Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 36

Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 36
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982 ást er... .. ab stilla skap sitt þó hann hringi seint. TM R«g U.S Pat Off — all rights reserved •1982 Loe Artgetos Tlmes Syndicate Það er ánægjulegt að sjá þig svona Það er allt í lagi mamma - þetta n°,ta 'lkvöW- en Þad hefur "ru^- er gamalt epli. lega tek.ð s.nn t.ma. HÖGNI HREKKVÍSI Röng sjúkdómsgreining Kagnar Gunnarsson, Njarðvík skrif- ar: „Velvakandi. Þegar lesnar eru greinar lækn- anna Ásmundar Brekkan og Einars Valdimarssonar mætti halda að bifhjól séu einhver hroðalegustu morðtól sem komist hafi í manna hendur frá upphafi vega. Og þegar fyrrnefndir læknar kveða upp dóm í ákveðnu umferðarvandamáli með því að telja bifhjólin slysavalda, er útilokað annað en að telja að hér hafi átt sér stað röng sjúkdóms- greining. í fyrsta lagi: Ökutækin (þ.e. bif- hjólin) valda ekki slysi. Það gera ýmist þeir sem aka þeim eða og reyndar í flestum tilvikum: öku- menn annarra farartækja og þá oftast ökumenn bifreiða. I öðru lagi: Að banna innflutning bifhjóla mundi að sjálfsögðu koma í veg fyrir bifhjólaslys, en það væri svipað og að skera nefið af sjúklingi, sem leitaði sér lækningar við nef- rennsli. Að sjálfsögðu yrði komið í veg fyrir nefrennslið með þessum hætti, en það læknaði ekki meinið. í þriðja lagi: Að rúmur helmingur umferðarslysa 15—17 ára unglinga í Svíðþjóð skuli tengjast bifhjólum er ekki óeðlilegt, þar sem einu farar- tækin sem þessi aldurshópur stjórn- ar, eða hefur réttindi til að stjórna, eru lett vélhjól eða reiðhjól. Þar í landi eru víðast hvar sérstakir reiðhjólastígar, en vélhjólaökumenn verða að hætta sér út í umferðina, þar sem slysavaldarnir, bílstjórarn- ir, með hálflukt augu, sljóir og til- litslausir eru til einskis annars lík- legri en keyra þá niður. En ég er sammála þeim Ásmundi og Einari að fjöldi alvarlegra slysa og alvarlegra áverka í þeim, er mik- ið vandamál. Það sem okkur greinir á um er orsökin, en ef grannt er skoðað held ég að við séum sammála um, að það eru stjórnendur farar- tækja, bifreiða eða bifhjóla, sem þarfnast nánari athugunar, en ekki farartækin sjálf. Að mínu mati er lækningin í því fólgin að stórauka fræðslu og kröfur um kunnáttu tilvonandi ökumanna; auka áróður um öryggis- og umferð- armál; reyna að beina áhuga bif- hjólamanna að torfæruakstri frekar en götuakstri, afmarka svæði í sand- eða malargryfjum, þar sem ofurhugar geta reynt hjól sín án þess að samborgurum þeirra stafi hætta eða óþægindi af; lækka að- flutningsgjöld og tolla á léttum tor- færuhjólum; fella niður opinber gjöld á öryggisbúnaði ökumanna, svo sem hné- og axlahlífum, sér- hönnuðum skóm og öðrum hlífðar- fatnaði; herða til muna eftirlit með bifhjólum að því er varðar öryggis- búnað, svo sem bremsur, ljós o.þ.h. og jafnframt herða viðurlög við notkun ökutækja sem ekki uppfylla þær kröfur sem gerðar eru. Eg tek undir kröfu Einars Valdi- marssonar þess efnis, að viðeigandi yfirvöld beiti sér fyrir því að þær ráðstafanir verði gerðar sem geti með einhverju móti komið í veg fyrir slys. En það ber að forðast að einblína á bifhjólin sem slysavald, því eins og fram hefur komið hér að framan er sökudólgurinn vankunn- átta og tillitsleysi meginþorra þeirra sem ökutækjum stjórna." Orðsending til tveggja manna — Péturs Péturssonar og Alberts Guðmundssonar Markú.s B. Þorgeirsson skrifar: „Velvakandi. Mig langar til að senda tveimur mönnum orðsendingu: