Morgunblaðið - 17.04.1982, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
25
Guðmundur Þ. Jónsson í raeðustól i þingi Landssambnnds iðnverkafólks.
Félag islenzkra rithöfunda:
Launasjóður rit-
höfunda er mis-
notaður pólitískt
Þing Landssambands iðnverkafólks:
Kjaramái efst á
FIMMTA þing Landssam-
bands iðnverkafólks var sett
á Hótel Esju í gær. 40 full-
trúar sitja þetta þing. Að
sögn Guðmundar Þ. Jónsson-
ar, formanns þess, eru kjara-
málin efst á baugi á þessu
þingi. Einnig skipa atvinnu-
og iönaöarmál veglegan sess.
Þá liggur fyrir þinginu tíllaga
um að Landssambandið ger-
ist aðili að Norræna fataiðn-
aðarsambandinu.
Meðal ræðumanna á þinginu í
gær voru Björn Björnsson, hag-
fræðingur ASÍ, og Sigurður Guð-
mundsson frá Framkvæmdastofn-
un. Fjallaði Björn um kjaramál í
erindi sínu, en Sigurður um iðn-
þróun með tilliti til atvinnuörygg-
is.
í setningarræðu Guðmundar Þ.
Jónssonar kom m.a. fram að eitt
af þýðingarmestu verkefnum
þingsins væri að marka stefnu
sambandsins í kjaramálum í ná-
baugi
inni framtíð. Einnig yrði að
tryggja því fólki atvinnu sem
kæmi inn á vinnumarkaðinn á
næstu árum. Það yrði m.a. gert
með því að styrkja íslenskan iðn-
að. Guðmundur sagði ennfremur
að stjórnvöld yrðu að beita öllum
tiltækum ráðum til að sú þróun,
sem dæmt hefur tugi milljóna
manna í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Norðurlöndum o.fl. löndum
til atvinnuleysis, nái ekki hingað
til lands.
Þinginu verður slitið síðdegis í
dag.
„Segja má að rit-
höfundasambandið
sé þegar klofið“
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi fri stjórn Félags íslenzkra
rithöfunda:
„Stjórn Félags íslenzkra rithöf-
unda mótmælir harðlega nær ein-
hliða pólitískum úthlutunum
stjórna Launasjóðs rithöfunda und-
anfarin fjögur ár; nú síðast í ár.
Ekki verður annað séð en að út-
hlutanir í efri flokka launasjóðs ein-
kennist að fylgispekt við róttækt
stjórnmálaafl, þrátt fyrir opinber
mótmæli fjölmargra rithöfunda og
alþingismanna.
Stjórn Félags íslenzkra rithöf-
unda lítur svo á, að formaður og
UMSÓKNARFRESTUR urn sUrf
tæknimanns við útibú Ríkisútvarpsins
á Akureyri rann út í gsr. Umssekjend-
ur voru 7, þar af 6 Akureyringar. Mun
væntanlega verða ráðið í stöðuna inn-
an skamms.
Þá er það nánast öruggt að Jónas
Jónasson verði einnig fastráðinn
sem útvarpsmaður við útibúið og
mun hann væntanlega hefja störf
þar um miðjan maí. Þetta eru fyrstu
stjórn Rithöfundasambands íslands
beri höfuðábyrgð á þeim ógöngum
sem úthlutunarmál rithöfunda eru
komin í; með tilnefningu einstefnu-
manna að meiri hluta í stjórn
Launasjóðs rithöfunda, með því að
verja og leggja blessun sína yfir ein-
hliða úthlutanir, og með því að
hundsa kröfur félaga í Rithöfunda-
sambandi íslands um breytingar í
lýðræðisátt.
Barátta stjórnar Rithöfundasam-
bands Islands gegn breytingum hef-
ur verið svo tillitslaus, að segja má
að rithöfundasambandið sé þegar
klofið, þar eð stór og sívaxandi hóp-
ur rithöfunda sækir ekki lengur
fundi í svokölluðu stéttarfélagi sínu,
hvorki almenna fundi né aðalfund.
Félag íslenzkra rithöfunda hvetur
lýðræðissinnaða og óháða rithöf-
unda til að standa fast á rétti sín-
um.“
fastráðningar Ríkisútvarpsins við
útibúið á Akureyri.
Umsækjendur um stöðu tækni-
manns eru þessir: Arni Jóhannsson,
Akureyri, Vébjörn Eggertsson, Ak-
ureyri, Vilhjálmur Rúnar Hend-
riksson, Akureyri, Davíð Jónsson,
Akureyri, Björn Sigmundsson, Ak-
ureyri, Snorri Hansson, Akureyri,
og Helgi Jónsson, ísafirði.
