Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
21
Ólík vinnubrögð
Eftir Birgi Isl.
Gunnarssort
Frumvarp um kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði kom til
fyrstu umræðu á Alþingi fyrir
fáum dögum. Undirbúningur
þess máls hefur verið mjög ólík-
ur því, sem verið hefur við önnur
þau stóriðjufyrirtæki, sem hér
hafa verið byggð. Þess hefur ver-
ið vandlega gætt að stjórnar-
andstaðan fengi ekkert með mál-
inu að fylgjast fyrr en nú að
málið er lagt fram og þingmönn-
um er ætlað að samþykkja það á
rúmum tveimur vikum. Fróðlegt
er að bera saman vinnubrögðin
nú við það sem var, þegar síðasta
stórátak í stóriðjumálum var
gert, þ.e. við undirbúning Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga.
Stjórn og stjórnar-
andstaða fylgdist með
Magnús Kjartansson var iðn-
aðarráðherra í vinstri stjórn
Ólafs Jóhannessonar, sem tók
við árið 1971. Hann skipaði
fljótlega stóriðjunefnd, sem sér-
staklega skyldi kanna og undir-
búa næstu stórátök okkar í
orkufrekum iðnaði. Störf hennar
beindust fljótlega að járnblendi-
verksmiðju. Haustið 1973 var
skipuð nefnd þingmanna úr öll-
um flokkum, stjórnarsinna jafnt
sem stjórnarandstæðinga, sem
skyldu kynna sér öll gögn máls-
ins og fylgjast með allri fram-
vindu þess. Þessi nefnd starfaði
áfram eftir að stjórnarskiptin
urðu 1974.
Þegar þessi nefnd allra þing-
flokka hafði starfað í eitt og
hálft ár, var tilbúið frumvarp,
sem lagt var fram á Alþingi í
febrúar 1975. Allan þennan tíma
höfðu fulltrúar allra flokka haft
tækifæri til að kynna sér þetta
mál. Alþingismenn stjórnar og
stjórnarandstöðu voru því vel i
stakk búnir til að fjalla um mál-
ið á Alþingi og taka afstöðu til
frumvarpsins um Járnblendi-
verksmiðjuna. Þrátt fyrir það
tók það Alþingi tvo mánuði að
afgreiða málið. Frumvarpið fékk
ítarlega meðferð í iðnaðarnefnd-
um beggja deilda. Fengnar voru
skriflegar umsagnir margra að-
ila og fjöldi manna komu til
munnlegra skýrslugjafa í nefnd-
unum.
Stjórnarandstööu
haldiö utan við
Nú eru gjörólík vinnubrögð
viðhöfð. Á vegum ríkisstjórnar-
innar hefur starfað svokölluð
orkustefnunefnd. I henni starfa
eingöngu fulltrúar ríkisstjórnar-
innar, en stjórnarandstaðan
Birgir ísl. Gunnarsson
kemur hvergi nærri. Síðan var
skipuð svokölluð verkefnisstjórn
til að undirbúa sérstaklega
skýrslu um kísilmálmverk-
smiðju. Sú stjórn starfaði í um-
boði iðnaðarráðuneytisins, sem
síðan samdi endanlega frum-
varpið.
Eina sem þingmenn hafa feng-
ið í hendurnar er ófullkomin
áfangaskýrsla á sl. vetri og nú
um miðjan mars lokaskýrsla
verkefnisstjórnar. Sú skýrsla
var merkt trúnaðarmál og tak-
markaði það að sjálfsögðu notk-
un hennar. Frumvarpið var síð-
an lagt fram rétt fyrir páska og
ætlast er til að Alþingi gleypi
málið á einum og hálfum mán-
uði. Hér er þó um að ræða fyrir-
tæki, sem kostar litlar 750 millj.
(75 gamlir milljarðar) auk
kostnaðar við höfn, rafmagnslín-
ur, vatnsveitu o.fl.
Enn eru ekki
öll gögn tiltæk
Þessi samanburður á vinnu-
brögðum sýnir mikinn mismun.
Annars vegar var starfað út á
við og menn fengu öll gögn í
hendur jafnóðum og þau voru
tilbúin. Hins vegar er nú starfað
inn á við, með allar upplýsingar
hefur verið farið sem pukursmál
og enn hafa þingmenn ekki feng-
ið í hendur mikilsverð gögn.
Til viðbótar kemur að á
máli þessu eru ýmsar efnislegar
brotalamir, sem ekki verður
fjallað nánar um í þessari grein,
en bíður betri tíma.
Dagmæður
Eftir Selmu
Júlíusdóttur
Mál dagmæðra hafa að undan-
förnu verið áberandi í fréttaflutn-
ingi fjölmiðla. Mér finnst gæta
mikils misskilnings á málefnum
okkar. Ég skal ekki dæma hverju
það er að kenna en langar til að
koma hér að málinu frá mínum
sjónarhóli. Sá sjónarhóll er byggð-
ur upp á 17 ára starfi við börn á
leikskóla, dagheimili, sumardval-
arheimili, föndurskóla og nú sem
dagmamma.
