Morgunblaðið - 27.07.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
Samgönguráðherra um Atlantshafsflugið:
Hlynntur ríkis-
styrk til Flugleida
FLUGLEIDIR hafa nú sótt um
áframhaldandi styrk vegna Atlants-
haf.sflugsin.s. Nemur styrkumsóknin
tæplega 24 milljónum króna eða 2
milljónum dollara. Að sögn forráða-
manna Flugleiða er þetta sama upp-
hæð og ríkið hefur í tekjur af flug-
inu.
Morgunblaðið sneri sér til sam-
gönguráðherra, Steingríms Her-
mannssonar og sagði hann, að um-
sóknin hefði borizt samgöngu-
Innbrotirt á Laugavejíi 11:
Verðmæti þýf-
isins liðlega
100 þús. kr.
VERÐMÆTI þýfisins, sem stolið
var úr skartgripaverzlun Benedikts
Guðmundssonar að I.augavegi 11 að-
faranótt laugardagsins og skýrt var
frá í Mbl., er liðlega 100 þúsund
krónur.
Eigendur höfðu tekið verðmæt-
ustu muni úr verzluninni, þar sem
hún var lokuð vegna sumarleyfa.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur að rannsókn málsins, en enginn
hefur enn verið handtekinn. Þetta
er fimmta innbrotið í skartgripa-
verzlun á árinu og nemur verð-
mæti þýfis í þessum innbrotum
um 2,3 milljónum króna.
Samningafundur í
farmannadeilunni
Samninganefndir Farmanna- og
fiskimannasambands og skipafélag-
anna hafa verið boðaðar á fund
sáttasemjara og sáttanefndar klukk-
an 9 árdegis.
Undanfarna daga hefur hvorki
rekið né gengið í deilunni og hafa
yfirmenn á kaupskipum nú boðað
verkfall dagana 3. og 4. ágúst
næstkomandi, auk þess sem hert
yfirvinnubann er komið til fram-
kvæmda.
ráðuneytinu 3. júlí og þetta væri
nákvæmlega það sama og sótt
hefði verið um í fyrra og verið
veitt. Farið væri fram á styrk, sem
næmi tekjum ríkisins af fluginu
og starfsliði við það. Sagðist hann
vera jákvæður fyrir því að styrk-
urinn yrði veittur.
Að undanförnu hefði farið fram
athugun á því hve mikil þessi upp-
hæð væri og hefði hún reynzt í
kringum 2 milljónir dollara. Það
væri rétt að taka það fram að
þetta væri miklu meira en lend-
ingagjöldin, þau væru aðeins
þriðji hlutinn af þessari upphæð,
fjölmargir aðrir hlutir væru
reiknaðir inn í þessa upphæð, eins
og þinggjöld starfsliðs og fleira.
Það væri því mikill misskilningur
að halda því fram að þetta væri
ekki styrkur því væntanlega
mundi viðkomandi starfslið fá
vinnu annars staðar og greiða sín
þinggjöld þó flugið kæmi ekki til.
Sagði Steingrímur að hann ætti
eftir að ræða þetta mál við fjár-
málaráðherra og síðan yrði það
tekið fyrir innan ríkisstjórnarinn-
Tvær Akraborgir:
Fluttu
700 bíla
Nll ERU tvö skip í siglingum milli
Reykjavíkur og Akraness. Hin nýja
Akraborg og hin eldri, sem er ný-
komin úr slipp. „Þetta hefur gengið
Ijómandi vel og við höfðum ekki
undan frá Reykjavík á föstudag, en
hvort það verður til frambúðar læt
ég ósagt um,“ sagði Gunnar Guð-
mundsson, starfsmaður hjá Akra-
borg, í samtali við Mbl.
Skipin fóru 9 ferðir á föstudag, í
öll skiptin voru skipin fullhlaðin
frá Reykjavík en mikill straumur
bifreiða var úr höfuðborginni.
Nýja Akraborgin tekur rúmlega
60 bíla og hin eldri rúmlega 40.
