Morgunblaðið - 27.07.1982, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 27.07.1982, Qupperneq 26
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982 Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á sjötugsafmœli mínu 16. júlí sl. Kær kveðja til ykkar allra, Lirus Þ.J. Blöndal Siglufírði. 4WD Isuzu verksmiðjurnar eru heimsfrægar fyrir framleiðslu sína á pick-up bilum og þær njóta alþjóðlegrar viður- kenningar fyrir vinnuvéla- og vörubílagerð. Isuzu pick-up með drifi á öllum hjólum uppfyllir óskir hinna kröfuhörðustu og gerir enn betur. Isuzu pick-up hentar jafn vel sem flutningatæki og ferðabíll. Isuzu pick-up er laglegur, lipur og leggur lýgilega vel á. Isuzu pick-up hefur óhemju burðarþol og 4-hjóla drif ið gerir honum alla vegi færa. Isuzu pick-up vönduð vinnubifreið með aksturseiginleika, útlit og þægindi fólksbifreiðar. Komið og kynnið ykkur hvers vegna Isuzu pick-up nýtur heimsfrægðar. 8 e $ VÉLADEILD Ármúla3 f 38900 Góður prímus er hlutí af ánægjulegri útíveru. Matargerð er jafnan veigamikill þáttur í útilegum. Lystin er með mesta móti í hreinu og tæru loftinu - og allir taka hraustlega til matarsíns. Kraftmikill prímus flýtir eldamennsk- unni, maturinn verður heitari - og bragðast betur — þannig á góður prímus sinn þátt í ánægjulegri útilegu - ekki satt. Þess vegna er nauðsynlegt að vera bú- inn góðum búnaði. Stórir prímusar — litlir prímusar — ein- faldir — tvöfaldir — hitarar — einnota gashylki — hylki til áfyllingar. BBbúdin Grensásvegi 5, Sími: 84016. Nei, það er ekki kviknað í... Þetta er ökukappinn Bendikt Eyjólfsson að undirbúa bíl sinn fyrir íslandsmetstilraun. Með því að hita dekkin þar til úr þeim rýkur ná bílarnir betri spyrnu. Kvartmíla: Tvö íslands- met slegin Tvö íslandsmet voru sett í kvartmílunni, sem fram fór á sl. laugardag. Benedikt Eyjólfsson setti nýtt met í „Street Alt- ered“ flokki og fór kvartmíluna á 10,49 sek. í „Standard“ flokki tókst Sævari Péturssyni á Pontiac 350 að setja ís- landsmet. Tími hans var 13,53 sek. Mikil þafttaka var í mótor- hjólaflokknum í kvartmílunni sem fram fór í blíðskaparveðri. Níu keppendur voru þar, þeir voru allir nýkomnir úr ferða- lagi og ákváðu að skella sér í keppnina. Sigurvegari varð Árni Guðmundsson á Honda CB900 á tímanum 12,60. Það mátti vart á milli sjá í keppni milli mótorhjólakappanna og munur milli besta og lélegasta tíma var einungis ein sekúnda. í götubílaflokki sigraði Hjör- leifur Hilmarsson á Chevrolet Nova rétt einu sinni og tími hans var 12,34 sekúndur. Að lokum sigraði Atli Jóhannsson í skellinöðruflokki, en öðru sæti náði Jens Reynir. Eins og sjá má náði Benedikt Eyjólfs- son langbesta tímanum að þessu sinni og hefur hann í hyggju að gera enn betur. Mun hann væntanlega fá harða keppinauta í framtíðinni því vitað er um nokkra skæða keppnisbíla, sem ekki voru með að þessu sinni. (Ljósm. Gunnlaugur) Sigurvegari mótorhjólaflokksins, Árni Guðmundsson, lét sig ekki muna um að spóla svolítið fyrir Ijósmyndarann og er hann þvi umvafinn reykmekki. CombCamplOO • 2—4 manna tjaldsamloka. • Hefur helstu kosti tjaldvagns. • Vegur aöeins 65 kg. • Verö aðeins kr. 13.280.- • Til afgreiðslu DaHAA nú þegar. DvllvV) Bolholti 4. Sími 91-21945/84077.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.