Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982
35
sviði. Ég minnist þess hve oft ég
undraðist yfir þeim mikla fjölda
góðra hugmynd sem Ragnar kom
með á þessum fundum. Hann var
eins og ótæmandi uppspretta af
slíku. Sumar af þessum áætlunum
okkar voru komnar á rekspöl og
aðrar orðnar að veruleika en
stærsti hlutinn var enn aðeins í
umræðuformi eða í besta falli á
blaði. Þessar hugmyndir eru m.a.
það sem Ragnar skilur eftir sig.
Það er sá Ragnar sem heldur
áfram að lifa meðal okkar og verð-
ur okkur að liði um ókomna fram-
tíð.
„Deyr fé
deyja frændr
deyr sjálfr i( sama
en oröstír
deyr aldregi
hveim sér góóan getr“
Að lokum vil ég flytja eiginkonu
og börnum svo og öðrum aðstand-
endum mínar bestu samúðar-
kveðjur og vona að þau beri gæfu
til að sigrast á þeim raunum sem
nú steðja að.
Ólafur Oddgeirsson
dýralæknir
Miðvikudaginn 7. júlí síðastlið-
inn var vinur okkar ,Ragnar
Ragnarsson borinn til grafar. Það
voru þung spor. Kynni okkar
Ragnars hófust haustið 1970. Þá
byrjuðum við þrír nám við Dýra-
lækningaháskólann í Hannover.
Eins og við var að búast mættu
okkur ýmsir byrjunarörðugleikar í
framandi landi. Þessar aðstæður
þjöppuðu okkur saman strax frá
fyrsta degi og voru þess valdandi
að tengsl okkar urðu meiri og nán-
ari en títt er um námsmenn hér
heima.
I Ragnari eignuðumst við góðan
vin og áttum með honum margar
ánægjustundir á námsárunum.
Það duidist ekki að Ragnar var
afburða gáfumaður, sem eins og
aðrir átti sínar sterku og veiku
hliðar. Auk námsins hafði hann
mikinn áhuga á bókmenntum og
stjórnmálum. í umræðum um þau
mál nutu rökfesta og skýr hugsun
Ragnars sín hvað best.
Að námi loknu skildu leiðir. Við
héldum hver í sína áttina og hitt-
umst sjaidnar. Ragnar vann fyrst
í Þýskalandi en tók síðan við
starfi héraðsdýralæknis á Þórs-
höfn. Þar kom fljótt í ljós áhugi
hans á málefnum byggðarlagsins.
Sýndu Þórshafnarbúar honum það
traust að fela honum starf odd
vita. Gegndi Ragnar því með sóma
ásamt dýralæknisstarfi þar til
fyrir rösklega ári. Þá tók hann að
sér rekstur Dýraspítala Watsons í
Reykjavík og hóf þar brautryðj-
andastarf sem fljótt skilaði góðum
árangri. Jafnframt gaf hann nú
málefnum dýralækna meiri gaum.
Kom hann þar fram með margar
athyglisverðar hugmyndir sem
hann mun því miður ekki taka
þátt í að fullmóta.
Við þökkum Ragnari liðnar
samverustundir. Jafnframt vott-
um við eiginkonu hans, Höllu
Bergsdóttur, börnum þeirra og
ástvinum samúð okkar í þeirra
miklu sorg.
Megi minningin um góðan og
röggsaman dreng lifa áfram í hug-
um okkar, sem hann þekktu.
Rúnar Gíslason dýralæknir
Hákon Hansson dýralæknir
Guðrún Erla Þor-
móðsdóttir — Minning
Fædd 7. nóvember 1945
Dáin 24. júní 1982
Með örfáum orðum langar mig
að minnast elskulegrar frænku
minnar sem lést í Reykjavík þann
24. júní sl. í Borgarspítalanum,
eftir miklar þjáningar og langa
sjúkrahúsdvöl.
Guðrún Erla Þormóðsdóttir var
dóttir hjónanna Þormóðs Hauks
Jónssonar og Laufeyjar Svan-
bergsdóttur, fædd í Reykjavík
þann 7. nóvember 1945, og var hún
því aðeins 36 ára gömul er hún
lést.
Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Benedikt Benediktsson. Eignuð-
ust þau hjón 4 börn, en misstu
tvær dætur, tvíbura, nýfædda.
Hin tvö eru Laufey og Benedikt.
Það má segja að fréttin um al-
varleg veikindi Erlu hafi komið
sem reiðarslag yfir okkur öll. Allt
það tilgangsleysi sem fólgið er í
því að ung kona er þannig hrifin
burt frá börnum sínum og eigin-
manni er svo óskiljanlegt. Trúin
um að nú líði Erlu vel léttir þann
söknuð og hryggð sem hvílir yfir
fjölskyldu hennar og vinum. Þau
hjónin Erla og Benedikt voru
mjög samhent, gestrisin og höfð-
ingjar heim að sækja. Mér er
minnisstætt frá því er þau bjuggu
í Danmörku í nokkur ár og ég
heimsótti þau þar, öll sú hlýja og
einstaka velvild sem mættu mér á
heimili þeirra. Á seinni árum
höfðum við ekki hist sérlega oft,
en þegar fundum bar saman var
sannarlega glatt á hjalla. Sem
barn kom Erla norður á Akureyri
sumar eftir sumar og dvaldi á
heimili foreldra minna. Hún kom
sem sannur gleðigjafi, og voru þær
miklar vinkonur systir mín og
hún, enda jafnöldrur. Veit ég að
móðir mín minnist þessara ára
með söknuði.
