Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982 Minning: Loftur Einarsson Höfn í Höfnum Fæddur 3. september 1916 Dáinn 9. apríl 1982 Að morgni langafrjádags lést Loftur Einarsson, Höfn í Höfnum, i sjúkrahúsinu í Keflavík, eftir stutta legu þar. Andlát hans þurfti þó engum að koma á óvart, sem til þekktu. Arum saman hafði hann barist við þann sjúkdóm, sem læknavísindin standa enn ráðþrota gegn, krabbameinið. Nokkrum sinnum á ári hverju hélt hann til Noregs, þar sem læknar reyndu að halda aftur af sjúk- dómnum. Þótt hann fengi ávallt nokkurn bata í þessum ferðum hallaði þó stöðugt undan fæti. Síð- ustu ferðina þangað fór hann upp úr áramótum. Þá mun hafa verið ljóst að sjúkdómurinn væri búinn að ná þeim tökum að hann yrði ekki lengi heítur. Loftur kom fár- sjúkur heim og dvaldist eftir það í húsi sínu í Höfnum, eins lengi og kraftar hans leyfðu og lengur þó. I sjúkrahúsinu var hann aðeins i nokkra daga. Loftur var sérstæður maður, sem ekki gleymist þeim er kynnt- ust honum. Lífshlaup hans var óvenju fjölskrúðugt og munu þeir fáir, sem hafa kynnst fleiri hliðum mannlegs lífs en honum auðnað- ist. Hugmyndaauðgi hans var með fádæmum. Það var sama hvert hann fór, hvort heldur var um heljarslóð Norður-Atlantshafsins, stríðshrjáð lönd Evrópu, barbarí Norður-Afríku eða heimaslóðir, alls staðar sá hann tækifærin í kringum sig og greip þau oftar en hitt. Hitt er svo önnur saga að veiðin var oftar sýnd en gefin og þótt hann á stundum höndlaði bæði auðæfi og hamingju vildi hvort tveggja úr greipum ganga. Hann var maður augnabliksins, framkvæmdi það sem honum datt í hug þegar það var unnt, en fylgdi ekki ávinningnum eftir, enda oftast farinn að hugsa um næsta leik áður en hinum var lokið. Það sem okkur, er kynntumst Lofti á efri árum hans, verður minnisstæðast er hin fádæma frásagnargleði hans. Ég held að engum, sem heyrði hann segja frá ævi sinni gleymist það. Jafnvel þótt menn gleymi því hvað hann sagði, minnast menn hans sjálfs, frásagnargáfa hans var svo sér- stök að maðurinn verður ógleym- anlegur hennar vegna. Loftur Einarsson var fæddur í Reykjavík 3. september 1916. For- eldrar hans voru hjónin Einar Olafsson og Þórstína Gunnars- dóttir. Hann var ættaður ofan úr Skilmannahreppi, hún austan af Djúpavogi. Bernskuár sín lifði Loftur í Reykjavík, en meðan hann enn var ungur að aldri fluttu foreldrar hans upp í Borgarnes. Einar faðir hans var lengi bryti á áætlunarskipum milli Reykjavík- ur, Akraness og Borgarness, Ing- ólfi, Skildi og Suðurlandi, en áður hafði hann verið kokkur á fiski- skipum. Loftur vandist ungur við hvers kyns störf til sjós og lands. Þegar að því kom að velja lífsstarfið kaus hann matsveinsstarfið, en síðar fór hann einnig í Loftskeyta- skólanum og starfaði sem loft- skeytamaður í síðari heimsstyrj- öldinni. Um haustið 1941 kvæntist hann Asthildi Guðlaugsdóttur pósts Sigmundssonar á Akureyri. Þau bjuggu í all mörg ár á Akur- eyri en fluttust siðan til Borgar- ness. Á meðan þau áttu heima á Akureyri var Loftur langdvölum að heiman, meðal annars í þrjú ár í Grimsby í Englandi, þar sem hann hafði atvinnu af því að að- stoða íslenska sjómenn við inn- kaup þeirra á árunum eftir stríðið, þegar vöruþurrðin var sem mest hér heima. Þau Ásthildur eignuð- ust fimm