Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982
Hópurinn, sem þátt tók í Norðurlandamótinu í Svíþjóó.
Frá Reykjadal í Mosfellssveit, sumardvalarheimili fatlaðra barna. Forstöðu-
kona sumardvalarheimilisins sl. 10 ir hefur verið Andrea Þórðardóttir.
Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, ásamt skrifstofustjóra og fram-
kvæmdastjóra, talið f.v.: Birgir Þormar, Jónína Guðmundsdóttir, Hólmfríður
Guðjónsdóttir, Óttar Kjartansson, Matthildur Þórðardóttir, Halldór Rafnar
og Sigurður Magnússon.
hluti af fötluðu fólki hér á landi.
Og það skín ánægja út úr þessu
fólki þegar það fær að vera með og
gerir hluti, sem það átti ekki áður
kost á. Þýðingarmesti þátturinn í
íþróttastarfi fatlaðra er að mínu
mati sá, að þessi þjóðfélagshópur
hefur nú fengið ný og áður óþekkt
viðfangsefni að glíma við. Iþrótt-
irnar eru orðnar að sameiginlegu
áhugamáli þessa fólks, þessi þátt-
ur er því mikilvægur, hann skapar
umtal og tilhlökkun og hefur því
nú orðið geysimikla félagslega
þýðingu. Með tilkomu íþrótta-
starfs fatlaðra hefur orðið umtals-
verð breyting á högum þessa fólks,
það hímir ekki lengur utangarðs
og bíður þess að tíminn líði fram
til næsta máls eða til næsta dags.
Keppnin hefur orðið órjúfanleg-
ur hluti af íþróttastarfi fatlaðra
og nú er nýlokið Islandsmóti fatl-
aðra í fjórum greinum, þar sem
um 140 keppendur víðs vegar að af
landinu spreyttu sig með glæsi-
legum árangri. Þetta var þriðja ís-
landsmótið, sem fram fer á vegum
Iþróttasambands fatlaðra. Þarna
voru fulltrúar allra fötlunarhópa
með, fulltrúar allra skaðahópa, en
mótinu er skipt í ýmsa fiokka eftir
hreyfihömlun, einnig er keppt í
flokkum blindra og sjónskertra,
flokkum heyrnar- og málleysingja
og loks í flokkum þroskaheftra og
vangefinna.
Það er okkar ásetningur og eitt
stærsta viðfangsefni, að íþrótta-
starf komist í gang sem víðast á
landsbyggðinni. Þar er vilji fyrir
hendi, og með útbreiðslu- og kynn-
ingarstarfi er hægt að sýna fram á
hvað hægt er að gera, ef staðið er
að hlutunum eins og kringum-
stæður þarfnast. Margir halda að
það sé takmarkað hvað fatlað fólk
getur tekið sér fyrir hendur, en
sannleikurinn er sá, að það getur
gert nánast allt sem gert er —
hver á sinn máta. Iþróttir fatlaðra
eru margfalt breytilegri, og ef til
vill fyrirhafnarmeiri en annað
vegna óteljandi sérþarfa. Af þess-
um sökum er óhjákvæmilegt að
flokka starfið niður í mismunandi
flokka til að jafna hlutgengi sem
flestra þátttakenda.
Sem dæmi um það hversu mik-
illi fótfestu íþróttastarf fatlaðra
hefur náð á skömmum tíma, og
útlendir aðilar eru undrandi á, má
nefna að á síðastliðnu ári, ári fatl-
aðra, efndu íþróttasamböndin á
Norðurlöndunum til innbyrðis
trimmkeppni, þar sem fötluðum
gafst kostur á að leysa ýmis við-
fangsefni einu sinni á dag í einn
mánuð, og fór fatlað fólk á íslandi
með sigur af hólmi, hvernig svo
sem á það er litið. í stigakeppninni
vorum við þvílíkir yfirburðasig-
urvegarar, að hinir voru hvergi
þar nærri með tærnar þar sem við
vorum með hælana. En þar sem
ýmsir vilja gagnrýna höfðatölu-
regluna, þá sýnir það ennþá betur
áhugann og dugnaðinn hjá okkar
fólki, að á íslandi voru leyst af
hólmi 20 þúsund viðfangsefni,
meðan leyst voru 22 þúsund við-
fangsefni í Svíþjóð, sem er 36
sinnum fjölmennari þjóð en Is-
lendingar. Þetta sýnir hvað ótví-
ræðast áhuga og dugnað fólksins
hér. Þessi keppni var kærkomin
uppákoma, og alveg með ólíkind-
um hversu mikill áhugi var fyrir
hendi í röðum okkar fólks.
Ég vil endilega nota þessa tæki-
færi til að geta þess, að íþrótta-
starf fatlaðra hefur notið ótrúlega
mikillar velvildar margra aðila.