Erla og fjölskylda hennar ferð-
uðust mikið innanlands og utan,
og frá þeim ferðum lifa margar
minningar í hugum hennar nán-
ustu. Nú hefur Erla farið sína síð-
ustu ferð, þá ferð sem bíður okkar
allra. Að leiðarlokum lifir minn-
ingin björt og hrein í hugum
okkar allra og veitir þeim styrk
sem eftir lifa. Einlægar samúð-
arkveðjur til fjölskyldu Erlu, for-
eldra hennar og systkina.
Hvíli hún í friði.
Nú til þín, Fadir flý ég,
á foðurhjarUd kný ég,
um aðstoð bið ég þig.
Æ, vert með mér í verki,
ég veit þinn armur sterki
í stríði lífsins styður mig.
Kn verði, (iuð, þinn vilji,
þó veg þinn ei ég skilji,
ég fús hann fara vil.
W böl og stríð mig beygi,
hann brugðist getur eigi,
hann leiðir sælulandsins til.
(Sálmur)
Svanberg Árnason
Hjartavernd hleypir af
stokkum nýju happdrætti
HJARTAVERND hefur mörg
undanfarin ár rekið happdrætti til
styrktar starfsemi sinni. Um þess-
ar mundir er verið að hleypa af
stokkunum happdrætti samtak-
anna á nýjan leik en þau eru að-
eins með happdrætti einu sinni á
ári. Að þessu sinni eru vinningar
alls 20, samtals að verðmæti kr.
500.000,00. Aðalvinningarnir eru
tvær bifreiðir, Mazda LTD 929 og
Galant 1600 GL. Auk þessara að-
alvinninga eru 8 utanlandsferðir
að eigin vali, kr. 10.000,00 hver,
og 10 hljómflutningstæki að eigin
vali, kr. 10.000,00 hvert. Dregið
verður 17. september nk.
Á undanförnum árum hefur
happdrættið að verulegu leyti
rennt stoðum undir rekstur
Rannsóknastöðvar Hjarta-
verndar en hún er sem kunnugt
er leitar- og rannsóknastofnun.
Aðalverkefni hennar er að leit-
ast við að finna einkenni
hjarta- og æðasjúkdóma og
einnig eru rannsakaðir margir
aðrir heilsufarsþættir. Niður-
stöður rannsóknanna eru síðan
gefnar út í skýrslum.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru
mannskæðustu sjúkdómar með
þjóðinni og svo hefur verið síð-
ustu áratugina. Öllum ber sam-
an um að verndandi og fyrir-
byggjandi aðgerðir séu nauð-
synlegar ef vinna á bug á þess-
um sjúkdómum. Rannsóknir eru
því knýjandi ef takast á að graf-
ast fyrir meinin. Því var Rann-
sóknastöð Hjartaverndar stofn-
uð en hún hefur nú starfað í
næstum 15 ár. Auk þeirra tug-
þúsunda einstaklinga sem skoð-
aðir hafa verið í stöðinni hafa
rannsóknir einnig verið gerðar
úti á landsbyggðinni fyrir for-
göngu og undir umsjón stöðvar-
innar. Rannsóknir hafa verið
framkvæmdar í öllum lands-
hlutum og þessa dagana eru að
hefjast rannsóknir á Snæfells-
nesi.
Öll þessi starfsemi Hjarta-
verndar kostar mikið fé og hef-
ur happdrættið frá byrjun lagt
drjúgan skerf í þann sjóð. Til-
kostnaður eykst árlega og því
vilja forráðamenn Hjarta-
verndar heita á allan almenning
að leggja starfsemi samtakanna
lið með því að kaupa miða í
happdrættinu og stuðla að sölu
þeirra. Um leið eiga þeir von á
góðum vinningi ef heppnin er
með. Gott málefni á góðan
stuðning skilið.
(Fréttatilkynning
frá Hjartavernd)
Hjólhýsi - hjólhýsi
Úrvalið aldrei betra.
Hjá
okkur
eru hjól-
hýsin.
BÍIASAIA
GUDFINNS
iSími 81588.
ÆTLIÐ ÞÉR AÐ
KAUPA
IGNIS
CONCORD
KÆLISKÁP ?
TILBOÐSVERÐ
Vegna magninnkaupa get-
um við boðið 310 It. kæli-
skáp á tækifærisverði:
Sérstaklega sparneytinn
með polyurethane einangr-
un.
Hljóðlátur, öruggur, stíl-
hreinn.
Möguleiki á vinstri og
hægri opnun. Gott fernu-
pláss.
Hægt að skipta um lit að
framan.
Algjörlega sjálfvirk af-
þýðing.
Góðir greiðsluskilmálar.
Upplýsingar um stæröir
á bls. 4 í símaskránni.
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
S. 19294 og 26660
Blaðburðar-
fólk óskast
Vesturbær
Miðbraut
Austurbær
Flókagata 1—51.
Laugavegur 101—171
Háahlíð
ÚTHVERFI
Nökkvavogur Skipasund
Karfavogur Básendi
Upplýsingar í síma m
35408 ^