætla sér hins vegar að hlaupa úr stjórn- inni, áður en niðurtalningarskref framsóknarmanna er tekið og skella kjaraskerðingastimplinum á þá. Ýmsum framsóknar- mönnum hefur verið ljóst að hverju stefndi, en forystumenn flokksins hafa ekki þorað að taka af skarið og slíta stjórninni á réttu augnabliki fyrir sig, og nú er svo komið, að kommúnistar þykjast vera að ná vopnum sínum og eygja þá von helsta til að rétta eigin hlut að koma sem þyngstu höggi á Framsóknarflokk- inn. En þetta er síður en svo meginástæðan fyrir því, að ráðherr- arnir og stjórnarliðar búa sig undir kosningar í haust. Þetta verður tylliástæða kommúnista — síðan 1978 hafa þeir sannað, að þeim er sama um hag verkalýðsins, eftir að þeir hafa klifrað í ráðherrastólana upp eftir baki launþega. Hugmyndirnar um stjórnarslit í haust ráðast af því, að við blasir mikill óleystur efnahagsvandi og hætta á atvinnuleysi. Af hálfu ráðherra hefur ekkert verið gert til að búa þjóðina undir átök við þennan vanda — enda ætla þeir annarri ríkisstjórn að leysa hann. Vandanum er hins vegar lýst með ískyggilegum hætti í nýrri skýrslu Þjóð- hagsstofnunar um þróun þjóðarbúskaparins. Þar er því spáð, að í ár muni þjóðarframleiðsla dragast saman í fyrsta sinn síðan 1975, en samdráttinn megi rekja til minnkandi eða jafnvel stöðvunar loðnuveiða. Óhjákvæmilegt sé, að samdrátturinn hafi með einum eða öðrum hætti áhrif á atvinnuástandið. Síðan segir Þjóðhagsstofnun: „Þetta mun þó væntanlega ekki skýrast fyrr en með haustinu og mun ráðast mjög af framvindunni næsta vetur, þar sem sumarið er jafnan mikill annatími við fram- kvæmdir." Núverandi stjórnarherra skortir pólitískt hugrekki og getu til að takast á við þennan vanda og vilja ganga til kosninga, áður en hann skellur á, þess vegna hugsa þeir í lengsta lagi fram á haust. Bæjarþing Reykjavíkur: Ríkið sýknað af kröfu um endurgreiðslu fjár — til Lífeyrissjóðs Verkfræðingafélags íslands FYRIR skömmu féll dómur í bæjar- þingi Reykjavíkur, þar sem umsjón- arnefnd eftirlauna, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, voru sýknaðir af kröfu Lífeyrissjóðs Verkfræðingafélags íslands um endurgreiðslu fjár sem sjóðurinn greiddi samkvæmt lögum nr. 97/1979 þar sem hann telur, að greiðsluskylda þessi brjóti í bága við 67. grein stjórnarskrárinnar og skattlagningin því óheimil. Málavextir eru þeir, að með lögum um eftirlaun til aldraðra nr. 97/1979, sem tóku gildi 1. janúar 1980, eru ákvæði þess efn- is, að allir lífeyrissjóðir, sem ekki eiga aðild að samkomulagi ASÍ og VSÍ frá 22. júlí 1977, skuli leggja fram 5% af bókfærðum iðgjaldatekjum sínum og skal fénu varið til greiðslu eftirlauna þeirra, sem ekki greiddu fé til líf- eyrissjóða né voru í stéttarfélög- um en eru komnir á eftirlauna- aldur. Svokallaðir „samkomu- lagssjóðir" skulu einnig leggja fram 5% af bókfærðum tekjum sínum til greiðslu eftirlauna þeirra, sem eru í stéttarfélögum tengdum lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóður Verkfræðingafé- lags íslands greiddi kr. 153.546 til Umsjónarnefndar eftirlauna, en jafnframt mótmælti sjóðurinn kröfunni sem rangri og ólöglegri