Akureyri:
7 sóttu um stöðu tæknimanns
„Sex íslenzkir málaliðar
berjast við hlið falangista“
— segir Michael „Rocco“ Ryan og hann segir að ísraelsmenn greiði laun þeirra
„í LÍBANON eru sex íslenzkir málaliðar á mínum vegum. Alls eru 63
málaliðar frá Vesturlöndum, sem berjast við hlið kristinna falang-
ista, þar af eru 26 frá Norðurlöndum," sagði Michael John „Rocco“
Ryan, 43 ára gamall, fyrrum hermaður í SAS-sveitum brezka flug-
hersins, málaliði, lífvörður með meiru, í samtali við Mbl. i gær.
Astæða þess að Mbl. hafði samband við Ryan var, að maður sem
ekki vildi láta nafns síns getið, hringdi i blaðið frá Lundúnum á
fimmtudag.
Maðurinn kvaðst nýkominn
frá Mið-Austurlöndum og að þar
væru nú málaliðar, þeirra á
meðal Islendingar. Hann sagði,
að maður að nafni Michael
„Rocco" Ryan hefði haft milli-
göngu um að senda málaliðana
til Líbanon og gaf hann upp
símanúmer hans. Jafnframt
sagði hann, að sænsk blöð hefðu
fyrir skömmu birt fréttir um
sænska málaliða í Líbanon.
Greidslur komnar
frá ísrael
Þegar Mbl. náði tali af Micha-
el Ryan reyndist hann tregur til
að láta upplýsingar af hendi.
Hann staðfesti þó, að í Líbanon
væru málaliðar frá Vesturlönd-
um, frá Svíþjóð, Danmörku, Nor-
egi, Finnlandi, Frakklandi, Hol-
landi, V-Þýzkalandi, Bretlandi,
Bandaríkjunum og íslandi.
Hann þvertók fyrir, að gefa upp
nöfn hinna íslenzku málaliða,
sem nú eiga, að hans sögn, að
vera í hinu stríðshrjáða landi.
Hann sagði, að málaliðarnir,
sem hann hefði haft forgöngu
um að senda, berðust við hlið
kristinna falangista, einkum
gegn skæruliðum PLO (Frelsis-
samtaka Palestínu). Jafnframt
sagði hann, að háttsettur ísra-
elskur herforingi hefði haft sam-
band við sig fyrir nokkrum mán-
uðum og beðið hann að hafa for-
göngu um, að ráða málaliða til
að berjast við hlið falangista.
Hann sagðist ekki geta skýrt frá
nafni Israelsmannsins, enda
hefðu allar viðræður farið fram
á bak við tjöldin og hann sagðist
ekki geta skýrt hvaðan greiðslur
kæmu; þær færu eftir krókaleið-
um, en taldi víst að þær væru
komnar frá ísrael. „Peningar eru
ekkert vandamál," sagði hann.
Þess má geta, að Michael Ryan
var mjög tregur til að láta upp-
lýsingar af hendi. Þegar blaða-
maður spurði hann um nafn ís-
lenzku málaliðanna, þá einfald-
lega lagði hann á. Og þegar
blaðamaður, eftir að hafa náð
sambandi við hann á nýjan leik,
spurði hann um áreiðanleik upp-
lýsinga, sem hann hefði látið af
hendi, þá svaraði hann snöfur-
mannlega: „Þú hringdir í mig,
ekki ég í þig,“ og lagði á.
Sænsk blöð skrifa um
sænska málaliða
Þann 31. marz síðastliðinn
skrifaði Stokkhólmsblaðið
Svenska Dagbladet um sænska
máialiða í Líbanon. „Tólf sænsk-
ir málaliðar, berjast við hlið
kristinna falangista í Líbanon".
Blaðið sagði, að sá orðrómur
hefði komist á kreik í Lundúnum
og borist til Svíþjóðar, að sænsk-
ir málaliðar berðust í Líbanon
og að maður að nafni Michael
„Rocco“ Ryan hefði haft milli-
göngu um að senda þá þangað.
Blaðið sagði, að „Rocco" hefði
meðal annars sagt í blaðaviðtali,
að hann hefði skipulagt valda-
ránstilraunina á Seychelles-
eyjum á Indlandshafi í vetur.
Sænskir fjölmiðlar, þeirra á
meðal Svenska Dagbladet fengu
ábendingu um, að Svíar hefðu
verið ráðnir sem málaliðar til að
berjast í Líbanon. Fyrsta
greiðsla til málaliða hefði numið
fimm þúsund dölum. Blaðið
sagði, að sænsk yfirvöld könnuð-
ust ekki við að nokkrir menn
hefðu verið ráðnir til Líbanon,
en það varðaði við lög að gerast
málaliði; Ryan væri „ópólitískur
milligöngumaður" fyrir þá, sem
greiða vilja nógu hátt fé fyrir
þjónustu hans.
