Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
27
HamrahlMUrkórínn
Tónleikar Hamra-
hlíðarkórsins
Hamrahlíðarkórinn heldur tónleika
í kvöld klukkan 20.00, í hátiðasal
Menntaskólan.s vid Hamrahlíó.
Þetta eru kveðjutónleikar kórsins
fyrir ferð hans til Belgiu, en þangað
heldur hann sem fulltrúi íslands, til
þáttöku í stórri evrópskri kóra og
tónlistarhátið, sem ber heitið „Evr-
ópa syngur“. Þetta er í þriðja skipti
sem kórinn tekur þátt í þessari há-
tíð, sem haldin er á vegum Samtaka
evrópskra æskukóra. Hann tók fyrst
þft í henni fyrir sex árum í Leicester
í Knglandi, með það góðum árangri
að honum var boðið að gerast full-
gildur aðili að Samtökum evrópskra
æskukóra, en kórinn var boðsgestur
á hátíðinni í Engiandi. Síðan tók
kórinn þft í hátíð sem haldin var í
Luzern í Sviss fyrir þremur árum og
er nú aftur komið að þáttöku hans,
því hátíðin er haldin reglulega á
þriggja ára fresti.
A efnisskrá tónleikanna í kvöld
verður hluti þeirrar efnisskrár
sem kórinn hefur undirbúið vegna
þáttöku sinnar í hátíðinni, með
þrotlausum æfingum undanfarna
tvo mánuði, en það er þverskurður
af íslenskri kórtónlist frá hinum
ýmsu tímum sem kórinn hyggst
flytja á aðaltónleikum sínum í
Belgíu, sem haldnir verða í Menn-
ingarhöllinni í borginni Namur.
Þá verður hátíðin lítillega kynnt
og sagt frá hvað kórinn kemur til
með að gera þarna úti. Aðgangur á
tónleikana í kvöld er ókeypis og
allir eru velkomnir. Stjórnandi
Hamrahlíðarkórsins er Þorgerður
Ingólfsdóttir.
Sviss—Austurríki — Ítalía
15.—29. ágúst
Beint flug til Zurich og
samdægurs lagt af staö í
6 daga hringferð aö Bod-
en-see, Innsbruck í Aust- -
urríki, Garda-vatni á Italíu,
Feneyja og til Ascona við
Maggiore-vatn í Suöur-
Sviss, þar sem dvaliö
verður frá 21.—27. ágúst.
Gist 2 nætur í Zurich
fyrir heimferð 29. ágúst.
Verö kr. 13.500,-
Sviss
22. ágúst — 5. september
Beint flug til Zúrich og gist
þar fyrstu nóttina. 23.
ágúst hefst 6 daga hring-
ferð um Sviss til Liecht-
enstein — Lenzerheide —
Lugano — Lausanne —
Bern — Thun — Interlak-
en — Vitznau og síöan
dvalið til 5. september í
Interlaken í Berner
Oberland.
Verö kr. 13.500.-
Innifalið í verðinu: Flug, hringferðir, gisting í 2ja manna herbergi m/ baði, morgun-
verður og kvöldverður.
Ekki innifalið: Flugvallarskattur og skoðunarferðir í Ascona og Interlaken.
Verð eru útreiknuð samkvæmt gengi 15.07. 1982.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.,
Borgartúni 34 — sími: 83222.
OOODfÝCAR
A OLL FARARTÆKI
Goodyear hefur framleitt hjólbarða síðan árið 1898
og er stærsti framleiðandi og tækniiega leiðandi á
því sviði í heiminum.
Hjá Goodyear hefur öryggi ökumanns, farþega og
annarra vegfarenda ávallt verið í fyrirrúmi.
Það er því ekkert skrum þegar sagt er að þú sért
ÖRUGGUR Á GOODYEAR.
*OOD$rEAR eHEKtAHF
PRISMA