Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982
51
Dalamenn sóttir heim
20.—21. mar.s fór skáksveit 23ja
manna vestur í Dali til þess aó etja
kappi við heimamenn í þeirri göf-
ugu iþrótt skákinni. Eitt áttu
komumenn sameiginlegt fyrir utan
það að vera skákmenn góðir, þeir
voru að vitja átthaga sinna. I»að má
segja að skákin hafi verið þeirra
skálkaskjól til þess að komast vest-
ur í Dali. hetta voru allt saman
Dalamenn sem hafa flust burtu úr
héraðinu og í stöku tilvikum synir
slíkra.
Teflt var í félagsheimilinu
Dalabúð í Búðardal og fór svo að
fyrrverandi íbúar sýslunnar
reyndust ofjarlar hinna núver-
andi og sigruðu með tuttugu og
fimm og hálfum vinningi gegn
tuttugu og hálfum. Teflt var á 23
borðum, 2 skákir á hverju borði,
og var umhugsunartími ein
klukkustund á hvora skák fyrir
hvern keppanda.
Daginn eftir var svo efnt til
hraðskákmóts og voru tefldar 11
umferðir samkvæmt Monrad-
kérfi. Sigurvegari varð Ólafur
Þór Jóhannsson, Búðardal, með 9
vinninga, í öðru sæti varð Sig-
urður B. Jónsson, Akranesi, með
8 vinninga, í þriðja sæti Jón
Heiðar Magnússon, Reykjavík,
með 8 vinninga. 8 vinninga fengu
einnig Halldór Gíslason Reykja-
vík og Gísli Gunnlaugsson, Búð-
ardal.
Komumenn snæddu í tvígang,
sameiginlega, í boði heimamanna
og flutt voru ávörp. Voru þar at-
kvæðamestir Kristinn Jónsson,
oddviti í Búðardal, Ásgeir
Bjarnason í Ásgarði og Kristinn
Sigurjónsson, formaður Breið-
firðingafélagsins, og færði hann
heimamönnum gjafir til marks
um þann hlýhug sem burtfluttir
Dalamenn bera til héraðs síns.
Forystumenn og einvaldar í
skáklegum efnum voru þeir Gísli
Gunnlaugsson og Birgir Krist-
jánsson.
Ferðin þótti takast prýðilega
og voru menn á einu máli um að
þessum viðskiptum ætti að halda
áfram um ókomin ár.
BK.
1. maí á Suðurnesjum:
Níu félög
standa að há-
tíðahöldunum
„ÞAÐ verður mikið um að vera
hjá okkur á Suðurnesjum á bar-
áttudegi verkalýðsins, 1. maí,“
sagði Jóhann Alexandersson, full-
trúi Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis í 1. maí-
nefnd verkalýðsfélaganna á Suð-
urnesjum, „en að henni standa
samtals 9 félög og hafa aldrei ver-
ið fleiri félög en núna. Garður og
Sandgerði bættust í hópinn að
þessu sinni og er það mjög
ánægjulegt.
Hátíðahöldin hefjast með
kröfugöngu frá Víkinni klukkan
tvö og verður gengið að Félagsbíói
en þar hefst baráttu og hátíðar-
fundur með Guðmundi Hall-
varðssyni, formanni Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, en auk hans
munu forvígismenn verkalýðsfé-
laganna á Suðurnesjum flytja
stutt ávörp. Núna verður í fyrsta
sinn tekinn upp sá háttur að
heiðra aldna verkalýðsleiðtoga á
Suðurnesjum, þrjá að þessu sinni.
Ýmsir skemmtikraftar af Suður-
nesjum munu koma fram, þar á
meðal kór úr Njarðvíkunum, leik-
arar úr Garðinum og fleiri.
Aldraðir munu setja svip sinn á
hátíðina. Fulltrúi þeirra flytur
ávarp og einn úr þeirra hópi ætlar
að taka lagið á tvöfalda harmón-
iku. Merki dagsins verða seld og
lúðrasveit úr Keflavík leikur fyrir
göngunni," sagði Jóhann. „Leik-
sýning verður fyrir börn klukkan
fimm og fyrir fullorðna klukkan
níu, en hápunkturinn er dansleik-
urinn um kvöldið í Stapanum, sem
stendur til klukkan þrjú. Ágóðinn
af honum er notaður til að greiða
kostnaðinn vegna hátíðarhald-
anna.“
Sjö sækja um
stöðu fjármála-
stjóra BÚH
SJÖ manns sækja um fjármála-
stjóraslöóu Bæjarútgeróar Hafnar-
fjaróar, þar af hafa tveir óskað nafn-
leyndar.
Hinir 5 eru: Axel S. Axelsson,
Njarðargötu 39, Reykjavík, Hös-
kuldur Jónsson, Rjúpufelli 44,
Reykjavík, Jónas H. Jónsson,
Reynimel 32, Reykjavík, Viðar
Vilhjálmsson, Skjólvangi 8, Hafn-
arfirði, og Þór Karlsson Wilcox,
Lindarhvammi 6; Hafnarfirði.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
^ 0 u
STÆRÐ i
2 14
3 16
4 1®
5 20
. „ 6 20 utc»
ÁN OÝfU 12
MED DÝFU 14
jjjjj^^FMS 15
. ’ SS&,
/
mmo vorur
KLassa vörur
WftKARNABÆR
og umbodsmenn um land allt
Cesar — Akureyri, Eplid — Isafiröi, Eyjabær bjöminn — Borgarnesi, Lea — Ólafsvík,
— Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavík, Lindin — Selfossi, Paloma — Vopnafiröi,
Hornabær — Hornafiröt, Álfhóll — Siglufiröi, Patróna — Patreksfiröi. Báran — Grindavík
Óömn — Akranesi, Ram — Húsavík, Bakhút- Bfótsbær — Seyöisfirói, Þórshamar —
ió — Hafnarfirói, Austurbær — Reyóarfiröi, Stykkishólmi. Inga — Hellissandi.
Kaupfél. Rangæinga — Hvolsvelli, Sparta — Aþena — Blonduósi.
Sauöarkróki, Skógar — Egilsstöóum, ís-