og gerði kröfu til endurgreiðslu á fjárhæðinni með hæstu vöxtum, dráttarvöxtum. Áskilinn var rétt- ur til málshöfðunar til endur- greiðslu fjárins. Stefnandi taldi, að ákvæði 25. gr. 1. mgr. 2. tl. laga nr. 97/1979 um eftirlaun til aldraðra fái ekki staðizt. Um sé að ræða skattlagn- ingu, sem brjóti í bága við ákvæði 67. gr. stjórnarskrárinnar. Skattiagningin brjóti í bága við jafnréttisreglu íslenzks réttar. Stefndu héldu því fram, að lög- in nái til allra starfandi lífeyr- issjóða í landinu og því sé ekki um mismunun að ræða, þvert á móti, því skattlagning hinna svokölluðu „samkomulagssjóða" gæti orðið verulega hærri en nemur þeim 5% sem lögð eru á aðra sjóði, þar á meðal Lífeyris- sjóð Verkfræðingafélags íslands. Sú þróun hefur orðið hér á landi í lífeyrismálum, að tryggja öllum landsmönnum, sem hafa haft ákveðnar lágmarksatvinnu- tekjur, rétt til lágmarkslífeyris- greiðslna til viðbótar þeim eftir- launum sem Almannatryggingar greiða og var setning laga nr. 97/1979 liður í þessari þróun. Fjár til þessara lífeyrisgreiðslna hefur verið aflað m.a. með því að skattleggja starfandi lífeyrissjóði í landinu. I dómsforsendum segir m.a.: „Þótt sá orðalagsmunur sé í lög- unum að skattur þeirra lífeyris- sjóða sem getið er í 24. grein lag- anna skuli renna til greiðslu upp- bótar á lífeyri, en skattur þeirra lífeyrissjóða sem getið er um í 2. tl. 1. mgr. 25. gr. laganna skuli renna til að standa undir kostn- aði af greiðslu eftirlauna og upp- bótar á þau, þykir skattheimtan vera sama eðlis í báðum tilvikum og sömuleiðis er hún jöfn að hlutfalli. Skattheimtan skoðuð út af fyrir sig þykir vera grundvöll- uð á málefnalegum sjónarmiðum og ná með sama hætti til allra sem skattlagðir eru. Skattlagn- ingin nær jafnt til allra þeirra aðila í landinu sem starfa á sams konar eða svipuðum grundvelli, þ.e. lífeyrissjóðanna. Ekki verður annað séð, en líf- eyrissjóðunum hafi fyrst og fremst verið formlega skipt í tvo hópa samkvæmt lögunum og það byggist á sögulegum forsendum, en ekki efnislegum." Og ennfrem- ur: „Þrátt fyrir þennan mun á ráðstöfun skattfjárins verður ekki séð að hlutur stefnanda og hliðstæðra lífeyrissjóða sé verri eða þungbærari hvað snertir skattlagninguna og skattbyrðina en annarra lífeyrissjóða í land- inu, eða þessi mismunandi ráð- stöfun skipti máli að öðru leyti.“ Dómsorð hljóðaði svo: „Stefndu, Umsjónarnefnd eftir- launa, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðhera og fjármálaráð- herra f.h. ríkissjóðs skulu vera sýknir af kröfum stefnanda, Líf- eyrissjóðs Verkfræðingafélags ís- lands í máli þessu." Friðgeir Björnsson, borgar- dómari, kvað upp dóminn. Lög- maður Lífeyrissjóðs Verkfræð- ingafélags Islands var Ragnar Aðalsteinsson, hrl., en lögmaður Umsjónarnefndar eftirlauna, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var Gunnlaugur Claessen, hrl. Tuttugu íslenskir listmálarar: Hafa stofnað „Félag málara“ Tuttugu listmálarar komu saman til fundar í Reykjavik í gærkveldi og stofnuAu með sér félag er þeir nefna „Félag málara". Stofnendur eru tut- tugu listmálarar, þeirra á meðal marg- ir kunnustu listmálarar