Morgunblaðið - 16.04.1982, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982
Elín Thoraren-
sen Minningarorð
Kædd 30. júní 1948
Iláin 6. apríl 1982
ViA skulum »*kki vula.
Vílid t*niían ba*lir.
\ iA skulum þrcyja «i» þola
þart. s« m okkur maiir.
Ircysla l.uAi oj» j»cynia
j»oll oj» saklausl hjarta.
ollu illu j»k*yma
clska hi«V fajjra oj» hjarta.
Ilcrdís Andrcsdóltir.
Þannig orti langamma Eínar
Thorarensen, þegar hún leit yfir
farinn veg á efri árum sínum.
Margt felst í þessu annars auð-
skilda erindi, sem vel á við, þegar
éjí minnist stjúpdóttur minnar við
leiðarlok, rifja upp minningar lið-
inna samverustunda, og lít til
stuttrar ævi hennar En áhersla
skal hér löíjð á örfáa þætti og
minnst þess, sem einkennandi var
við skaphöfn hennar og daglega
framkomu meðan við enn fengum
að hafa hana meðal okkar.
Elín Thorarensen var glæsileg
kona, har höfuðið hátt, gekk létt-
um, hröðum skrefum og einarðleg
í fasi, svo samferðafólk veitti
henni athygli. Hún vandaði mál-
far sitt, hafði hreina og skæra
rödd. Las mikið bundið sem
óbundið mál, þegar ástæður henn-
ar leyfðu. Sjálf var hún skáld-
mælt, kastaði fram léttum stökum
á glöðum stundum í vinahópi, en
sem eru því miður gleymdar. Hún
hafði næmt eyra fyrir hljómfalli,
rími og söng og naut þess að
syngja í hópi góðra vina.
Einarðlegri framkomu hennar
fylgdi hreinskilni í orðum og skoð-
anir sínar á þjóðfélagsmálum var
hún tilbúin til að rökræða og verja
rétt þeirra, sem miður máttu sín í
þjóðfélaginu. Reynsla hennar frá
bernskuárum til þeirra síðustu
hafði markað afstöðu hennar til
þjóðfélagsmálanna. Sá skóli var
Elínu strangur og erfiður fyrir
viðkvæma lund hennar.
í Vestmannaeyjum var
bernsku- og æskuheimili hennar.
Þar lauk hún námi í barna- og
unglingaskóla og síðar í Iðnskól-
anum. Iðnnámi lauk hún í hár-
greiðslu hjá Ásthildi Sigurðar-
dóttur hárgreiðslumeistara 1966.
Gagnkvæm vinátta hélst meðal
þeirra til hinsta dags.
Elín Thorarensen var eftirsótt-
ur félagi skólasystkina sinna
vegna námshæfileika og hæfileika
sinna til forystu í starfi og leikj-
um. Kennarar hennar væntu mik-
ils af henni strax í námi og síðar í
þeirri iðngrein, sem hún valdi sér.
Um skeið vann hún við hár-
greiðslu hjá Sigurði Benónýssyni
(Brósa), sem mat hana mikils í
starfi. Með glaðlegu viðmóti, list-
rænni meðfæddri tilfinningu,
vandvirkni og snyrtimennsku, lað-
aöi hún að sér þá er þjónustu
hennar nutu.
Elín hafði íbúð hér á Lang-
holtsvegi 151 tvö síðustu árin, og
hélt hér heimili með börnunum
sínum, Olafi Kjartanssyni 15 ára
gömlum og Ingibjörgu Stefáns-
dóttur 9 ára. Hún var hér í skjóli
móður sinnar, Ingibjargar Guð-
laugsdóttur, en samband þeirra
mæðganna var alltaf mjög náið.
Því fylgdi órofa tryggð af beggja
hálfu og ætla ég að þar hafi aldrei
skugga á borið. Fórnfýsi móður-
innar fyrir velferð hennar til
hinstu stundar og barnanna henn-
ar var slík að ekki gleymdist þeim
er til þekktu.
