Morgunblaðið - 22.07.1982, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ1982
Sigur \ CR-inga
hékk á bláþræði
gegn F teyni
• Sncmma beygist krókurinn. Kiður Smári (t.y.) er þegar farinn að sparka með foður sínum, Arnóri. En þessi mynd
er tekin fyrir utan hús fjölskyldunnar í Lokeren.
„Reikna með því að skrifa
undir samning við Lokeren
í vikunni til eins árs“
— Ég reikna með því að skrifa
undir samnini' við Lokeren eftir
eina viku. Ég er núna kominn með
samnin|> í hendurnar sem ég geí
fyllilei;a sætt mig við. Ilann er mér
mjö|> hagstæður «|> er aðeins til eins
árs. I>að var mikið atriði fyrir mij> að
fá það i j>ef>n í samningnum að
skrifa bara undir í eitt ár í senn. É|>
mun lej>gja mij> fram á næstu keppn-
istímahilum oj> reyna að spila vel.
Takist það þá vonast éj> jafnvel til að
skipta um félaj> eftir tímahilið.
Það er jú takmarkið hjá mér
eins oj> oðrum að reyna að ná sem
lenj>st í atvinnumennskunni, og
því æskilejjt að fara að skipta um
félaj>, saj>ði Arnór Guðjohnsen er
Mbl. spjallaði við hann í j>ær-
kvöldi. Þá var Arnór nýkominn úr
a-finjtaleik með liði sínu Lokeren
j>ej>n Beveren en leikurinn tapað-
ist 1—2. Arnór sagði að æfingarn-
ar væru hafnar á fullri ferð og æft
Stórgóð met
hjá Ragnheiði
KAGNIIKIDI'R Olafsdóttir Kll setti
tvö íslandsmet í æfinga- of> keppnis-
ferðalagi sinu í V-Þý/kalandi á döj>-
unum, í 1.1)00 og .'(.000 metra hlaup-
um. Illjóp Kagnheiður þúsund metra
hlaupið á 2:44,0 mínútum, oj> 3.000
metrana á 9:20,02 mín.
Metið á styttri vegalengdinni
átti Ragnheiður sjálf, en það var
2:50,8 mínútur, sett í V-Þýzka-
landi fyrir þremur árum. Hins
vegar átti Lilja Guðmundsdóttir
ÍR metið í 3.000 metrum, 9:36,0
mínútur, sett fyrir tveimur árum í
Stokkhólmi. Lilja hljóp á 9:50
mínútum í síðustu viku.
stíft og leiknir æfingaleikir.
Keppnistímabilið í Belgíu hefst 18.
ágúst. Arnór er alveg orðinn góður
af meiðslum þeim er hann hlaut á
síðasta keppnistímabili og tóku
sig upp hér heima er leikið var
gegn Englandi. _ þR
Sigurður Grétarsson:
„Ekkert heyrt“
„ÉG VEIT ekki meira um málið en
þú og hef ekkert heyrt um þetta. Það
hefur ekki verið haft samband við
mig,“ sagði Sigurður Grétarsson,
Breiðabliki, er blm. spjallaði við
hann í gærkvöldi, og bar undir hann
fréttir um það að mörg stórlið í Evr-
ópu hefðu áhuga á að fá hann til sín.
Var það m.a. Hamburger SV í
Þýskalandi sem um var rætt, en eng-
inn fótur er fyrir þessum fréttum að
sögn Sigurðar. _ SH.
MÍ14 ára
og yngri
MEISTARAMÓT íslands fyrir
frjálsíþróttamenn 14 ára og yngri
verður háð á Blönduósi 7. og 8. ágúst
næstkomandi. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast til Björns Sigur-
björnssonar, s. 95-4397, fyrir 4.
ágúst, ásamt þátttökugjaldi, sem er
10 krónur á grein.
