Morgunblaðið - 10.07.1982, Síða 24
Anna gleymdir þú nokkru?
spurði hann Jónas okkar þegar
fjölskyldan lagði af stað í gær-
kvöldi. Orðalag spurningarinnar
kemur ekki á óvart þegar Jónas á í
hlut — gleymdir þú nokkru?, ekki
— gleymdum við nokkru?
En honum Jónasi láðist sjálfum
að huga að nokkrum mikilvægum
atriðum varðandi bílinn, og það
sem honum fylgir.
Fyrst má nefna að hann var
nýbúinn að fá kerru, og þar sem
vinurinn hafði ekki það mikið fé
handa á milli að hann gæti keypt
kerru smíðaða af fagmanni, þá
fór það svo að hann fékk Tóta vin
sinn til þess að smíða fyrir sig
gripinn. Jónas ætlaði að hjálpa
honum og m.a. að sjá um að
kaupa allt sem til þurfti. En svo
fór að kappinn hafði engan tíma
eftir að grindin og efnið í skúff-
una var komið á staðinn svo Tóti
vann verkið einn og óstuddur. I
fyrrakvöld þegar Jónas æddi inn
í bílskúrinn hjá Tóta þá var
verkinu lokið, að því undan-
skyldu að kerrusmiðurinn hafði
ætlað að tengja afturljósabúnað
bílsins aftan á kerruna, og koma
þar fyrir þríhyrndum rauðum
glitmerkjum. Þetta fannst Jónasi
algjör óþarfi og tímaeyðsla, en
lofaði þó að sjá sjálfur um að
Svona átti kerran hans Jónasar að vera.
setja glitmerkin á og koma
seinna með kerruna til þess að
fullljúka verkinu. Tóti benti hon-
um á verslun þar sem hann gæti
keypt þríhyrningana, og lagði
mikla áherslu á að þeir ættu að
vera a.m.k. 15 cm á kant og eitt
horn þeirra að snúa upp. Ekki
láta þá snúa eins og biðskyldu-
merkin, þau ein ættu að hafa eitt
horn niður.
En þetta sveik Jónas og nú er
hann einhversstaðar úti á vegi
með þessa illa frágengnu kerru
sína, og er ástæða til að vara
vegfarendur við honum.
En því miður er þetta ekki það
eina sem að er hjá Jónasi. Öll sú
fræðsla um hjólbarða sem fram
fór í síðasta mánuði fór gjör-
samlega framhjá honum, að und-
Pa I umferðarþættinum „Á kant-
inum“ kl. 13.50 í dag koma þau við
sögu „Jónas og fjölskylda“.
anskyldu því að hann heyrði ein-
hvern tala um hjólbarðadag. En
hann var fljótur að afgreiða það
með sjálfum sér, og fannst
reyndar skínandi gott að aðrir
fengju fræðslu um þessi örygg-
istæki, þeim veitti ekki af því. En
staðreyndin er hins vegar sú að
Jónas býður sjálfum sér, fjöl-
skyldu sinni og öðrum samferð-
armönnum upp á það að hafa
undir bíl sínum svo til gatslitna
hjólbarða.
Þegar maðurinn á hjólbarða-
verkstæðinu benti honum á
þetta, og Tóti vinur hann klifaði
á þessu sama, rauk hann upp á
nef sér og öskraði eitthvað óskilj-
anlegt um ofsóknarbrjálæði og
samsæri gegn sér. Þá fannst hon-
um það mesta firra að ætlast til
að mynsturdýpt ætti að vera
a.m.k. 1 mm. Þeir skyldu sko vita
það að hann hefði verið alinn upp
við það að nýta hlutina, og aldrei
hefði afi hans talað um einhvern
fáránlegan millimetra á trakt-
ornum í sveitinni. Þetta var út-
rætt mál af hans hálfu, og nú
ekur hann svona um, og það
meira að segja hratt sem hann
ætti síst af öllu að gera. Síðast
þegar hvellsprakk hjá honum var
hann svo lánsamur að vegkant-
urinn sem hann fór útaf var ekki
nema 30 cm hár, og við það tæk-
ifæri datt það upp úr honum að
svona væri hann alltaf heppinn.
Það væri aldrei hár vegkantur
þar sem spryngi hjá honum. En
vert er að geta þess sem Jónas
aðgætir reglulega, en það er loft-
þrýstingurinn í hjólbörðunum.
Það eru mörg ár síðan hann upp-
götvaði að innan á hanskahólfinu
gat hann séð hvað þrýstingurinn
ætti að vera, og eftir það leit
Hátt á sjötta
hundrað manns
í Varðarferð
HIN áriega Varðarferd var farin
laugardaginn 3. júlí síöastliðinn og
var að þessu sinni ferðast um Rang-
árvalla- og Árnessýslu. Aðalfarar-
stjóri var Einar Guðjohnsen.
Farið var frá Reykjavík klukk^n
8 og ekið að Sandhólaferju við
Þjórsárósa, en þar var aðal ferju-
staðurinn yfir Þjórsá um aldir.
Við Sandhólaferju var drukkið
morgunkaffi og þar flutti formað-
ur ferðanefndar, Guðmundur
Jónsson, ávarp og Eggert Haukdal
alþingismaður talaði til ferða-
langa.
Síðan var ekið um Þykkvabæ,
upp að Hellu. Þá var keyrt að
Keldum á Rangárvöllum, framhjá
Gunnarsholti og að Haukadal við
Bjólfell skammt frá Heklu, en þar
var snæddur hádegisverður. Þar
flutti Geir Hallgrímsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, ávarp.
Að hádegisverði loknum var
haldið í Þjórsárdal, framhjá Búr-
felli og áð við sundlaugina í Þjórs-
árdal. Þar var ferðamönnum
færður ís, gjöf frá Kjörís í Hvera-
gerði, mæltist það vel fyrir. Við
Þjórsárdalslaug talaði Steinþór
Gestsson alþingismaður til hóps-
ins, einnig hélt Þórir Lárusson,
formaður Varðar, ræðu.
Síðan var ekið sem leið Já til
Reykjavíkur og komið þangað um
klukkan 20.00 á laugardagskvöld.
Þátttakendur í Varðarferðinni
voru hátt á sjötta hundrað.
Dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, Vala Thoroddsen og Þórir Lárus-
son, formaður Varðar.
Hlýtt á ræður, — á myndinni má m.a. sji Davíð Oddsson borgarstjóra Reykjavíkur, Ástríði Thorarensen eiginkonu
hans og Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúa.
Gengið yfir brúna á Ytri-Rangá
I