þjóðarinnar, svo sem þeir Svavar Guðnason, Þor- valdur Skúlason, Jóhannes Jóhannes- son, Einar Kaldvinsson, Kjartan Guð- jónsson, Einar Hákonarson og fleiri. Stjórn Félags málara var kjörin á stofnfundinum í gærkvöldi, og skipa hana eftirtaldir: Einar Þorláksson formaður, Ilafsteinn Austmann ritari og Sigurður Örlygsson gjaldkeri. Tilgangur hins nýja félags mun vera að vinna að hvers konar hags- munamálum málara, líkt og félag grafíklistamanna og fleiri félög gera. Flestir stofnendanna eru fé- lagar í Félagi ísl. myndlistar- manna, FIM, og hyggjast vera það áfram, og á stofnfundi Félags mál- ara kom fram sú skoðun fundar- manna að ekki væri ætlunin að stefna hinu nýja félagi gegn FÍM á neinn hátt. Félagið taki sem fyrr segir fyrst og fremst til hagsmuna- mála málara og sérmála þeirra, og vinni að sýningum innanlands og utan. Lög félagsins og nánari stefna verða á hinn bóginn rædd á fram- haldsfundi félagsins innan tíðar. Mjög misjafn afli: 4 Eyjabátar þó með 40 tonn eftir nóttina VERTÍÐIN hefur farið misjafnlega á stað eftir að bátar lögðu net á ný eftir veiðibannið i páskavikunni. Sumstað- ar er afli með ágætum, en á öðrum stöðum er afli frekar tregur. Nokkrir Vestmannaeyjabáta voru með 40 tonn á miðvikudag og margir voru með góðan afla í gær, en þó var afli ekki talinn eins góður og sömu sögu er að segja frá Þorlákshöfn. Af Snæ- fellsnesi er það að frétta, að þar er afli almennt tregur og Olafsvíkurbát- ar voru að landa 5—6 lestum í gær. Margir Vestmannaeyjabáta voru með góðan afla á miðvikudag og fjórir bátar, Álsey, Bjarnarey, Gullberg og Sæbjörg, voru með 40 tonn eftir nóttina. Þá voru tveir bátar með yfir 30 tonn, en einstaka bátur var með lítinn afla. Vestmannaeyjaskipstjórar voru almennt ekki eins kátir í gær, en um sexleytið voru þó komnir 2 bát- ar til hafnar með um og yfir 20 tonn. Var annar þeirra Þorkell Björn, sem er aðeins 15 rúmlestir að stærð. Afli Þorlákshafnarbáta var mis- jafn í gær og í fyrradag. Stór hluti flotans var með lítinn afla, en nokkrir voru með 30—40 tonn. í Ólafsvík var hæsti bátur með 11,5 tonn eftir nóttina, en almennt voru bátarnir að landa 5—6 tonnum eft- ir nóttina. Víetnamarnir: Kannað hvað dreif á daga þeirra í Kanada „Það er verið að kanna þetta mál fyrir okkur núna, fyrir milligöngu Rauða krossins i Kanada, og niður- staðan úr því kemur væntanlega nú öðru hvoru megin við helgi,“ sagði Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Kauða kross íslands, í samtali við Morgunblaðið í gær. Jón var spurður hvað gert yrði í máli víetnömsku flóttamannanna, sem á sínum tima hurfu sporlaust i Kanada, þar sem þeir voru í leyfi frá íslandi. Jón taldi varla nokkur áhöld um að þeim yrði leyft að snúa aftur til Islands, en þó hefði verið ákveðið að kanna málið nánar, og þá sérstak- lega hvað drifið hefur á daga fólks- ins í Kanada. Leiguskip Eimskips Ljóxmynd Mbl. KAX. Þetta 7 þúsund tonna flutningaskip kom til Hafnarfjaröar á dögunum á vegum Eimskips með rafmagnsstaura fyrir Rafmagnsveitur ríkisins í svonefnda Suöurlínu. Ennfremur voru með í ferðinni ýmsar rekstrarvörur fyrir fslenzka álfélagið. Hvað segja