Morgunblaðið - 10.07.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982
Guatemalæ
79 skærulið-
ar drepnir
(iuatemalaborg, 9. júlí. AP.
SJÖTÍU og níu vinstrisinnadir
skæruliðar og fimm félagar i varn-
arsveitum stjórnarinnar féllu í
skotbardögum í þessari viku, að því
er talsmaður hersins sagði í dag.
Aðalátakasvæðið var í 210 km
fjarlægð frá höfuðborginni.
Stjórnarhermenn gerðu þar árás á
„skæruliðahreiður" eins og sagði í
tilkynningu stjórnarhersins. Tekið
var fram að stjórnarhermenn
hefðu klófest mikið af vopnum,
skotfærum og sprengiefni í árás-
inni.
Aðeins dregur
úr hitabylgju á
Ítalíu og Spáni
Kómaborg, Aþenu, 9. júlí. AP.
HELDUR dró úr hitabylgjunni,
sem hefur gengið yfir Ítalíu, síð-
AP.
Shell-olíufélagið efndi sl. fimmtudag til sparaksturskeppni í Silverstone í Englandi og var ekki annað tiltekið I keppnisreghmum en að farartækið,
alveg sama hvert, færi hraðar en 15 mílur á klst. og hefði úr einu bensíngalloni að spila. Hér má sjá sigurvegarann, Peter Wright, en vegalengdin, sem
hann er sagður hafa komist á galioninu (1926 mílur), er svo ótrúleg, að við þorum ekki að nefna hana.
Tveir Sovétmenn
í hungurverkfalli
Ekki leyft að flytja til eiginkvenna sinna í Bandaríkjunum
Moskta. 9. júli. AP.
TVEIR UNGIR Sovétmenn, sem hafa margsinnis sótt um leyfi til að
fá að flytjast til eiginkvenna sinna í Randaríkjunum, hafa byrjað
hungurverkfall þótt það kosti þá lífið, eftir að þeim var frá því skýrt
í dag að beiðni þeirra hefði enn á ný verið synjað. Yuri Balovlenkov
er 33 ára og fór í hungurverkfall í vor. I*að stóð í 43 daga og hann
hætti því þann 21. júní, er honum var heitið að hann fengi leyfi til að
fara úr landi.
ustu tólf daga og komst hitinn
niður í 33 stig í dag, en í gær varð
hann mestur 42 stig á Sardiníu.
Skógareldar geisa þó enn víða um
landið, meðal annars í útjaðri
Flórens og í Arezzo-héraði. Vatn
er víða skammtað á Ítalíu. Vitað
er um eitt dauðsfall vegna hitans í
dag, og í gær lentu tveir menn í
illdeilum, vegna sameiginlegs
brunns, sem er í grennd við heim-
ili þeirra, og endaði með því að
annar stakk hinn til bana.
í fréttum frá Madrid segir, að
þrjú þúsund slökkviliðsmenn
hafi reynt að ráða niðurlögum
mikilla skógarelda í grennd við
Barcelona og hafi mikið land
þegar eyðzt. Mestur hiti á Spáni
í dag var 42 stig í bæjunum
Logrono og Huesca í norður-
hluta landsins. í Madrid var 40
stiga hiti og er það þriðji dagur-
inn í röð sem hitinn fer í 40 stig.
Frá Grikklandi bárust þær
fréttir, að hitabylgjan sem hef-
ur einnig verið þar hafi heldur
liðið hjá og hiti lækkað niður í
þrjátíu stig. Víða í Grikklandi
voru þrumur og eldingar og
vatnsveður var mikið í dag.
Það leyfi var síðan aftur-
kallað og er þetta nú fimmti
dagurinn sem Balovlenkov
neytir ekki matar. Hann sagði
í símtali við vestræna frétta-
menn að hann vonaði að lík
sitt yrði flutt til Bandaríkj-
anna, enda sýnt að lifandi
kæmist hann ekki þangað.
Hinn maðurinn, Sergei Petrov,
hefur nú fastað í 38 daga og
segist heldur muni deyja en
sætta sig við að fá ekki að
hitta eiginkonu sína.
Embættismaður útflytj-
endaskrifstofunnar í Moskvu
sagði fréttamönnum að stjórn-
völd myndu vera fús til að
taka beiðni mannanna til
endurskoðunar eftir sex mán-
uði, en af öryggisástæðum
hefði ekki verið stætt á því að
veita mönnunum tveimur
brottfararleyfi. Embættis-
maðurinn sagði að eiginkonum
þeirra hefði margsinnis verið
boðið að koma í heimsókn aft-
ur til Sovétríkjanna og jafnvel
til búsetu. Aftur á móti sögðu
konurnar tvær, þegar haft var
samband við þær, að þetta
væru öldungis ekki rétt, þær
hefðu báðar sótt um vega-
bréfsáritun til Sovétríkjanna
en verið neitað.
