Morgunblaðið - 19.05.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.05.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ1982 53 BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Aldamótin og nútíminn. Nýja sjúkrahúsió er til hægri á myndinni, en það gamla, sem er frá aldamótum, til vinstri. Fyrirhugað er að tengja húsin þegar það nýja verður tekið i notkun. í Seyðisfirði ræddi Morgunblaðið við efsta mann á lista Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjórann og fékk upplýsingar um það, sem helzt væri á döfinni á vegum bæjarins. Kom fram i máli þeirra að nú stendur yfir bygging sjúkrahúss, bygging grunnskólahúss er á döfinni, hitaveita var- tekin í notkun í vetur auk ýmissa annarra verkefna, sem á dagskrá eru. t>á lögðu þeir báðir áherzlu á samgöngur og töldu að samgönguvandamál Seyðisfjarðar yrðu ekki leyst nema með því að gera jarðgöng í gegn um fjöllin milli SeyðisQarðar, Mjóafjarðar og Norðfjarðar. I Seyðisfirði hafa sjálfstæðismenn og framsóknar- menn myndað meirihluta saman. Hafa sjálfstæðismenn tvo fulltrúa og fram- sóknarmenn þrjá. Theódór Blöndal, efsti maður á lista Sjálfstæóisflokksins: Stefnum að því að bæta við okkur einum bæjarfulltrúa Toxti HG Ijósmyndir Kristján „VIÐ höfum myndað meirihluta innan bæjarstjórnarinnar ásamt Framsókn síðastliðin 8 ár, höfum haft tvo fulltrúa og þeir þrjá. Nú stefnum við að því að jafna þetta hlutfall og fá þrjá fulltrúa kjörna. Það munaði aðeins 2 atkvæðum í síðustu kosningum að við fengjum þrjá menn kjörna. Þá var slagur- inn um fulltrúann á milli okkar og krata og nú ætlum við að hirða fulltrúann af þeim og erum hóf- lega bjartsýnir," sagði Theódór Blöndal, tæknifræðingur og efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Seyðisfirði. „Það er að sjálfsögðu margt á döfinni hér og mesti kostur byggð- arlagsins er sá að sveitarfélagið sjálft stendur ekki að neinum beinum atvinnurekstri, en eins og ástandið er nú verður að styðja við bakið á atvinnurekendum hér, meðal annars með því að bjóða út verk á vegum bæjarins. Horfurnar í atvinnumálum eru alls ekki smm slæmar, ef rétt verður á málum haldið, þrátt fyrir hrun loðnu- stofnsins og tvær verksmiðjur standi aðgerðarlausar af þeim sökum. Þá þarf tilfinnanlega að auka málmiðnað og viðgerðar- þjónustu fyrir skip og koma þarf upp bættri upptökuaðstöðu fyrir skip. Skipasmiðjur hafa verið hér frá fornu fari og hafa ætíð gengið vel. Við getum þá ekki horft fram- hjá því að kísilmálmverksmiðja í Reyðarfirði er í sjónmáli og gæta verður þess að ekki komi til bú- seturöskunar af þeim sökum. Hvað það varðar er ekki nægilegt að gera endurbætur á veginum yf- ir Fjarðarheiði, það er ljóst að á þessum slóðum er betra að fara í gegnum fjöllin en yfir þau. Það er nauðsynlegt að tengja Seyðisfjörð betur við syðri firðina og þá telj- um við beztu lausnina að gera göng milli Seyðisfjarðar og Mjóa- fjarðar og þaðan yfir til Norð- fjarðar. Þá þyrfti að koma sóma- £ & * -M samlegur vegur upp úr Mjóafirði áleiðis til Egilsstaða. Með þessum máta væri það kleift fyrir Seyð firðinga að stunda vinnu á öðrum fjörðum, komi sú staða upp og auk þess styttir það vegalengdina á milli staða, öllum til hagsbóta. Til að koma í veg fyrir búseturöskun verður einnig að standa vörð um fyrsta stig framhaldsnáms og iðnnám til að halda áfram uppi viðunandi fræðslu fyrir unglinga, gæta þess að málefnum aldraðra sé borgið og heilsugæzla verði fullkomin á öllum almennum svið- um. Hvað varðar samgöngur að öðru leyti, þá er nauðsynlegt að gera staðinn að alvöru ferjuhöfn og bæta aðstöðuna fyrir Smyril eins og unnt er og auka þjónustu við ferðamenn með því að byggja framtíðarhótel og veita alla al- menna ferðamannaþjónustu. Sigl- ingar Smyrils hingað eru mjög mikilvægar, bæði fyrir bæinn og „ÞAÐ er vissulega ýmislegt í bígerð á kosningaári. 