þeir um skyldusparnaðarfrumvarpið? í TILEFNI af frumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem lagt var fram á Alþingi í gær, um 6% skyldusparnað á skatttekjur og sagt er frá á baksíðu blaðsins í dag, sneri Mbl. sér til fulltrúa stjórnmálaflokkanna í fjárveitinganefnd Alþingis og spurði þá álits á frumvarpinu. Þess má geta að Geir Gunnarsson, fulltrúi Alþýðubandalagsins, vildi ekki tjá sig um málið á þessu stigi, en vísaði á fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds. Ekki tókst að ná sambandi við fjármálaráðherra í gærkvöldi. Þá var einnig rætt við Sigurð E. Guðmundsson, framkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar ríkisins. Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar: Fyrst og fremst ætlað til að greiða yfirdráttarlán „ÉG TEL að þessari nýju spariskatt- lagningu sé fyrst og fremst ætlað að gera Húsnæðisstofnun ríkisins kleift að borga sem mest af 40 milljóna króna yfirdráttarláni í Seðlabankan- um, sem við eigum að öðrum kosti mjög erfitt með að greiða og væri vart unnt nema skera stórlega niður lán- veitingar," sagði Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Hús- næðisstofnunar ríkisins, er hann var spurður hvernig þessu fjármagni yrði ráðstafað. Hann sagði að í öðru lagi væri ætlunin að veita 25% hærri lán til þeirra sem eru að byggja í fyrsta sinn, en það yrði þó að vera innan ramma lánsfjáráætlunar, og hugs- anlega einnig til að mæta minni skuldabréfasölu til lífeyrissjóðanna. Þá mætti einnig minna á, að skyldur sparnaður ungs fólks verður hugs- anlega minni á þessu ári en ráðgert væri. Sigurður sagði síðan: „Ég held að flestir reikni með því að það náist ekki jafn mikið fjármagn úr skulda- bréfasölunni til Byggingarsjóðs verkamanna og Byggingarsjóðs ríkisins eins og ríkisvaldið hefur gert ráð fyrir í lánsfjáráætluninni. Þá er fjármagnsþörf sjóðanna miklu meiri en lánsfjáráætlunin telur sig hafa tryggt stofnuninni. Það er búið að negla þetta niður og síðan ber stofnuninni að haga sér í samræmi við það. Við erum einmitt að ræða það þessa dagana hvernig við snúum okkur í málinu. Okkur sýnist fljótt á litið að miðað við óbreytta útlána- starfsemi, þá muni kostnaðaraukinn af þessari 25% hækkun til þeirra sem byggja í fyrsta sinn ekki verða nema 6—7 millj. kr. á þessu ári, en síðan kæmi sú prósentuhækkun á með miklum þunga á næstu árum." Lárus Jónsson alþingismaður: Kemur til viðbótar gífurlegum sköttum „í DAG vantar um 90 milljónir króna til rekstrar húsnæðismálakerfisins og sá fjárskortur er algjörlega óbrúað bil. Þessi 6% skyldusparnaður sýnist mér í raun girða gjörsamlega fyrir það að fólk vilji leggja á sig að vinna. Hann hefur það í för með sér, að jaðarskatt- urinn, ásamt þessum skyldusparnaöi verður rúmlega 70%, þegar hæsta skattþrepi er náð. Skyldusparnaðurinn kemur því til viðhótar gífurlegum skattaálögum og virkar því sem skattahækkun," sagði Lárus Jónsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði einnig: „Fyrir það fyrsta þá er búið að taka af almenna íbúðalánakerfinu þá mörkuðu tekju- stofna sem það hafði. Áður gengu 2% af 3,5% launaskatti til Bygg- ingarsjóðs ríkisins, auk annarra skatta. Það má áætla að þessar tekj- ur hefðu nú numið um 220 til 250 milljónum króna. Þetta fjármagn rennur nú í ríkishítina og ríkissjóð- ur skilar aðeins rúmlega 100 millj- ónum króna af þessum 220 til 250.