Þegar Elín flutti hingað kom
hún frá Hallormsstað. Þar hafði
hún tekið þátt í starfi barnaskól-
ans og áunnið sér hylli nemend-
anna og staðarfólksins. Hall-
ormsstaðaskógur var yndi hennar
og það fólk sem hún starfaði þar
með' að félagsmálum á glöðum
stundum. Hríslan hans Páls
Olafssonar við lækinn ljúfa varð
henni kær. Stundir hennar við nið
lækjarins undir blaðskrýddri
björkinni urðu færri, en hún hafði
óskað sér, en greypti þó þá mynd í
huga hennar að þessi orð Páls:
„l>i|» skal cj» a*líA muna.
áslríka, blíAa hjarlart
urðu síðar hennar eigin játning.
Hallormsstaðaskógur, kvæði
Halldórs Kiljans, varð henni
hugstætt, og oft leitaði hún til
þess, er hún lýsti fegurð skógarins
og gróðurveldi, og kynnum sínum
af því góða fólki, sem hún kynntist
eystra.
A heimili Elínar hér var oft
gestkvæmt, meðan heilsa og þrek
leyfðu, en hún naut þess að veita
gestum sínum og eiga með þeim
glaðar stundir. Barnsleg einlægni
hennar kom best fram, þegar
börnin hennar bjuggu sig undir
hátíðahöld og leiki. Fáu gat hún
neitað þeim um, sem þau töldu sig
með þurfa, svo leikurinn næði til-
ætluðum árangri í vitund þeirra
og félaganna. Sjálf var hún barnið
meðal barnanna, þegar hún tók
þátt í leikjum þeirra.
Jólin voru í vitund hennar hin
raunverulega hátíð hátíðanna,
boðskapur þeirra og hátíðahald
innan fjölskyldunnar. Áleitin var
sú spurning í huga hennar sam-
fara jólaundirbúningi, hvort ekki
hefði gleymst lítill fjarstaddur
vinur, sem beðið hefði kveðju
hennar og lítillar gjafar, sem
rninnti á jólin. í huga hennar
skipti verðmæti gjafarinnar ekki
máli, heldur hugarþel þess sem
gjöfina veitti. Gjafmildin var rík-
ur þáttur í fari hennar þótt efnin
væru lítil. Hún vildi einnig að dýr-
in nytu gjafa og falslauss viðmóts
mannsins. Sjálf fann hún í augum
og viðmóti vinu sinnar, Tinnu, þá
tryggð, sem hún óskaði að mætti
móta samskipti mannanna í dag-
legri kynningu og samskiptum.
Frá 1. nóvember sl. lá Elín
Thorarensen í Borgarspítalanum
til 6. þ.m. er ævi hennar lauk, en
þar hafði hún einnig legið lang-
dvölum áður. Meðan hún gat notið
samvistar við sjúklingana á
sjúkrahúsinu naut hún þess að
taka þátt í samræðum þeirra og
lagði sitt til að gera samveru-
stundirnar sem léttbærastar í
hinu sérstæða andrúmslofti
sjúkrahússins. Margir sjúklingar
fögnuðu komu hennar að rúmi
sínu. Meðal þeirra var háöldruð
móðir mín, sem lá þar sl. vetur
samtímis Elínu. „Hún kom einsog
engill inn á stofuna til okkar,
blessunin," sagði móðir mín, sem
minnist hennar nú með hlýhug og
þakklæti fyrir kynni liðinna ára.
Á Borgarspítalanum naut hún
einstakrar hjúkrunar og um-
hyggju af hjúkrunarliði sjúkra-
hússins, bæði lækna og annarra,
sem jafnframt dáðust að andlegu
þreki hennar og hugarró meðan
sjúkdómurinn vann á lífsþrótti
hennar. Hjartans þakkir flyt ég
þessu góða fólki.
Snemma sl. vetur fór dóttir Eín-
ar til barnaguðsþjónustu hér í
Langholtskirkju. Hún náði fundi
séra Sigurðar Hauks Guðjónsson-
ar og bað hann með barnslegri
einlægni sinni að biðja fyrir
mömmu sinni, því að hún væri svo
mikið veik. Ljúfmennska prestsins
snart barnið. Bænin var flutt frá
altari kirkjunnar.