börn, Viðar, Sigríði, Þórhildi, Guðlaugu og Einar, og eru þau öll á lífi og hið mannvæn- legasta fólk. Þótt leiðir þeirra Ásthildar skildu eftir nokkurra ára dvöl í Borgarnesi, eftir að Loftur hvarf af landi brott að nýju, bar hann ávallt mjög hlýjan hug til hennar og talaði ávallt um hana með mikilli virðingu. Það voru örlögin sem sköpuðu þeim skilnað og við því var ekkert að gera, fremur en öðru í lífi hans. 25 Aftur lagði Loftur í langa út- legð, að þessu sinni í átta ár og leið hans lá víða. Að þeim loknum kom hann aftur heim, enda hafði hann þá kennt þess sjúkdóms, er að lokum lagði hann að velli. í áratug barðist hann við manninn með ljáinn, sem ávallt hefur síð- asta orðið, þótt á stundum takist að hefta för hans. Síðustu ár ævi sinnar bjó hann í Höfnum. Þar kunni hann ákaflega vel við sig. Þessi mikli ævintýramaður, sem hafði alltaf verið á ferðinni allt sitt líf mat kyrrðina og friðinn þar suður frá svo mikils að hann ákvað að fara þaðan ekki. Þar verður síðasti hvílustaðurinn hans við sjávarnið og sjófuglaklið. Haf- ið var lengst af hans starfsvett- vangur og ómar þess munu um- lykja hann í hvíldinni löngu. Að leiðarlokum langar mig til að flytja Lofti Einarssyni hugheil- ar þakkir fyrir kynnin, sem ég hefði kosið að yrðu miklu lengri. Ég þakka honum fyrir skemmti- legar stundir, sem aldrei munu gleymast, og ekki síður fyrir mörg holl ráð hins lífsreynda manns, er gjarna flutu með. Ég þakka hon- um fyrir hreinskilni hans og hreinskiptni, og ég minnist sér- stæðs umburðarlyndis hins ann- ars örgeðja manns, sem einkenndi viðhorf hans til samferðamann- anna. Aðstandendum hans öllum votta ég samúð mína. Magnús Bjarnfreðsson Minning: / Guðný Jónsdóttir fv. veitingakona Fædd 5. ágúst 1910. Dáin 5. apríl 1982. Um þessar mundir er landið að brjótast úr viðjum klakabanda, og hið eilífa kraftaverk náttúrunnar birtist okkur enn einu sinni, þegar gróðurinn tekur við sér á ný með hækkandi sól. Kraftaverkin í líf- inu eru mörg og misstór, og stund- um eru þau unnin af einstakling- um, sem lyfta björgum, að manni finnst, því að þau eru unnin við aðstæður, er virðast óyfirstígan- legar. Það einkenndi einmitt líf þeirrar ágætiskonu, sem kvödd er í dag, að hún framkvæmdi við- fangsefni, sem sum hver virtust óleysanleg, en óvenjulegur vilja- styrkur og þrautseigja fleytti henni yfir mörg sker og skilaði henni ávallt heilli í höfn. Guðný Jónsdóttir, sem fædd var að Melum í Fljótsdal 5. ágúst 1910, var vissulega mikil baráttukona allt sitt líf. Enda varð hún að vera það, allt frá því, að hún kornung stúlka, föðurlaus, var send í vinnumennsku á sveitaheimili á Norðfirði. Faðir hennar, Jón Mikaelsson, siðast bóndi að Una- ósi í Norður-Múlasýslu, var þá nýlátinn, og ekkjan, Árnfríður Eð- valdsdóttir, stóð ein uppi með sex börn, en Guðný var þeirra næst- elzt. Heimilið leystist upp og börn- in voru send hvert í sína áttina. Móðirin tók eitt barnanna með sér, og Guðný, sem þá var á ellefta ári, fór með yngsta bróður sinn með sér í vinnumennskuna og sá fyrir honum. Það sýnir, að snemma axlaði hún ábyrgð, og það hafa sagt mér önnur systkini hennar, að hún hafi ekki látið sér nægja að sinna yngsta barninu, heidur hafi hún fylgzt með hinum systkinunum líka og látið aðbúnað þeirra sig varða. Snemma komu því fram þeir