Morgunblaðið - 01.05.1982, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982
jWtóöur
á morgun
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr.
Hjalti Guömundsson. Tónleikar
Dómkórsins eru kl. 17.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Sumar-
ferð sunnudagaskóla Árbæjar-
sóknar veröur farin frá Safnaðar-
heimilinu sunnud. 2. maí kl. 10 árd.
aö Mosfelli í Mosfellsdal. Guös-
þjónusta í Safnaðarheimili Árbæj-
arsóknar kl. 2. Hlutavelta fjáröflun-
arnefndar Árbæjarsafnaöar á sama
stað kl. 3. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa aö Norö-
urbrún 1, kl. 2. Sr. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BREIÐHOLTSPREST AKALL:
Messa í Breiöholtsskóla kl. 14. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAOAKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 14. Organleikari Guöni Þ. Guð-
mundsson. Sr. Ólafur Skúlason,
dómprófastur.
DIGRANESPREST AKALL: Guös-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl.
14. Sr. Gylfi Jónsson.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL:
Laugardagur: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu-
dagur: Barnasamkoma i Fellaskóla
kl. 11. Guösþjónusta í Safnaðar-
heimilinu Keilufelli 1, kl. 2 e.h. Sam-
koma nk. þriöjudagskvöld kl.
20.30. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 11. Organleikari Árni Arinbjarn-
arson. Vinsamlega ath. breyttan
messutíma. Almenn samkoma nk.
fimmtudag kl. 20.30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðju-
dagur 4. maí, kl. 10.30, fyrirbæna-
guösþjónusta, beöiö fyrir sjúkum.
Fimmtudagur 6. maí kl. 20.30,
fundur i Kvenfélagi Hallgrímskirkju
í Safnaðarsal.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Ath. breyttan messutíma. Sr. Tóm-
as Sveinsson. Lesmessa kl. 17. Sr.
Arngrímur Jónsson.
Guðspjall dagsins:
Jóh. 16.: Ég mun sjá yður
aftur.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Guösþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 2. Almennur safnaöar-
fundur aö loklnnl guösþjónustunni.
Umræðuefni: Safnaöarheimiliö. Sr.
Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óskastund
barnanna kl. 11. Söngur, sögur,
myndir. Sögumaöur Siguröur Sig-
urgeirsson. Guðsþjónusta kl. 2.
Prestur sr. Slguröur Haukur Guð-
jónsson, organleikari Kristín Ög-
mundsdóttir, einsöngur Signý Sæ-
mundsdóttir, blokkflauta Camilla
Söderberg, fiöla Michael Shelton,
sembal Helga Ingólfsdóttir, viola da
gamba Ólöf Sesselja Óskarsdóttir.
Fjáröflunarkaffi Kvenfélagsins eftir
messu. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
14. Aöalfundur safnaöarins strax
aö lokinni messu kl. 15. Mánudag-
ur 3. maí: Kvenfélagsfundur kl. 20.
Þriðjudagur 4. maí: Bænaguös-
þjónusta kl. 18. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Laugardagur 1. maí:
Samverustund aldraðra. Stutt ferð
kl 13.30. Ekiö um Heiömörk og Víf-
ilsstaöahlíöar aö Kaldárseli. Þátt-
taka tilkynnist í síma 16783 milli kl.
11 og 12 í dag, laugardag. Sunnu-
dagur: Barnasamkoma kl. 10.30.
Guösþjónusta kl. 14. Þriöjudagur
4. mat: Æskulýösfundur kl. 20. Blbl-
íulestur kl. 20.30. Miövikudagur 5.
maí: Fyrirbænamessa kl. 18.15,
beöiö fyrir sjúkum. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELJASÓKN: Barnaguösþjónusta
aö Seljabraut 54, kl. 10.30. Barna-
guösþjónusta Ölduselsskóla kl.
10.30. Síöustu barnaguösþjónustur
vetrarins. Guösþjónusta Öldu-
selsskóla kl. 14. Mánudagur 3. mai:
Biblíulestur t Safnaöarsalnum
Tindasell 3, kl. 20.30, rætt um
guösþjónustu safnaöarins.
Fimmtudagur 6. maí: Bænasam-
koma í Safnaðarsalnum Tindaseli
3, kl. 20.30. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN: Barna-
samkoma kl. 11 árd. í Félagsheimil-
inu. Vorferöin veröur farin laugar-
daginn 8. maí. Lagt af staö kl. 1 frá
félagsheimilinu. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Messa
kl. 2. Organleikari Siguröur isólfs-
son, prestur sr. Kristján Róberts-
son.
PRESTAR í Reykjavíkurprófasts-
dæmi: Hádegisveröarfundurinn,
sem vera átti í Norræna húsinu
mánudaginn 3. maí, fellur niöur.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl.
11 árd.
DÓMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa
kl. 2 síöd. Alia rúmhelga daga er
lágmessa kl. 6 síöd. nema laugar-
daga, þá kl. 2 síöd. í þessum mán-
uöi verður lesin Rósakransbæn eft-
ir lágmessuna kl. 6.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2b:
Fórnarsamkoma kl. 20.30. Árni
Sigurjónsson talar. Sönghópurlnn
Saltkorn syngur.
HJÁLPRÆDISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30., bæn kl. 20 og
hjálpræöissamkoma kl. 20.30.
Anna Óskarsdóttir talar.
KAPELLA ST. Jósefsystra Garöa-
bæ: Hámessa kl. 2 síöd.
VÍOIST AÐASÓKN: Guðsþjónusta
kl. 11 árd. Sr. Ingólfur Guömunds-
son messar. Sr. Siguröur Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARDARKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 14. Sóknarprestur.
