Morgunblaðið - 10.07.1982, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982
AUSTURLAND
frkttaskvriní;
Seyðisfjörður var um aldamótin
fjórði stærsti kaupstaður landsins
og langfjölmennust byggð á Aust-
fjörðum. Síðan þá hefur margt
breytzt. Aðrir þéttbýslisstaðir í kjör-
dæminu hafa vaxið yfir höfuð Seyð-
isfjarðar. Hvað örastur hefur vöxt-
urinn verið á Egilsstöðum, þar sem
búa um 1.200 manns, og í Höfn i
Hornarfirði (Hafnarhreppi), en þar
búa um 1.500 manns. Fjölmennast-
ur þéttbýlisstaða á Austurlandi i
dag er Neskaupstaður með rúmlega
1700 íhúa. Á Eskifirði eru um 1.100
manns og í Seyðisfirði um 1.000 en
færra á öðrum stöðum.
I kjördæminu búa samtals um
13.000 manns — eða nálægt 5,6%
þjóðarinnar. Veruleg fækkun hef-
ur orðið í strjálbýli, miðað við
íbúahlutfall fyrr á öldinni, en
fjölgun í þéttbýli. Þetta er í sam-
ræmi við breyttar þjóðlífsaðstæð-
ur í landinu í heild.
Neskaupstaður
Kosning var óhlutbundin á
STÖÐV ARFIRÐI OG DJÚPA
VOGI.
Horft um öxl og
fram á veginn
Framsóknarflokkur hefur lengi
verið sterkur á Austfjörðum. í
Alþingiskosningunum 1979 fékk
hann flest atkvæði framboðsað-
ila, eða 2.963, og tvo þingmenn
kjörna: Tómas Árnason og Hall-
dór Ásgrímsson.
Alþýðubandalag hefur einnig
verið fylgisdrjúgt í Austur-
landskjördæmi — og hafa stuðn-
ingsmenn þess vítt um land lengi
„séð roðann í austri" þar sem
Neskaupstaður er. í kosningun-
um 1979 fékk það 2.154 atkvæði
og tvo þingmenn kjörna: Helga
Seljan og Hjörleif Guttormsson.
„Roðinn í austri“ yfír Neskaupstað
— Sjálfstæðisflokkurinn stóreykur fylgi sitt
á Egilsstöðum, Eskifirði og Seyðisfirði
Eskifjörður
Milli 15—16% Austfirðinga
sinna landbúnaði (frumvinnslu),
32% sjávarútvegi (veiðum og
vinnslu), öðrum iðnaði og bygg-
ingarstarfsemi tæplega 22% og
hinum ýmsu þjónustustörfum
nútíma samfélags 30%. Tæplega
5.700 manns eru á „vinnuakrin-
um“ í landshiutanum.
Meðalbrúttótekjur framtelj-
anda á Austurlandi vóru rétt
undir landsmeðaltali 1970—1978
— og stígandi.
Talið er að nálægt 1.100 ný
störf þurfi að verða til eystra
fram til 1990 til að svara líklegri
aukningu vinnuframboðs á ára-
tugnum.
Neskaupstaður
rauður áfram
Þrátt fyrir hægri sveiflu, sem
víðast sagði til sín í sveitar-
stjórnarkosningunum 22. maí sl.,
varð lítil sem engin breyting á
flokkafylgi í Neskaupstað. Al-
þýðubandalagið hélt með „brav-
ör“ bæði meirihluta sínum og
hlutfallslegu kjörfylgi, rúmlega
57%. Það fékk 5 fulltrúa, af 9,
kjörna. Þessi niðurstaða er áber-
andi undantekning frá megin-
reglunni: að flokkurinn reytti af
sér kjósendur.