Veður
víða um heim
Akurayri S aiakýjaó
Amsterdam 32 heiðaklrt
Aþena 28 akýjað
Barcelona 23 heíðrfkt
Berlín 28 heiðaklrt
BrUaeel 29 heiðskfrt
Chicago 29 akýjað
Dyflinni 20 heiðsklrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 29 heiðskirt
Genf 28 heiðakirt
Helainkí 19 skýjað
Hong Kong 30 heiðakfrt
Jerúaalem 30 heíðskfrt
Jóhanneaarborg 19 helðskfrt
Kairó 34 heiðakfrt
Kaupmannahöfn 21 heiðskfrt
Laa Palmaa 24 lóttakýjað
Uaaabon 24 heiðskfrt
London 28 skýjað
Loa Angelea 27 heiðskfrt
Madrid 40 heiðekfrt
Maiaga 28 heiðakfrt
Mallorca 32 heiðsklrt
Mexikóborg 29 heiðakfrt
Miami 30 skýjað
Moskva 22 heiðakfrt
Nýja Deihi 41 heiðskirt
New York 34 heiðskfrt
Oaió 23 heiðekfrt
Pari» 30 hefðakfrt
Perth 14 skýjað
Rio de Janeiro 33 skýjað
Reykjavík 11 skýjeð
Rómaborg 34 heiðskfrt
San Franciaco 20 heiðskfrt
Stokkhóimur 25 heiðekirt
Sydney 17 heiðakfrt
Tei Aviv 30 heiðskfrt
Tókýó 28 skýjað
Vancouver 21 skýjað
bórahöfn 10 rigning
Bandanska utanrikisráðuneytið:
Sovétmenn dreifa fölsuðum
bréfum frá Haig og Reagan
Wishington. 8. júli. AP.
BANDARÍSKA utanríkisráðuneyt-
ið sakaði í dag Sovétmenn um að
reyna að sverta bandarísk stjórn-
völd um heim allan með þvi að
dreifa fölsuðum bréfum og skjöl-
um, þar á meðal bréfi, sem sagt er
að Reagan forseti hafi skrifað. Að
vísu kváðust embættismenn utan-
ríkisráðuneytisins ekki hafa í
höndunum óyggjandi sannanir
fyrir þvi, að Rússar stæðu bér að
baki, en þessi vinnubrögð væru
hins vegar í þeirra anda.
Meðal falsananna er bréf, sem
Reagan á að hafa sent Juan
Carlos, Spánarkonungi, 23.
október árið 1981 en þar er fjall-
að um þá brýnu nauðsyn að
Spánverjar gangi í Atlantshafs-
bandalagið og stungið upp á
ýmsum leiðum til að þagga niður
í stjórnarandstöðunni. Banda-
rísku embættismennirnir sögðu,
að ekkert slíkt bréf hefði verið
sent og að tilgangurinn með föls-
uninni væri sá „að valda vand-
ræðum og óánægju".
Embættismennirnir lögðu
einnig fram afrit af öðrum bréf-
um, sem Haig, fyrrum utanrík-
isráðherra, á að hafa sent til
Joseph Luns, aðalritara Nato,
þar sem rætt er um hvernig best
sé að klekkja á friðarhreyfing-
unni í Evrópu. Þessar falsanir
voru mjög vel gerðar en þó varð
höfundum þeirra á sú skyssa að
byrja bréfið til Luns með orðun-
um „Kæri Joseph" en það var
föst venja hjá Haig að ávarpa
hann alltaf „Kæri Joe“.
Formleg mótmæli hafa ekki
verið borin fram við sovésk
stjórnvöld enda sögðu embættis-
mennimir það ekki þjóna nein-
um tilgangi. Hins vegar væru
þessar falsanir gerðar opinberar
í þeirri von, að menn áttuðu sig á
starfsaðferðum Sovétmanna og
varast þær í framtíðinni.
Afganir drápu tvo
sovézka ráðgjafa
Islamabad, Pakistan, 9. júlí. AP.
AFGANSKIR skæruliðar fullyrtu í
dag að þeir hefðu komið tveimur
sovézkum hcrnaðarráðgjöfum fyrir
kattarnef í átökum í lok júnímánað-
ar í Paktia-héraðinu, sem er ekki
ýkja langt frá landamærum Afgan-
istan og Pakistan.
Skæruliðarnir kváðust einnig
hafa drepið fimmtíu afganska
stjómarhermenn og tvo herfor-
ingja, sem eru fylgispakir stjórn-
inni í Kabul. Um mannfall í liði
skæruliða var ekki getið. Heimild-
ir AP fréttastofunnar sögðu, að
alvarleg átök hefðu orðið tvívegis
á þessu svæði eftir 20. júní, en
áreiðanlegar fréttir af þeim hefðu
ekki borizt fyrr en nokkru síðar til
Islamabad.