Morgunblaðið - 17.04.1982, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
Víst er alkóhólísmi
yiðráðanlegur
Eftir Steinar
Guómundsson
I
I hugljúfri prédikun, sem síra
Haraldur Níelsson nefnir „Undir
gífilrunninum" má lesa þessi orð:
.. en hversu lítið vitum vér oft
um innri baráttu þeirra sem vér
umgöngumst daglega? ... glaðlegt
bros þeirra er ef til vill eins konar
gluggatjald, sem dregið er fyrir
svo ekki sjáist í gegnum rúðuna."
Vafalaust er ég búinn að um-
gangast drykkjumenn og aðstand-
endur þeirra þúsundum saman
síðan ég sjálfur hætti að drekka
fyrir rúmum aldarfjórðungi, og
líti ég til baka þá finn ég, að sé
nokkuð eitt öðru fremur sameig-
inlegt öllu þessu liði, jafnt að-
standendum sem drykkjumönn-
um, er það feimnin, hræðsla eða
hvimpnin við að láta á því bera að
vandræði ofdrykkjunnar kunni að
vaka innan fjölskylduhópsins —
eða eins og síra Haraldur Níelsson
segir: „... bros þeirra er ef til vill
eins konar gluggatjald sem dregið
er fyrir svo ekki sjáist í gegnum
rúðuna."
Ofdrykkjuvarnir hafa tekið
stórkostlegum framförum hér á
landi síðustu 5 árin og hefir
þróunin verið ótrúlega ör. En
ástæðulaust er að fela það, að
þessi bylting var undirbúin, vel
undirbúin og án AA hefði hún
aldrei séð dagsins ljós. Því má
heldur ekki gleyma, að starfsemi
sem byggist á AA getur aldrei far-
ið fram úr AA, því um leið og óeig-
ingjarnri hreinskilni AA sleppir
hlýtur kyrkingur að hlaupa í
starfið hversu kröftuglega sem að
því er unnið.
Óeigingjörn hreinskilni er
bjartasta ljósið sem til mín hefir
skinið frá AA. Þegar drykkjumað-
ur hetur horft á sjálfan sig eins og
hann er, án réttlætinga eða lag-
færinga, án þess að gera minna úr
sér eða meira úr sér, opnast hon-
um glufa til frelsis frá ofdrykkj-
unni. Gríman dettur af honum og
hann finnur, að að drykkjuskapn-
um frátöldum er hann ekkert
öðruvísi en aðrir menn.
Eins er með maka alkóhólist-
ans. Þegar aðstandandinn nær því
frelsi að geta opinskátt og reiði-
laust rætt þau vandamá! sem við
heimilinu blasa fer að rofa til og
úr þykjustuleiknum dregur, en
raunsæi kæfir kvíða og vonbrigði.
Án blekkinga er alkóhólismi
ekki til. Vökvinn sem á flöskunni
gutlar er ekki böl heimilisins,
heldur blekkingarnar sem fylgja
neyslu hans. Ef hægt væri að
koma hreinskilni í sæti blekk-
inganna stæði tappinn oftar
óhreyfður í flöskunni.
Þótt sagt hafi verið, að aðgát
skuli höfð í nærveru sálar, verður
að forðast að misnota þá viðvörun.
Víst er drykkjumaður viðkvæmur
og víst á hann bágt og enginn ef-
ast um laskað og viðkvæmt sálar-
líf aðstandenda hans, en af tillits-
semi og góðvild má ekki reyna að
fela vandræðin með þögninni, því
við það bólgna þau og blása út.
Samt lái ég það engum þótt hann
tími ekki að rjúfa stundarfrið
milli túra og sippi rúllugardínu
sýndarmennskunnar niður, eða
eins og síra Haraldur sagði: „...
bros þeirra er ef til vill eins og
gluggatjald sem dregið er fyrir
svo ekki sjáist í gegnum rúðuna."
SÁÁ hefur haslað sér traustan
völl í islensku þjóðlífi. Svo er Guði
fyrir að þakka. Innan vébanda
SÁÁ gera menn sér ljóst, að alkó-
hólismi er margþætt mein og því
nauðsynlegt að mæta því á sem
allra breiðustum vettvangi. Af-
vötnun hér, endurhæfing þar.
