Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982
7
Léttir
myndarammar
fyrir grafik, listaverk
z og Ijósmyndir.
Stærðirfrá 13X18 til 50X70 cm. (plakatstærð).
V«rð frá Kr. 29.— 295.- jj
ð
HfiNS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR AUSTURVER Umboðsmenn
5:20313 S: «2500 8:361*1 um allt land
BBimii »mi -..... OÞtim-
Blómapottar
í miklu úrvali
Sælkerakrúsir
Steinblóm
°g Korna
kúnst
HÖFOABAKKA 9
SlMI85411
REYKJAVlK
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
SÍS og Framsókn
inn í flugrekstur-
inn?
„Var þetta kannski liöur í samningnum
sem gerður var þegar Arnarflug keypti
þrotabú Iscargó og Kristins Finnboga-
sonar? Er þetta kannski skref í þá átt, aö
Sambandiö og Framsókn hasli sér völl í
flugrekstrinum?“ — Þannig spyr Ellert B.
Schram, ritstjóri DV, í laugardagspistli
sínum, sem fjallaöi m.a. um ógildingu
Steingríms Hermannssonar, flugmála-
ráöherra, á flugleyfum Flugleiöa til Amst-
erdam og Dusseldorf.
í nafni sam-
keppninnar
Ellert B. Schram, rit-
stjóri, skrifar laugardags-
pistil í DV, sem fjallar m.a.
um „aðfbr“ Steingríms
Hermannssonar, sam-
gönguráðherra, að Klug-
leiðum. Orðrétt segir Ell-
ert
„Nú í vikunni bætir
Steingrímur enn um betur
(en höfundur hafði fariö
nokkrum orðum um sUerð
fiskiskipastólsins með
hliðsjón af veiðiþoli nytja-
fiska). Þá var hann kom-
inn í hitt ráðuneyti sitt,
samgönguráðuneytið, gerði
sér litið fyrir og svipti
Fhigleiðir hf. leyfum til að
fljúga til Amsterdam og
Diisseldorf. Aðalrök hans
vóru þau, að fargjöldin
væru „orðin óeðlilega lág",
samkeppnin v»ri til óþurft-
ar. Þetta hafa menn átt erf-
itt með að skilja, því ein-
mitt þessi sami ráðherra,
þessi sami Steingrímur
Hermannsson, hafði gefíð
Amarflugi leyfi til flugs á
þessa sömu staði á þeirri
forsendu að samkeppni
væri til góðs, hún leiddi til
lægri fargjalda!
Svona kollsteypur gæti
enginn tekið nema Stein-
grímur Hermannsson.
Kökin era jafnvel svo fá-
ránleg og barnaleg að eng-
um viti bornum manni
dytti i hug að bera þau á
borð, nema af annarlegum
ástæðum. Það er þess
vegna sem Steingrímur
þarf ekki að láta sér koma
þaðá óvart, þótt sá grunur
vakni, að annað og meira
búi að baki. Var þetta
kannski liður í samningn-
um sem gerður var þegar
Arnarflug keypti þrotabú
Iscargó og Kristins Finn-
bogasonar? Er þetta
kannski skref í þá átt, að
Sambandið og Framsókn
hasli sér völl í flugrekstrin-
um?“
„Tvö ráðuneyti
— ofrausn“
Alþýðublaðið segir svo i
ritstjórnargrein um helg-
ina:
„í Ijósi þessara atburða
(afturköllun flugrekstrar-
leyfa Flugleiða) verður
ekki hjá því komist að
minna á aðdraganda þess-
arar ákvörðunar. Öllum er
í fersku minni þegar Arn-
arflug keypti á útmánuðum
allt að því gjaldþrota fyrir-
tæki — ISCARGÓ — og
fékk um leið áætlunarleyfi
á Dusseldorf og Ziirich í
kaupbæti fyrir að leysa
fyrrum „kraftaverka-
rnann" Framsóknar, Krist-
inn Finnbogason, úr pris-
undinni.
Það er i rauninni dapur-
legt, að það dugmikla
starfsfólk hjá Arnarflugi
skuli hafa farið af stað í
áa'tlunarflugiö með þetta
lík í lestinni, skuldir upp á
meira en 30 milljónir
króna. Félagið hefði ef-
laust verið betur sett ef það
heföi ekki komið nálægt
Iscargó og Iscargó hefði
fengið að verða gjaldþrota i
friðL
En Iscargó fékk ekki að
deyja í friði. Þeir fram-
sóknarmenn sem básúna
nú stöðvun rikisafskipta i
málgagni sínu, Timanum
og víöar, komu í veg fyrir
það með kaupum Arnar-
flugs á eignum eða réttara
sagt skuldum Iscargó.
Aætlunarleyfin vóru ekki
annað en „bónus" ráð-
herra, svo allir yrðu ánægð-
ir“.
Lokaorðin í leiðara Al-
þýöublaösins vóru á þessa
leið:
„Það var ofrausn af
(iunnari Thoroddsen þegar
hann fékk Steingrími Her-
mannssyni tvö ráðuneyti til
umráða, sjávarútvegs- og
samgönguráðuneytin. Út-
vegurinn er á hausnum og
hefur verið haldið uppi
mcð „reddingum" á nokk-
urra tnánaða fresti siðustu
mlsserin. Nú stefnir allt í
það að sama verði upp á
teningnum í flugínu — ef
Steingrímur fær að ráða."
Nafn vikunnar
í ÞjóÖYÍljanum
Steingrímur Hermannss-
on er og „nafn vikunnar" í
síðasta Helgar—Þjóðvilja.
Þar segir m.a. svo: „Margir
vilja ætla að þessi ákvörð-
un Steingríms (afturköllun
flugleyfa Flugleiða) sé sið-
asta greiðsla til Arnarflugs
fyrir að kaupa Iscargó á fá-
ránlega háu verði í vetur
sem leið ... En Steingrím-
ur hefur fengið skammir
fyrir fleira þessa síðustu
daga. Vandi togaraút-
gerðarinnar er skrifaður á
fjárfestingar- og fiskveiði-
stefnu hans sem sjávarút-
vegsráöherra (innskot: ber
Alþýðubandalagiö ekki
ábyrgð á stjórnarstefn-
unni?). Og nú síðast þarf
hann að fá skýrslu inn á
borð hjá sér út af þeirri
ósvinnu, að fullkomið ör-
yggistæki í flugumferöar-
stjórn er ekki notað fyrir
aðflug í Keykjavík. Senni-
lcga væri búið að krefjast
afsagnar Steingríms í ná-
grannalöndum okkar ...!“
Þannig sendir Þjóðviljinn
þeim ráðherra, sem Al-
þýðubandalagið styður,
tóninn. Annarsstaðar þyrfti
hann að segja af sér, segir
Þjóðviljinn, hér er hann
studdur I bak og fyrir af
Alþýðubandalaginu!
Nýkomiö mikiö úrval af dönskum
borðstofuhúsgögnum
Sérstaklega vönduö og falleg vara.
5he£n
Smiöjuvegi 6, sími 44544. Kjörgaröi, Laugavegi 59, sími 16975