í upphafi dymbilviku lauk ævi
þessarar glæsilegu, ungu konu. En
í lok dymbilviku rís páskasólin og
flytur okkur boðskapinn: Látinn
lifir.
I þeirri trú kveð ég kæra stjúp-
dóttur mína með virðingu og
þakka henni fyrir kynnin á liðnum
árum, um leið og ég bið henni
blessunar á ókunnum leiðum.
Ingim. Olafsson
Hún Ella er dáin, fallegi glókoll-
urinn frá Eyjum er dáin eftir
langa og stranga sjúkrahúslegu.
Ella var fædd 30. júní 1948,
dóttir hjónanna Ingibjargar Guð-
laugsdóttur og Ólafs Thorarensen,
áttu þau tvö börn, Elínu og Brynj-
ólf.
Ella ólst upp í Vestmannaeyj-
um. Hún giftist Kjartani Ólafs-
syni, þau eignuðust einn son, Ólaf,
fæddan 1966, þau slitu samvistum.
Síðan fluttist hún til Reykjavík-
ur, þar kynntist hún seinni manni
sínum Stefáni Jökulssyni, þau
eignuðust eina dóttur, Ingibjörgu,
fædda 1972, þau slitu samvistum
fyrir tveim árum.
Við vorum 4—5 ára þegar við
kynntumst og höfum haldið hóp-
inn síðan allar þrjár og eigum
yndislegar minningar.
Fyrst sem lítil börn, síðan sem
unglingar í stórum hóp, sem
skemmtu sér saman og nutu lífs-
ins og seinna sem giftar konur.
Alltaf var Ella miðpunkturinn,
hrókur alls fagnaðar svo bráðvel-
gefin, orðheppin og ljúf og góður
trúnaðarvinur.
Okkur er það minnisstætt þegar
við vorum litlar stelpur, þegar við
komum inn í verslun eða hvar sem
var allsstaðar var dáðst að Ellu,
hún var svo falleg, með gullna
lokka, hún var yngst og fallegust.
Hún hélt sínum glæsileik og feg-
urð til hins síðasta.
Rúm sex ár eru liðin siðan Ella
veiktist af þeim sjúkdómi sem dró
hana til dauða. Hún gekkst undir
margar erfiðar aðgerðir, og lá
lengi á sjúkrahúsi, núna síðast í
fimm mánuði.
Hún barðist hetjulega og hélt
sinni gleði, svo manni varð oft
orðfall. Svona ung og tvö börn sem
biðu heima. En hún átti góðan að,
móðir hennar stóð með henni eins
og klettur í baráttunni.
Ekki er hægt að skrifa um Ellu
án þess að minnast á það sérstaka
samband milli þeirra mæðgna. Við
höfum oft orð á því að annað eins
fyndist ekki. Þær voru mæðgur,
vinkonur og systur, þær voru svo
samrýndar.
Krefjandi spurningar leita á
hugann. Hvers vegna Ella sem átti
tvö börn og svo miklu ólokið?
Hvers vegna var hún látin þjást
svo mikið, meðan við gátum lifað
lífinu? Var hún að þjást fyrir
okkur öll?
Við vorum alltaf með hugann
hjá henni, og munum enn halda
áfram að hugsa um hana, og rifja
upp yndislegar minningar.
Við biðjum algóðan Guð að gefa
móður hennar og börnum styrk í
sorginni.
Biddý og Jara
Elín Thorarensen vinur okkar
var aðeins 34 ára gömul er hún
andaðist á Borgarspítalanum
þann 6. apríl sl. af völdum sjúk-
dóms sem hún með lífsviljann og
kjarkinn að vopni, barðist gegn
uns yfir lauk.
Elín lést á þann hátt er hún
helst óskaði, með móður sína Ingi-
björgu Guðlaugsdóttur, sér við
hlið, þá manneskju er hún mat svo
mikils og þótti svo vænt um. í
þeirri baráttu sem Elín háði við
sjúkdóm sem enginn mannlegur
máttur gat spornað gegn, stóð
móðir hennar sem klettur við hlið
hennar og var börnunum tveim,
Ólafi 15 ára og Ingibjörgu 9 ára,
stoð og stytta. Þau hafa misst svo
mikið, engin orð fá sefað þann
söknuð sem nú ríkir í hjörtum
þeirra.