“ Lárus sagði að afnám áðurtalinna tekjustofna hefði átt sér stað í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þá sagði Lárus einnig að benda mætti á, að íbúðabyggingum hefði mjög fækkað síðustu árin og nefndi hann sem viðmiðun að árið 1977 eða 1978 hefðu ný lán verið um 1.900 að tölu. í dag vantaði hins vegar 90 milljónir króna upp á til að unnt væri að fjármagna lán til 1.100 íbúða. Halldór Ásgrímsson alþingismaður: Fjárþörf Byggingarsjóðs miklu meiri „ÞETTA eru tiltölulega mjög lágar fjárhæðir, eða samtals um 35 millj. króna og sparnaðurinn kemur aðeins á um 5% skattgreiðenda. Það liggur því fyrir aö það eru tiltölulega fáir sem koma til meö að greiða þennan skyldusparnað og Ijóst að einhver hluti þessa fólks hefði lagt þessa pen- inga fyrir með öðrum hætti, þó það sé ekki hægt að fullyrða hversu mikið það er,“ sagði Halldór Ásgrímsson þingmaður Framsóknarflokksins. Aðspurður um hvort þessi upp- hæð kæmi til með að bjarga fjár- hag Byggingarsjóðs sagði hann: „Þetta mun ekki að mínu mati bjarga fjárhag Byggingarsjóðs, fjárþörf hans er miklu meiri en þessu nemur, en það mun hins veg- ar bæta hann og það er afskaplega mikilvægt að allra mati. Þá eru all- ir sammála um það að nauðsynlegt sé að hækka lán til þeirra sem eru að byggja í fyrsta skipti. Það er eitt mesta vandamál þjóðfélagsins í dag vegna breyttra kjara á lánum, að styðja við bakið á fólki, sem er að byrja búskap. Hvernig eigi að afla fjármagns til þess er aftur á móti hlutur sem má endalaust deila um.“ Sighvatur Björgvinsson alþingismaður: Ný skattheimta, sama hvað hún er kölluð „í FYRSTA lagi er það okkur ekk- ert nýtt, að Byggingarsjóður ríkis- Arásarmaðurinn við Skúlagötu: Hefur misþyrmt gömlu fólki á hrottalegan hátt MAÐUR sá sem réðst á sof- andi mann í íbúð sinni við Skúlagötu aðfararnótt mið- vikudags hefur áður gerzt sekur um alvariegar líkams- árásir, þá gegn öldruðu fólki. Afbrotaferill hans hófst árið 1972, en þá var hann kærður fyrir líkamsárás á móður sína. Maður þessi heitir Sævar Arnfjörð Hreiðarsson, 28 ára gamall. Árið 1975 braust hann inn á heimili aldraðrar konu í miðbæn- um. Konan, sem var 79 ára göm- ul, hafði lagt sig, en vaknaði við að maður var í íbúðinni. Hann réðst á hana, tók hana kverkataki og herti svo að hálsi hennar, að henni lá við köfnun. Hann sló hana með krepptum hnefa í and- litið og krafðist peninga af henni. Konan lét hann hafa það fé, sem hún hafði handbært, en það var ekki mikið, og krafðist hann þá meira fjár og hóf að leita að verð- mætum í íbúðinni. Konan freist- aði þess, að komast í síma, en þá hrinti hann henni á baðkar, tók hana kverkataki og ógnaði henni með hnífi og hótaði henni lífláti. Jafnframt sló hann hana með krepptum hnefa í andlitið, en fór þegar honum skildist að ekki var meira fé að hafa. Konan hlaut áverka á andliti og marðist illa á hálsi og hlaut áverka á líkama. Síðar