Engir íslenzkir
málaliðar
Mbl. sneri sér til Francois
Jabre, ræðismanns íslands í Líb-
anon, en hann býr í hverfi krist-
inna manna í Beirut, hinni
stríðshrjáðu höfuðborg landsins.
Jabre kannaðist ekki við, að í
Beirut væru íslenzkir málaliðar,
kvaðst viss um að svo væri ekki.
Hann vissi ekki til, að í landinu
væru málaliðar, þó það væri
hugsanlegt, en taldi mjög ólík-
legt, næsta víst, að íslendingar
væru ekki í landinu.
Fritz Naschit, ræðismaður ís-
lands í Tel Aviv í ísrael, kvað
mjög ólíklegt að málaliðar berð-
ust við hlið kristinna manna
gegn skæruliðum PLO. Hann
vissi ekki nema um einn íslend-
ing í þessum tveimur löndum.
Mbl. bað AP-fréttastofuna um
upplýsingar um málaliða í Líb-
anon og fékk eftirfarandi svar:
„Okkur skilst að í landinu séu
um 20 Vesturlandabúar í liði
hinna stríðandi afla, en eftir því
sem við bezt vitum, þá hafa þeir
lítið ef nokkuð barizt. Vitum
ekki til að íslendingar séu þar á
rneðal." AP sagði að Ryan væri
„óáreiðanlegur".
Fyrrum málalidi,
rekur nú lífvarða-
fyrirtæki
Morgunblaðið aflaði sér upp-
lýsinga um Michael John Ryan,
eða „Rocco“ Ryan eins og hann
er gjarna nefndur í Lundúnum.
Hann er 43 ára gamall, af írsku
bergi brotinn en býr í Lundún-
um. Hann er fyrrum SAS-her-
maður (Special Air Services), og
rekur lífvarðafyrirtæki. Hann er
þekktur fyrir ævintýramennsku
og hefur barizt sem málaliði og
einnig við að útvega málaliða.
„Rocco“ Ryan var statisti hins
þekkta bandaríska leikara, John
Wayne, í kvikmynd, sem gerð
var í Lundúnum árið 1977. Hefur
verið lífvörður þekktra leikara,
eins og Paul Newman og Rock
Hudson. Hann er sagður hafa
gætt vellauðugra Saudi-Araba í
Los Angeles.
Þann 11. ágúst 1979 sagði
Rocco að honum hefðu verið boð-
in 30 þúsund pund fyrir að að-
stoða við að ráða keisarann af
íran af dögum en hann hefði
hafnað því. Keisarinn dvaldi þá í
útlegð í Mexíkó. „Þeim er alvara.
Þeir eru reiðubúnir að borga
stórfé fyrir hæfa menn,“ sagði
Rocco í samtali við brezkt blað í
ágúst 1979.
Rocco var sýknaður af ákæru
um líkamsárás, fyrir að valda
skemmdum á húsi og bifreið árið
1977. Þá hefur hann verið sýkn-
aður af ákæru um fjárkúgun.
Mbl. ræddi við blaðamenn The
Guardian og The Daily Tele-
graph, sem fylgzt hafa náið með
þróun mála í Mið-Austurlönd-
um. Blaðamaður The Guardian
sagði, að næsta víst væri, að
málaliðar berðust í Líbanon, en
taldi nánast útilokað, að Isra-
elsmenn hefðu snúið sér til
„Rocco“ Ryan, því maðurinn
þætti óáreiðanlegur í hæsta
máta.
Hér verður ekkert fullyrt um
hvort íslenzkir málaliðar berjast
í Líbanon, né að „Rocco" Ryan
hafi ráðið þá, að beiðni ísraels-
manna. Það verður að telja ólík-
legt. Hins vegar er líklegt að
vestrænir málaliðar berjist í
landinu, þá líklega við hlið krist-
inna falangista. Benda má á, að
hugsanlegt er að erlendir menn
hafi komizt yfir íslenzk vega-
bréf; þess eru dæmi, að erlendir
menn, sem af einhverjum sökum
þurfa að dylja uppruna sinn,
hafa notað íslenzk vegabréf. ís-
lenzk vegabréf hafa gengið
kaupum og sölum, eftir að Is-
lendingar hafa týnt þeim erlend-
is, þeim verið stolið, eða hrein-
lega fjárvana íslendingar hafa
selt þau.
H.Halls.