Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.04.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982 SAAB reynsluekið norður við heimsskauts- baug í Finnlandi Texti og myndir: Sighvatur Blöndahl „l>AÐ MÁ ekki bjóða þér i smáökuferð með Krik ('arlsson um isbrautina, þannig að þú kynnist því hvern- ijf atvinnumaðurinn ber sig að?“ l>að var Hilding John- son, sölustjóri SAAB á Norðurlöndum, sem bar þessa sakleysislegu spurningu upp við mig, þar sem við vorum staddir á isakstursbraut, sem SAAB- verksmiðjurnar höfðu útbúið í nágrenni finnsku borgarinnar Rovani- emi, sem stendur við Heimsskautsbauginn, fyrir skömmu. I'angað hafði verið boðið blaðamönnum frá Norðurlöndunum, auk nokkurra starfsmanna SAAB, til Hann þandi bílinn, sem var af SAAB 900 Turbo gerð upp í um 170 km hraða þrátt fyrir þá stað- reynd, að aðeins 200-300 metrum framar var nánast 90 gráðu beygja. Ég var alveg sannfærður um, að minn tími væri kominn þegar bíllinn kom á ofsaferð inn i beygjuna, en það gerðist ekkert annað en, að Erik hélt sínu striki og kom á réttum kili út úr beygjunni. Var mig að dreyma, eða hvað? Nei, það sat einfaldlega snillingur undir stýri, sem kunni sitt fag. Þarna á ísbrautinni gerði „gamli maðurinn" ýmsa þá hluti, sem ég hélt einfaldlega, að ekki væri hægt að gera á bíl. Á einum beina kaflanum á isnum þeytti hann bílnum upp í um 200 km hraða. Tók sig síðan til og tók nokkrar S-beygjur, sem ég var sannfærður um, að myndu enda utan brautar. Það var í raun að- dáunarvert á fylgjast með hvernig Erik nýtti eiginleika bílsins til fullnustu og eftir að hafa ekið nokkrar hringi á brautinni var maður farinn að njóta þess, að fylgjast með þessum snillingi. Érik sagði í samtali við Mbl., að hann hefði alla tíð ekið á SAAB bílum, fyrst á gömlu 96 bilunum, og síðan 99 og seinni árin væri hann á 900 Turbo, þótt hann væri reyndar hættur keppa fyrir mörg- um árum. Heima í bílskúrnum sagðist Erik eiga gamla SAAB 96-bílinn, sem hann hefði unnið flesta sigra sína í rallakstri á. „Hann vekur alltaf upp gamlar og góðar minningar," sagði Erik ennfremur. Það kom ennfremur fram í viðtalinu, þótt ótrúlegt sé, að SAAB-verksmiðjurnar hafa aldrei sérsmíða bíl fyrir hann til keppni. „Þeir hafa einfaldlega þess að reynzluaka hinum ýmsu gerðum af SAAB. Nú ég svaraði þessari spurningu Hilding auðvitað játandi, enda fannst mér það mjög spennandi, að skreppa i ökuferð með einum frægasta rallökumanni allra tíma, en til fróðleiks þá sigraði Erik í Monte Carlo rallakstr- inum fræga tvö ár í röð fyrir um 20 árum. Mér brá því óncitanlega, þegar „gamli maðurinn" gaf allt í botn og hentist af stað á ísbrautinni. Ég hugsaði með mér, að maðurinn hlyti að vera orðinn eitthvað skrítinn. treyst sinni framleiðslu fullkom- lega og ég er þeim alveg sam- mála,“ sagði Erik ennfremur. Hilding Johnson, sölustjóri SAAB á Norðurlöndunum, sagði í samtali við Mbl., að Erik Carlsson væri nokkurs konar fljúgandi sendiherra SAAB. Hann hefði bú- ið í Englandi síðustu 20 árin, enda giftur enskri konu. „Hann tekur síðan þátt í okkar