Fyllibyttan hér, aðstandandinn
þar. Fræðsla hér, leiðsögn þar —
en þó allt samtvinnað í órofa kerfi.
Alkóhólismi er líkastur sveltandi
birkitré á rofabarði að öðru leyti
en því, að stofninn er blekking,
greinarnar vandræði og rótin sið-
venja. Án rótarinnar væri enginn
stofn og án stofnsins engar grein-
ar. En kræklan heldur lífi á með-
an siðvenjan nærir og blekkingin
elur á vandræðum. Björkin á barð-
inu snýr blöðum við sólu og brosir,
hin snýr blöðum í allar áttir og
skælir sig.
Ég finn að mér léttir við að
skrifa þessar línur; mér finnst ég
vera að endurnýja kunningsskap
minn við Morgunblaðið, en upphaf
skæruhernaðarins, sem endaði við
fæðingu SÁÁ, rek ég til sjö
greinaflokks sem Mbl. flutti á
vordögum 1968 undir fyrirsögn-
inni: „Alkóhólisti spyr ...“.
I þeim greinaflokki var fræðsl-
unni sem byggist á NCA-kerfinu
bandaríska ýtt af stað hérlendis,
með AA-stefnuna að leiðarljósi. I
i
Steinar Guðmundsson
„Án blekkinga er alkó-
hólismi ekki til. Vökvinn
sem á flöskunni gutlar er
ekki böl heimsins, heldur
blekkingarnar sem fylgja
neyslu hans. Ef hægt væri
ad koma hreinskilni í sæti
blekkinganna stæöi tapp-
inn eftir óhreyfður í flösk-
unni.“
upphafi hefir kerfi þetta mætt
mikilli mótstöðu hvar sem á því
hefir bólað, jafnt í Bandaríkjun-
um sem og annars staðar, og alltaf
kostað mikla baráttu að koma því
á skrið. En nú mega bæði Freeport
og SÁÁ njóta þess í friði. Mest bar
á því, að geðlæknum og AA-
mönnum fannst sér troðið um tær.
Þeir fyrrnefndu töldu sig sjálf-
skipaða sérleyfishafa á öllum leið-
um til bjargar fyllibyttunni, hinir
handhafa heiiagrar stefnu, sem
þeir töldu að ekki mætti veifa
fyrir opnum tjöldum.
En útkoman varð auðvitað sú,
að öllum er frjálst að ráðast gegn
alkóhólisma og nota þau vopn sem
hann kýs. En styrk alkóhólisma
má aldrei vanmeta. Vegna sí-
harðnandi blekkingariðju í allar
áttir út frá flöskunni, og stórbætt-
um efnahag pjóðarinnar, endur-
nýjast alkóhólismi í stöðugt
breytilegum myndum — og það
eina sem getur heft hann eða rekið
á flótta er þekking, tæmandi þekk-
ing á eðli hans, opinská þekking
sem slær allt laumuspil í rot fyrir-
fram. En þekking fæst ekki nema
eftir henni sé leitað.
Tækni og vísindi geta aldrei
orðið þungamiðja í því starfi sem
fyrir liggur — umbúðalaus ber-
sögli, sannsögli og hreinskilni er
lykillinn að leiðinni til bata. AA-
stefnan felur allt þetta í sér og
gefur þeim sem bera sig eftir því,
en NCA (SÁÁ) leitar drykkju-
manninn uppi með því að bjóða
honum þjónustu sína, en lætur AA
svo um framhaldið.
II
Um sl. áramót tók ég mér frí frá
störfum hjá SÁÁ til að koma á
framfæri hugarfóstri, sem þessa
stundina rekur mig áfram. Það er
fólgið í því að veita til almennings
sem allra víðtækastri fræðslu um
alkóhólisma með hjálp Póstþjón-
ustunnar. Hugmyndin er, að
hvaða maður sem er, hvar sem er,
til sjós eða lands, eigi kost á að fá
heim á kistuna til sín, eða undir
koddann sinn, fullkomna fræðslu
um meinið alkóhólisma þannig
fram reidda, að hún verki hvetj-
andi til aflestrar.
