Morgunblaðið - 16.04.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982
15
Karpov
tapar fyrir
krökkum
(’hichester, 15. apríl. AP.
KARPOV heimsmeisUri í skák beið
lægri hlut fyrir fjórum ungum brezk-
um skákmönnuum, þ. á m. yngsta
þátttakandanum, er hann tefldi
hraðskák við 25 efnilegustu skák-
menn Breta af yngri kynslóðinni.
„Ég er ekki almennilega búinn
að átta mig á því að ég hafi lagt
heimsmeistarann að velli. Ég tók
af honum tvö peð í tveimur leikj-
um og hann átti sér ekki viðreisn-
ar von upp úr því,“ sagði Edward
Lee, 14 ára skólapiltur, sem
neyddi Karpov til uppgjafar í 43
leikjum.
Karpov varð einnig að lúta í
lægra haldi fyrir John Richard-
son, Alan Byron og John Cox, en
þeir eru 18—20 ára. Fjölteflið stóð
yfir í 6% klukkustund og vann
Karpov 11 skákir, 10 lauk með
jafntefli, en hann tapaði fjórum,
eins og fyrr segir. Karpov sagðist
ekki hafa teflt jafn erfitt fjöltefli
um dagana, og aldrei hlotið jafn
slæma útreið.
Frá gossveðinu umhverfis El Chiconal í SA-Mexíkó. Mexíkanskur hermaður stendur vörð um eitt yfírgefnu
þorpanna í nágrenni eldfjallsins, sem látið hefur í sér heyra með reglulegu millibili undanfariö og valdið
gífurlegu tjóni.
Finnum fjölgar
HeLsinki, 15. apríl. AP.
SAMKVÆMT skýrslum fínnsku
hagstofunnar voru Finnar 4.811.391
talsins um síðastliðin áramót og
hafði því fjölgað á árinu um 24.575.
í Finnlandi urðu 63.586 fæð-
ingar árið 1981 og 44.411 andlát.
Frá útlöndum sneru 15.799 Finnar
heim, flestir frá Svíþjóð, og 10.399
manns fluttust af landi brott.
Atvinnuleysi í
Hollandi eykst
llaag, 15. apríl. AP.
Atvinnuleysingjum í Hollandi
fjölgaði í síðasta mánuði í 482 þús-
und, eða 11 prósent vinnufærra
manna, og hafa þeir ekki verið
fleiri frá lokum seinni heimsstyrj-
aldar. Atvinnulausir karlar eru
331.800 og atvinnulausar konur
150.200. Fjölgaði atvinnulausum
körlum um 14.900 í marz-mánuði
og konum um 2.900.
Fimm morðingjar
Sadats teknir af lífi
Kairó, 15. apríl. AP.
FIMM öfgasinnar, sem þátt tóku í morðtilræðinu við Anwar Sadat
forseta, voru líflátnir í dögun, tveir voru leiddir fyrir aftökusveit og
þrír hengdir.
Hosni Mubarak forseti greiddi fyrir aftökunum með því að hafna
beiðni um að morðingjunum yrði hlíft við lífláti. Verjendur morð-
ingjanna hafa gagnrýnt Mubarak fyrir þessa ákvörðun, og ættingjar
fímmmenninganna hafa krafízt þess fyrir dómstólum að fá afhent
lík þeirra, en morðingjarnir voru greftraðir í ómerktum grafreitum
strax eftir aftökurnar.
Tvímenningarnir, sem leiddir
voru fyrir 10 manna aftökusveit á
skotsvæði hersins fyrir utan
Kairó, voru Khaled Ahmed
Shawki El-Islambouly lautinant í
landhernum og leiðtogi morðtil-
ræðisins 6. október, og undirfor-
ingi í varasveitum hersins, Huss-
ein Abbas Mohammed. El-Islam-
bouly var hinn rólegasti og fór
með bænir fyrir aftökuna, en Mo-
hammed var óstyrkur og óskaði
einskis á síðustu mínútum sínum í
tölu lifenda. Þeir voru líflátnir
með 15 mínútna millibili.
Hinir þrír voru hengdir með 30
mínútna millibili í fangelsi í
Kairó. Tveir þeirra voru óbreyttir
borgarar, sem voru í lánsbúning-
um við tilræðið, og hinn þriðji
Abdel-Salam Farrag Atteya,
meintur leiðtogi öfgasinnaðra mú-
hameðstrúarmanna, Al-jihad
(heilagt stríð). Síðasta ósk eins
þremenninganna var að skuldir
hans yrðu greiddar, og áður en
Atteya var leiddur í gálgann bað
hann um að fá að skrifa konu
sinni bréf, þar sem hann hvatti
hana til að finna sér nýjan mann.
Þremenningarnir sýndu allir still-
ingu áður en hert var að heng-
ingarólinni.