kynningarstarfi víðs vegar um heiminn, m.a. fer hann með menn í ökuferðir til að kynnast eiginleikum bílsins til hins ítrasta. Reyndar teljum við þetta beztu aðferðina til að kynna bílinn." Eftir að menn höfðu skroppið í ökuferð með Erik, fékk hver sinn bíl til umráða til reynzluaksturs. Ég fór fyrstu hringina á SAAB 900 Turbo með venjulegum snjó- dekkjum, án nagla. Menn fóru sér hægt til að byrja með, meðan þeir voru að venjast brautinn, sem var töluvert erfið á köflum. Bíllinn svaraði mjög vel á ísnum og komu kostir framdrifsins berlega í ljós. Þyngdarhlutfallið í bílnum er mjög gott þegar ekið er í snjó og á ís. Þunginn er góður á framhjól- unum og því er mjög auðvelt að nýta framhjólseiginleikana við að ná bílnum út úr kröppum beygj- um. Eins og ég sagði fór ég fyrstu ferðina á SABB 900 Turbo, en hann er með um 145 hestafla vél. Forþjappan fer ekki í gang fyrr en við 1.700 snúninga á vélinn, en þá er líka eins og bíllinn fái víta- mínsprautu. Við hið raunverulega afl vélarinnar bætast um 30 hest- öfl, sem kemur þeim upp í liðlega 175 hestöfl. Bíllinn er samkvæmt upplýsingum SAAB um 8,9 sek- úndur, að ná 100 km hraða, þannig að ekki þarf að kvarta yfir afl- leysi. Þegar ekið var á mikilli ferð inn í krappar beygjur kom aukaaflið í góðar þarfir við að ná bílnum út úr þeim á sómasamlegan hátt, en við samanburð á venjulegum SAAB, t.d. SAAB 99, kom mis- munurinn vel í ljós. í svona ís- akstri fannst manni vanta tölu- verðan kraft í hann og átti maður fullt í fangi með að halda honum inni á brautinni til að byrja með. Það verður hins vegar að taka fram, að auðvitað voru aðstæður þarna alls ekki eins og fólk á að venjast, þannig að það væri ekki sanngjarnt að segja, að afl vantaði við venjulegar aðstæður, enda kom í ljós við aksturs SAAB 99 úti á þjóðvegum, að hann svaraði mjög vel. Á ísbrautinni kynntist maður svo þeim mikla mun, sem er milli hinna einstöku dekkjagerða og mismuninum á því, að aka á nagladekkjum og ónegldum dekkj- um. Það var eins og koma á nýjan bíl, þegar ég fór af Turboinum ónegldum yfir á negldan sams konar bíl. Það reyndist auðvelt, að leika hinar ýmsu listir á bíinum og það var kannski þá fyrst, sem maður áttaði sig á hvernig Erik Carlsson gat leikið sér á bílnum áður, og það verð ég að segja, að næsta vonlaust hefði verið að leika þessar listir á afturdrifsbíl. Það er gífurlegur munur þar á. I því sambandi má auðvitað skjóta inn, að á næsta ári er talið, að 70—80% allra bandarískra bíla verði komnir með framdrif og framdrif er vaxandi í evrópskum. Það má því kannski segja, að SAAB hafi verið á undan sinni samtíð hvað þetta varðar, því hann hefur alla tíð verið framdrif- SAAB Friction Tester er sérhannaður til þess að mæla bremsuskilyrði k flugbrautum. Rætt hefur verið um að fá slíkan bíl á Keflavíkurflugvöll. SAAB 900 Turbo. Inni í hinum nýja SAAB 900 CD, sem er lengri en eldri gerðir. Eins og sjá má er mjög gott pláss fyrir farþega aftur í. inn, eða í liðlega aldarfjórðung. Eftir að hafa ekið nokkrum Turbo-bílum fannst manni heldur lítið til þess koma, að stíga upp