Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982
Hátíðarhöldin
1. maí í Reykjavík
HINN I. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, gengst 1. maí-nefnd
Fulltrúaráós vekralýðsfélaganna í Reykjavík fyrir því að fólk safnist saman á
lilemmi klukkan 13.30 og verður siðan gengið undir kröfum dagsins, klukk-
an 14, á Lækjartorg, þar sem útifundur verður settur klukkan 14.25.
Ræðumenn á fundinum verða: opin listsýning og þar verða einnig
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, Kristján Thorlacius, formað-
ur BSRB, og ávarp flytur Pálmar
Halldórsson, formaður INSI.
Fundarstjóri á fundinum verður
Ragna Bergmann, formaður
Verkakvennafélagsins Framsókn-
Á fundinum flytur sönghópur:
inn „Hálft í hvoru" nokkur lög. I
Listasafni alþýðu að Grensásvegi
16 verða kaffiveitingar, þar verður
uppákomur, eins og það er orðað í
fréttatilkynningu frá verkalýðs-
hreyfingunni.
I 1. maí-nefnd eiga sæti: Kári
Kristjánsson, formaður, Stella
Stefánsdóttir, Garðar Stein-
grímsson, Tryggvi Benediktsson,
Jófríður Björnsdóttir, Sigurður
Pálsson, Sigfinnur Sigurðsson,
Einar Sigurðsson og frá BSRB Ör-
lygur Geirsson og Sigurveig Sig-
urðardóttir og loks frá INSI Pálm-
ar Halldórsson.
Lýðháskólinn í Skálholti:
Tíu ára afmælis minnst
við skólaslit í dag
LYÐHASKOLINN í Skálholti er tíu
ára nú í vor, og verður þess meðal
annars minnst við skólaslit skólans í
dag, klukkan 14. Messa verður í
Skálholtskirkju klukkan 13 og
skólaslit síðan á sal skólans klukk-
an 14.
Þar munu núverandi og fyrrver-
Lesendaþjónusta
Morgunblaðsins:
Davíð Oddsson
svarar spurn-
ingum um
málefni
Reykjavíkur
MORGIÍNBLAÐIÐ mun fram að
kjördegi, 22. maí næstkomandi,
veita lesendum sínum þá þjónustu
að koma spurningum þeirra um
málefni Keykjavíkur og átakamál-
in i borgarstjórnarkosningunum á
framfæri við Davíð Oddsson, efsta
mann á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, en hann er
jafnframt borgarstjóracfni sjálf-
stæöismanna.
Lesendur geta hringt til rit-
stjórnar Morgunblaðsins í síma
10100 milli klukkan 10 og 12 ár-
degis, mánudag til föstudags, og
verða svör Davíðs Oddssonar við
spurningum þeirra birt skömmu
eftir að þær berast. Þá má einn-
ig senda spurningar í bréfi til
ritstjórnar blaðsins. Utan á bréf
skal rita: Spurt og svarað um
borgarmál, ritstjórn Morgun-
blaðsins, pósthólf 200, 121
Reykjavík. Nauðsynlegt er að
nafn og heimilisfang spyrjanda
komi fram.
andi nemendur skólans koma
saman, svo og aðrir velunnarar
Lýðháskólans, biskup Islands, Is-
lands, herra Pétur Sigurgeirsson
og fyrrverandi biskup, séra Sigur-
björn Einarsson.
Núverandi rektor Skálholts-
skóla er séra Gylfi Jónsson, en
hann tók nýlega við af séra Heimi
Steinssyni, sem verið hafði rektor
frá upphafi.
Nemendasamband Lýðháskól-
ans gengst fyrir rútuferð austur
að Skálholti í dag, 1. maí, í tilefni
skólaslitanna og afmælisins, og
verður farið frá Miðbæjarskólan-
um klukkan 10 árdegis.
Ljósm. Mbl.: RAX.
Þróttarbílstjórar sáu um að vagnarnir komust ekki út frá Sundahöfn.
