Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982 Plötuupptaka fanganna: „Aldrei ver- ið talað við okkur“ — segir Þorsteinn Jónsson, fulltrúi ,,1'AI) halði aldrei verið talaö við okkur um þetta. Við sáum þetta fyrst í Morgunblaðinu á fostudag,'* sagði l'orsteinn Jónsson, fulltrúi í dóms- málaráóuneytinu er Mbl. ræddi við hann um plötuupptóku fanga af Litla- llrauni í hljóðverinu Nema að b*n- um Glóru í flraungerðishreppi, sem hófst i vikunni. „Ég get ekki sagt að ég hafi ekki vitað um að það hefðu verið í gangi einhverjíir æfingar út af einhverri plötu, en það höfðu engir, hvorki fangar né einhverjir aðrir, óskað eftir neinum leyfum frá ráðuneyt- inu til þess að standa að þessu," sagði Þorsteinn ennfremur. Þá sagði Þorsteinn það ennfrem- ur rétt, að ráðuneytið hefði óskað eftir því að fá að lesa yfir þá texta, sem ætlaðir eru á plötuna, en þar hefði ekkert komið í ljós, sem ástæða hefði verið til að stöðva. Sagði Þorsteinn ennfremur, að ákveðið hefði verið að koma ekki í veg fyrir upptökur úr því sem kom- ið var. Að upptöku þessari standa þrír fangar og einn fyrrverandi fangi. Þá hefur verið leiðrétt að fanga- samtökin Vernd ætli að gefa plöt- una út. Að sögn Þorsteins voru vangaveltur um það á sínum tíma, en hann upplýsti jafnframt að Ás- geir Ilannes Eiríksson stæði að baki þessu máli í samvinnu við fangana sjálfa. Siglufjarðarkirkja: Leiðrétting í frásögn Mbl. í gær af 50 ára afmæli Siglufjarðarðarkirkju hef- ur tvennt skolast til í myndatext- um. Hákon Ólafsson, verkfræðing- ur, er nefndur Helgi. Þá hefur nafn Skúla Jónassonar fallið niður úr texta með mynd af sóknarnefnd o.fl. aðilum. Velvirðingar er beðist á þessu. Lýómnynd Mbl. EmilU. Frá XVII. norræna þinginu um lífeðlisfræði og lyfjafræði. XVII. norræna þinginu um lífeðlis- og lyfjafræði lokið: Taugar losa bodefni á fleiri vegu en áður var vitað komið hafa fram á þinginu XVII. norræna þingið um lífeðlisfræði og lyfjafræði hófst á sunnudagsmorguninn klukkan 9.00, að Hótel Loftleiðum. Það var forseti íslands, Vigdis Finnbogadóttir, sem setti þingið, að loknu opnunarávarpi forseta þingsins, Jóhanns Axelssonar. Að því búnu flutti nóbelsverðlaunahafinn Ulf S. von Euler hátíðarræðu, en hann er heiðursgestur þingsins. Eftir það hófust almenn þingstörf, en þinginu lauk seinnipartinn í gær. Morgunblaðið leitaði til Jóhanns Axelssonar prófessors, forseta þingsins, og spurði hann hvað hefði markverðast komið fram á þinginu og hvernig það hefði gengið. Jóhann sagði: „Á sunnudeginum fjölluðu Frakkinn Emmanuel Pierr- ot-Deseilligny og prófessor Hans Hultborn í Kaupmannahöfn um stjórn líkamshreyfinga. Það sem hefur torveldað rannsóknir á þessu sviði til þessa, er að þær hafa verið gerðar á sofandi dýrum. Dýrunum er að sjálfsögðu ekki hægt að segja að hreyfa sig á ákveðinn hátt og menn hafa lengi óskað þess, að hægt væri að gera þessar tilraunir á vak- andi vitsmunaverum. Nú hafa þeir félagar fundið upp aðferð til að rannsaka stjórn hreyfinga hjá vak- andi mönnum, án þess að valda þeim nokkrum óþægindum. Rann- sóknir þeirra opna ótæmandi mögu- leika til túlkunar á eldri niðurstöð- um og til nýrra rannsókna, eins og annar frumkvöðull á þessu sviði komst að orði, prófessor Anders Lundberg. Nóbelsverðlaunahafinn í lífeðl- is— og læknisfræði síðastliðið ár, prófessor Torsten Wiesel frá Har- ward háskóla, sagöi frá þeirri vinnu sem færði honum og félaga hans, David Hubel, verðlaunin. Margir viðstaddra könnuðust við starf þeirra, en samt kom ýmislegt þeim á óvart í fyrirlestri Wiesels. Meðal annars hefur hann þróað tölvu- tækni, til þess að búa til nákvæmar myndir í þrívídd af einstökum frum- um í heilanum. Slíkar myndir gefa ómetanlegar upplýsingar um gerð þeirrar frumu, sem menn hafa skráð frá í heilanum og um