Morgunblaðið - 10.07.1982, Blaðsíða 1
44 SIÐUR
150. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hafréttarsáttmálinn:
V estur-Þjóðverjar
bíða með ákvörðun
Bonn, 9. júlí. AP.
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR hafa enn ekki ákveðið hvort þeir muni undirrita
hafréttarsáttmálann nýja í desember nk., að því er talsmaður stjórnarinnar
sagði í dag. Vestur-Þjóðverjar voru meðal þeirra ríkja, sem sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna í maí sl., en aðeins Bandaríkjamenn hafa enn sem komið
er ákveðið að undirrita ekki sáttmálann.
Karl Paschke, talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins, sagði, að
stjórnin ætlaði að hugsa sitt ráð
og að ekki væri ólíklegt, að hún
færi fram á, að tekið yrði meira
tillit til hagsmuna iðnríkjanna en
gert er í sáttmálanum. Iðnríkin
eru óánægð með ákvæðin, sem
lúta að vinnslu málma og annarra
auðlinda á hafsbotni, og segja, að
þau komi í raun í veg fyrir nýtingu
þeirra. Paschke sagði, að afstaða
Bandaríkjastjórnar myndi vega
þungt við lokaákvörðun vestur-
þýsku stjórnarinnar.
í kvöld var tilkynnt í Bandaríkj-
unum og Venezuela, að hvorug
þjóðin myndi undirrita hafrétt-
arsáttmálann á vetri komanda.
Ríkið ráði
hjónalífínu
Belgrað, 9. júlí. AP.
í FRETTUM frá Albaníu segir, að
þingið þar í landi hafi samþykkt lög
þar sem aukinn er og itrekaður rétt-
ur ríkisins til að hafa full afskipti af
fjölskyldumálum þegnanna og sker-
ast í leikinn þegar þurfa þykir.
Tanjug-fréttastofan júgóslavn-
eska segir, að í Tirana-útvarpinu,
hinni opinberu málpípu stjórnar-
innar og kommúnistaflokksins,
hafi verið sagt, að þessi lög gerðu
endanlega út af við þá „smáborg-
aralegu firru, að hjónabandið og
fjölskyldan væru eitthvert einka-
mál og að ríkið og þjóðfélagið
þyrftu ekki og gætu ekki gripið þar
inn í. Yfirvöldin og stofnanir þjóð-
félagsins eiga að sjá svo um, að
samskiptin innan fjölskyldunnar
séu með réttum hætti."
Samkvæmt fyrri lögum eru allar
albanskar fjölskyldur skyldaðar til
að ala börn sín þannig upp, að þau
verði „góðir kommúnistar".
Albanskir kommúnistar líta á
sig sem hina einu sönnu og benda á
því til staðfestingar, að hvergi
annars staðar sé guðleysi opinber
stefna. Þeir fylgja kenningum Jós-
efs Stalíns en eftir dauða hans
hættu þeir samskiptunum við önn-
ur kommúnistaríki, sem þeir sögðu
hafa svikið hugsjónir hans.
Tanjug segir, að í nýju lögunum
sé það ekki lengur talin fullgild
ástæða fyrir skilnaði, að bæði
hjónin fari fram á hann.
Gull hækkar en
dollarinn fellur
London, 9. júlí. AP.
GULL hækkaði mjög i verði í dag,
um 16 dollara hver únsa, vegna
lægri vaxta í Bandaríkjunum og doll-
arinn féll að sama skapi. Silfurúnsan
hækkaði um 6 dollara.
Gullkaupmenn í Ziirich segjast
búast við áframhaldandi verð-
lækkun dollarans út næstu viku en
nú fást 329,25 dollarar fyrir gull-
únsuna, sem gekk á 313,25 í gær.
Vextir voru lækkaðir lítillega í
Bandaríkjunum í gær og í dag
voru vextir, sem miðaðir eru við
eurodollar, lækkaðir úr tæpum
16% í 15%. Gengi enska pundsins
hækkaði örlítið.
p f~r- < «
> .
fsr € m **m-'*3
Leynilögreglumenn í London eru hér með hhita mf fölsuðum 20-punda seðlum, sem þeir fundu i gullslegnum
Rolls Royce-bíl sl. miðvikudag. Falsaðir seðlar, að upphæð 500.000 pund, fundust í Rollsinum og aðrar fimm
milljónir, ásamt prentplötunum, í flutningabíl ekki langt frá. stmamynd ap.