KAPELLAN ST. Jósefsspítala,
Hafn.: Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30 árd. Rúmhelga daga messa kl.
8 árd.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Vor-
feró sunnudagaskólabarnanna til
Kálfatjarnarkirkju veröur farin og
lagt af staö frá Ytri-Njarövíkur-
kirkju kl. 10.30 og frá Innri-Njarð-
víkurkirkju kl. 10.45. Sóknarprest-
ur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guösþjón-
usta kl. 11 árd. Organisti Siguróli
Geirsson. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 1 síöd. Safnaóarfundur
eftir messu. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guösþjónusta kl. 11 árd. Sóknar-
prestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa kl.
14. Helgi Elíasson bankastjóri pré-
dikar. Gideonfélagar kynna starf
sitt. Sr. Tómas Guömundsson.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 14.
Sr. Hugh Martin. Sr. Björn Jóns-
son.
a
Ensk eik og mahogany húsgögn
*Bóktmrinn
Hverfisgötu 76 — Sími 15102
Samkeppnin um íþróttasvæði í Mjóddinni:
Bótakröfur íhugaðar vegna frá-
yfsunar einnar tillögunnar
KRLSTINN Ragnarsson, arkitekt,
og samstarfsmenn hans hafa nú fal-
ið lögmanni sínum að kanna hvað
hægt sé að gera, vegna þess að dóm-
nefnd á vegura borgarinnar vísaði
tillögu þeirra um skipulagningu
íþróttasvæðis í Mjóddinni frá vegna
meints formgalla.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun formgallinn vera
sá, að tillögum var skilað í sex
eintökum í stað fjögurra eins og
útboðsskilmálar segja til um, en
engu að síður tekið við tillögunum
athugasemdalaust. Tillögurnar
hafi síðan svo ekki verið settar til
hliðar fyrr en löngu síðar í áliti
dómnefndar. Um aðrar tillögur,
sem til verðlauna komu, hafi einn-
ig verið um formgalla að ræða,
meðal annars um lit á líkönum.
Munu uppi einhverjar hugmyndir
um bótakröfur vegna þessa, bæði
vegna þess að útlagður kostnaður
vegna tillögu Kristins og félaga er
samkvæmt reikningi um 65.000
krónur og einnig vegna þess að
með því að vísa tillögunni frá,
hafa þeir verið sviptir rétti til þess
að taka þátt í frekari tillögugerð á
svæðinu. Þá mun ekki ljóst hvort
samræmi sé milli samkeppnis-
reglna og formreglna í útboðs-
skilmálum eða hvaða reglur séu
frávíkjanlegar og hverjar ófrá-
vikjanlegar.
Eins og áður sagði er málið í
athugun og vildu málsaðilar ekki
tjá sig um málið að svo stöddu, en
lögmaður málsaðila undraðist
fréttir Tímans og hvaðan þær
væru komnar, því að mál þetta
lægi enn á „teikniborðinu", ef not-
uð væri viðeigandi líking.
„Mér kemur þetta einkennilega
fyrir sjónir, þar sem mér barst
bréf frá Kristni Ragnarssyni
skömmu áður en tilkynnt var um
úrslitin, þar sem hann áskildi sér
rétt í málinu. í því bréfi er tekið
fram, og reyndar munnlega síðar,
að það sé ekki verið að amast út í
þann úrskurð dómnenfndar að
víkja tillögunni frá, enda sé hann í
samræmi við samkeppnisreglur
arkitektafélagsi ns,“ sagði Guð-
laugur Gauti Jónsson, formaður
dómnefndar, er málið var borið
undir hann.
„Að öðru leyti leyti hef ég lítið
um málið að segja á þessu stigi.
Það var ótvírætt um formgalla á
tillögunni að ræða, fleiri en einn,
en einn þeirra var viðamestur og
olli því að henni var vísað frá.
Reyndar var um smávægilega
formgalla á öðrum tillögum, en þó
þotti ekki ástæða til að vísa þeim
frá. Honum er náttúrlega frjást og
heimilt að leita réttar síns, ef
hann telur að hann eigi einhvern
rétt umfram það, sem aðrir eiga.
Annars skil ég þetta varla, með
því að hann tekur þátt í þessari
samkeppni viðurkennir hann það
sem liggur til grundvallar sam-
keppninni, sem eru samkeppnis-
reglur Arkitektafélagsins og
keppnislýsingin sjálf. Mér þykir
vissulega leiðinlegt að svona
skyldi fara, en við töldum ekki
annað hægt en að vísa tillögunni
frá vegna formgallanna og með
tilliti til annarra keppenda, sem
höfðu haldið sig við reglurnar,"
sagði Guðlaugur Gauti.
WNKRS'fó/K —------
ORPOG HTHOFNIR (T,LWW)
Askorun
til skotveiðimanna
SKOTVEIÐIFÉLAG íslands sendi
10. apríl frá sér eftirfarandi áskor-
un til skotveiðimanna:
Nú fer í hönd timi farfugla,
stórra og smárra, sem eru á leið
yfir hafið til varpstaða og
sumarheimkynna hér á iandi og
áfram enn lengra en með við-
komu hér á landi. Meðal margra
fuglategunda eru nokkrar gæsa-
tegundir.
Skotveiðifélag íslands hvetur
hér með alla til að virða lög og
reglur varðandi veiði fugla og
vill að gefnu tilefni skora sér-
staklega á menn að skjóta ekki
gæs ólöglega að vorlagi. Slíkt
gera ekki sannir veiðimenn. Ár-
þúsunda gömul óskráð siðalög-
mál veiðimanna heimila ekki
slíkar veiðar.