Morgunblaðið - 10.07.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982
3
Tjón á húsi í Árbæjarsafni vegna sprenginga:
7 kílóa grjóthnull-
ungur mn
UM SJÖ kílóa grjóthnullungur olli
skemmdum á einu húsi i Árbæjar-
safni um klukkan 9.15 i gærmorgun,
en þá var verið að sprengja i hús-
grunni á Ártúnsholti, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins i gær.
Húsgrunnur sá, sem unnið var
við, er skammt norðan Árbæjar-
Loðnustofninn:
um glugga
safns og taldi rannsóknarlögregl-
an að þrír steinar hefðu flogið um
loftið af völdum sprengingarinn-
ar, og einn þeirra fór inn um
þakglugga á safnahúsinu og þar út
í vegg og skemmdi málverk sem
þar var. Hinir steinarnir ollu ekki
tjóni svo vitað sé.
Mál þetta var kært til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og er það
nú í rannsókn.
Fundur í Osló
hefst á þriðjudag
VIÐRÆÐUR íslendinga, Norðmanna og Efnahagsbandalags-
ins um stjórnun veiða úr loðnustofninum íslenzka verða í
Osló næstkomandi þriðjudag 13. júlí. Á þessum fundi verður
rætt um tímabundið bann við loðnuveiðum og einnig hugsan-
lega skiptingu veiðiréttinda þegar veiðar hefjast á ný.
I frétt frá utanríkisráðuneytinu ráðuneytisstjóri, en auk hans
segir, að þessi fundur sé haldinn í munu sitja þann fund af íslands
framhaldi af kynningarfundi um
þessi mál, sem fram fór í Brússel
hinn 15. júlí síðastliðinn.
íslenzka viðræðunefndin er
skipuð þeim Hannesi Hafstein,
skrifstofustjóra í utanríkisráðu-
neytinu, sem er formaður nefnd-
arinnar, Jóni Arnalds, ráðuneytis-
stjóra í sjávarútvegsráðuneytinu,
Má Elíssyni fiskimálastjóra, Jak-
obi Jakobssyni fiskifræðingi, Ing-
ólfi Falssyni, forseta Farmanna-
og fiskimannasambands íslands,
og Kristjáni Ragnarssyni, for-
manni Landssambands íslenzkra
útvegsmanna.
í framhaldi af framangreindum
viðræðum verður haldinn fundur í
íslenzk-norsku fiskveiðinefndinni
um sömu málefni. Fulltrúi íslands
í þeirri nefnd er Jón Arnalds,
hálfu sömu menn og taka þátt í
viðræðum íslands, Noregs og
Efnahagsbandalagsins.
Verkfallsnefnd
BSRB stofnuð
Samninganefnd BSRB samþykkti
á fundi sínum 28. júní sl. að undir-
búa stofnun verkfallsnefndar.
Var kosin fimm manna nefnd til
að gera tillögur um fjölda og menn
í verkfallsnefnd bandalagsins í
átökum þeim, sem framundan eru
í haust, en eins og komið hefur
fram, renna samningar BSRB og
ríkisins út 31. júlí nk.
Tveir teknir á Keflavíkurflugvelli:
Með 100 g af hassi
frá Kaupmannahöfn
TVEIR ungir menn voru síðla á
fimmtudag handteknir á Keflavíkur-
flugvelli með um 100 grömm af hassi
í fórum sínum, samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunblaðið fékk hjá
fíkniefnadeild lögreglunnar í gær.
Mennirnir voru að koma frá
Kaupmannahöfn og skiptu þeir
efninu á milli sín og fannst sinn
helmingurinn hjá hvorum, í skó
annars, en í farangri hins. Menn-
irnir voru færðir til yfirheyrslu en
síðan sieppt. Annar þessara
manna hefur komið við sögu fíkni-
efnalögreglunnar áður. Annar
mannanna er fæddur árið 1960 en
hinn 1962. Ekki er talið að þetta sé
Fangi slapp
af Borgar-
spítalanum
FANGI frá Litla Hrauni strauk á
fimmtudag, en þá var hann i lækn-
isskoðun á Borgarspítalanum.
Maðurinn slapp úr gæslu hjúkr-
unarkonu og komst óséður út af
spítalanum, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá Magnúsi
Einarssyni, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóni, í gær. Lögreglan leitar nú
mannsins, en leitin hafði ekki bor-
ið árangur þegar síðast fréttist.
angi af víðtækara fíkniefnamáli,
samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar.
Hringormur nú
kominn í ýsu
HRINGORMUR í fiski verður sí-
fellt stærra vandamál hjá frysti-
húsunum og er hringormur nú far-
inn að finnast í öðrum fiski en
þorski. Frystihúsamenn, sem Morg-
unblaðið hefur rætt við, segja, að
hringormurinn hafi til skamms
tíma verið svo til eingöngu í þorski,
en nú finnist hann í ýsu á vissum
stöðum við landið, en þar til fyrir
skömmu hefðu menn haldið að
hann tæki sér ekki bólfestu í ýsu af
einhverjum ástæðum. Þá er hring-
ormur orðinn töluvert algengur í
lúðu og hrognkelsum svo dæmi séu
nefnd.
Sýningu List-
málarafélagsins
lýkur um helgina
Sýningu Listmálarafélagsins á
Kjarvalsstöðum lýkur nú um helg-
ina. Þar sýnir 21 málari verk sín.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14.00—22.00. Hún verður ekki
framlengd.
Auóvitað
fær Stína dúkka
fntttilKqben
en laakkaniir boma
995.-kiómir!
( helgarferðunum okkar til Kaupmannahafnar í
sumar hugsum við sérstaklega um börnin. Tívolí,
dýragarðurinn og Bakkinn eru draumastaðir allra
krakka og fullorðinna raunar líka. Við bjóðum
þægilegt flug á föstudegi, gistingu á úrvals hótel-
um í herbergi með baði, ásamt morgunverði og
heimflug á mánudegi. Verðið er frá 3.980.00 kr.
fyrir fullorðna en frá 995.00 kr. fyrir börn 11 ára
og yngri í herbergi með foreldrum sínum og það
kostar ekkert að láta Stínu dúkku fljóta með.
Smellið þið nú krökkunum í strigaskóna og sjálf-
um ykkur í stellingar og drífið í að kaupa miða
strax því sætafjöldi er takmarkaður og ferðirnar
fyllast óðum.
Leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum Flug-
leiða, umboðsmönnum eða ferðaskrifstofun-
um. Farpantanir eru einnig teknar í sima
25100.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Háð sampykM viðkomandi stjómvaida.