Líbanon:
Brottför skæruliða
sögð á næsta leiti
*
OstaÖfestar fregnir um að Sýrlendingar
vilji ekki taka við þeim
Beirút, 9. júlí. AP.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um brott-
för palestínskra skæruliða frá Líban-
on eru nú sagðar á mjög viðkvæmu
stigi en í dag var rætt um að flytja þá
Leitað í rústum húss 1 VesturBeirút, við ströndina, sem jafnað hefur verið
við jörðu í átökunum að undanförnu. stmnmynd ap.
PLO-menn bendlaðir við
heróínsmygl til Svíþjóðar
Stokkholmi, 9. júlí. AP.
SÆNSKA blaðið Expressen seg-
ir frá því í dag, að palestínskir
skæruliðar hafi aðstoðað eitur-
lyfjahring, sem var undir stjórn
Armeníumanna, við að smygla
heróíni til Svíþjóðar og að hér sé
um umfangsmesta eiturlyfjamál
að ræða, sem upp hafi komið í
Svíþjóð.
Expressen vitnar í heimildir
innan sænsku fíkniefnalög-
reglunnar og segir, að félagar
úr Frelsissamtökum Palest-
ínumanna hafi veitt Armeníu-
mönnunum aðstoð með því að
taka að sér að koma heróíni
frá Beirút til Stokkhólms hvað
eftir annað. Einnig hafi
smyglararnir fengið hjálp hjá
foringja í líbanska hernum,
sem er nafngreindur, Adnan
Chaaban, en hann er náskyld-
ur Salim nokkrum Chaaban,
sem nýlega var dæmdur í sex
ára fangelsi í Svíþjóð fyrir
eiturlyfjasmygl. Að sögn Ex-
pressen skýrði Chaban sjálfur
lögreglunni frá hverjir hefðu
aðstoðað hann, en hann var
handtekinn í október með
hálft annað kíló af heróíni í
farangri sínum. Handtökurn-
ar leiddu þá til víðtækra að-
gerða lögreglunnar en síðan
hefur ýmislegt komið upp úr
dúrnum, svo sem að sönnuð
þykir nú aðild PLO-manna að
málinu. Smyglarahringurinn
mun hafa komið heróíni til
Svíþjóðar að söluverðmæti um
100 milljónir sænskra króna
áður en hann var rofinn.
meó langferðabifreiðum til Sýr-
lands. Hin opinbera sýrlenska frétt-
astofa sagði hins vegar í dag og
hafði eftir ónefndum embætt-
ismanni, að útilokað væri, að skæru-
liðarnir fengju hæli í Sýrlandi.
Líbanska ríkisútvarpið segir, að
í áætluninni um brottför skæru-
liðanna sé gert ráð fyrir, að þeir
verði fluttir með langferðabifreið-
um til Sýrlands, 48 km veg, og að
ísraelsmenn dragi her sinn til
baka um einn kílómetra svo að
skæruliðarnir komist óáreittir
ferða sinna. Skæruliðarnir, 8.000
talsins, fá að taka fjölskyldur sín-
ar með sér og léttan vopnabúnað
en önnur vopn verða þeir að skilja
eftir. Sameinuðu þjóðirnar eiga að
hafa eftirlit með brottflutningn-
um og yrði liðsafli þeirra skipaður
bandarískum landgönguliðum og
frönskum fallhlífahermönnum.
Shafik Wazzan, forsætisráð-
herra og helsti fulltrúi múham-
eðstrúarmanna í líbönsku stjórn-
inni, tók í dag þátt í samningavið-
ræðunum ásamt Habib, sendi-
manni Bandaríkjastjórnar, en
hann hefur ekki viljað við Habib
tala síðustu fimm dagana. Wazzan
sagði í dag við fréttamenn, að vel
hefði miðað í viðræðunum en tím-
inn væri að renna út. „Það, sem
mestu skiptir, er að bjarga Líban-
on,“ sagði hann.
Sýrlenska fréttastofan hafði
það í dag eftir ótilgreindum emb-
ættismanni, að skæruliðarnir
gætu ekki farið til Sýrlands, „enda
hefur PLO ekki farið fram á það“.
„Við venjulegar aðstæður er Sýr-
land opið Palestínumönnum og
öllum aröbum en eins og nú hátt-
ar, meðan þeir bíða lögmætra
réttinda sinna, er Beirút heimili
þeirra," sagði embættismaðurinn
að sögn fréttastofunnar.