Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982 5 Kl. 19.30: Landsleikur ísland—Holland Kl. 19.30 lýsir Hermann Gunn- arsson síðari hálfleik landsleiks fs- lendinga og Hollendinga í knatt- spyrnu í hljóðvarpi. í viðtali við Mbl. sagði Her- mann að hann byggist við fjörug- um og skemmtilegum leik. Lið Hollendinga er tiltölulega nýtt, þar sem nýlega var endurskipað í liðið. Vitað er, að liðið er mun betra en lið íslendinga, en engu að síður ættum við að geta veitt þeim verðuga mótspyrnu. Atvinnumenn okkar erlendis fjölmenna til leiksins. Með lands- liði íslendinga leika að þessu sinni Arnar Guðjónsson, Atli Eð- valdsson, Janus Guðlaugsson, Pétur Ormslev, Sævar Jónsson og Karl Þórðarson, allir atvinnu- menn erlendis. Taldi Hermann að söknuður yrði að þeim Ásgeiri Sigurvinssyni og Teit Þórðarsyni, en þeim reyndist ekki unnt að Hermann Gunnarsson, íþrótta- fréttaritari hljóðvarps. mæta til leiks að þessu sinni. Hermann sagði að lokum, að með dyggum stuðningi áhorfenda og alkunnri baráttugleði íslend- inga ætti að nást fram skemmti- legur og spennandi leikur. Hljóðvarp kl. 16.20: Berjamór í Litla barnatímanum Litli barnatíminn er á dagskrá hljóðvarps i dag kl. 16.20. Stjórnandi er Sigrún Björg Ingþórsdóttir og fjallar hún að þessu sinni um ber — berjavöxt og tínslu. í þættinum verða lesnar tvær sögur. Önnur heitir „Berjaferð" og er úr bókinni „Sumardvöl í sveit“, sem Ríkisútgáfa námsbóka gaf út. Hin sagan, „í grænu og rauðu lyngi", er úr bókinni „Jón Oddur og Jón Bjarni", eftir Guðrúnu Helgadóttur. PELS^R œ LEÐURFI\TNÆ)UR greiðsluskilmálar Verið velkomin PELSINN Kirkjuhvoli-sími 20160 VÖRUÚRVAL: FatnaÖur á dömur — herra — unglinga — börn og ungbörn. Hljómplötur — kassettur. Efni í stórkostlegu úrvali. Gardínuefni — stórísar — sængurfatnaöur — handklæði — sportvörur alls konar — íþrótta- skór — hljómtæki ýmsar geröir. Karnabær — Belgjagerðin — Steinar — Hummel umboðið — Nylon Plast — Hljómbær — Z-brautir — Gluggatjöld hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.