Morgunblaðið - 10.07.1982, Page 42

Morgunblaðið - 10.07.1982, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982 unnin á Bislet MÖRG stórgóð afrek voru unnin á Oslóarleikjunum í frjálsíþróttum þótt heimsmet brezka hlauparans David Moorcroft skyggði að sjálf- sögðu á allt annað. Bandaríska hlauparaparið Steve Scott og Mary Decker-Tabb settu Bandaríkjamet og náðu nsestbezta árangri frá upphafi í míluhlaupi og 3000 metrum kvenna. Scott hljóp á 3:47,69 mín., og bætti vikugamalt met sitt um tæpa sekúndu. Aðeins Sebastian Coe hefur nað betri ár- angri, 3:47,33 min. Deeker-Tabb hljóp 3000 m á 8:29,71 mín, en þar er heimsmet Kazankinu hinnar sov- Hjörtur á 15,04 HJÖRTUR Gíslason frjálsiþrótta- maður úr KR, sem hefur dvalist við störf í Svíþjóð i sumar, keppti á frjálsíþróttamóti í Nyköping á mið- vikudagskvöld og hljóp þar 110 metra grindahlaup á 15,04 sekúnd- um, sem er hans bezti árangur í ár. Þá hefur Hjörtur hlaupið 100 metra ytra á 11,30 sekúndum. í samtali við Mbl. kvaðst Hjörtur hafa átt við meiðsl að stríða að undanförnu, en hann kvaðst vongóður um að hann yrði búinn að ná sér af þeim von bráðar, svo hann gæti orðið með í Kalott-keppninni um næstu mánaða- mót. Á mótinu í Nyköping hljóp Kinar P. Guðmundsson FH 400 metra hlaup á 50,88 sekúndum. Einar hef- ur hlaupið fjölmörg 400 metra hlaup á 50,7 sekúndum i vor og sumar, og er við því að búast að hann eigi eftir að bæta um betur þegar líður á sumarið. ézku 8:27,12 min. í míluhlaupinu setti gamli heimsmethafinn i grein- inni, Nýsjálendingurinn John Wal- ker persónulegt met, hljóp a 3:49,08 mín. frinn Ray Flynn hljóp einnig í fyrsta sinn undir 3:50, hlaut 3:49,77 mín. Bislet-met settu Evelyn Ash- ford, Bandaríkjunum í 100 metra hlaupi kvenna, 11,06 sekúndur, Jolanda Januchta Pollandi í 800 metrum, 2:00,04 min., og Tiina Lil- lah, Finnlandi, í spjótkasti kvenna, 66,04 metra. Jeff Philips Bandaríkjunum sigraði í 200 m á 20,49, en þar varð Ólympíumeistarinn frá 1976, Don Quarry, annar á 20,79 sek. Bretinn Gary Cook náði bezta heimstím- anum i ár í 800 metrum, hljóp á 1:44,71 mín. og var einum hundr- aðasta úr sekúndu á undan James Robinson Bandaríkjunum. Fimm menn hlupu undir 1:46 min. Willie Banks Bandaríkjunum sigraði í þrístökki með 16,99 metra stökki, annar varð Bretinn Aston Moore, Evrópumethafi og næstbezti þrí- stökkvari heims frá upphafi, með 16,48 m. ÞÁ SIGRAÐI Steve Owett ör- ugglega og eins og honum er lagið i 2000 metra hlaupi á 4:57,71 mín., annar varð V-Þjóðverjinn Thomas Wessinghage, sem rétt marði Jón Diðriksson á mótum í V-Þýzka- landi í vor, á 4:58,42 mín. Gregor- ek, Bandarikjunum, hljóp á 5:00,19 mín., þá komu tveir Bretar á 5:06 rúmum. í stangarstökki sigraði Timmo Kuusisto frá Finnlandi með 5,55, sem er bezti árangur Finna í ár, en fjórir Finnar til viðbótar hafa stokkið yfir 5,50 í ár. Bandaríkjamaðurinn Volz varð annar með 5,50. Loks sigraði Gaby Bussmann V-Þýzkalandi i 400 m á 51,04 sek. Fremur búist við heimsmeti frá öðrum en Moorcroft í 5 km Heimsmet Bretans David Moorcrofts í ösló eru tiltölu- lega óvænt tíðindi í frjáls- íþróttaheiminum, því þótt Moorcroft eigi glæsilegan feril að baki og sé til alis líklegur, var fremur búist við að aðrir yrðu fyrri til að slá met Henry Rono, sem sett var í Knarvik í Noregi í fyrra. Moorcroft hljóp á 13:00,42 mínútum, en met Rono var 13:06,20 mín. Fyrir áratug þótti það vart á færi mannsins að hlaupa undir 