Morgunblaðið - 16.04.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982
29
ííömul. Ella, en það var hún alltaf
kölluð meðal vina og kunningja,
var faedd í Reykjavík 30. júní 1948.
Foreldrar hennar voru Ingibjörg
Guðlaugsdóttir og Ólafur Thorar-
ensen tannlæknir. Fluttist hún
ung með foreldrum sínum til Vest-
mannaeyja þar sem hún ólst upp
ásamt einkabóður sínum. Foreldr-
ar hennar slitu síðar samvistum
og lést Ólafur fyrir þó nokkrum
árum.
Fyrstu minningar mínar af Ellu
eru frá því er hún 6 ára gömul lék
Tótu í Fjaila-Eyvindi heima í Eyj-
um. Ég minnist þess hve ótrúlega
falleg hún var með sína ljósu
lokka. Vinátta okkar hófst fyrir
alvöru er hún var 16 ára gömul og
þó að um nokkurra ára skeið rofn-
aði samband okkar, vissum við þó
alltaf hvor af annarri. Minn-
ingarnar um fjórstirnið, en það
vorum við vanar að nefna okkur,
okkar á milli Ellu Thor, Höllu P,
Jöru og mig, sem var þeirra elst,
kemur fyrst upp í hugann. Þessi
sumur æsku og áhyggjuleysis sem
við áttum saman. Sumarkvöldin
úti á Eiði við að horfa á sólarlagið,
fleyta kerlingar eða hvað annað
sem okkur datt í hug. Vangaveltur
okkar um lífið og tilveruna voru
oft ansi háfleygar og óraunsæjar á
þessum árum, en þá var lífið líka
eitt stórkostlegt ævintýri í okkar
augum og áhyggjur þess víðs
fjarri. Mörgum kvöldum eyddum
við heima hjá henni við söng og
glens, eða hlusta á Ellu fara með
vísurnar sínar, samdar á augna-
blikinu eða hún las þær upp úr
brúnu bókinni sinni, en að fá að
handleika þá bók voru vissulega
mikil forréttindi. Mér býður í grun
að með því að yrkja hafi hún oft
létt af sér þeim erfiðleikum sem
hún átti við að stríða. Nú eru mörg
ár liðin frá því að við vorum að
ræða drauma okkar um framtíð-
ina. Fæstir draumar hennar rætt-
ust, því miður. Lífið tók aldrei á
henni með silkihönskum og mörg
vonbrigði lifði hún. Það er beiskur
kaleikur að kyngja, aðeins 27 ára
gömul, ung móðir tveggja barna
að fá að vita að hún var haldin
lífshættulegum sjúkdómi. En hún
átti svo mikla lífsgleði og lífsvilja,
en nú er þessari baráttu, sem
spannar yfir svo mörg ár, þar sem
skiptust á skin og skúrir, lokið.
Vonina um bata missti hún aldrei.
Dauðinn er það eina sem við eig-
um víst.
Andlát Ellu kom mér síður en
svo á óvart. Fyrstu viðbrögð mín
voru léttir þó að það kunni að
hljóma kaldranalega, engar þján-
ingar lengur. Síðan kom sársauk-
inn og söknuðurinn. Það er alltaf
erfitt að sætta sig við dauðann,
manni finnst hann oft óréttlátur,
sérstaklega þegar ungt fólk í
blóma lífsins á í hlut. Þegar ég
hitti Ellu síðast var það hún mín
helsjúka vinkona sem huggaði mig
og styrkti. Mér finnst ótrúlegt
hvernig hún gat svona lítil og nett
staðist öll áföll lífsins.
Ella átti 2 börn, Ólaf 15 ára og
Ingibjörgu 9 ára. Barátta hennar
við að tryggja þeim örugga fram-
tíð var aðdáunarverð. A milli
sjúkrahúsdvalanna, sem voru
orðnar margar, vann hún við hár-
greiðslu, oft á tíðum sárlasin. En
hún náði takmarkinu, keypti sér
íbúð í Hraunbænum, sem hún
leigði út, en bjó sjálf á neðri hæð á
heimili móður sinnar og stjúpa, en
þar munu börnin hennar 2 eiga
áfram heimili.
Imba mín, hvað er hægt að
segja þér og börnunum til huggun-
ar veit ég ekki, en minningin um
góða dóttur og móður getur eng-
inn tekið frá okkur.
Megi sá sem öllu ræður styrkja
þig og fjölskyldu þína á þessari
erfiðu stundu.
Fríða Einarsdóttir
Harðri baráttu er lokið. Enn
hefur illvígur sjúkdómur höggvið
skarð í hóp. Hvíld og friður.
Hún Ella, Elín Thorarensen, var
fædd 30. júní 1948. Foreldrar
hennar voru hjónin Ingibjörg
Guðlaugsdóttir og Ólafur Thorar-
ensen, tannlæknir, sem látinn er
fyrir allmörgum árum.
Kynni Ellu og fjölskyldu minn-
ar hófust fyrir 12 árum. Þá var
Ella 21 árs gömul og hafði þegar
orðið að reyna, að lífið er ekki ætíð
leikur. En góðar gáfur og létt lund
hjálpðu henni að yfirvinna allt
mótlæti.
Þær verða margar minningarn-
ar, sem koma í huga, þegar Ella er
kvödd. Það tókust strax óvenju
góð kynni, þótt skemmri yrðu en
skyldi. Ellu veittist það létt að
láta mann eignast vin í sér. Henni
voru svo eðlislægir þeir eiginleik-
ar, sem leiða til sannrar vináttu.