ÍSÍ heiðrar þrjá forystu-
menn f handknattleiknum
í TILEFNI 25 ára afmadis Hand-
knaltleikssambands íslands hefur
framkvæmdastjórn ÍSÍ heiðrað
þessa menn:
Arni Arnason var sæmdur heið-
ursorðu ÍSÍ. Hann var leikmaður í
handknattleik í Knattspyrnufé-
laginu Víkingi og hefur starfað
mikið að félagsmálum. Þá var
hann um árabil í stjórn Hand-
knattleiksráðs Reykjavíkur og
formaður þess.
Arni sat stofnþing Handknatt-
leikssanthands íslands og var
kjörinn fyrsti formaður HSI.
Hvarf hann um skeið frá störf-
unt hjá HSÍ, en eigi hætti hann þá
að sinna handknattleiksmálum,
því eins og áður segir, vann hann
þá mikið verk sem stjórnarmaður
og formaður Handknattleiksráðs
Reykjavíkur.
Arni kom aftur í stjórn Hand-
knattleikssambands íslands 1980
oger nú gjaldkeri stjórnarinnar.
Jón Erlendsson var sæmdur
gullmerki ÍSÍ. Hann var leikmað-
ur í handknattleik í Glímufélag-
inu Ármann og þjálfari þess fé-
lags um árabil. Þá var hann for-
maður Handknattleiksráðs
Reykjavíkur í eitt ár.
Jón var í landsliðsnefnd Hand-
knattleikssambands íslands árin
1968—1974 og í stjórn HSÍ
1972—1975 og kom svo í stjórnina
aftur 1980 og er nú varaformaður
og framkvæmdastjóri Handknatt-
leikssambandsins.
Júlíus Hafstein var sæmdur
gullmerki ÍSÍ. Hann var leikmað-
ur í handknattleik í íþróttafélagi
Reykjavíkur og vann mikið að fé-
lagsmálum í því félagi.
Júlíus átti sæti í mörg ár í
Handknattleiksráði Reykjavíkur
og var formaður þess um skeið.
Hann tók sæti í stjórn HSÍ árið
1975 og var kjörinn formaður
Handknattleikssambandsins 1979
og hefur gegnt því starfi síðan.
KR-INGAR tryggóu sér sæti í und-
anúrslitum bikarkeppninnar í
gærkvöldi er þeir unnu nauman og
vart meira en svo sanngjarnan sigur
á Reynismönnum frá Sandgerði,
1—0. Staðreyndin var nefnilega sú,
að Reynir átti síst minna í leiknum
lengstum, en skapaði sér fá hættuleg
færi. KK-ingar áttu hins vegar nokk-
ur hættuleg færi í siðari hálfleikn-
um, alltaf eftir skyndisóknir, þegar
2. deildar liðið réði gangi leiksins
lengi vel.
Markið
Eina mark leiksins kom strax á
18. mínútu og var vel að því staðið.
Sæbjörn Guðmundsson vann
knöttinn á vallarmiðju og sendi
hann síðan yfir á hægri vænginn
til Óskars Ingimundarsonar.
Hann lék aðeins áfram og hleypti
svo af rétt fyrir utan vítateiginn.
Jón Örvar, markvörður Reyn-
ismanna, átti greinilega ekki von á
skoti, enda Óskar á fullri ferð á
ská frá markinu. Fór boltinn á
milli Jóns Örvars og stangarinnar
nær. Fast skot Óskars réði hann
ekki við þrátt fyrir heiðarlega til-
raun.
Eftir markið áttu flestir hinna
200 áhorfenda, sem líkast til voru
til helminga frá Suðurnesjum og
úr Vesturbænum, von á að KR
tæki leikinn í sínar hendur, en það
var öðru nær. Reynismenn börð-
ust hetjulega og stöppuðu hver í
annan stálinu. Náðu þeir oft á tíð-
um upp ágætum samleiksköflum á
grasinu, sem er þeim Sandgerð-
ingum nokkuð framandi í saman-
burði við sandgryfju þeirra, en
endahnútinn vantaði oftast.
