Morgunblaðið - 01.05.1982, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982
39
Æskilegt og sjálfsagt að
konur sitji í hreppsnefnd
ekki síður en karlar
Rætt við Ernu Aradóttur á Patreksfirði
Sjálfstædismenn á PatreksfirAi
hafa birt frambodslista sinn
vegna hreppsnefndarkosn-
inganna í vor, en flokkurinn á nú
tvo menn í hreppsnefnd. AnnaA
sæti framboAslista SjálfstæAis-
flokksins skipar Erna Aradóttir,
sem er í fyrsta skipti í framboAi
til hreppsnefndar í aAalsæti.
Erna er fædd og uppalin á Patr-
eksfirAi þar sem hún hefur búiA
alla tíA aö frátöldum þeim árum
er hún var í burtu viA nám.
BlaAamaAur Morgunblaösins
hitti Ernu aö máli fyrir skömmu.
Hún var fyrst spurö hvort gróska
væri í félagslífi á PatreksfirAi.
„Eins og víðar mætti félags-
líf sjálfsagt vera meira," sagði
Erna, „en þó held ég að mér sé
óhætt að segja að miðað við
hve fólk hér vinnur mikið, þá
sé félagslífið hér á Patreksfirði
nokkuð gott. — Sjálf hef ég
starfað talsvert að félagsmál-
um, aðallega með kvenfélögun-
um á staðnum, Kvenfélaginu
Sif og slysavarnadeildinni
Unni, en starfsemi þeirra hefur
alltaf verið í miklum blórna."
— Nú skipar þú annað sæti
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins, og miðað við úrslit
fyrri kosninga ættir þú að vera
nokkuð örugg með að komast í
hreppsnefnd. Þú yrðir þá
fyrsta konan í hreppsnefnd á
Patreksfirði, er ekki svo?
„Jú, það er rétt, og ég leyfi
mér nú að vera svo bjartsýn, að
vona að við fáum fleiri en tvo
menn kjörna nú. Það er að
mínum dómi æskilegt og sjálfs-
agt, að konur sitji í hrepps-
nefnd ekki síður en karlar.
Hvað mér sjálfri viðvíkur, þá
vona ég að konur á Patreks-
firði, hvar í flokki sem þær
standa, geti snúið sér til mín
með þau mál sem þær vilja
koma á framfæri í hrepps-
nefnd."
— Hver eru helstu áhugamál
þín, sem þú hyggst beita þér
fyrir í hreppsnefnd, náir þú
kjöri?
„Ég hef litla reynslu af sveit-
arstjórnarmálum, en mikinn
áhuga, og mun kappkosta að
setja mig sem best inn í þessi
mál og kyn«a mér öll þau mál
er upp kunna að koma. Mér
finnst ég hafa góðan tíma til að
sinna þessum málum, en nú eru
aðeins eftir tvö börn heima,
hluta ársins. Það er hjá okkur
eins og svo mörgum úti á landi,
að börnin stunda nám annars
staðar og eru aðeins heima yfir
sumarið.
Ég mun berjast fyrir öllum
þeim málaflokkum er geta orð-
ið Patreksfirði til framdráttar
og stuðlað að uppbyggingu 'hér.
meöal þess sem gera þarf átak
í, er að búa þannig í haginn að
fólk vilji setjast hér að til
frambúðar, þannig að hér
fjölgi verulega. Nú búa á
Patreksfirði rúmlega 1.000
manns, en ég tel að margvísleg-
ur rekstur þjónustu yrði hér
mun hagkvæmari og ódýrari ef
íbúafjöldinn tvöfaldaðist. Við
eigum til dæmis stórt og glæsi-
legt félagsheimili, sem reyndar
er ekki fullgert ennþá, en það
er erfitt að reka á svo fámenn-
um stað. Nýja heilsugæslu-
stöðin sem á að fara að taka í
notkun getur hæglega sinnt
þörfum fleira fólks, og yrði þá
hagkvæmari í rekstri. Nú, allt-
af skortir hér fólk til fisk-
vinnslu og á bátana.
Þá get ég nefnt að við þurf-
um að gera átak í að fegra og
prýða staðinn og gera hann
meira aðlaðandi en nú er. Þar
þurfum við Patreksfirðingar að
taka rækilega til höndum. Enn
má nefna að brýna nauðsyn ber
til þess, að mínum dómi, að
sinna málum aldraðra meira
en gert hefur verið, fyrst og
fremst með byggingu íbúða
fyrir aldrað fólk, en einnig þarf
að efla félagslíf meðal þessa
fólks, og í því sambandi hefur
mér dottið í hug að hið opin-
bera og t.d. kvenfélögin á stað-
num gætu haft samvinnu um
þau mál. Þrjú síðustu ár hefur
verið rekið barnaheimili í Fé-
lagsheimilinu við ófullkomnar
aðstæður, en þau mál leysast
Emm Aradóttir, sem skipar annaö
sæti framboöslista SjilfstæÖis-
flokksins viö hreppsnefndarkosn-
ingarnar á Patreksfiröi í næsta mán-
uöi.
með tilkomu nýs dagvistunar-
heimilis sem vonandi verður
tekið í notkun í haust. Margt
fleira mætti nefna, bæta þarf
aðstöðuna við flug\-öllinn og
lagfæra veginn þangað, en við
Patreksfirðingar eigum óvenju
langt að fara á flugvöllinn.
Þangað eru um 26 kílómetrar,
eða um hálftíma akstur, og
flugskýlið er svo lítið að á
annatímum komast ekki allir
sem leið eiga um, þar inn. Þetta
er reyndar mál annarra aðila
en hreppsnefndar að sjá um, en
skiptir okkur Patreksfirðinga
miklu máli. Hér þarf auðvitað
að gera átak til úrbóta eins og
víðar, verkefnin eru næg, og
síst af öllu óttast ég að næsta
hreppsnefnd þurfi að hafa
áhyggjur af verkefnaskorti,“
sagði Erna Aradóttir að lokum.
”Hver
þad út?”
Spurði Jón Spæjó þegar hann komst að því hvað
verðið á nýja Skodanum var hlægilega lágt.
Og ekki varð hann minna hissa þegar það kom í
ljós að ekki þyrfti að borga nema 40.000 kr. út og
afganginn á 6 mánuðum.
Þetta fannst Jóni Spæjó greidsluskilmálar í
betra lagi.
\\\\\\\"SíSSfcv
JÖFUR
HR
Nybylavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
1
I
t
I
4