eiginleikar, sem einkenndu hana síðan allt hennar líf, sjálfsbjarg- arviðleitnin og hjálpsemin við aðra. Þeir urðu síðar margir, sem hún tók upp á sína arma og skaut skjólshúsi yfir, skyldir og óskyld- ir. Sérstaklega nutu barnabörnin og barnabarnabörn hlýju hennar og voru aufúsugestir á heimili hennar. Ekki er ólíklegt, að kröpp og erfið kjör í bernsku hafi gert Guð- nýju Jónsdóttur að þeirri félags- hyggjukonu, sem hún síðar varð. Hún fékk snemma áhuga á stjórn- málum og skipaði sér í sveit með þeim, sem börðust fyrir réttindum verkafólks og annarra, sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Hún var alla tíð ófeimin að tjá sig og vílaði ekki fyrir sér að nota síldartunnur fyrir ræðustól og hvetja til verk- falla, ef hún taldi sig og sam- verkafólk sitt beitt órétti. Lengi sat í henni atvik, er átti sér stað á Norðfirði, þegar móðir hennar var ranglega svipt atkvæðisrétti í kosningum. Við slíkar aðstæður herðist fólk, sem einhver dugur er í. Síðar á ævinni ritaði Guðný fjöl- margar greinar í dagblöð um hin margvíslegustu þjóðfélagsmál. Ekki minnkaði áhugi hennar á stjórnmálum, er hún hitti verð- andi eiginmann sinn, Ingimund Bjarnason. Skoðanir þeirra á stjórnmálum fóru saman, og svo mikill var áhuginn, að til þess var tekið, að á kvöldi brúðkaupsdags- ins skruppu brúðhjónin á þing- málafund, sem haldinn var í ná- grenninu. Þau Guðný og Ingi- mundur voru gefin sama á Seyð- isfirði 1931 og héldu upp á gull- brúðkaup sitt á síðasta ári. Saman eignuðust þau eina dóttur, Gróu Valgerði, sem lézt fyrir tæpum fjórum árum og varð þeim mikill harmdauði. Áður hafði Guðný eignazt eina dóttur, Helgu Sæ- mundsdóttur, sem Ingimundur gekk í föðurstað. Guðný og Ingimundur hófu búskap sinn á Seyðisfirði og bjuggu þar til ársins 1935. Þá fluttust þau suður til Keflavíkur og síðar til Reykjavíkur, en um alllangt skeið bjuggu þau á Sel- tjarnarnesi. Stundaði Ingimundur sjómennsku, unz hann hóf §törf hjá Vélsmiðjunni Héðni. Guðný hóf snemma afskipti af veitingarekstri. M.a. starfaði hún í Verzlunarmannaheimilinu í Von- arstræti og síðar í félagsheimilinu Miðgarði á Þórsgötu. Síðar keypti hún og rak matsölu í mörg ár í Aðalstræti 12. Gekk sá rekstur vel, enda var Guðný mjög útsjón- arsöm. Var þó ekki selt dýrt. Mat- urinn var heimilislegur og margir viðskiptavina hennar félitlir skólapiltar og einhleypir verka- menn. Er ekki ofmælt, að hún hafi annast marga þeirra eins og þeir væru úr hennar eigin fjölskyldu. Á aðfangadagskvöldum var matsala hennar jafnan opin og var þá oft margt um manninn, sem áttu sín einu jól hjá henni. Á þessum árum tók Guðný mik- inn þátt í störfum félags starfs- fólks á veitingahúsum. Gerðist hún formaður félagsins 1956 og gegndi formennsku til ársins 1962. Matsölustaðinn seldi hún 1966, en þá hafði hún keypti 'jörðina Vatnsenda í Villingaholtshreppi. Þar stundaði hún búskap næstu árin með miklum myndarbrag. Árið 1973 hætti hún búskap og tók þá við búinu Ingimundur Berg- mann, dóttursonur þeirra. Má geta þess, að mjólkurframleiðslan þótti jafnan til fyrirmyndar á Vatnsenda og hlaut hún viður- kenningu hjá Mjólkurbúi Flóa- manna. Síðustu árin bjó Guðný manni sínum vistlegt heimili í Skipholti 40. Var þar jafnan gestkvæmt. Guðný stundaði ýmis störf meðan heilsan leyfði, m.a. á