sama ár réðst maðurinn á gamla konu *í Þingholtunum. Hann tók konuna kverkataki og lamdi hana í andlit þannig að hún fékk glóðarauga. Konan marðist illa á hálsi og handlegg. Hún náði að hrópa á hjálp og komu ættingjar henni til aðstoð- ar og flýði þá árásarmaðurinn. í marz 1977 réðst maðurinn á svívirðilegan hátt á 84 ára gaml- an mann. Hann bankaði upp á heimili mannsins í Vesturbænum og bað um vatnsglas. Gamli mað- urinn rétti honum vatnsglas, en þá heimtaði maðurinn fé og gerði tilraun til að hrifsa veski gamla mannsins, sem veitti mótspyrnu. Árásarmaðurinn greip þá til kaffikönnu og barði gamla mann- inn hvað eftir annað í höfuðið svo hann skarst illa á höfði og andliti og missti meðvitund auk þess að hann handleggsbrotnaði. Þegar gamli maðurinn komst til með- vitundar réðst árásarmaðurinn á hann á nýjan leik og hélt hinum ljóta leik áfram, svo hann missti meðvitund á ný. Gamli maðurinn missti mikið blóð, blóðslettur voru um alla veggi og stórir blóð- pollar á gólfi. Árásarmaðurinn skildi við gamla manninn meðvit- undarlausan og hélt á braut með féð sem í veskinu var. Gamli maðurinn komst til meðvitundar og náði að kalla á hjálp, en litlu mátti muna að hann hefði látið lífið. Árásarmað- urinn var í leyfi frá Litla Hrauni til að vera við jarðarför ættingja í Reykjavík, hvað hann ekki gerði. Fyrir þessa árás var maðurinn dæmdur í fjögurra ára fangelsi. í febrúar síðastliðnum var hann látinn laus til reynslu, en átti þá eftir að afplána 570 daga af refsi- vistinni. Hann hefur að undan- förnu verið í sukki og svínaríi. Skömmu áður en hann réðst með kaffikönnu á manninn við Skúla- gptu, hafði hann stolið vínflösk- um á veitingahúsi hér í borg og auk þess hafði hann stolið ávísun á benzínstöð. Samkvæmt heim- ildum sem Mbl. aflaði sér hefur 41 kæra borizt á manninn frá 1972 fyrir mismunandi afbrot; líkamsárásir, innbrot, þjófnað og ávísanamisferli. Hann hefur nú verið sendur á ný á Litla Hraun. ins sé fjárþrota. Við sáum það strax fyrir þegar frumvarpið var sam- þykkt og vöruðum fulltrúa Alþýðu- sambands fslands mjög rækilega við því. Nú er það komið í Ijós að Bvggingarsjóður getur ekki sinnt lögskipuðum verkefnum sínum og þá er farið út á þessa braut. í ann- an stað er þetta ný skattheimta, sama hvaða nafni hún er kölluð," sagði Sighvatur Björgvinsson, for- maður þingflokks Alþýðuflokksins, er hann var spurður álits. Sighvatur sagði einnig: „Þessi nýi skattur þýðir, að þegar skattgreiðandi er korninn í hæsta skattþrep, sem komist er í með venjulegar meðaltekjur, þá er hann farinn að greiða um 73 aura af hverri krónu sem hann vinnur sér inn til ríkissjóðs. í stað þess að snúa svolítið ofan af þessum háa jaðarskatti sem við Álþýðu- flokksmenn höfum varað við, þá erum við að komast upp í jað- arskattheimtu sem er 73% og það finnst mér nokkuð mikið. Þetta er sem sagt frumvarp um nýja skattheimtu. Mér finnst furðulegt að vera að leggja þetta fram svona á síðustu dögum þingsins og sé ekki hvernig menn ætla að fá svo stórt og umdeilt mál afgreitt á svo skömmum tíma,“ sagði Sighvatur að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.