tengsl hennar við aðrar frumur. Þessar rannsóknir opnar nýjar leiðir til skilnings á úrvinnsluaðferðum heil- ans. Meðal þeirra nýjunga, sem mikla athygli vöktu á þinginu á mánu- dagsmorgninum, var fyrirlestur prófessors Stephens Thesleff frá Lundi. Hann skýrði frá rannsóknum sínum, sem sýna, að taugar losa boðefni á fleiri vegu en áður var vit- að. Þetta er ákaflega mikilvæg vitn- eskja, því ýmis lyf hafa áhrif á los- un boðefna. Það er því líklegt að þessi uppgötvun muni hafa mikið hagnýtt ekki síður en fræðilegt gildi. Niðurstöður þessar eru svo nýjar af nálinni, að þetta er í fyrsta skipti sem þær eru kynntar og urðu umræður að vonum mjög líflegar. Sama má segja um málþingið sem fjallaði um þroskun taugakerfisins. Þekking á því hvernig taugakerfi þroskast er lykill að skilningi á starfsemi þeirra síðar. Það er mjög erfitt að túlka mælingar, sem gerð- ar eru á fullvöxnu taugakerfi, vegna þess hve það er gífurlega flókið, en með því að fylgjast með þroskun taugakerfisins stig af stigi í fóstr- inu, má afhjúpa leyndardóma þess undursamlega líffæris, sem heilinn er. Prófessor Jan Jansen frá Osló, skipuleggjandi þessa málþings, og prófessor Gunther Stent frá Berke- ley skýrðu þarna frá sínum nýjustu niðurstöðum sem vöktu óskipta at- hygli og leiddu til skemmtilegra skoðanaskipta. Nóbelsverðlaunahafinn Sir Andr- ew Huxley stjórnaði málþingi, þar sem gerður var samanburður á grundvallareiginleikum rákóttra beinagrindarvöðva, hjartavöðvans og sléttu vöðvanna í æöum og inn- yflum. Þar kom fram margt nýj- unga og stóðu umræður allan mat- artímann. Ég hef aðeins sagt frá þeim þáttum sem ég sjálfur komst yfir að hlusta á tvo fyrstu dagana, en ég á von á að aðrir hafi ekki verið síðri,“ sagði prófessor Jóhann Ax- elsson. Þá sagði Jóhann að þingið hefði tekist með afbrigðum vel og hefði hann ekki heyrt eina einustu óánægjurödd, ennþá. Fjöldinn allur af nýjungum hefði komið fram. Þá hefði nýtt fyrirkomulag á kynningu hluta þess efnis, sem fram hefði komið á þinginu, gefið mjög góða raun og notið almennrar viðurkenn- ingar hjá þátttakendum. raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar til sölu óskast keypt nauöungaruppboö Furuhurðir Til sölu gamlar furuhurðir. Verö 500 kr. stykkið. Upplýsingar í dag og á morgun að Laugavegi 44, efstu hæö, milli klukkan 3 og 6. Til sölu 15 tonna frambyggður plastbátur, smíðaöur á Skagaströnd 1978, með Ford Margkraf vél, 1978 150 HÖ. Báturinn er mjög vel tækj- um búinn og í góöu standi. 7 rafmagnsrúllur fylgja. Skipti á minni báti möguleg. Uppl. gefur: Eignaþjónustan Njálsgötu 23, 101 Reykjavík. Símar 26650 og 27380. Sölustj. Örn Scheving. Byggingarefni óskum eftir aö kaupa kerfismót, handfleka eða kranamót. Einnig óskast mótatimbur 1x6. Byggung sf., Rvík. s. 26609. tilboö — útboö Útboð Tilboð óskast í smíði og endurnýjun anddyr- is, aðalinngangs húseignarinnar að Borgar- túni 7, Reykjavík. Um er að ræða tréverk, múrverk, málningu, flísalagnir og raflýsingu. Verkinu skal lokið fyrir 15. febrúar 1983. Útboðsgögn fást afhent hjá Verkfræðistof- unni Fjölhönnun hf., Grensásvegi 8, gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð í fundarsal húseignarinn- ar Borgartúni 7, 13. sept. 1982 kl. 11.00. Húseignin, Borgartúni 7. Nauðungaruppboð 2. og síöasta sem auglýst var í 33., 35. og 38. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Grundarstíg 10, Flateyri, þinglesinni eign H. Tausen hf. fer fram eftir kröfu innheimtu- manns ríkissjóðs á ísafirði og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 6. september 1982 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, Guðmundur Sigurjónsson ftr. i EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINII AKíLVSINIiA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.