Morgunblaðið - 10.07.1982, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982
FIAT ArgenU 2000.
Fiat Argenta
Bílar
Sighvatur Blöndahl
FIAT-verksmiðjurnar hafa longum
verið þekktar fyrir að framleiða
lipra og skemmtilega bíla. Á dögun-
um reynsluók ég Fiat Argenta og
reyndist hann enginn undantekning
frá reglunni. l)m er að ræða mjög
lipran og skemmtilegan bíl, hvort
heldur er í bæjarumferðinni, eða úti
á þjóðvegunum. Til skýringar þá er
Fiat Argenta nokkurs konar fram-
haldsútgáfa af Fiat 132, nema hvað
Argentan er mun ríkulegar búin
aukahlutum, og innréttingin er til
fyrirmyndar.
Innrétting bílsins er í mjög há-
um gæðaflokki. Það er sama hvert
litið er innanstokks, frágangur
allur mjög góður. Argentan er 4ra
dyra og mjög þægiiegt er að kom-
ast inn í bílinn, hvort heldur það
er að framan eða aftan. I bílnum
er 'miðstýrð rafdrifin hurðalæs-
ing, sem virkar þannig, að þegar
ökumaður læsir á eftir sér læsast
ennfremur allar aðrar hurðir bíls-
ins. Þetta er' ótvírætt til mikils
hagræðis, en maður veltir því
kannski fyrir sér hvernig þetta
virki í frosti á vetrum. Framleið-
andinn segir reyndar, að ekki
þurfi að óttast frost, þar sem læs-
upphalararnir að aftan með
hefðbundnum hætti, það er, snún-
ingssveif. Persónulega tel ég, að
framleiðandinn hefði átt að hafa
möguleika á rafmagni í afturrúð-
urnar líka. T.d. þannig að öku-
maður gæti stjórnað öllum rúðun-
um.
Það fyrsta sem maður tekur
eftir þegar sezt er inn í Argent-
una er hversu sætin eru velbúin,
hvort heldur maður sezt frammí
eða afturí. Sætin eru klædd pluss-
áklæði og formið á þeim líkaði
mér mjög vel. Hins vegar ber þess
auðvitað að geta, að mönnum lík-
ar auðvitað mjög misjafnlega við
bílsæti eftir líkamsbyggingu
hvers og eins. Framsætin er hægt
að stilla að vild. Bakið er með fín-
og grófstillingu og hægt er að
breyta hallanum á setunni, auk
þess auðvitað að færa sæti fram
og aftur. Bíllinn er sagður 4—5
manna, en það verður að segjast
eins og er, að aftursætið er ein-
ungis fyrir tvo fullorðna, ef vel á
að vera. Miðað við tvo afturí er
sætið líka mjög skemmtilegt. Vel
formað og nægilegt pláss fyrir
farþega. Það á reyndar ennfremur
við um fótarými, hvort heldur er
frammi í eða aftur í, að það er
ágætt.
Útsýni úr Argentunni er ágætt.
FIAT
Gerð: Fiat Argenta 2000.
Framleiðandi: Fiat.
Framleiðsluland: Italía.
Umboðsmaður: Fiat-umboðið
— Egill Vilhjálmsson.
Verð: 175.000,-
Dyr: 4ra.
Farþegafjöldi: 4—5.
Vélarstærð: 4 strokka, 1.995
kúbiksentimetrar, 90 Din hest-
öfl.
Benzintankur: 60 lítrar.
Hjólbarðar: 175/70 SR 14.
Bremsur: Diskar að framan, en
tunnur að aftan.
Fjöðrun: Sjálfstæð á öllum
hjólum.
Skipting: 5 gíra.
Lengd: 4.449 millimetrar.
Hjólhaf: 2.558 millimetrar.
Breidd: 1.650 millimetrar.
Hæð: 1.420 millimetrar.
Hraði í 100 km/klst.: 11,6 sek-
úndur.
Eyðsla: 13—13,5 lítrar, mæling
IVfbl. í blandaðri keyrslu.
Þyngd: 1.180 kíló.
um „vacum“-mælir, sem sýnir
ökumanninum á hvaða hraða er
bezt að aka til að eyða sem
minnstu eldsneyti og er það alveg
stórsniðugt að mínu mati. Eins og
ég sagði áður er hægt með einu
handtaki að læsa öllum hurðum
bílsins innan frá og því er að
sjálfsögðu hægt að opna þær allar
með einu handtaki. Það eina, sem
ég var ekki fyllilega ánægður með
í mælaborðinu eru stjórntækin
fyrir miðstöðina, auk þess sem
mér fannst hún mega virka held-
ur betur. Stjórntæki miðstöðvar-
innar skjóta svolítið skökku við
annars mjög stílhreint og
skemmtilegt mælaborð bílsins.
