Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 Kínverjar (1980). ÍHUSI MADAME DE STÁEL Kndurreisnartímahil nazismans (1977). Myndlist Bragi Ásgeirsson Það var mikið um að vera í húsakynnum Galerie JAN SIX við Rue Royale í París miðviku- dagskvöldið 14. þ.m. Önnur sýning hins nýstofnaða sýningarsalar var að opna dyr sín- ar útvöldum boðsgestum úr list- heimi heimsborgarinnar. Þegar fyrsta sýningin hafði boðið upp á litrík flataskipunarmálverk ekki minni jöfurs en Jean Dewasne þá skyldu nú kynntar pólitískar myndir íslenzka Parísarmálarans ERRÓ. Hinar pólitísku myndir Erró eru sérstakur kafli í myndgerð listamannsins og þar kemur hann víða við enda virðast allir fá sinn skammt vel útilátinn af marg- slunginni heimsádeilu gerandans. í sýningarskrá stendur þar: Erró er málari. Erró málar daginn í dag. Vettvang 20. aldarinnar. „Erró est peintre. Erró peint Au- jourd’hui. Aujourd’hui au XXéme siécle.“ — Þetta er skýrt og skilmerki- lega útlistað og enda mikið rétt, Erró er algjörlega vígður því að lýsa feimnislaust hræsni og yfir- drepskap ráðamanna í austri og vestri. Til þess notar hann allt mögulegt myndefni er hann rekst á i kringum sig og bætir við eigin ádeilu. Samt er ómögulegt að lesa úr þessum myndum hvar hann sjálfur stendur í slagnum nema þá, að maður hallast að því að hann vilji helst vera áhorfandi og afhjúpa svo allan fáránleikann. Þannig eiga myndirnar miklu meira skylt við ádeilu en fagur- fræði, — fagrar eru þær ekki frek- ar en vettvangur heimsins á vor- um dögum. Og athygli vekja þess- ar myndir svo sem sjá mátti greinilega við opnun sýningarinn- ar þar sem undirritaður tók að sér að gerast eins konar statisti og taka myndir af sýningargestun- um, sem var fjölskrúðugur mann- söfnuður. Beinleit fljóð og brúna- léttir halir gengu þar mjúkum skrefum um rúmgóða sali íbúðar þeirrar er jafnan er kennd við hina frægu valkyrju lífs og bók- mennta, madame de. Stáel. — A.L. Germaine de Stáel v. Hoistein (1766—1817) var franskur rithöf- undur og dóttir hins mikla stjórn- vitrings Necker. Hún ruddi braut rómantíkinni með skáldsögum sínum „Delphine" (1800) „Cor- inne“ (1807) og „De l’Allemagne (1810). Með þeim beindi hún aug- um samlanda sinna að menningu annarra landa einkum nágranna- landsins germanska. Hinar frjáls- lyndu skoðanir hennar bökuðu henni óvild Napóleons Bonaparte. — Guðmundur Erró beinir sjón- um manna að hráskinnaleik hand- hafa stríðsvélanna á tuttugustu öld en því fylgir þó að sjálfsögðu takmörkuð rómantík. Sýning Erró stendur til 7. maí. Svona er útlitið á frægum lista- mönnum í París í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.