Elín naut þeirrar gæfu að búa í
sambýli við móður sína og stjúp-
föður, Ingimund Ólafsson kenn-
ara, það rúma ár er var henni erf-
iðast, og naut umhyggju þeirra og
barnanna sinna sem hún unni svo
mjög.
Elín bjó á Hallormsstað í
Fljótsdal í þrjú ár en þangað flutt-
ist hún 1977, og þarna fyrir austan
hófust kynni okkar sem rofuðu
ekki upp frá því, við urðum síðan
nágrannar í Reykjavík. Fljótsdal-
inn kvaddi Elín með söknuði, er
hún varð að flytjast aftur suður,
því í þeirri sveit átti hún ómetan-
lega vináttu góðs fólks sem reynd-
ist henni svo vel á alla lund. Þeir
sem kynntust Elínu bundust henni
sterkum böndum því góð skapgerð
hennar og hæfileikar voru á þann
veg að alltaf var gaman og nota-
legt í návist hennar. Elín hafði
mikla kímnigáfu og hún var haf-
sjór af fróðleik og hafði þekkingu
á mönnum og málefnum líðandi
stundar og einnig því er heyrði
fortíðinni til. Hún var bókaormur
hinn mesti og þó sér í lagi hafði
hún gaman af kveðskap af öllu
tagi og kunni ógrynni af ljóðum og
vísum og stundaði þá iðju sjálf að
yrkja.
Það var ekki ósjaldan að hún
lagði til frumsamið efni þegar
þannig stóð á að stofna átti til
skemmtunar. Alltaf var Elín
hrókur alls fagnaðar í vinahópi og
tíminn varð óþekkt stærð í návígi
við kostulegar frásagnir hennar af
einhverju sem hún hafði lesið eða
upplifað. Með stórkostlegri frá-
sagnargáfu og mikilli þekkingu á
mannlegu eðli og lífsins gangi, gat
hún fengið fólk til að hlægja,
gráta og velta fyrir sér tilgangi
lífsins, þessar stundir eru ógleym-
anlegar. Elín trúði staðfastlega á
líf eftir dauðann og að fyrir hand-
an fengi hún að hitta á ný föður
sinn, Ólaf Thorarensen tannlækni,
sem henni þótti svo vænt um en
naut aðeins stuttra samvista við í
þessu lífi. Við kjósum að óska þess
að svo hafi farið.
Með sárum söknuðu kveðjum
við í dag vin okkar Elínu Thorar-
ensen og vottum börnum hennar,
móður og stjúpföður okkar inni-
legustu samúð. Minning hennar
mun lifa.
Atli og Kristjana
Á sólbjörtum degi, hinn 6. apríl
sl., dró skyndilega ský á loft, er sú
sorgarfregn barst meðal fjölskyld-
unnar, að Ella frænka hefði látist
þá um nóttina. Að vísu hafði hún
legið helsjúk frá áramótum, en
alltaf leyndist sú von meðal okkar,
að hún mætti yfirstíga veikindi
sín, verða aftur glöð og hress, eins
og hún var vön að vera og njóta
þess að vera með börnum sínum
og sjá þau vaxa úr grasi og verða
nýta þjóðfélagsborgara.
Það er erfitt að standa frammi
fyrir þeirri staðreynd, að ung kona
í blóma lífsins, aðeins 33 ára sé
horfin á brott frá tveimur elsk-
andi börnum, ástríkri móður og
stjúpföður, og góðu heimili, ein-
mitt þegar lífslöngun var mikil og
ýmsar framtíðaráætlanir voru á
prjónunum, ef heilsan leyfði.
Elín var dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Guðlaugsdóttur og Ólafs
Thorarensen, tannlæknis, föð-
urbróður míns, sem látinn er.