Stórslasaður eftir átök
AÐFARANOTT laugardagsins var
lögreglan á Seltjarnarnesi kvödd að
húsi á Nesinu. Þar fannst liðlega
sextugur maður meðvitundarlaus
eftir átök. Hann var fluttur i slysa-
deild og þaðan í gjörgæzludeild og
reyndist hann höfuðkúpubrotinn og
talsvert skorinn á höfði.
Tildrög málsins eru þau, að til
átaka kom með fyrrgreindum af-
leiðingum. Sá er áverkana veitti
var skömmu síðar handtekinn í
húsagarði skammt frá og var
hann fluttur í fangageymslur
lögreglunnar í Hafnarfirði. Hinn
slasaði er kominn til meðvitundar.
Til landsins er kominn fræsari einn mikill, sem nota á við fræsun Reykjanesbrautar. Fræsarinn er leigður frá
útlöndum til verksins, en byrjað verður á þvi í sumar. Vegurinn verður fræstur niður, þannig að ekki verði í
honum hjólför, en þau skapa slysahættu þegar þau fyllast af vatni eða krapi.
Samningur Flugleiða við Alsírbúa:
Stærsti pílagrímasamn-
ingur í heiminum í ár
— Alls munu tæplega 560 manns starfa við flutningana
ALLS munu tæplega 560 manns
starfa við pilagrímaflug Flugleiða í
Alsír í september og október nk., en
alls verða fimm flugvélar notaðar til
flutninganna, þ.e. ein Boeing 747,
Júmbóþota, og fjórar D€-8-63-þotur.
Samningurinn, sem Flugleiðir gerðu
við yfirvöld i Alsír, er sá langstærsti,
sem félagið hefur gert og jafnframt
stærsti pílagrímasamningur í heim-
inum i ár, en hann er upp á 9—10
milljónir dollara, eða 107—119 millj-
ónir íslenzkra króna.
Flugleiðir munu nota tvær
DC-8-63-þotur, sem félagið á, en
auk þess hefur félagið samið við
SAS-flugfélagið um leigu á einni
Boeing 747-þotu og tveimur
DC-8-63-þotum, auk þess sem SAS
mun leggja til mikinn fjölda
starfsmanna, sem starfa þó undir
stjórn Flugleiðamanna. Boeing
747-þotan er innréttuð fyrir 475
farþega, en SAS-Átturnar fyrir
258 farþega og Flugleiða-Átturnar
fyrir 249 farþega.
Flogið verður frá fjórum stöð-
um í Alsír, auk þess frá einum
stað í Afríkuríkinu Níger til Jedd-
ah í Saudi-Arabíu, en flutningarn-
ir hefjast 4. september nk. og
standa fram til 22. september.
Heimflutningur pílagrímanna
hefst svo 4. október og lýkur 22.
október.
Þess má geta, að vélarnar, sem
koma frá SAS verða málaðar í lit-
um Flugleiða og starfseminni
verður stjórnað af Flugleiða-
mönnum.
Óskar Magrtússon frá
Tungunesi látinn
Vatnsskortur framundan
á höfuðborgarsvæðinu
— horfið frá viðhaldi og fyrirhuguðum borunum vegna fjárskorts
„ÞAÐ ER öruggt að ef komandi vetur verður kaldur þá mun verða
vatnsskortur á höfuðborgarsvæðinu," sagði Jóhannes Zoega hitaveitu-
stjóri í Reykjavík er Mbl. spurði hann um afleiðingar 34,7 milljón króna
niðurskurðar á framkvæmdaáætlun hitaveitunnar sem samþykktur var á
borgarráðsfundi 20. júlí sl.
„Jafnvel þótt kuldi verði ekki
meiri en í meðalvetri, verður ör-
ugglega einhver vatnsvöntun,"
sagði Jóhannes og bætti við:
„Þau svæði sem fyrst verða fyrir
vatnsskorti eru þau sem liggja
hæst, það er Breiðholtið, efsti
hluti Kópavogshæðarinnar,
Hvaleyrarholt í Hafnarfirði,
Grensásinn, Skólavörðuholtið,
Landakotshæðin og Laugarás-
inn. Það eru bara drottinn og að-
dráttaraflið sem stjórna því
hvernig vatnsskorturinn kemur
niður milli einstakra svæða."