í hina „venjulegu“ SAAB-bíla, sem menn fenguð auðvitað að reyna. Turbofiðringurinn fór þó fljótt af og eftir nokkra hringi þótti manni bara ágætt að hendast áfram á ísnum á þessum „venjulegu". Það sem vakti mesta athygli mína varðandi SAAB 900 bílana, var að bera saman 900 GLE og svo 900- GAS, þ.e. bíl, sem var nákvæm- lega eins útfærður og venjulegur GLE bíll, nama hvað hann gekk fyrir gasi. Ég átti frekar bágt með að trúa því, þegar SAAB- menn- irnir sögðu, að enginn munur finndist á vinnslu GLE bílsins og GAS bílsins. Það kom hins vegar í . ljós við samanburð, að svo var. GAS-bíllinn vann hreint ótrúlega vel. SAAB-mennirnir sögðu, að mjög vaxandi markaður væri fyrir gasbíla, enda væri það í dag mun ódýrara eldsneyti, heldur en benz- ín. Sérstaklega hefðu Mið- Evrópubúar sýnt þeim bílum mik- inn áhuga. Hingað til íslands hef- ur hins vegar enginn GAS bíll ver- ið fluttur, enda gas hér á tiltölu- lega háu verði. Aðalgallinn og kannski sá eini við gasbílinn er sá, að gaskúturinn tekur stóran hluta farangursrýmisins. SAAB 99, sem í dag er eingöngu framleiddur í verksmiðjum SAAB í Finnlandi, stendur alltaf fyrir sínu, enda gamall og góður. Hann hefur verið framleiddur lítið breyttur allt frá árinu 1969, þegar hann kom fyrst á markaðinn. SAAB-mennirnir sögðu enn ekki hafa verið tekna neina ákvörðun um að hætta framleiðslu hans, enda seldist hann ennþá mjög vel. „Það má hins vegar gera ráð fyrir, að hann verði ekki í framleiðslu mikið lengur en svona þrjú ár til viðbótar," sagði Hilding Johnson, sölustjóri SAAB á Norðurlöndun- um. Annars var það einkum eitt at- riði, sem vakti athygli við SAAB- bílana, sama hvaða útfærslu var um að ræða, fyrir utan góða akst- urseiginleika, sem lýst hefur ver- ið, en það er hinn frábæri frá- gangur, sem er á innréttingu bíls- ins. Það hefur í raun orðið bylting í þeim efnum á síðustu árum. það er mjög auðvelt að stíga inn í bíl- ana, hvort heldur þeir eru 2ja eða 4ra dyra. Þá er rýmið fyrir öku- mann mjög gott, sömuleiðis far- þegann í framsætinu. Sumir hafa hins vegar kvartað yfir rýminu fyrir farþegana í aftursætinu og sagt fótarými ekki nægjanlegt. Það má auðvitað deila um það, en fyrir stórt fólk er ekki mjög þægi- legt að sitja aftur í SAAB-bílun- um, frekar en öðrum bílum af svipuðum stærðarflokki. I sambandi við lítið rými aftur í SAAB, þá kynntu þeir hjá SAAB nýjan endurhannaðan SAAB, sem nefnist SAAB CD, en hann er nokkru lengri, en eldri gerðir af 900 gerðinni. Fótarými fyrir far- þega eykst stórlega og er hann raunverulega kominn í flokk með með svokölluðum „límúsínum", enda sögðu þeir SAAB-menn, að þeir ættu helzt von á að þessi nýi CD-bíll myndi seljast til sendiráða og stofnana, en minna til einstakl- inga, enda kostar hann töluvert miklu meira, heldur en venjulegur SAAB. Við skoðuðum svokallaðan SAAB Friction Tester, en það er sérsmíðaður SAAB til að mæla m.a. bremsuskilyrði á flugbraut- um og er hann reyndar eini bíll sinnar tegundar í heiminum. Fram til þessa hefur þurft að not-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.