Um það vitnar best sá stóri hópur
vina, sem hún eignaðist alls staðar
þar sem hún hafði viðdvöl.
Fráfall hennar, langt um aldur
fram, kom ekki að óvörum þeim
sem til þekktu. Um nokkra hríð
hafði hún átt við veikindi að
stríða. í því stríði sýndi hún þrek
og þolgæði og fágætt æðruleysi.
Lífsgleði hennar, lífstrú og óbil-
andi kjarkur, höfðu ítrekað vakið
vonir um bata. Þær vonir brugð-
ust okkur vinum hennar og vanda-
mönnum. I þeim vonbrigðum öll-
um var þó einn ljósgeisli. Sá ljós-
geisli var óbilandi kjarkur ÉIlu
sjálfrar.
Ugglaust hefur það mikið hjálp-
að Ellu, að finna og vita, að hún
stóð ekki ein í þeirri baráttu, sem
háð var. Allir, sem hana þekktu,
voru boðnir og búnir til að aðstoða
eftir megni.
Sérstaklega verður þó að geta
Ingibjargar, móður hennar, sem
vakti nánast nótt sem dag yfir
henni og var óþreytandi við að
hlynna að og hjúkra dóttur sinni
með öllu móti.
Nú standa eftir minningarnai
þeim til handa sem kveðja Éllu af
sinni, tveimur börnum, móður
bróður og stjúpa/ ásamt stórun
hópi vina og kunningja.
Obrotgjarnar, bjartar minn
ingar, sem duga vel fram til næstu
endurfunda.
Garðar
Þegar mér var tilkynnt lát Elín-
ar Thorarensen kom það mér ekki
á óvart, hún var búin að þjást svo
lengi. Ég fagnaði því, eins kald-
ranalegt og það er, þegar ung
móðir deyr frá tveimur börnum.
En stríðið var orðið svo langt,
lengra en nokkurt okkar óraði
fyrir.
Þegar ég kveð hana núna leita á
hugann margar minningar frá
unglingsárum okkar heima í Vest-
mannaeyjum. Þá blasti framtíðin
björt og fögur við í hugum okkar,
við áttum heiminn, ekkert gat
breytt þeirri fögru framtíðarsýn.
Við ætluðum að gera svo margt,
fcrðast saman, læra eitthvað sam-
an, vera bara alltaf saman. Elín
átti, það sem hópurinn okkar öf-
undaði hana af, hún gat ort, en fór
með ljóðin sín eins og glóandi gull.
Þess vegna var ég stolt af því að
vera ein af fáum sem barði brúnu
litlu bókina augum, en í hana voru
þau skrifuð.
Arin liðu, örlögin höguðu því
þannig til að leiðir okkar skildu
um langt árabil en aldrei þó svo að
við vissum ekki hvor um aðra.
Síðastliðið sumar endurnýjuð-
um við kynni okkar, en samt var
eins og við hefðum alltaf verið
saman. Okkur fannst við ekkert
hafa breyst, báðar fimmtán ára
ennþá. Ég er þakklát fyrir þær
stundir sem við áttum saman.
Myndin frá æskudögum okkar
hafði að vísu breyst. Hún hafði
mátt reyna hörðustu hiiðar
mannlífsins og reynt meira en
margur öldungurinn, en þrátt
fyrir það, og kannski þess vegna,
var það hún sem gaf og gladdi,
hvatti. Við vissum báðar að brugð-
ið gat til beggja vona um heilsu
hennar en hún hafði þann kraft,
að það hvarlaði aldrei að okkur
eitt augnablik að framtíðin væri
ekki enn okkar. Að sækja styrk í
helsjúkan vin er lífsreynsla sem
ég upplifði hjá henni og gleymdi
því að hún var þá alvarlega sjúk,
slíkur var krafturinn og lífsgleði
hennar.
„Maðurinn minn er ei nema
hálfur, með öðrum meiri en hann
sjálfur" orti Einar Benediktsson.
Þetta er setning sem ég skil alltaf
betur og betur eftir því sem árin
líða og reynslan eykst. Elín átti
góða móður, sem hlúði að okkur
sem viðkvæmum jurtum, hlustaði
á öll okkar vandamál í æsku og
gaf okkur alla sína ást og blíðu.
Hún stóð eins og klettur úr hafi í
öllum erfiðleikum hennar í gegn
um lífið. Börnin tvö voru það feg-
ursta sem Elín eignaðist, og bera
henni vitni. Hann er stór hópur-
inn sem skilur ekki hvers vegna
hún kvaddi svo snemma. Ég bið og
vona að börnin, og móðir hennar
fái styrk í minningunni um hetju-
skap Elínar allt fram á síðustu
stund.
H.P.
„Nú ertu leidd, mín Ijúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ pg rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins mín sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.“
(Hallgr. Pétursson)
Þessi sálmavers eru kveðjuorð
okkar til Elínar með hjartans
þökk fyrir vináttu, sem aldrei bar
skugga á. „Far þú í friði, friður
Guðs þig blessi."
Systkinin Guðrún, Jökull Karl,
Svava og Soffia Dögg.
Emblo
Strandgötu 29 Hafnarfirði
Grund
Grundarfirði Simi 93-8710
TINNI
Fellagörðum - Sími 75713
Glitbrá
Laugavegi 70 - Sími 10660
mömmusál
Laugavegi 17 - Sími 27340
Silfurgötu 2 ísafirði. Sími 94-3695