Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982 5
„Á hreindýraslóðum“ sýnd á
ráðstefnu Skotveiðifélagsins
Seyðisfjörður:
Brotist inn á skrif-
stofur kaupfélagsins
Liðlega 44 þús. kr. stolið Málið enn óupplýst
SKOTVEIÐIFÉLAG íslands heldur
aðalfund sinn á morgun, 17. apríl að
Hótel Esju, en í tengslum við aðal-
fundinn verður að vanda efnt til
ráðstefnu. Að þessu sinni fjallar
ráðstefnan um hreindýr, að sögn
Sverris Scheving Thorsteinssonar,
formanns félagsins.
— Aðalfundurinn hefst klukk-
an 09.30, en ráðstefnan síðan
klukkan 14.00. Á ráðstefnunni
mun Eðvard Sigurgeirsson, ljós-
myndari frá Akureyri, sýna þátt-
takendum kvikmynd sína „Á
hreindýraslóðum", en þessi mynd
er mikill kjörgripur, sagði Sverrir
ennfremur.
— Myndin er reyndar fáséð og
einstök heimild um íslenzku
hreindýrin á þeirra heimaslóðum.
Eðvarð Sigurgeirsson fór nokkrar
ferðir á hreindýraslóðir á sinum
tíma með Valtý Péturssyni, rit-
höfundi og tók ljósmyndir og
kvikmyndir af hreindýrum.
Nokkrar af ljósmyndum Eðvarðs
hafa birzt í bók þeirra Valtýs „Á
hreindýraslóðum", sagði Sverrir.
Á ráðstefnunni mun Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri,
flytja erindi, sem hann nefnir
„Hreindýr og hreindýraveiðar.
— Eftirlit með hreindýrum og
skipulagning á veiðum þeirra er í
höndum menntamálaráðuneytis-
ins og hefur Birgir Thorlacius haft
yfirumsjón þeirra mála á vegum
ráðuneytisins um árabil. Fæstir
munu því kunnari öllum málefn-
um varðandi hreindýr en Birgir,
sagði Sverrir ennfremur.
Það kom fram hjá Sverri, að
Skotveiðifélag íslands var stofnað
23. september 1978, en markmið
félagsins er að vinna skotveiðum
verðugan sess meðal útilífsíþrótta
með góðri meðferð skotvopna,
góðri siðfræði veiðimanna, góðri
umgengni um land og lífríki og
góðum samskiptum við landeig-
endur.
UM 44 ÞÚSUND krónum var stolið
á skrifstofum Kaupfélagsins á Seyð-
isfirði aðfaranótt páskadags. Þjófur-
inn spennti upp glugga og komst
þannig inn í skrifstofurnar.
Hann braut upp peningaskáp og
tók fé sem í honum var. Hins veg-
ar var ekki hreyft við ávísunum,
sem í skápnum voru.
Rannsókn málsins er í höndum
bæjarfógetans á Seyðisfirði, en
leitað hefur verið eftir samvinnu
og aðstoð Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Haustið 1979 var brotist inn á
skrifstofur Kaupfélagsins á Seyð-
isfirði og fé stolið, mun það hafa
verið svipuð upphæð og nú reiknað
til dagsins í dag. Það mál er enn
óupplýst.
—C'rkfrHMA i þ^rnaí'fiö^...
KARNABÆR
Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti 22.
Sími frá skiptiboröi 85055
Umboðs-
menn um
land allt
Cesar — Akureyri, EpBð
— ísafiröi, Eyjabær —
Vestmannaeyjum, Fata-
val — Keflavík, Horna-
bær — Hornafirði,
Álfhóll — Siglufirði,
Óðinn — Akranesi, Ram
— Húsavík, Bakhúsið —
Hafnarfiröi, Austurbær
— Reyöarfirði, Kaupfél.
Rangæinga Hvolsvelli,
Sparta — Sauðárkróki,
Skógar — Egilsstöðum,
ísbjörninn — Borgar-
nesi, Lea — Ólafsvík,
Lindin — Selfossi,
Paloma — Vopnafirði,
Patróna — Patreksfiröi,
Báran — Grindavík,
Bjólsbær — Seyöisfirói,
Þórshamar — Stykkis-
hólmi, Inga — Hellis-
sandi, Aþena — Blöndu
ósi.