Morgunblaðið - 10.07.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982
41
Eflum islenskt.
Hótelstjórar - Innkaupastjórar - Verslunarstjórar
Nú sem fyrr
FALLEGUSTU PÖSTKORTIN
frá LITBRÁ
Höfðatúni 12 — Reykjavík
Hringið í síma 22930. 34092. 22865. við sendum um hæl.
NYKOMID!
OFNÞURRKAÐ
OREGONPÆN
Verið að undirbúa
málningu hússins
l»orgrímur Halidórsson skrifar:
„Steinar Waage hringdi til
Velvakanda í dag og hafði þungar
áhyggjur af útliti Farfugiaheimil-
isins við Laufásveg.
Umhyggja hans er þakkarverð,
aldrei er snyrtimennskan oflofuð.
En hann og blaðamaður Morgun-
blaðsins hefðu getað sparað sér
skrifin og gengið í bæinn og spurt
um ástæðuna. Það er nefnilega
verið að undirbúa málningu húss-
ins og eru hús venjulega ekki sem
best útlítandi á þvi stigi, en hann
hefði einnig komist að raun um að
hér var ekki um neina „drauga-
höll“ að ræða, inni iðaði allt af
fjöri og mannlífi. Fólk á öllum
aldri hvaðanæva að úr heiminum
naut þeirrar ódýru gistingar og
hreinlegs umhverfis sem boðið er
upp á.
En það skal fúslega játað að
viðhald hússins við Laufásveg hef-
ur fundið fyrir þeim stórfram-
kvæmdum sem Farfuglar standa
að í Laugardal, þar sem nú rís af
grunni giæsilegt nýtt Farfugla-
heimli.
Hvað svo sem Steinar Waage
heldur þá eru Farfuglar ekki ríkir
af fé. Þeir hafa ekki gengið um
með betlistaf, og ekki fer mikið
fyrir styrk ríkis eða borgar til
starfsemi þeirra eða fram-
kvæmda.
Flest er unnið í sjálfboðavinnu
karla og kvenna — ungra sem ald-
inna og er Steinar velkominn í
þann hóp þegar byrjað verður að
mála — eða fyrr, nóg eru verkefn-
in.
Launin hans verða ekki þung í
pyngjunni, en hellt verður upp á
könnuna og hann mun áreiðanlega
njóta ánægjunnar af góðum og
heilbrigðum félagsskap."
STÆRÐIR 31/2“x5“ og 3“x6“
PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR STRAX.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITTAR
Á STAÐNUM OG í SÍMUM 11333 — 11420
wSkM TIMBURVERZLUN
IfU ÁRNA JÓNSSONAR & CO. H/F
LAUGAVEGI 148
Hógvær ábending
Helgi Júlíusson, skrifar:
„Velvakandi og kæru lesendur.
Allir læknar og flestir leikmenn
vita, að þeir, sem eru ellihrumir
eða hafa þjáðst af miklum líkam-
lega veiklandi sjúkdómum, hafa
svo alvarlega skertan viðnáms-
þrótt gagnvart líkamlegu álagi
eða veikindum, að það sem er heil-
brigðu fólki alveg meinlaust, getur
dregið þá líkamlega vanheilu til
dauða, eins og skyndileg áreynsla
fyrir hina hjartaveiku, eða vetr-
arkuldi og siæmt kvef fyrir hina
ellihrumu. Hins vegar er það svo,
að margir leikmenn, nánustu að-
standendur og jafnvel læknar
þeirra sem eru andlega vanheilir,
bæði hinna ungu sem verða þann-
ig nokkuð skyndilega, og hinna
eldri, sem lengi hafa strítt við
andlega vanheilsu, J)ótt oft hafi
farið dult, virðast ekki skilja, að
slíkir einstaklingar hafa sambæri-
lega skertan viðnámsþrótt gagn-
vart andlegu álagi, sem er heil-
brigðu fólki meinlaust, eins og
langvarandi einmanaleiki eða
andvökur, þannig að undir slíku
álagi geta hinir andlega vanheilu
brotnað niður og orðið áberandi
geðveikir, eða gripið til örþrifa-
ráða, svo sem óæskilegra lifnað-
arhátta eða ofnotkunar lyfja og
annarra efna, til að draga úr van-
líðan sinni. Þegar þetta gerist,
mæta hinir andlega vanheilu mjög
oft engum skilningi, samúð eða
aðstoð þeirra sem þeir umgangast,
heldur oft fyrirlitningu, andúð og
jafnvel ofsóknum og fjandskap.
í Reykjavík hefur í fáein ár
starfað félag geðsjúklinga, vel-
unnara þeirra og aðstandenda. Fé-
lagið heitir Geðhjálp og hefur
margvíslega hjálparstarfsemi á
stefnuskrá, auk funda, fyrirlestra
og starfsemi minni hópa sem
koma saman á heimilum félag-
anna. Ef einhver hefur áhuga á
þessu félagi, get ég, með leyfi við-
komandi stjórnarmanna, sem ég
þekki, bent þeim á að snúa sér til
Hope Knútsson, núverandi for-
manns, í síma 73734, eða Nönnu
Þorláksdóttur, í sima 81118, eða
Ingibjargar Snæbjörnsdóttur, i
síma 32852 (líka er hægt að kynn-
ast þessu félagi hjá mörgum öðr-
um). Vissulega eru margar fleiri
leiðir til að berjast við ofangreind
vandamál. Þetta bréf er aðeins
hugsað sem hógvær ábending á
einn félagsskap, sem, ef hann rís
undir nafni, getur ef til vill hjálp-
að einhverjum."
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til
fóstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisfong verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: í þessari vinnu er enginn dagur eins.
Rétt væri: í þessari vinnu eru engir tveir dagar eins.
Eða: í þessari vinnu er enginn dagur sem annar.
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
SimA
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
ALLT UM ÚRSLITA-
LEIKINN Á HM
EINBÚI í HOLTI
— rætt viö Pál Báröarson
í Holti, Álftaveri.
UPPLJÓSTRANIR
JAN SENJA
— eins háttsettasta kommún-
istaforingja, sem flúiö hefur yfir
járntjaldiö,
Simnudagurinn byrjar á síðum Moggans