13:20 mín., en nú mega menn sín vart á stórmótum ef þeir geta ekki hlaupið undir þeim tíma. Það gerir met Moorcrofts enn stórkostlegra, að hann hljóp einn síns liðs mest allt hlaupið, skildi við keppinaut- ana eftir aðeins tvo hringi. Varð hann því að treysta á sjálfan sig, en áhorfendur hvöttu hann dyggilega. „Þeirra stuðningur var stórkostlegur, það munaði því að ég hljóp hvern hring tveimur sekúndum hraðar en ég hefði ella gert,“ sagði Moorcroft eftir methlaup- ið. Millitímar Moorcrofts segja sína sögu. Fyrstu 1000 metrarnir voru hlaupnir á 2:38,5 mín., eftir 2000 metra var millitíminn 5:12,5 og við 3000 metra markið sýndu klukkurnar 7:50,4 mín., sem út af fyrir sig þykir stórgóður árangur í 3000 metra hlaupi hvar sem er í heiminum. Síð- asta hringinn hljóp hann á 58 sekúndum. Moorcroft hljóp mimm Moorcroft setti stórkostlegt heims- met í 5 km hlaupi. tiltölulega jafnt hlaup, fyrsta km á 2:38,5, þann næsta á 2:34,0, þann þriðja á 2:37,9, þann fjórða á 2:38,1 en síðasti km er hraðari en hinir, eða 2:31,9 mín. Að jafnaði hefur hann hlaupið hvern hring á 62,5 sekúndum. Moorcroft, sem er 29 ára og forstöðumaður atvinnuleys- isskráningarskrifstofu, bætti sig um 20 sekúndur og sló brezkt met stórhlauparans Brendans Foster, sem var 13:14,6 mín. Foster var í stúd- íói BBC þegar mótið fór fram og hringdi í Lindu konu Moorcrofts til að færa henni tíðindin. „En hún trúði hon- um ekki, sannfærðist ekki fyrr en ég hringdi sjálfur seinna um kvöldið," sagði Moorcroft í samtali við AP- fréttastofuna. Heimsmetið í 5 km hefur ekki verið eign Breta frá því Gordon Pirie setti heimsmet í Bergen fyrir aldarfjórðungi. Ýmsir halda að Moorcroft, sem er fyrrum skólabróðir Vilmundar Vilhjálmssonar í Loughborough, sé nýgræð- ingur á hlaupabrautinni, en svo er ekki. Hann keppti í 1500 metrum á Ólympíuleik- unum í Montreal 1976, vann bronz í þeirri grein á Evrópu- meistaramótinu í Prag 1978 og gull á Samveldisleikunum sama ár, og í fyrra sigraði hann í 5 km hlaupi í úrslita- keppni Evrópubikarkeppn- innar. Hann hefur lengi þótt líklegur til stórafreka, og eru þær vonir að rætast nú. Ef- laust verður hann harður í horn að taka á Evrópumeist- aramótinu í Aþenu í sept- emberbyrjun, og nú er að því spurt hver verður fyrstur til að hlaupa 5 km á innan við 13 mínútum, en lítið vantaði á það hjá Moorcroft. Jafnvel á dögum Ron Clarke óraði eng- an fyrir því að 15 árum seinna yrði sá múr við það að verða sigraður. Jón þriðji í Stokkhólmi JÓN Iliðriksson hlaupari úr UMSB varð þriðji í 1500 metra hlaupi á miklu móti í Stokkhólmi á þriðju- dag. Hljóp Jón á 3:45,12 mínútum, var í baráttu um sigurinn lengst af og leiddi um tima, en V-Þjóðverjinn Uwe Mönkemeyer var sprækur á endasprettinum og vann á 3:43,16 mín. Annar varð Bandaríkjamaður- inn David Pascal á 3:44,94 mín. Bandaríkjamaðurinn Sidney Maree sigraði i A-hlaupinu á 3:32,89 mín., sem er bezti tími ársins, og einn allra bezti tími, sem náðst hefur á vegalengdinni, en heimsmetið er 3:31,36 min. og er í eigu Bretans Steve Owett. Frlálsar Ibrúttlr Frjálsíþróttalandsliðió sem keppir við Wales valið Frjálsíþróttasamband íslands hef- ur valið karlalandsliðið, sem þreytir landskeppni við Wales á Laugar- dalsvelli 17. og 18. júlí nk. Tveir menn keppa í hverri grein, og miðað við árangur velskra frjálsíþrótta- manna í fyrra og það sem af er sumari, stefnir í hörkuspennandi keppni þjóðanna. Landsliðið skipa 100 m: Öddur Sigurðsson og Vil- mundur Vilhjálmsson. 