Morgunblaðið - 10.07.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982
27
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
V'v-y—|r»—
ýmislegt
Sólargeislínn
Sjóöur til hjálpar blindu öldruöu
tólki. Gjöfum og áheitum veitt
mótöku i Ingólfstræti 16.
Blindravinafélag íslands.
Tilboð óskast
i Mercury Montrey 62 model.
Toppvél. Sjálfskipting biluö.
Uppl. í síma 20412 eftir kl. 6.
húsnæöi :
Einstaklingsíbúö í París
5. hverfi til leigu 1.—21. ágúst.
Upplýsingar í síma 24780.
Fasteignir til sölu
Keflavík
Glæsilegt 140 fm garðhus meö
bílskur við Heiðargarö.
Sökkull aö einbýlishúsi viö
Óöinsvelli. Teikningar fyrirliggj-
andi.
Raöhús viö Noröurvelli. Afhent
fokhelt í okt. nk. Gott verö.
Teikningar fyrirliggjandi. Eitt eft-
ir.
Parhús viö Noröurvelli. Afhent
fokhelt i des. Gott verö.
Garður
| Grunnur undir 135 fm eininga- i
hús frá Selfossi og 44 fm bíl- j
! skursgrunni.
Opiö frá kl. 10—4 laugardag.
Fasteignaþjónusta Suöurnesja, ;
Hafnargötu 37, simi 37722.
Dagsferðir sunnudag-
inn 11. júlí
a. Kl. 8.00: Þórsmörk. 4—5 tima
stans í Mörkinni. Verö 250 kr.
b. Kl. 13: Tröllafoa* og nágr.
Létt ganga f. alla. Verö 100 kr.
c. Kl. 13: Eaja (Þverfellshorn)
meö besta útsýni yfir sundin blá.
Verö 100 kr. Fariö frá BSi, ben-
sínsölu. Frítt f. börn m. fullorön-
um.
Sumarleyfisferðir
a. Þóramörk: Vikudvöl er ódýr-
asta sumarleyfið.
b. Hornatrandir IV: Hornvík —
Reykjafjöröur. 3 dagar í Reykja-
firöi.
b. Eldgjá — Strútalaug —
Þóramörk: 8 dagar Athyglisverö
bakpokaferö. Gist i húsum og
tjöldum. 26.7,—2.8.
d. Hálendiahringur: 11 dagar i
ágúst. Skemmtilegasta öræfa-
feröin. Uppl. og farseölar á
skrifst. Lækjargötu 6A, s. 14606.
Sjáumst. Feröafélagiö Utivist.
Vantar dreng
í sveit, 15—16 ára. Uppl. eftir kl.
7 í sima 10938.
Dagsferöir sunnudag-
inn 11. júlí:
1. kl. 19.00: Selvogsgatan/ göm-
ul þjööleiö, sem var áöur fyrr aö-
al samgönguleiöin í Selvoginn.
2. kl. 13.00: Selvogsheiöi — Eir-
iksvaröa — Hlíðarvatn. Fariö frá
Umferöamiöstööinni, austan-
megin. Farmiöar viö bíl. Frítt
fyrir börn í fylgd fulloröinna.
Verö kr. 150,-
Miðvikudaginn 14. júlí:
1. kl. 08.00: Þórsmörk, dagsferö
og ennfremur fyrir þá, sem ætla
til lengri dvalar í Þórsmörk.
2. kl. 20.00: Tröllafoss (kvöld-
ferö).
Ath.: Myndavel er í óskilum á
skrifstofu F.í.
Feröafélag íslands.
Fíladelfía Breiðholtið
Samkoma í tjaldkirkjunni viö
Fellaskóla kl. 20.30. Leiö 12, allir
velkomnir.
Heimatrúboðið
Óöinsgötu 4A
Almenn samkoma á morgun
sunnudag kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
A morgun. sunnudag, veröur al-
menn samkoma kl. 11.00. Veriö
velkomin.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Til sölu Dodge 100 Pickup sendibíll árg 1979, lítið
vinnuvélar bátar — skip
Ferguson 50 B
til leigu í minni og stærri verk. Útvega efni í
grunna á sama staö. Uppl. í síma 44460 og
29887
Körfubifreið
Til sölu er körfubifreiö, lyftigeta 17 metrar.
Upplýsingar í síma 33414 og 10028.
ekinn.
Til sýnis á Bilasöki Sveins Egilssonar hf.
Þessi Escort GL ’78
er til sölu. Uppl. í síma 81905.