Eg gerðist dagmamma og gekk í
samtök dagmæðra af þeirri
ástæðu að ég hef mikla trú á að
þetta fyrirkomulag í gæslu barna
geti í mörgum tilfellum verið mjög
gott. Sérstaklega á ég þá við þegar
börn þurfa að vera lengi í gæslu
dag hvern og einnig verið um að
ræða börn sem eru ekki sterk til
heilsu og geta ekki verið í stórum
hópi þar sem því fylgir að sjálf-
sögðu ærsl og læti. Siðast en ekki
síst vil ég nefna að það vantar
gæslu fyrir börn þar sem ekki er
til fjármagn til að byggja dag-
heimili fyrir öll börn sem gæslu
þurfa. Fyrirkomulagið hefur til
skamms tíma verið þannig að ein-
göngu börn einstæðra foreldra
hafa fengið inni á dagheimilum og
nokkur prósenta af börnum
námsmanna. Nýlega hefur verið
gefið upp að börn hjónafólks fengi
einnig að smáhluta að komast að
en mér er ekki skiljanlegt hvernig
skipta á þeim bita.
Mér finnst vægast sagt rangt
það fyrirkomulag sem tíðkast hef-
ur að einangra börn einstæðra
foreldra frá börnum sem eiga
bæði pabba og mömmu inni á
heimilum sínum. Mig langar til að
segja ykkur frá atburði sem gerð-
ist í garði eins dagheimilisins. Lít-
ill drengur datt og meiddi sig.
Hann hrópaði upp yfir sig: „Pabbi,
pabbi.“ Það varð hljóð í garðinum
augnablik því að þetta var orð sem
var ekki tamt að kalla upp í neyð
hjá þessum börnum. Flest þessara
barna eru alin upp af mæðrum
sínum.
Ef vel tekst til, og hægt verður
að skipuleggja dagvistun barna
þannig að hægt verði jöfnum
höndum að nýta öll þau dagvist-
unarpláss sem til boða eru, álít ég
að gera megi stórt átak í þessum
málum. Á ég þar við leikskóla,
dagheimili og dagmömmur. Hætt
verði að setja börnin á heimili eft-
ir þeirri þjóðfélagsstöðu sem for-
eldra/.b^jrcA ew L.............
„Mér finnst persónu-
lega að við dagmæöur
stöndum nú á merkum
tímamótum. Viö erum
komnar á blaö hjá því
opinbera sem heild. Eg
þakka öllum þeim
dagmæðrum, sem hafa
varðað veginn fyrir
þessa starfsemi og lít
björtum augum til fram-
tíöarinnar.“
Hvað er það þá sem dagmömm-
ur geta boðið? Dagmömmur hafa
boðið og geta boðið heimili sín.
Þær geta boðið tíma sem eru í dag
útilokaðir fyrir dagheimili að
bjóða. Það þýðir að foreldrar
barnanna þurfa ekki að einskorða
sig við vinnutíma 8—18. Margar
hverjar geta boðið upp á samneyti
við eldri börn og unglinga. Mér
finnst stór kostur að börnin fái
það víðsýni í uppeldinu sem þau fá
með aðhlynningu frá þeim ald-
urshópi líka. Dagmömmustéttin
er ný stétt hér á landi og má segja
að hún sé í fæðingu ennþá. Margir
hafa þar lagt hönd á plóginn af
óeigingirni og dugnaði. Á ég þar
ekki síst við umsjónarfóstrur
okkar. Þær eru að hjálpa okkur að
skipuleggja eina ábyrgðamestu
starfsemi sem rekin er. Hvað er
meira virði en börnin okkar? Ekk-
ert. Þær hafa allar mikla reynslu í
dagvistun barna frá dagvistun-
arheimilum. Fram að þessu hafa
þær verið á hrakningi með starf-
semi sína en nú nýverið fluttist
hún í framtíðar húsnæði að
Njálsgötu 9. Þeirra starf er einnig
að hafa eftirlit með heimilunum,
hafa milligöngu með vistun barna
á heimilin, skera úr ágreinings-
málum er rísa upp milli foreldra
og dagmæðra og vera okkur og
börnunum innan handar. Gera sér
allir grein fyrir hvað þetta er orð-
in viðamikil starfsemi innan borg-
arinnar? Dagmæður eru skráðar
um 400 og börnin sem eru í gæslu
þeirra kringum 900.
Eins og ég sagði áðan er þessi
starfsemi ennþá í burðarliðnum
og mjög vandmeðfarin. Það er
hægt að gera ennþá meira átak í
þessum málum. Þar á ég við bæði
dagmæður og borgina. Dagmæður
þurfa fyrst og fremst að gera átak
í fræðslufundum viðvíkjandi öll-
um aldurshópum. í dag göngumst
við undir námskeið sem haldin eru
í Námsflokkum Reykjavíkur á
vegum Dagvistunar barna. Eitt
námskeið er ekki nóg. Við verðum
að nýta tímann og vera í síþjálfun.