sjúkraheim- ili Rauða krossins, kaffistofu Þjóðviljans og frystihúsi Bæjarút- gerðar Reykjavíkur. Fyrir fjórum árum veiktist hún af sjúkdómi þeim, er síðar dró hana til dauða. En þrátt fyrir erf- iðan sjúkdóm, var kjarkurinn óbil- andi. Og lengi trúði hún ekki öðru en hún kæmist yfir veikindi sín. Henni fannst, að hún ætti svö margt eftir ógert, og hugurinn var sístarfandi og leitandi að nýjum verkefnum. Hvað eftir annað lagð- ist hún í sjúkrahús. Og eftir stutta dvöl á heimili sínu um síðustu jól og áramót, lagðist hún aftur inn og átti ekki afturkvæmt heim. Hún lézt í Borgarsjúkrahúsinu 5. apríl sl. Að leiðarlokum vil ég þakka kynnin við Guðnýju Jónsdóttur. Hún hafði vissulega mikil áhrif á alla þá, er henni kynntust og um- gengust hana. Baráttuhugur hennar var slíkur, að hún hlaut að hrífa fólk með sér. Ómæld eru áhrif hennar á yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Missir þeirra er mikill. Mestur er þó missir Ingi- mundar eiginmanns hennar, sem stóð við sjúkrabeð hennar ómæld- ar stundir síðustu mánuðina í veikindastríði hennar. Sú saga segir meira en mörg orð um sam- band þeirra. Blessuð sé minning Guðnýjar Jónsdóttur. Alfreð Þorsteinsson Mótmæla fullyrðing- um Páls Péturssonar Athugasemd frá nokkrum Seylhreppingum Við mótmælum þeim fullyrð- ingum Páls Péturssonar, sem hér fara á eftir og lýsum því yfir, að hvað okkur snertir eru þær staðlausir stafir. Á Alþingi þann 31. mars sl. sagði Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins meðal annars, að Blöndusamn- ingum hefði verið „böðlað áfram með óeðlilegum hætti, heima- menn beittir miklum og óeðli- legum þrýstingi, einstakir hreppsnefndarmenn hundeltir, skuldugum bændum hótað og leiguliðar hins opinbera látnir vita hvern veg þeir ættu að haga sér“. Þar sem við undirritaðir erum „leiguliðar hins opinbera" þykir okkur ástæða til að taka eftir- farandi fram: Það er fjarri öllum sanni, að opinberir aðilar eða einstakl- ingar hafi beitt þrýstingi, hótun- um eða öðrum óheiðarlegum að- ferðum í þá veru að vinna okkur til fylgis við samninga þá um Blönduvirkjun, sem þegar hafa verið samþykktir og undirritaðir af samninganefndum hreppanna og hins opinbera. í þeim málum sem öðrum höf- um við farið eftir eigin skoðun- um og sannfæringu og engan lát- ið segja okkur fyrir um „hvern veg við ættum að haga okkur“. Stefán Haraldsson, Víðidal, Sigurður Oskarsson, Krossanesi, Jóhann Gunnlaugsson, Víðimýri, Jón Gissurarson, Víðimýrarseli, Hlífar Hjaltason, Víðiholti. EFÞAÐER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU WELEDA SNYRTIVORUR tyrir alla fjölskylduna: afa, ömmu, pabba, mömmu og börnin. Weleda hreinar snyrtivörur, unnar á lífrænan hátt úr jurtum og blómum. Engin gerviefni, litar- eöa geymsluvarnarefni. Jurtasnyrtivörur meö lífgandi og græöandi eiginleika, unnar á vísindalegan hátt í Weleda lyfjaverksmiöjunum. Nætu,- og dagkrem, hreinsimjólk og hreinsikrem. Sólkrem í sérflokki. Gigtarolíur, baöolíur, sápur, hárvötn og hárolíur, tannkrem, munnskol, krem eftir rakstur og barnasnyrtivörur, ásamt margskonar teum. Einu sinni weieda, aiitaf Weieda. Weleda-kynning m.m. á Broadway 20. apríl nk. u________%r Leifsgötu 32. Heildsölubirgöir. PUmSlind Póstsendum. Sími 12136.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.