Góður línubátur um 150
tonn
óskast á leigu frá nk. hausti. Báturinn þarf
helst að hafa bjóöafrysti. Áhöfn af einum
aflasælasta línubát landsins til staðar. Uppl. í
símum 92-7266 og 91-50650.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Á HLUTHAFAFUNDI í Stálfélaginu
hf., sem haldinn var 29. júní síðast-
liðinn, var samþykkt að auka hlutafé
félagsins í 40 milljónir króna og
sögðu forráðamenn félagsins á
blaðamannafundi, að þeir vonuðust
eftir að ríkið héldi sínum 40% hlut
áfram. Á stofnfundi félagsins þann
25. apríl gerðust 344 aðilar hluthaf-
ar, hlutafé var þá 1.250 þúsund
krónur og sett var á laggirnar fram-
kvæmdanefnd til þess að vinna að
fyrsta áfanga járnbræðslu, sem var
að safna brotajárnsbirgðum og
koma upp birgðastað. Stálfélagið
hefur fengið aðstöðu fyrir starfsemi
sína á fimm hektara svæði handan
álversins við Reykjanesbraut.
Að sögn forráðamanna Stálfé-
lagsins ætti framleiðsla á steypu-
styrktarjárni að geta hafist innan
þriggja ára, ef nægilegt fjármagn
safnast. Arðsemi slíkrar fram-
leiðslu sögðu þeir, að hefði verið
reiknuð af innlendum sem erlend-
um sérfræðingum og bentu allar
niðurstöður til þess, að hér gæti
verið um mjög arðbært fyrirtæki
að ræða. Markaðurinn fyrir
steypustyrktarjárn hér á landi
sögðu þeir vera um 15.000 tonn á
ári, en fyrirhuguð verksmiðja
kæmi til með að framleiða a.m.k.
90 prósent upp í þörfina, sem
þýddi gjaldeyrissparnað fyrir króna. Hér á landi féllu til um Helstu skilyrði, sem fyrir hendi
þjóðarbúið upp á 60 milljónir 18.500 tonn af brotajárni árlega og þurfa að vera eru: 1) Nægilegt
• Ljósm. Mbl. Emilía.
Jón Magnússon, meðstjórnandi, Sigtryggur Hallgrimsson, framkvæmdastjóri, Markús Sveinsson, varaformaöur.
Friðrik Daníelsson, efnaverkfræðingur og Vilhjálmur Vilhjálmsson, einn af stofnendum Stálfélagsins. Myndin er
tekin á blaöamannafundi á Hótel Loftleiðum.
Hlutafé Stálfélagsins
aukið í 40 milljónir kr.
Framleiðsla á steypustyrktarjárni hefst inn-
an þriggja ára ef nægilegt hlutafé safnast
þar af væri nýtanlegt magn til
endurvinnslu rúmlega 10.000 tonn.
í dag er brotajárn sent úr landi,
m.a. til Noregs, þar sem það er
brætt og valsað og flutt hingað til
lands sem fullunnið byggingar-
efni. Þá hefur Stálfélagið haft
samband við erlenda sérfræðinga í
járnbræðslu og sögðu forráðam-
enn félagsins að þeir væru sam-
mála um, að félagið uppfyllti öll
þau skilyrði sem krafist er af smá-
um stálbræðslum varðandi rekst-
ur og markaðsmál.
hráefni í nánd við bræðslustað.
Hér er gert ráð fyrir a.m.k. 70—80
prósent málmsins leggist til í
Reykjavík og nágrenni. I forsend-
um fyrir birgðum af brotajárni í
landinu er reiknað með 50 kílóum
á hvern íbúa en til samanburðar
eru reiknuð 80 kíló á íbúa í Sví-
þjóð, en 200 í Bandaríkjunum.
2) Öryggi í orkumálum og hag-
stætt verð raforku. í forsendum er
reiknað með raforkuverði sem er
hið sama og Grundartangaverk-
smiðjan greiðir, en margt bendir
til að raforkuverð verði hagstæð-
ara en búist var við. 3) Sérhæfð
framleiðsla, sem auðvelt er að
laga að markaði. 4) Nægur inn-
lendur markaður sem skapi vissa
fjarlægðarvernd gegn erlendri
samkeppni og undirboðum.
5) Traust vinnuafl sem á auðvelt
með að tileinka sér tækni og af-
köst á þessu sviði. 6) Gott vega-
samband og nálægð hafnar.
Stjórn Stálfélagsins telur að 100
manns komi til með að starfa við
verksmiðjuna, en það þýddi af-
komu fyrir um 300 manns. Að auki
tengjast starfseminni ýmiss konar
önnur þjónustustarfsemi.
Á hluthafafundinum var ákveð-
ið að hluthafar hefðu forgangsrétt
til að skrá sig fyrir hlutum í hlut-
falli við hlutafjáreign sína til 20.
júlí, en að þeim tíma liðnum gefst
öðrum einnig kostur að skrifa sig
fyrir hlutafé.
í stjórn Stálfélagsins hf., eru:
Jóhann Jakobsson, formaður,
Markús Sveinsson, varaformaður,
Leifur Hannesson, gjaldkeri,
Sveinn Sæmundsson, ritari, Jón
Magnússon, meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri félagsins er Sig- ‘
tryggur Hallgrímsson.