Pétri Pét- urssyni útvarpsþuli og Albert Guð- mundssyni, forseta borgarstjórnar Reykjavíkur. Pétri færi ég alúðar þakkir fyrir ánægjulegar stundir í morgunút- varpi, m.a. í morgun (23. júlí), þegar ég var að hlusta við vinnu mína hér í sjóbúðinni. Það er yndislegt að mega njóta samvista við þennan frambærilega og reynda útvarps- mann til fjölda ára. Mér finnst Pét- ur taka öðrum fram, þó að ég ætli ekki að varpa rýrð á neinn í hópi samstarfsfólks hans hjá útvarpinu. Það er svo glatt yfir öllu hjá honum og það léttir manni að vakna og vinna. Röddin hans og lagavalið. Hann gleymir heldur ekki okkur sem erum um sextugt. Þá þakka ég honum fyrir það, með hve mikilli tillitssemi og hluttekningu hann greindi frá slysinu mikla í Esju og á eftir hafði hann þögn. Það gleymist stundum. Mér þætti vænt um að þessi góði útvarpsmaður, Pétur Pétursson, léti verða af því að þiggja boð mitt um að sækja mig heim í sjóbúð mina; svo mikið á hann í Markúsi Þorgeirssyni eftir áratuga viðkynn- ingu í útvarpinu. Albert Guðmundsson hefur átt heimboð hjá mér í tvö ár, en hefur ekki enn séð sér fært að líta til mín og berja augum það sem ég er að vinna að. Albert er mér kær sem mannréttindamaður, jafnt í þágu aldinna sem ungra. Við Hafnfirð- ingar eigum honum mikið upp að unna fyrir stuðning hans í þágu íþróttastarfs í Kaplakrika. Ég óska báðum þessum sóm- amönnum langra lífdaga í starfi og leik, þeim sjálfum og þjóðinni allri til heilla. Staddur í Sjóbúð Markúsar skip- stjóra, íslandi allt. Þorkell hf.“ Eru að ganga á íslenska náttúru og spilla henni Sveinn l’étursson frá Látrum skrifar: „Velvakandi. Ég vil þakka Þórði Jónssyni á Látrum fyrir grein hans í Morgun- blaðinu hinn 21. júlí, þar sem hann tekur upp hanskann fyrir vin okkar, selinn, og færir rök að því hvílík ósvinna það er, að vissir þrýstihópar geti tekið sér fyrir hendur að ráðast gegn ákveðnum dýrategundum og hafið útrýmingarherferð gegn þeim. Þetta eru svo hæpnar ráðstafanir, að ég get ekki ímyndað mér annað en þær varði við lög. Eða hvað segðu menn við því, ef einhver hagsmuna- hópur fyndi það út eftir einhverjum rökum, sem líffræðingur ætti svo að rannsaka, að æðarfulginn væri eitthvert skaðræði, t.d. æti of mikið af skel og spillti skelfiskmiðum. Hafin væri herferð gegn honum og hann drepinn þar sem til næðist og látinn liggja í blóði sínu, en vargi látið eftir hræið eins og gert er við selinn. Nei, þannig megum við ekki fara með íslenska náttúru. Nær væri að leggja eitthvað af mörkum til þess að auðga hana og bæta. Við höfum lagt talsvert fé í að viðhalda gróðri og rækta upp landið. Yfir því hafa allir glaðst og margir langt hönd á plóginn. Eins ætti að vera um annað lífríki. Þar ættu menn að ganga svo um garða, að ekki kæmi til spill- ingar. Þeir hagsmunahópar sem tekið hafa að sér að fara herferð gegn selnum með þeim hætti sem raun ber vitni, eru að ganga á ís- lenska náttúru og spilla henni. Því getur enginn mótmælt. Og mér er spurn: Getur viðkomandi ráðuneyti látið slíkt afskiptalaust, þegar nú er séð, hvemig haldið er á málum? Ef talið er að fækka þurfi sela- stofninum, þá er það mál sem ráðu- neytið á að fjalla um og leita álits þeirra manna, sem til þeirra mála þekkja og reynslu hafa. Að leyfa vissum aðilum að siga veiðiglöðum sportveiðimönnum inn í lífríki ís- lenskrar náttúru á þennan hátt verður aldrei annað en til vansæmd- ar öllum aðilum. Þeir verða aldrei annað en versti vargurinn og þeirra gerðir verður að stöðva.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.