KR heppið
Þó sluppu KR-ingar fyrir horn
ér Hálfdán Örlygsson hreinsaði
frá er skot Ómars Björnssonar var
á leiðinni f netið og síðan varði
Stefán Arnarsson, traustasti leik-
maður KR ásamt Jósteini Ein-
arssyni, þrumuskot Sigurjóns
Sveinssonar. Rétt á eftir varð
hann að hafa sig allan við til að
bjarga skoti Bjarna Kristjánsson-
ar í horn. Upp úr horninu skaut
Júlíus Jónsson naumlega framhjá.
í síðari hálfleiknum var ekkert
lát á sókn Reynismanna, en þeir
fengu ekkert opið færi. KR-ingar
náðu nokkrum hættulegum
skyndisóknum á milli þess, sem
þeir töfðu af alefli. Eftir eina slíka
átti Magnús Jónsson hörkuskot í
þverslá eftir að Jón Örvar var úr
leik þegar hann rann á hálu gras-
inu og síðan skaut Willum Þórs-
son rétt yfir eftir laglega sókn
KR-inga upp hægri kantinn. Rétt
fyrir leikslok sló Jón Örvar skot
Sæbjarnar yfir og þar með voru
minnispunktarnir upptaldir.
Tafir
Örvænting var tekin að hlaupa í
Reynismennina undir lokin enda
reyndu þeir að jafna metin, sem
mest þeir máttu. Fór mjög í taug-
arnar á þeim hve hægt KR-ingar
fóru sér. Spakir menn tjáðu undir-
rituðum að KR hefði ekki notið
sannmælis í fjölmiðlum fyrir leiki
sína í sumar. Liðið hefði leikið
miklu betur en umsagnir blaða-
manna segðu til um. Þessi leikur
gerði ekki mikið til að hnika fyrri
ummælum um KR-liðið, sem var
vægast sagt ósannfærandi í leik
sínum. Mátti þakka fyrir sigurinn.
Reynismenn eiga hrós skilið
fyrir ódrepandi baráttuvilja.
Hann nægði þeim þó ekki að þessu
sinni. Framherjum liðsins tókst
ekki oft að opna vörn Vesturbæj-
arliðsins almennilega og þær til-
raunir þeirra, sem komu utan
vítateigs misstu ýmist marks eða
þá að Stefán varði af öryggi.
Margt lipurra leikmanna er í
Reynisliðinu og þeir gerðu a.m.k.
það, sem KR-ingar virtust aldrei
gefa sér tíma til að gera, litu upp
og gáfu sér tíma til að finna sam-
herja áður en boltinn var gefinn.
- SSv.
íslandsmótið 1. deild:
Heimir Karlsson
nú markahæstur
arsson, Breiðabliki, en hann
skoraði eitt mark í leiknum
gegn ÍBK á dögunum. Sigurði
tókst hins vegar ekki að skora
gegn Fram og er því í öðru sæti
með 6 mörk. Sigurlás Þorleifs-
son, markakóngur þeirra Eyja-
manna, virðist nú vera að taka
við sér, en hann hefur verið
daufur við markaskorum fram-
an af sumri. Aðeins skorað eitt
mark í leikjunum 9, en gerði
sér svo jítið fyrir í siðasta leik
gegn ÍBÍ, og skoraði þrennu.
Þessir leikmenn hafa skorað
þrjú mörk eða fleiri í 1. deild-
inni:
Heimir Karlsson Víkingi 7
Sigurður Grétarsson UBK 6
Guðbjörn Tryggvason ÍA 5
Halldór Arason Fram 4
Ómar Jóhannsson ÍBV 4
Sigurlás Þorleifsson ÍBV 4
Gunnar Pétursson ÍBÍ 4
Gústav Baldvinsson ÍBÍ 3
Gunnar Gíslason KA 3
Njáll Eiðsson Val 3
Haimir Karlaaon
HEIMIR Karlsson, Víkingi,
hefur nú tekið forystuna í
markaskoruninni í 1. deild.
Hann hefur skorað 7 mörk, og
skaust fram fyrir Sigurð Grét-