Fræðslunni, sem ég kalla
Póstfræðslu, er skipt í tvö sjálf-
stæð, en misstór námskeið, annað
fyrir byrjendur, en hitt lengra
komnum. Seinna námskeiðið gæti
líka verkað sem framhald hins
fyrra. Þessu er þannig fyrir kom-
ið, að ég sendi þeim er eftir leita
vikulegar sendingar í pósti og er
byrjendanámskeiðið styttra (5
vikur) en hitt 12 vikur. I hverju
bréfi eru 5 verkefni, flest prentuð,
önnur ljósrituð. 21 bleðill, fjög-
urra, sex og átta dálka, auk 5
Hugleiðinga eru í styttra nám-
skeiðinu, en 52 prentaðir bleðlar,
auk 12 Hugleiðinga í ]>ví lengra.
Styttra námskeiðið er ætlað
þeim sem fræðast vilja um eðli
þeirrar áhættu sem drykkjuskap
er samfara, en það lengra er stílað
upp á þá sem vita hvað alkóhól-
ismi er, og þá sérstaklega þá sem
gera sér eigin alkóhólisma ljósan,
en ná hvorki að sættast við tilver-
una né ná tökum á sjálfum sér af
einhverjum orsökum.
Meðal titla á bleðlum má nefna:
Feluleiknum hætt, Grímuklædd
vinnusvik, Stéttarrígur, Þurrafyll-
irí, Sex, Nöldur, Lögmál eða til-
viljun, Óþolinmæði, Er Guð til?,
Vítagangan, Hvers vegna AA?,
Flótti, Skynheimar, Dómharka,
Hugleiðingar um gervikónga, o.fl.
o.fl., eða samtals 73 bleðlar auk 17
Hugleiðinga um mismunandi efni,
sem öll tengjast alkóhólisma og
eru þættir þessa kynlega kvilla,
sem bæði getur kallast sjúkdómur
og ræfildómur, annað hvort eða
hvort tveggja — allt eftir því í
hvaða þróunarhlykk hann er þá
stundina.
III
Minna námskeiðið kostar kr.
300 en stærra 600 og verður
greiðslufyrirkomulag það, að með
2. bréfi hvors námskeiðis fylgir
gíróseðill. Að sið erlendra
ofdrykkjuvarnarstofnana verða
umslög útsendra bréfa ekki merkt
sendanda, en til fróðleiks skal þess
getið, að af 1.664 bréfum sem
spjaldskrá mín segir mér að ég sé
búinn að senda út í þessu upp-
átæki sl. 5 mánuði hefur póstinum
tekist að koma öllum til skila
nema tveimur. Áhættan við að
bréfin villist er því hverfandi.
Af tveimur ástæðum er gjald-
heimta nauðsynleg. I fyrsta lagi
vegna þess að undirbúningur og
framkvæmd hafa all verulegan
beinan útlagðan kostnað í för með
sér, og í öðru lagi vegna þess, að
mál er til komið að menn geri sér
ljóst, að baráttan gegn ofdrykkju
er vegna þeirra sjálfra og afkom-
enda þeirra og að hætta verður að
líta á ofdrykkjuvarnir sem líkn-
armál ætluð aumingjum.
Hvort væntanlegur áskrifandi
námskeiðs drekkur eða drekkur
ekki skiptir engu. Aðalatriðið er
að sem margþættust fræðsla kom-
ist sem víðast og fylgi eftir hinni
dásamlegu þjóðarvakningu sem
SÁÁ kveikti.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku,
eða löngun til að styðja þessa
starfsemi, svo hún kafni ekki í
fæðingu, tilkynni nafn sitt og
póstfang í síma 74303, eða með
bréfi merktu: „Póstfræðslan,
pósthólf 8, Kópavogi", en auk þess
munu dagskrárstjórar hinna ýmsu
deilda SÁÁ vafalaust greiða götu
þeirra sem eftir leita.
Sprenging
í herstöð
Offenbach, 13. apríl. AP.
ÁTTA tonna bandari.sk herflutninga-
bifreið eyðilagðist af völdum eld-
sprengju, sem olli 30.000 dala tjóni í
herstöð í Offenbach skammt frá
Frankfurt í dag, þriðjudag.
Tveimur öðrum sprengjum var
komið fyrir undir annarri flutn-
ingabifreið og skemmdir urðu á
henni, en eldurinn var kæfður.
Enginn hefur lýst sig ábyrgan á
sprengingunni.
I 4 4
á Lækjartorgi
kl. 2 í dag
Rokk gegn banni