Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982 3 Skattar til sveitarfélaga hafa hækkað SKATTBYRÐIN hefur þyngst undanfarin ár. Á þessu súlu- riti, sem byggt er á upplýsingum í skýrslu fjármálaráðherra til Alþingis um ríkisfjármál 1981, er sýnd hlutfallsleg hækkun álagðra skatta sveitarfélaga á einstaklinga á árun- um 1977 til 1981. Súla 1 sýnir hlutfallið miðað við tekjur fyrra árs en súla 2 hlutfallið miðað við tekjur þess árs, þegar skattarnir eru greiddir Sveitarfélögin leggja útsvar og fasteignaskatta á einstakl- inga. Skattbyrðin þyngist greinilega á milli áranna 1979 og 1980, en í febrúar 1980 varð Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, félagsmála- ráðherra og eftir það var rýmk- uð heimild sveitarfélaga til að leggja á útsvar ekki síst fyrir eindregin tilmæli flokksbróður ráðherrans, Sigurjóns Péturs- sonar, forseta borgarstjórnar Reykjavíkur. Sé litið til Reykjavíkur hafa vinstri flokkarnir hækkað fast- eignagjöld á íbúðarhúsnæði úr 0,421% í 0,5%. Og með laga- breytingunni, sem þeir Svavar Gestsson og Sigurjón Pétursson stóðu að saman, var hægt að hækka útsvör úr 11% í 11,88%. Á því súluriti, sem hér birtist eru gatnagerðargjöld ekki talin með, en síðan 1978 hafa þau verið hækkuð tvívegis í Reykja- vík og í bæði skiptin langt um- fram verðbólgu. Álagbir skattar sveitarfélaga á einstaklinga 1977 til 1981 10,1 f _/ _/ yj 5%. 1 2 1977 1 % af tekjum fyrra árs 2 % af tekjum greiðsluárs 102 10,5 _/ 6,4 yj 11,2 ff _/ 7,2 1 2 1978 1 2 1979 _/ _/ / 1 2 1980 11,2 _/ 1 2 1981 Fyrirsætukeppni Ford Models: 70 stúlkur skráðar GÍFURLEG þátttaka er í fyrirsætu- keppni þeirri sem Ford Models i Bandaríkjunum gengst fyrir hér á landi og tízkublaðið Líf annast fram- kvæmd á. Að sögn Katrínar Pálsdóttur, rit- stjóra Lífs, rann umsóknarfrestur út fyrir nokkru og alls tilkynntu tæplega 70 stúlkur þátttöku. Er unnið að því að mynda stúlkurnar en úrslitakeppnin er áformuð í júní- byrjun. Sigurvegarinn fær vegleg verð- laun og öðlast þátttökurétt í keppn- inni um fyrirsætu Ford Models, en sú keppni fer fram í Bandaríkjunum seinna á árinu. Lóðaúthlutun Reykjavíkurborgar: Um 240 lóð- ir næstu ár „Hve margar lóðir verða til úthlut- unar á vegum borgarinnar á næsta ári?“ sagði I)avíð Oddsson borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á fundi borgarstjórnar í gærkveldi og beindi hann spurningu sinni til borgar- stjóra. I svari sínu sagðist borgarstjóri viðurkenna að hann hefði ekki þessa tölu á hraðbergi. Hins vegar gat hann þess að Selássvæðið svokallaða væri í vinnslu, en þar kæmu til úthlutunar um 400 lóðir á næstu árum. Davíð Oddsson sagði að kynlegt væri að borgarstjóri vissi ekki nákvæmlega um hve margar lóðir væri að ræða. Spurt hefði verið um, hve margar lóðir borgin hefði til ráðstöfunar. Þær væru ekki 400 eins og borgarstjóri segði, heldur um 240, því að Gunnar Jensson, sem átt hefði umrætt landsvæði, ætti sjálfur 160 lóðir, og um þær hefði borgin ekkert að segja. Þing Landssambands iðn- verkafólks hefst í dag: Kjara- og atvinnumál á dagskrá ÞING Landssamabands iðnverka- fólks hefst í dag klukkan 14.00 með þingsetningu og ávarpi gesta. Síðan leggur kjörbréfanefnd fram skýrslu sína og forseti þingsins verður kos- inn, þingritari og nefndir. Þingið mun standa í tvo daga, föstudag og laug- ardag. Að sögn Bjarna Jakobssonar, formanns Iðju í Reykjavík og rit- ara Landssambandsins, verða helztu mál þingsins kjaramál og atvinnu- og iðnaðarmál. Síðan verða einnig tekin fyrir öryggis- mál, iðnþróun og atvinnuöryggi og stefnan í iðnaðarmálum rædd. Er- indi á þinginu flytja Björn Björns- son frá Alþýðusambandi Islands og Sigurður Guðmundsson. Þá er áætlað að á þinginu verði tekin ákvörðun um samskipti við nor- ræna fataiðnaðarsambandið og hvort Landssamband iðnverkafólks gerist aðiii að því. Reiknað er með því að ályktanir um kjara- og at- vinnumál verði gefnar út á þinginu. Stærsta aðildarfélag Landssam- bands iðnverkafólks er Iðja, sem á 29 fulltrúa af 40 á þinginu. Nýtt Lotus Discret 5 mm á þykktina, en hefur samt alla sömu eiginleika og þykkari bindi Gamla reglan var þessl: n. Þykkara btndi - aukið oryggi " + aukln óþægindi. Én ekki lengur. ■‘Jr' ' » »: Það er samt ótrúlegt, að 5 mm ‘1 1 r bindi geti verið sambaerilegt við ^ ^ W1 venjulegt 15 mm bindi. tí' \ Engu aó siöur er þaö staðreynd, ■—jr ♦ að Lotus discret gerir fullkomlega m.. fi sama gagn og bindi af gömlu gerð- 9^7 ’ inni. . 'v _ ‘ > r* Svarið er að finna i'sérstakri Jggv Hr.'ZþS efnasamsetningu bindisins, sem r v’ír: * -V." 3 7 hefur þann eiginleika, að draga í sig 20 falda þyngd sina af vökva. ■- . 3% — og þlasthúðuð bakhlið eykur ‘ • I ’-m ' \ 2“* " enn 3 öryggið. Yfirborðið er úr ’ ný/u, fínofnu og mjúku trefjalagi, • jpsMfeJ®':. ^ \ sem heldur efsta lagi bindisins ótrúlega þurru, og gerir það mun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.