Þróttarbílstjórar stöðvuðu-
uppskipun á salti í Sundahöfn
BÍLSTJÓRAR úr Vörubílstjórafélag-
inu Þrótti lokuðu Sundahöfn í fyrra-
kvöld til að koma í ’veg fyrir, að salti
væri skipað upp úr skipi á vegum
SalLsölunnar hf. Hafði Saltsalan
fengið verktaka til að losa skipið og
voru verktakarnir með vagna sem
taka 21 til 23 tonn. Þróttarmenn
töldu að brotiö hefði verið á þeirra
samningum, þar eð þeir telja sig
hafa fullan rétt á öllum flutningum
innan Reykjavikur. Saltsölumenn
halda því hins vegar fram, að Þrótt-
armenn hafi aöeins samningsrétt á
fiutningi upp að 15 tonnum í ferð.
Deila þessi stendur enn og er
málið í höndum lögfræðinga deilu-
aðila.
Samstaða í atvinnumálanefnd um Blönduvirkjun:
Stíflumannvirki skulu miðast
við stækkun í 400 gígalítra síðar
— Nefndin klofin um afgreiðslu steinullarverksmiðjumálsins
SAMKOMULAG náðist í atvinnu-
málanefnd sameinaðs Alþingis í gær
um svokallað Blönduvirkjunarmál
og röðun næstu vatnsaflsvirkjana
landsmanna. í breytingartillögu
nefndarinnar er lagt til, að Blöndu-
virkjun verði næsta meiriháttar
vatnsaflsvirkjunin, en miðlun um-
fram 220 Gl verói ekki aukin fyrr en
nauðsyn ber til og verði ágreiningur
um málið skuli honum skotið til Al-
þingis, að fenginni tillögu ríkis-
stjórnar.
í nefndaráliti kemur fram að
nefndin telur að stíflumannvirki
eigi að gera með stækkun uppistöðu-
lóns í 400 G1 miðlun fyrir augum
síðar meir, ef þörf krefur að mati
virkjunaraðila, en mestur styrr hef-
ur staðið um það atriði, eins og kom-
ið hefur fram í fréttum. Það virðist
nú ljóst, að atvinnumálanefnd
klofnar hvað varðar afgreiðslu
steinullarverksmiðjumálsins. Ólaf-
ur Þ. Þórðarson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, mun ekki sam-
þykkja að standa að sameiginlegri
niðurstöðu og leggur samkvæmt
heimildum Mbl. til, að málinu verði
vísað til ríkisstjórnarinnar.
Gengið var frá nefndaráliti í
nefndinni síðdegis í gær. Það vakti
athygli við afgreiðsluna að Sverrir
Hermannsson var kjörinn fram-
sögumaður málsins með fjórum at-
kvæðum gegn þremur sem Eggert
Haukdal fékk. Talið er að Ólafur Þ.
Þórðarson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, hafi greitt Sverri atkvæði
sitt til að mótmæla ýmsum aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar, en Ólafur og
Páll Pétursson hafa verið hvað
óánægðastir þingmanna með með-
ferð þessa máls og annarra stórra
mála á þingi nú síðustu daga. Þá lét
Magnús H. Magnússon, þingmaður
Alþýðuflokksins, bóka í fundargerð-
arbók við afgreiðsluna að á grund-
velli umræðna í nefndinni og vegna
orðalags nefndarálitsins vildi hann
að það kæmi skýrt fram, að hann
túlkaði niðurstöðu nefndarinnar
svo, að ætlunin væri að byggja
virkjunarmannvirki í upphafi miðað
við 400 GI miðlunarlón.
Samkvæmt breytingartillögum
nefndarinnar við tillögu ríkisstjórn-
arinnar til þingsályktunar um virkj-
unarframkvæmdir og orkunýtingu
eiga Fljótsdalsvirkjun og síðar Sult-
artangavirkjun að vera næstu
meiriháttar vatnsaflsvirkjanir á
eftir Blönduvirkjun. Skarist annars-
vegar Blönduvirkjun og Fljótsdals-
virkjun og hinsvegar Fljótsdals-
virkjun og Sultartangavirkjun eftir
því sem orkuþörf gefur tilefni til. Þá
leggur nefndin til að samhliða
næstu meiriháttar vatnsaflsvirkj-
unum verði unnið að orkuöflunar-
framkvæmdum á Þjórsár/ Tungna-
ársvæðinu með kvíslarveitum,
stækkun Þórisvatnsmiðlunar og
gerð Sultartangastiflu. Þá er og lagt
til að Búrfellsvirkjun verði stækkuð,
þannig að núverandi afkastageta
vatnsaflsvirkjana á þessu svæði geti
aukist um allt að 950 GWst. á ári.