F’ramsóknarflokkurinn fær
nákvæmlega sama atkvæðahlut-
fall og 1978, 22,5%, og tvo full-
trúa kjörna. Sama má segja um
Sjálfstæðisflokk, sem raunar
krækti í 2 viðbótaratkvæði um-
fram niðurstöðu 1978, fékk 20%
kjörfylgi og 2 fulltrúa kjörna. Al-
þýðuflokkurinn bauð ekki fram.
Segja má að kosningaúrslit í
Neskaupstað nú séu „kópía,, af
úrslitunum 1978. Atkvæðahlut-
fall flokkanna haggast naumast.
Allt er í sama farinu.
Kratar tapa á Seyðisfirði
Sjálfstæðisflokkurinn jók fylgi
sitt um 39% frá fyrri bæjar-
stjórnarkosningum, fékk 3 full-
trúa kjörna, vann 1 af Alþýðu-
flokki. Flokkurinn fékk flest at-
kvæði nú og ýtti Framsóknar-
flokknum úr fyrsta sæti, hvað
kjörfylgi varðar, en sá flokkur
fékk mest kjörfylgi 1978. Fylgi
Sjálfstæðisflokksins reyndist 185
atkvæði, eða 33%.
Framsóknarflokkurinn fékk
næst flest atkvæði, 157, og þrjá
fulltrúa kjörna. Alþýðuflokkur er
þriðji í röðinni, 110 atkvæði, fær
tvo fulltrúa kjörna. Lestina rekur
Alþýöubandalag með 84 atkvæði
og 1 fulltrúa.
Kommar tapa á Gskifirði
Sjálfstæðisflokkurinn jók fylgi
sitt jafnmikið, 39%, á Eskifirði
og Seyðisfirði — og vann bæjar-
fulltrúa af Alþýðubandalagi.
Flokkurinn fékk 36,2% kjörfylgi
og 3 bæjarfulltrúa kjörna.
Framsóknarflokkurinn bætti
einnig hlut sinn og fékk 27,7%
kjörfylgi og 2 fulltrúa kjörna. Al-
þýðubandalag skreppur hins veg-
ar saman, fékk 23,5% atkvæða og
1 fulltrúa. Alþýðuflokkur fékk
12,6% og 1 fulltrúa.
Tvíeflt „íhald“
á Egilsstöðum
Þá verður lítilega vikið að úr-
slitum í kauptúnahreppum:
EGILSSTAÐIR: Sjálfstæðis-
flokkurinn tvöfaldaði fylgi sitt á
Egilsstöðum, fékk 25,6% atkvæða
og 2 fulltrúa kjörna. Framsókn
tapar 1 ítilsháttar, fær 35,10% og
3 fulltrúa kjörna — og er enn for-
ystuflokkur, hvað fylgi áhrærir.
Alþýðubandalagið er með 27,4%
kjörfylgi og 2 fulltrúa. I-listi
Oháðra og Alþýðuflokks fékk
ekki mann kjörinn.
FÁSKRÍJÐSFJÖRÐUR (Búða
hreppur): Þar varð engin breyting
á fulltrúatölu framboðsflokka.
Alþýðubandalag heldur fyrri for-
ystu með 37,4% kjörfylgi og 3
fulltrúa kjörna, en missir þó
nokkuð í atkvæðum. Framsókn
fær 35,9% og 2 fulltrúa kjörna.
Sjálfstæðisflokkur 26,8% og 2
kjörna. Fleiri buðu ekki fram.
HÖFN í HORNAFIRÐI (Hafnar
hreppur): Hér vinnur Framsókn-
arflokkurinn fulltrúa af Sjálf-
stæðisflokki. Framsókn fær 285
atkvæði og 3 fulltrúa kjörna.
Sjálfstæðisflokkur fær 255 at-
kvæði og 2 kjörna. Alþýðubanda-
lag 174 atkvæði og 2 kjörna.
Fleiri framboð vóru ekki.