Jóhannes sagði að vegna
niðurskurðarins yrði að hætta
við boranir og virkjanir þeirra
borhola sem ráðgert var að bora
á árinu. Þannig væri að svæði
hitaveitunnar stækkaði sífellt en
borunum fjölgaði ekki í réttu
hlutfalli við þau hús sem tengd
væru hitaveitunni. Nú væri eðli-
lega svo komið að endar næðu
ekki saman. Til þess þeir næðu
saman þyrfti að bora einar fjór-
ar holur á ári. Hins vegar hefði
að jafnaði ekki nema ein hola
verið boruð árlega frá 1977.
Víðvíkjandi öðrum afleiðing-
um þessa niðurskurðar nefndi
Jóhannes að hverfa þyrfti frá
fyrirbyggjandi viðhaldi sem
framkvæmt væri til að komast
hjá stórskemmdum sem ekki
einasta væru kostnaðarsamar
heldur og hættulegar. Sem dæmi
nefndi hann aðalæð sem lægi
eftir Laufásveginum, eftir
Skothúsvegi og til móts við
Hringbraut. Æð þessi væri léleg,
illa farin og sífellt að bila. Nú
lægi fyrir að ekkert yrði gert við
hana á þessu ári.
Eins og fram hefur komið í
Mbl. er framangreindur niður-
skurður til kominn vegna þess að
gjaldskrá hitaveitunnar er
hvergi nærri því sem gert er ráð
fyrir í fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir árið 1982.
Jóhannes Zoéga sagði að sl. ára-
tug hefðu ríkisstjornir skorið
hækkunarbeiðnir mjög mikið
niður, þannig að nú væri svo
komið að vatnsverð væri aðeins
54% af verði ársins 1970. Slík
tekjulækkun kæmi eðlilega
niður á þjónustu við borgarbúa.
ÓSKAR Magnússon frá Tungunesi,
fyrrverandi skólastjóri, lést á Land-
spítalanum flmmtudaginn 22. júlí
síöastliðinn.
Óskar var fæddur 28. desember
árið 1907 i Tungunesi í Svína-
vatnshreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu. Foreldrar hans voru
þau Magnús Sigurðsson og Eiísa-
bet Erlendsdóttir.
Óskar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1934 og heimspekiprófi frá Hafn-
arháskóla árið 1935. Ennfremur
stundaði hann m.a. nám við skól-
ann í náttúrufræði, með vatna-
líffræði sem sérgrein, sagnfræði
og fleiri greinum. Hann kom til
íslands árið 1945.
Hann kenndi við Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar frá ársbyrjun
1946 og var settur þar skólastjóri í
byrjun ársins 1958. Hann var
stundakennari í Stýrimannaskól-
anum 1945—1949, í Matsveina- og
veitingaþjónaskólanum frá stofn-
un hans 1955 og í Vélskólanum
1946-1955.
Óskar flutti mörg útvarpser-
indi, einkum um sagnfræði. Hann
gaf út ljóðabókina Af jörðu ertu
kominn árið 1938 og einnig hafa
birst eftir hann ljóð, sögur og rit-
gerðir í blöðum og tímaritum, m.a.
Ijóð í Húnvetningaljóðum árið
1955.
Eftirlifandi kona Óskars er
Rigmor Magnússon, dönsk að
þjóðerni.
Innbrotid í Hljómver:
MaÖur í gæsluvarðhaldi
Akureyri, 26. júlí.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
vinnur enn að rannsókn innbrotsins
í verslunina Hljómver á dögunum.
Málið er ekki að fullu upplýst,
en nú skömmu fyrir helgina var
maður handtekinn vegna málsins
og er hann í gæsluvarðhaldi. Hins
vegar hefur miðað hægt eða ekk-
ert í rannsókn innbrotsins í Bíla-
leigu Akureyrar í vetur, en þó er
enn unnið við þá rannsókn.
- Sv.P.