Sumarið 1955 fór ég á Eyjahátíð
með vinkonum mínum, og í hlíð-
inni í Herjólfsdal hitti ég Ingi-
björgu, móður Ellu og Lárus heit-
inn frænda minn, sem einnig hafði
farið á hátíðina með vinum sínum.
Þarna hittumst við öll fjögur, að
því er virtist af tilviljun, í dásam-
legri sól, mannfagnaði og hátíða-
höldum á þessu annars rign-
ingarsumri. „Sjáðu hana frænku
þína,“ sagði Ingibjörg, og er ég leit
til hliðar, sá ég litla stúlku með
glóbjart liðað hár sitja á þúfu og
horfa á mig. I fyrstu var hún svo-
lítið feimin, bæði við mig og Lárus
hálfbróður sinn, en svo fór það af,
og þessi fallega frænka og systir
varð okkur Lárusi mjög hjartfólg-
in.
Sumarið 1963 dvaldi ég um tíma
í Eyjum. Á vegum frænku minnar
kynntist ég fljótlega mörgum í
bænum. Kunningjar og vinkonur
hennar tóku mér af hinni mestu
alúð, bæði buðu mér heim og í
ökuferðir um eyjuna. Mér er sér-
staklega minnisstætt afmæli
hennar þá um sumarið, er nokkrir
hljómlistarmenn bæjarins spiluðu
þar og sungu. Þá var nú líf og fjör.
Elín var tvígift og eignaöist tvö
indæl börn í hjónaböndum sínum,
þau Ólaf 15 ára og Ingibjörgu 9
ára. Eftir að hún flutti frá Eyjum
til Reykjavíkur hafði hún atvinnu
af iðn sinni, hárgreiðslu og skyld-
um störfum í þeirri grein. Þægi-
legt var fyrir okkur að skreppa til
hennar í hárgreiðslu, þegar svo
bar undir. Elín var mjög smekkleg
og fundvís á það, sem betur mátti
fara, bæði hvað snerti hárgreiðslu,
klæðaburð og snyrtingu. Vissi ég,
að ýmsir fengu góð ráð hjá henni í
þessum efnum.
Fyrir nokkrum árum fór að bera
á vágesti þeim, sem leiddi til
ótímabærs dauða og brottfarar úr
þessari jarðvist, en þá tókst þó að
komazt fyrir veikindin, og vonir
vöknuðu, að allt færi á bezta veg. '
Aldrei man ég Elínu á þessu tíma-
bili öðruvísi en glæsilega, glaðlega
og bjartsýna. En er haustaði fór
heilsu hrakandi á ný, og dvaldi
hún frá því á Borgarspítalanum
unz yfir lauk. Færi ég læknum og
hjúkrunarliði 7. hæðar kærar
þakkir frá móður hennar, stjúpa
og börnum og öðrum vandamönn-
um fyrir góða hjúkrun og að-
hlynningu í þessum langvarandi
veikindum hennar.
Ég þakka Ellu allar skemmti-
legar samverustundir, sem því
miður voru allt of fáar. Guð gefi
henni góða heimkomu og varðveiti
alla tíð. Móður hennar, stjúpa,
börnum og bræðrum bið ég Guð að
gefa styrk og þrek og sendi þeim
ogöðrum vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur frá mér og fjöl-
skyldu minni.
Klín Karitas
I dag verður til moldar borin frá
Fossvogskirkju vinkona mín Elín
Thorarensen, hárgreiðslukona, en
hún lést á Borgarspítalanum 6.
apríl síðastliðinn, tæplega 34 ára
+
Þökkum auösynda samúö og hlýhug viö andlát og útför systur
okkar,
GUÐNÝJAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Suöurgötu 15, Hafnarfiröi.
Sérstakar þakkir skulu færöar hjúkrunarkonum og ööru starfsfólki
á Sólvangi í Hafnarfiröi.
Lára Halldórsdóttir,
Rúna Halldórsdóttir,
Svanbjörg Halldóradóttir,
Stefán Halldórsson,
Gísli Halldórsson.
+ Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför
bróöur okkar,
PÁLS PÁLSSONAR,
húsasmíöamaistara
frá Söndum í Meöallandi,
Hraunteig 17.
Systkinin.