Þar geta samtökin okkar gert
mikið. Sumar okkar hafa mikla
reynslu í meðferð ungbarna, aðrar
eru þjálfaðar í meðferð eldri
barna og enn aðrar eru snillingar í
matargerð. Ef við legðum eitthvað
allar til og sameinuðumst í að
nema sem mést er ég sannfærð um
að við séum góður kostur.
Þá er það borgin. Væri ekki
upplagt að leyfa dagmömmum að
koma í skipulagðar heimsóknir á
leikskóla og dagheimili. Við gæt-
um þá fræðst af fóstrunum hvern-
ig þær skipuleggja starfsemina.
Fósturfélag Islands hefur verið
svo elskulegt að leyfa okkur að fá
föndurblöð, gátur, söngvatexta og
leiki sem þær hafa gefið út en það
væri bæði gaman og gagnlegt að
sjá þær í starfi með þessi gögn svo
að við lærðum að notfæra okkur
þau betur. Þar fengjum við líka
góðar hugmyndir um kaup á leik-
föngum og öðrum aðföngum fyrir
börn.
Nú nýverið fengu dagmæður í
Reykjavík heil þrjú bref frá virðu-
legum stofnunum. Frá Ríkisskatt-
stjóra, Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar og Endurskoð-
unardeild Reykjavíkurborgar. Sú
síðastnefnda deild nefnir okkur
svonefndar dagmæður sem fór
óskaplega í taugarnar á okkur.
Kannski er þetta bara svonefndur
endurskoðandi sem sendir okkur
það. Þessi bréf voru mér mikið
gleðiefni. í þeim öllum erum við
viðurkenndar sem stétt sem skal
skila bókhaldi fyrir starfsemi
okkar. Það er stór áfangi að vea
búin að fá fastar reglur um þetta
atriði sem hægt er að fara eftir.
Það skal samt viðurkennt að það
greip um sig hræðsla við þessi
bréf. Aðallega treystu margar sér
ekki í bókhaldið. Þær hafa líka
ekki fengið enn þá nógu góða skýr-
ingu á fyrirkomulagi þess. Þetta
er mál sem ég persónulega álít að
hægt verði að komast auðveldlega
yfir. Ég treysti öllum þeim dag-
mæðrum sem ég hef persónuleg
kynni við til þess að gera þetta
bókhald en það er eins og með allt
annað sem fólk hefur aldrei gert
áður það þarf að gefa sér tíma til
að fá tilsögn í því. Legg ég til að
borgin veiti okkur leiðsogn í
hvernig þeir ætlast til að við hög-
um þessu. Það væri gaman að fá
innsýn í hvernig dagvistunar-
stofnanir þeirra hafa sitt bókhald.
Hvað viðvíkur gjöldum fyrir
þessa starfsemi verður það ekki
mikið fyrir okkar dagmæður að
borga. Éinfaldlega vegna þess að
við erum ekki tekjuháar. Hver
dagmamma má hafa sem svarar
fjórum heilsdags dagvistunar-
plássum. Hennar börn undir
gæslualdri dragast frá. Síðastliðið
ár gerði þetta nettó tekjur krónur
11.052,80 á barn fyrir 8 stunda
gæslu á dag 11 mánuði ársins og
er þá innifalið orlof. Hve hátt út-
svar og skattar veða á þessa tölu
veit ég ekki en ekki verður það
stór þjóðarbiti. Ég vona svo sann-
arlega að í framtíðinni getum við
bæði sparað þjóðinni enn meira en
nú og einnig borgað okkar skref
fyrir öfluga starfsemi. Það eru jú
börnin sem við nú hjálpum til við
að ala upp sem eiga eftir að taka
við okkar verkum.
Það er leiður misskilningur að
dagmömmur vilji ekki borga sína
skatta eins og aðrir tekjuaflandi
þjóðfélagsþegnar. Eins og ég sagði
áðan eru margar hræddar við að
verða refsað fyrir að gera bókhald
sitt skakkt. Það er mál sem er í
augnablikinu erfitt viðfangs en
strax á næsta ári verðum við í
sameiningu komin með það á
nokkurn veginn hreint. Ef einhver
dagmæðranna einhverra hluta
vegna treystir sér ekki að gera
sjálf sitt bókhald fær hún ein-
faldlega hjálp við það eins og önn-
ur f.vrirtæki.
Mér finnst persóunlega áð við
dagmæður stöndum nú á merkum
tímamótum. Við erum komnar á
blað hjá því opinbera sem heild.
Ég þakka öllum þeim dagmæðrum
sem hafa varðað veginn fyrir
þessa starfsemi og lít björtum
augum til framtíðarinnar. Ég
vona einnig að frammámenn
landsins geri sér ljóst mikilvægi
þess að hlynna að öllu uppeldi
barnanna okkar hvort sem það er
á heimilum eða öðrum uppeldis-
! stöðum. ! ; Í | i f