25 rúma spítali og heilsugæzlustöð eiga að verða tilbúin undir tréverk í júlí eða ágúst í sumar og verður þar öll almenn þjónusta, tannlækna- stofa og endurhæfing meðal ann- ars. Þá er verið að undirbúa bygg- ingu skólahúss fyrir allt grunn- skólastigið, unnið að vatnsveitu, hitaveita var tekin í notkun í vet- ur, og ýmislegt fleira er í gangi," sagði Jónas Hallgrímsson, bæjar- stjóri í Seyðisfirði, er Morgun- blaðið innti hann eftir helztu framkvæmdum á vegum bæjarins. Jónas sagði ennfremur að sjúkrahússbyggingin hefði verið orðin mjög nauðsynleg þar sem gamla sjúkrahúsið væri frá alda- mótum. Þarna yrði öll þessi þjón- usta undir sama þaki og væri það til mikilla hagsbóta. Þá sagði hann bygginguna hafa verið 4 ár í smíðum og kostnaður um áramót hefði verið orðinn 5,3 milljónir og næmi hlutdeild bæjarins um 1,8 milljónum króna. Þá væri fyrir- Austfirðina í heild, og kappkosta verður að þær leggist ekki niður. Auk þessa er ýmislegt, sem er á döfinni, og má nefna bætta neyzluvatnsöflun og nú er til dæmis beðið eftir niðurstöðum um það hvernig vatnshreinsitækin á Akranesi reynast. Ýmsar bygg- inga- og gatnagerðarframkvæmd- ir eru í gangi og unnið er að fegr- un bæjarins, en of langt mál yrði að tíunda allt sem gert hefur verið og til stendur. Samstarfið í bæjar- stjórn hefur verið mjög gott og fyrst og fremst markazt það af mönnum og málefnum en ekki stjórnmálaskoðunum og yfirleitt hugað að tengja nýja húsið því gamla og verið væri að kanna hvernig það yrði hagkvæmast. Jónas sagði að verið væri að undirbúa útboð í byggingu nýs grunnskólahúss en gamla skóla- húsið væri frá aldamótum. Áætlað væri að byggingin tæki 4 til 6 ár og yrði tekin í notkun í áföngum. hefur verið samstaða um lausn mála. Við höfum mest einbeitt okkur að því að leysa mál byggð- arlagsins og látið pólitísk vanda- mál lönd og leið. Við reiknum því með því að öllu óbreyttu að halda áfram samstarfi við Framsóknar- flokkinn. Það hefur náðst góð samstaða um lista Sjálfstæðisflokksins og mikil þátttaka var í prófkjörinu hjá okkur. Mér finnst því andinn í bænum stefna til okkar mála og við vonumst eftir stuðningi kjós- enda á næsta kjörtímabili," sagði Theódór. Þá væri flutningur íþróttasvæðis- ins í undirbúningi. Fyrirhugað væri að það yrði í Garðarstjörn og væru allar teikningar og heimildir tilbúnar. Þar yrði bæði gras- og malarvöllur, hlaupabrautir og að- staða til iðkunar frjálsra íþrótta. Þá yrði bygging þriggja verka- mannabústaða boðin út á næstu dögum og fyrirhugað væri að leggja bundið slitlag á rúman kíló- metra af götum bæjarins í sumar. Unnið væri að gerð smábáta- hafnar, endurbótum á vatnsveitu og í vetur hefði hitaveita verið tekin í notkun og væru nú um 180 hús tengd henni. Þá væri það brýnt framtíðarniál að koma samgöngumálum í lag og yrði það ekki gert nema með gerð jarðganga þannig að hægt væri að aka frá Seyðisfirði gegnum Mjóa- fjörð til Norðfjarðar og frá Mjóa- firði til Kgilsstaða. Með því yrði þetta svæði eitt samgöngusvæði og yrði þannig komið í veg fyrir byggðaröskun með tilliti til bygg- ingar kísilmálmverksmiðju. Jónas Hallgrímsson, bæjarstjóri: Bæta verður samgöngur við Seyðisfjörð með gerð jarð- ganga til Mjóa- og Norðfjarðar Verið er að vinna að fegrun bæjarins og I því skyni er mcðal annars verið að hlaða upp bakka árinnar. Séð inn Seyðisfjörð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.