Könnun á starfsmönnum í dönskum steinullariðnaði:
Sjúkdómar í húð og öndunarfærum
mun algengari en hjá öðru fólki
DEILUR um staðsetningu steinull-
arverksmiðju hér á landi hafa
mjög verið í sviðsljósinu undan-
farnar vikur og mánuði. En það er
víðar en hérlendis, sem umræða
um steinull hefur orðið.
I Ilanmörku hafa undanfarið
verið miklar umræður um steinull
svo og þá hættu sem því fólki, sem
vinnur við framleiðslu hennar og
uppsetningu, stafar af henni.
í nýlegu vikuriti dönsku
læknasamtakanna er ítarlega
fjallað um steinull og önnur
svipuð einangrunarefni. Kemur
þar fram að dánartíðni þeirra,
sem vinna við steinull er mun
hærri en hjá öðrum.
Blaðið greinir m.a. frá því, að
dánartíðni þeirra, sem unnu við
uppsetningu einangrunar var 1,8
sinnum hærri en búist var við.
Dauðsföll af völdum háls- og
lungnakrabba voru 2,4 sinnum
tíðari á meðal þeirra, sem unnu
við uppsetningu einangrunar.
Gerð var könnun á 200 manns,
sem tengjast steinullariðnaði á
einn eða annan hátt. Kom í ljós
að 25% þjáðust af kláða og hjá
8% var hann stöðugur. Enn-
fremur var upplýst að 3% starfs-
manna hefðu sótt um aðra vinnu
vegna óþægindanna, sem fylgja
því að vinna við steinullina.
Ennfremur var gerð könnun á
62 starfsmönnum innan steinull-
ariðnaðarins sem valdir voru af
handahófi. Reyndust 45% vera
með útbrot. Utbrotin voru eink-
um á höndum og handleggjum,
en einnig í andliti, á fótum og
annars staðar á líkamanum. Á
tveggja ára tímabili þróaðist
kláðinn yfir í exem.
Þá kom í ljós að 62% þeirra 80
starfsmanna glerullarverk-
smiðju sem rannsakaðir voru
reyndust vera með óþægindi í
augum. Af 198 mönnum, sem
starfa við byggingariðnað og
þurfa að handleika steinull
reyndust 61% hafa óþægindi í
hálsi, sem rekja mátti til at-
vinnu þeirra.
Hjá 66 mönnum, sem sendir
voru til rannsóknar hjá stofnun í
Kaliforníu, sem sérhæfir sig í at-
vinnusjúkdómum reyndust 42
vera með bronchitis, 25 með ból-
ur í vélinda, 20 með nefrennsli, 6
með astma, 4 með hálsbólgu, 3
með bólgur í kinna- og ennishol-
um og 1 með blóðnasir.
I niðurlagi samantektar blaðs-
ins segir, að í ljós hafi komið að
þykkir steinullarþræðir hafi í
för með sér óþægindi í húð og
slímhimnu. Hjá starfsmönnum,
sem vinna við framleiðslu stein-
ullar hafi tíðni húðkláða verið
25%. Hins vegar hafi hún verið
66% hjá þeim, sem störfuðu við
uppsetningu steinullar. óþæg-
indi í hálsi fundust hjá 61%
þeirra, sem rannsakaðir voru
innan steinullariðnaðarins.
Samstaða er meðal nefndar-
manna, að undanskildum Ólafi Þ.
Þórðarsyni, um að leggja til við rík-
isstjórnina að hún nýti ekki heimild
til fjármögnunar 40% af kostnaði
við steinullarverksmiðju, en áhuga-
aðilum verði gefinn kostur á að sýna
fram á að þeir geti fjármagnað slíka
verksmiðju sjálfir. Gefinn verði sex
mánaða frestur til þessa. Ólafur Þ.
Þórðarson mun ekki ætla að sam-
þykkja þessa tillögu og leggur sam-
kvæmt heimildum Mbl. til, að mál-
inu verði vísað til ríkisstjórn-
arinnar, en það mun væntanlega
þýða að ákvörðun iðnaðarráðherra
um staðsetningu verksmiðjunnar á
Sauðárkróki verður ofan á.
Opið hns
í Valhöll
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavik
standa fyrir opnu húsi í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, í dag 1. maí.
Allt sjálfstæðisfólk er velkomið
á samkomuna, sem haldin er undir
kjörorðinu „Stétt með stétt".