Það er með ólíkindum hversu
margir hafa verið boðnir og búnir
til að rétta okkur fjárhagslega að-
stoð. Við erum þessum aðilum
ákaflega þakklát. Af mörgu er að
taka, en eitt dæmi vil ég nefna
fyrir þessa hjálpsemi í heild. Það
er höfðingleg gjöf fjögurra Kiw-
anisklúbba, 66 þúsund krónur í
beinhörðum peningum, sem gerði
okkur kleift að taka þátt í Norður-
landamóti fatlaðra barna í Sví-
þjóð á ári fatlaðra í fyrra. ísland
sendi 25 keppendur á mótið, var
eina landið auk Svíþjóðar með
fulla sveit, og það er ljóst að þátt-
taka í svona móti er mikið fyrir-
tækið og dýrt. En þessi rausnar-
lega gjöf gerði ferðina mögulega.
Einnig sýndu mörg sveitarfélög og
sambandinu vinsemd og auðveld-
uðu ferðina. Þannig mætti nefna
mörg önnur tilvik um velvilja,
þótt ekki sé rúm til þess hér.
Ég fer ekki í launkofa með þá
skoðun mína, að almennu íþrótta-
félögin hafa gert alltof lítið af því
að liðsinna fötluðum, þar er
óplægður akur. Það á ekkert að
vera í veginum fyrir samstarfi
fatlaðra og ófatlaðra. Það vantar
mikið á að almennu íþróttafélögin
um land allt bjóði fötluðu fólki á
sínu heimasvæði uppá ýmis við-
fangsefni. Þetta yrði kannski erf-
iðast í fámenninu, þar eru ýmsir
byrjunarörðugleikar sem þarf að
yfirstíga, en þess má geta að í
hnum dreifðu byggðum Norður-
Noregs er að finna mjög dugmikla
íþróttaiðkendur. En ég held að hér
sé fyrst og fremst um að ræða þörf
fyrir ákveðna forystu af hálfu
leiðtoga til að sinna þessum þætti.
Rétt er að taka fram í þessu sam-
bandi, að við höfum notið mikils
og góðs stuðnings af hálfu þeirra
sérsambanda, sem sinna íþrótta-
greinum, sem fatlaðir iðka, svo
sem Sundsambandi, Lyftingasam-
bandi og þar fram eftir götunum.
Þessir aðilar hafa aðstoðað okkur
við móthaldið, lagt til starfsmenn
og dómara, sem sýnt hafa mikla
óeigingirni.
Ég vil að lokum taka fram, að á
hinum smærri stöðum gætu
íþrótta- og ungmennafélögin gert
fötluðu fólki, og þar með öllu sam-
félaginu, mikið gagn, með því að
liðsinna því, og bjóða því upp á
viðfangsefni, þar sem stakkur yrði
sniðin eftir vexti. Það eru margir
haldnir þeirri trú, að til þurfi að
koma sérfélög fatlaðra, en það er
misskilningur. Það er ýmsu hægt
að koma til leiðar með samstarfi
almennu íþróttafélaganna og
íþróttasambands fatlaðra," sagði
Sigurður Magnússon.
Gisting í heimahúsum
Óskum eftir aö komast í samband viö heimili í
Reykjavík sem gætu tekiö aö sér gistingu fyrir er-
lenda feröamenn mánuöina júlí og ágúst.
Úlfar Jacobsen
Ferdaskrifstofa hf.
Austurstræti 9
símar 13491/ 13499.
Flugáhugamenn
Látiö drauminn rætast
— læriö aö fljúga
Ókeypis reynsluflug
Sími 28122.
'M/rw
GAMLA FLUGTURNINUM
REYKJAVlKURFLUGVELLI
HÁRSNYRTISTOFAN
Dóróthea Magnúsdóttir
Torfi Geirmundsson
Laugavegi 24 II hæð
Simi 17144
SUPERIOR
HÁRTOPPAR ERU:
• Byltingarkennd nýj-
ung á sviði hártoppa
• Má skipta hvar og hve-
nær sem er
• Má fara með í sund
• Eðlilegir. léttir,
þægilegir
•Auðveldir í hirðingu
og notkun
• Fyrsta flokks fram-
leiðsla sem hæfir
Islendingum
• Leitið upplýsinga og
fáið góð ráð án
skuldbindingar
Ótrúlega hagstætt verð - gerið samanburð
Allar nánari upplýsingar í síma 17144
TORFI GEIRMUNDSSON
Umboösmenn:
Rakarastofa Valda, Akureyri,
Rakarastofa Björns Gíslasonar, Eyrarvegi 5,
Selfossi
Rakarastofa Rúnars, Húsavík.