Ingrid Bergman
berst við krabba
London, 15. apríl. AP.
AÐ SÖGN brezka blaðsins „Daily
Mirror“ er sænska leikkonan
Ingrid Bergman alvarlega veik af
krabba og berst hún fyrir lífi sínu.
Umboðsmaður Bergman í London
neitaði að ræða við blaðamenn um
veikindi leikkonunnar eða segja
hvar hún væri niðurkomin. Um-
boðsmaður hennar í New York
sagði hana við slæma heilsu, en
óljóst hversu alvarleg veikindi
hennar væru.
Evening Standard í London
hafði hins vegar eftir vini leik-
konunnar síðdegis, að hún væri
„við hestaheilsu, en svolítið
þunglynd vegna allra ósönnu
fréttanna um heilsu hennar".
Mjög náinn vinur Bergman-
fjölskyldunnar í New York sagði
hins vegar í dag, að Bergman
hefði þjáðst af krabbameini í sjö
ár, og væri undir læknishendi af
þeim sökum. Hún hefði dvalizt
öðru hverju á sjúkrahúsi upp á
síðkastið, en væri nú á heimili
sínu í Lundúnum.
í nýútkominni ævisögu sinni
viðurkennir Ingrid Bergman að
hún hafi átt í stríði við brjósta-
krabba. Varð að fjarlægja bæði
brjóstin með skurðaðgerð, hið
fyrra 1974 og hið seinna 1979. Er
hún nú sögð þjást af krabba
þriðja sinni.
Ingrid Bergman
Pólskir stórskotaliðsmenn bisast með fallbyssu, sem notuð er gegn
skriðdrekum. Myndin er tekin við æfíngar við Varsjá fyrir skömmu, er
herir Varsjárbandalagsins æfðu þar hernaðarlist undir kjörorðinu „Vin-
átta '82“. Þess má geta að hlaupvídd fallbyssunnar eru tíu sentimetrar.
140 farast í páskaumferð
Kómaborg, 15. apríl. AP.
YFIRVÖLD á Ítalíu skýrðu frá því
að 140 manns hefðu týnt lífí í um-
ferðaróhöppum um bænadagana. Á
sömu fimm dögum í fyrra fórust 114
í umferðarslysum á Ítalíu.
Talið er að jafngildi 32.870
milljóna bíla hafi ekið um þjóð-
vegi Ítalíu um páskana, miðað við
26.110 milljónir í fyrra. Yfir 1,5
milljónir útlendra ferðamanna
heimsóttu Italíu um páskana að
þessu sinni, og er það met.
ÍSLANDS
Lestun í erlendum
höfnum
AMERIKA PORTSMOUTH
Mare Garant 16. april
Junior Lotte 30 apríl
Mare Garant 10. mai
Junior Lotte 21. mai
Mare Garant 31. mai
NEW YORK
Mare Garant 20. april
Mare Garant 12. mai
Mare Garant 2. juni
HALIFAX
Selfoss 17. april
Hofsjökull 10. mai
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Alafoss 19. april
Eyrarfoss 26. april
Alafoss 3. mai
Eyrarfoss 10. mai
ANTWERPEN
Alafoss 20. april
Eyrarfoss 27. april
Alafoss 4. mai
Eyrarfoss 11. mai
FELIXSTOWE
Alafoss 21. april
Eyrarfoss 28. april
Alafoss 5. mai
Eyrarfoss 12. mai
HAMBORG
Alafoss 22. april
Eyrarfoss 29. april
Alafoss 6 mai
Eyrarfoss 13. mai
WESTON POINT
Helgey 4. mai
Helgey 18. mai
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 26. april
Dettifoss 10. mai
Dettifoss 24. mai
KRISTIANSAND
Mánafoss 19. april
Manafoss 3. mai
Manafoss 17. mai
MOSS
Manafoss 20. april
Dettifoss 27. april
Manafoss 4 mai
Dettifoss 11. mai
GAUTABORG
Manafoss 21. april
Dettifoss 28. april
Manafoss 5. mai
Dettifoss 12. mai
KAUPMANNAHÖFN
Manafoss 22. april
Dettifoss 29. april
Mánafoss 6. mai
Dettifoss 13. mai
HELSINGBORG
Manafoss 23 april
Dettifoss 30 april
Mánafoss 7 mai
Dettifoss 14. mai
HELSINKI
Irafoss 19. april
Mulafoss 5. mai
RIGA
Irafoss 21 april
Mulafoss 7. mai
GDYNIA
Irafoss 22. april
Mulafoss 8. mai
HORSENS
Irafoss 26. april
Mulafoss 10 mai
THORSHAVN
Mánafoss 29 april
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
trá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá iSAFIRÐI alla þriöjudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SlMI 27100