REYÐARFJÖRÐUR: Alþýðu-
bandalag gerir sér lítið fyrir og
vinnur fulltrúa af Óháðum og fær
3 fulltrúa kjörna. Fjögur önnur
framboð komu fram: Sjálfstæðis-
flokkur, Framsóknarflokkur,
Óháðir og Framfarasinnar, sem
hver um sig fékk 1 fulltrúa kjör-
inn. Hér er því Alþýðubandalag
með ótvírætt forskot fram yfir
aðra.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
sótt sig jafnt og þétt þar eystra.
Hann fékk 1.369 atkvæði 1979,
Sverri Hermannsson kjördæma-
kosinn og Egil Jónsson landskjör-
inn (uppbótarþingsæti).
Alþýðuflokkur fékk hvorki
kjördæmakosinn né landskjörinn
þingmann í Austurlandskjör-
dæmi 1979.
Staða Alþýðuflokksins sýnist
veik í kjördæminu. Hann bauð
ekki fram í Neskaupstað nú, tap-
ar fulltrúa á Seyðisfirði, þar sem
hann hefur haft nokkra tátyllu,
tapar fylgi á Eskifirði — og er
óvíða með í kauptúnahreppum.
Ekki er sjáanlegt að flokkurinn
hafi styrkt stöðu sína í sveitar-
stjórnarkosningunum nú, nema
síður sé.
Alþýðubandalagið hefur hins-
vegar góða fótfestu í kjördæm-
inu. Það deilir og drottnar í
stærsta þéttbýlisstaðnum, Nes-
kaupstað, en hefur þó ekki aukið
fylgi sitt þar frá því 1978 og 1979.
Það tapar fylgi og fulltrúa á
Eskifirði. Á Reyðarfirði vinnur
það mann af Óháðum. Á heildina
litið virðist staða þess ekki afger-
andi breytt í kjördæminu. Kosn-
ingaúrslitin vóru Alþýðubanda-
laginu hagstæðari í Austurlands-
kjördæmi en annarstaðar á land-
inu. Engu að síður eru þó sjáan-
legir brestir í flokksfylginu hér
og þar — og hvergi er um umtals-
verða aukningu að ræða.
Framsóknarflokkurinn stendur
í stað í Neskaupstað og Seyðis-
firði en bætir stöðu sína á Eski-
firði. í kauptúnahreppum heldur
flokkurinn fyrra fylgi eða eykur
nokkuð, svo sem í Höfn í Horna-
firði og á Fáskrúðsfirði. Breyting
á stöðu flokksins er óveruleg á
heildina litið, en hún hefur þó
fremur styrkst en veikzt, að því
er sýnist.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur í
itað í Neskaupstað, eins og raun-
ir önnur framboð þar, en eykur
fylgi sitt verulega, eða nálægt
39%, bæði á Seyðisfirði og á
Eskifirði — og vinnur bæjar-
fulltrúa á báðum stöðunum.
Flokkurinn tvöfaldar fylgi sitt á
Egilsstöðum og vinnur fulltrúa
þar. Þá heldur hann hlut sínum í
öðrum kauptúnahreppum nema í
Höfn, þar sem hann missir full-
trúa. Ekki er vafi á því að staða
flokksins í Austurlandskjördæmi
er mun sterkari en var
1978/ 1979.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks úr
Austurlandskjördæmi, Sverrir
Hermannsson og Egill Jónsson,
eru harðduglegir þingmenn og vel
fylgnir sér. Sá fyrrnefndi hefur
lifandi tengsl við og haldgóða
þekkingu á málefnum sjávarút-
vegs — og raunar byggðamálum
almennt — en hinn er einn skel-
eggasti talsmaður landbúnaðar á
Alþingi um árabil. Þeir eru því til
þess meir en líklegir að fylgja vel
eftir þeirri bættu stöðu, sem
flokkurinn virðist hafa unnið í
kjordæminu. — sf
Stöðnun í fylgi
Alþýðubandalags
AJþýðuflokkurinn las-
burða á Austurlandi