200 m: Oddur Sigurðsson og Vilmundur Vilhjálms- son, 400 m: Oddur Sigurðsson og Egill Eiðsson. 800 m: Guðmundur Skúiason og Gunnar P. Jóakimsson. 1.500 m: Jón Diðriksson og Gunnar P. Jóakimsson. 5.000 m: Jón Dið- riksson og Steinar Friðgeirsson. 10.000 m: Sigurður P. Sigmundsson og Sighvatur D. Guðmundsson. 110 m grind: Þorvaldur Þórsson og Stef- án Þ. Stefánsson. 400 m grind: Þor- valdur Þórsson og Stefán Hallgríms- son. 3.000 m hindrun: Ágúst Ásgeirs- son og Einar Sigurðsson. Hástökk: Unnar Vilhjálmsson og Stcfán Frið- leifsson. Langstökk: Kristján Harð- arson og Jón Oddsson. Þrístökk: Guðmundur Nikulásson og Unnar Vilhjálmsson. Stangarstökk: Sigurð- ur T. Sigurðsson og Kristján Gissur- arson. Kúluvarp: Oskar Jakobsson og Vésteinn Hafsteinsson. Kringlu- kast: Óskar Jakobsson og Vésteinn Hafsteinsson. Spjótkast: Unnar Garðarsson og Einar Vilhjálmsson. Sleggjukast: Oskar Jakobsson og Krlendur Valdemarsson. 4x100 m: Þorvaldur Þórsson, Sigurður Sig- urðsson, Vilmundur Vilhjálmsson og Oddur Sigurðsson. Varam.: Sig. T. Sig. 4x400 m: Þorvaldur Þórsson, Stefán Hallgrímsson, Egill Eiðsson og Oddur Sigurðsson. Varam.: Guðm. Skúlason. Jón keppti daginn eftir í 800 metra hlaupi í Nyköping í Svíþjóð, hafnaði þar einnig í þriðja sæti eftir að hafa leitt hlaupið fyrstu 600 metrana, en þá skutust tveir stórgóðir Bandaríkjamenn fram úr honum. Jón hljóp á 1:50,15 mín., en James Masterson sigraði á 1:49,3 og Charles Telleford var á milli þeirra Jóns. Báðir Banda- ríkjamennirnir eiga milli 1:45 og 1:46 mínútur í 800 metra hlaupi. Sigraði Jón þriðja Bandaríkja- manninn og einnig Svíann Gert Möller, sem verið hefur sænskur landsliðsmaður í 400 og 800 metr- um í mörg ár. Knattspyrnuleikir helgarinnar Laugardagur 10. júlí 2. deild Borgarnesvöllur — Skallagrímur:Þór A. 2. deild Húsavíkurvöllur — Völsungur:FH 2. deild Neskaupstaðarvöllur — Þróttur N.:Reynir S. 3. deild A Akranesvöllur — HV:Víkingur Ó. 3. deild A Hvaleyrarholtsvöllur — Ilaukar:Víðir 3. deild A Selfossvöllur — Selfoss:Grindavík 3. deild A Stykkishólmsvöllur — SnæfelhÍK 3. deild B Eskifjarðarvöllur — AustrhSindri 3. deild B Grenivíkurvöllur — Magni:KS 3. deild B Krossmúlavöllur — HSÞ:Huginn 3. deild B Laugalandsvöllur — Árroðinn:Tindastóll 4. deild A Grundarfj.v. — Grundarfjörður:Stjarnan 4. deild A Hellissandsvöllur — Reynir He.:UDN 4. deild A Varmárvöllur — Afturelding:Grótta 4. deild B Melavöllur — Ármann:Léttir 4. deild B Kópavogsvöllur — Augnablik.Bolungarvík 4. deild C Heimalandsvöllur — Eyfellingur:Hekla 4. deild C Selfossvöllur — Stokkseyri.Drangur 4. deild C Þorlákshafnarvöllur — Þór Þ.:Hveragerði 4. deild F Borgarfjarðarvöllur — UMF B.:Valur 4. deild F Egilsstaðavöllur — Höttur:Hrafnkell 2. deild kvenna A Ásbæjarvöllur — Fylkir: ÍBÍ 2. deild kvenna B Þórsvöllur — Þór A.:Hveragerði Sunnudagur 11. júlí Landsleikur — Finnland.'ísland í Helsinki 2. deild Njarðvíkurvöllur — Njarðvík:Einherji 4. deild F Neskaupstaðarvöllur — Egill rauði:Leiknir 2. deild kvenna A Vestmannaeyjav. — ÍBV:Afture. Mánudagur 12. júlí 2. deild Laugardalsvöllur — Þróttur R.:Fylkir kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 17.00 kl. 14.00 kl. 16.00 kl. 1400 kl. 14.00 kl. 16.00 kl. 14.00 kl. 16.00 kl. 16.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 14.00 kl. 15.00 kl. 14.00 kl. 20.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.