Þau eru nánast gamaldags og ekki
sérlega þjál.
Argentan, sem ég reynsluók var
5 gíra, en ennfremur er bíllinn fá-
anlegur með sjálfskiptinu. Skipt-
ingin er vel staðsett og þægilegt
er að nota hana. Það er enginn
losarabragur á henni og stutt er
milli gíra. Um staðsetningu ped-
alanna er það að segja, að of lítið
bil er að milli bremsunnar og
bensínsins. Fótstórir menn verða
að vara sig í upphafi, en hins veg-
ar er kúplingin ágætlega staðsett
og virkar mjög vel. Reyndar virka
bremsurnar líka ágætlega, mættu
kannski koma heldur fyrr inn.
Stýrishjólið er af ágætri stærð og
þá er það mikill kostur í Argent-
unni, að hægt er að stilla stað-
setningu þess að vild. Það er sér-
staklega þægilegt að geta gert það
á langkeyrslum. Þá má ekki
gleyma því, að Argentan er með
vökvastýri, sem er ótvíræður
kostur á þetta stórum bíl.
Argentan, sem ég reynsluók var
með 4 strokka 1.995 kúbiksenti-
metra, 90 DIN hestafla vél, sem
kom mjög vel út. Bíllinn er
kraftmikill og skemmtilegur í
viðbragði. Nú, eins og ég sagði í
upphafi reyndist bíllinn í alla
staði mjög lipur og skemmtilegur
á keyrslu, hvort heldur var í
innanbæjarumferðinni, á lang-
keyrslu á malbiki, eða úti á mal-
arvegunum. Hann er hæfilega
stífur, þannig að hann leggst ekki
niður á framhornin þótt honum sé
ekið á töluverðri ferð inn í beygj-
ur. Fjöðrunin er mjög góð og það
kom mér reyndar á óvart hversu
stöðugur hann var á malarþjóð-
vegum landsins. Maður skyldi
ætla, að hraðakstursbíll eins og
Argentan er hugsuð frá Fiat, sér-
staklega til notkunar á hrað-
brautum Evrópu, yrði höst og
leiðinleg, en svo reyndist alls ekki
vera. Því má reyndar skjóta inn
varðandi vélarstærðina, að hægt
er að velja milli fjögurra mismun-
andi útfærslna, 4 strokka, 1.585
kúbiksentimetra, 72 DIN hestafla
vélar, þeirrar vélar sem ég lýsti
hér að framan, nema með elektr-
ónískri innspýtingu, sem eykur
kraft bílsins nokkuð og loks er
hægt að fá bílinn með 4 strokka,
2.445 kúbiksentinietra, 52,9 hest-
afla dísilvél.
Niðurstaðan er sem sagt sú, að
Argentan sé mjög lipur og
skemmtilegur bíll, hvort heldur
menn aki á malbiki eða möl og
innréttingin er af beztu gerð.
ÉS
Rými fyrir farþega aftur i er með ágætum.
Mælaborðið hefur sérstakt yflrbragð.
tölulega handhægt, auk þess sem
hann er stór og speglar vel.
Mælaborðið í Argentunni hefur
nokkuð sérstætt og óvenjulegt yf-
irbragð, en er eigi að síður stíl-
hreint og í því er að finna alla
nauðsynlega mæla og tæki.
Stjórntækin eru öll vel innan seil-
ingar, þannig að ökumaður þarf
lítið að breyta um stellingu til að
ná til þeirra. Á vinstri væng borð-
sins er mjög þarft og gott tæki, en
það er nokkurs konar viðvörun-
arpanell, sem t.d. lætur ökumann
vita ef hurðir eru ekki vel lokaðar,
ef handbremsan er á, auk þess
sem Ijós 'fer að loga ef olíu eða
vatn vantar á bílinn, töluvert áður
en einhver merki fara að sjást um
það á mælum bílsins. Þá er í bíln-
ingin sé böðuð sérstakri feiti, sem
geri það að verkum, að hún frýs
ekki. Þá má bæta því við, að með
einu handtaki er hægt að læsa öll-
um hurðum bílsins í mæla-
borðinu.
Rúðuupphalarar á framhurðum
eru rafdrifnir, sem er mjög þægi-
legt á keyrslu, en hins vegar eru
verður lítið var við hurðar-
pósta og annað þess háttar. Það
eina sem eitthvað ekyggir á út-
sýnið eru höfuðpúðarnir á aftur-
sætunum, en þeir eru auðvitað
mikið öryggistæki. Bíllinn kemur
aðeins með hliðarspegli hjá öku-
manni, sem er galli. Það er í raun
óþarfa sparnaður að sleppa hin-
um. Okumannsspeglinum er
stjórnað innan frá og er það til-