Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982
5 Tékk-
ar biðja
hælis á
Ítalíu
(■orizia, Ílalíu, 31. ágúst. Al’.
FIMM Tékkar óku í gegnum
landamærin við Júgóslavju og
báðu um pólitískt hæli á Ítalíu
í dag, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni þar.
ítalskir landamæraverðir
skutu aðvörunarskotum í loft
upp þegar bifreið Tékkanna
kom á fullri ferð yfir landa-
mærin.án þess að stöðva, en
engan sakaði.
Tékkarnir hafa tjáð iögreglunni
að þeir hafi haft í hyggju að setj-
ast að í Austurríki þar sem þeir
eiga ættingja. Til að byrja með
verða þeir fluttir í flótta-
mannabúðir í Latina, fyrir sunnan
Róm, meðan að rannsókn fer fram
á máli þeirra.
Flóttamenn þessir munu vera
tvenn hjón á þrítugsaldri ásamt
átta ára gamalli dóttur annarra
hjónanna.
Fjölskylda kvikmyndaleikkonunnar Ingrid Bergman kom til Lundúna sl. mánudagskvöld til að vera við útför hennar, en Bergman lést þar í borg sl.
sunnudag. A myndinni eru (f.v.): Pia Lindström, Franco Rossellini, Isotta Rossellini og eiginmaður Piu, Joseph Daly. AP
Aðstandendur Ingrid koma saman
Izondon, 31. ágÚMt. Al*.
NÁNIJSTIJ aðstandendur Ingrid
Bergman frá þremur hjónabönd-
um hennar söfnuðust saman á
heimili hinnar látnu leikkonu i dag
til að huga að jarðarför hennar.
Ráðgert er að hafa litla og
látlausa athöfn í London síðar í
þessari viku, en ekki er nánar
gefið upp um stað og stund þar
sem fjölskyldan hefur í hyggju
að láta þetta fara eins leynt og
mögulegt er.
Daginn sem leikkonan lést
hélt hún upp á afmæli sitt með
kvöldmatarboði á heimili sínu,
en síðasti eiginmaður hennar,
Lars Schmidt, var við rúmstokk
hennar er hún kvaddi þennan
heim síðar það kvöld.
Þrátt fyrir
gengis-
breytingu,
Þá eru allar gerðir af Mazda 929
ennþá á hagstæðu verði:
Verð: Mazda 929 Sedan Super
Deluxe kr. 174.000.-
Verö: Mazda 929 Station Deluxe
Kr. 179.500.-
Verð: Mazda 929 Hardtop Limited
Kr. 197.500.-
Gengisskráning 24.8. '82.
Tryggið ykkur því bíl strax meðan
þetta lága verö helst.
Skoðið hinn glæsilega Mazda 929
Hardtop á sýningunni Heimilið og
fjölskyldan '82 í Laugardalshöll
r *
Iran — Irak:
Hótanir á
báða bóga
NiroMÍa, Kýpur, 3I. ágÚNt AP.
FORSETI íran, AIi Khamen-
ei, hótaði því í dag að íransk-
ur her muni ráðast inn í írak
til að fá „byssur óvinarins til
að þagna“.
„Við munum ganga eins langt
og þörf krefur til að fá óvinabyss-
ur til að þagna og til að tryggja líf
íbúanna við landamærin," sagði
forsetinn í útvarpsviðtali í dag.
Hann sagði að Iranir gætu ekki
staðið hjá og horft upp á íraka
ráðast á Abadan og bætti því við
að írakar skildu ekkert nema
„tungumál vopnanna".
íranski leiðtoginn var bersýni-
lega að svara hótun þeirri er
Saddam Hussein forseti Irak kom
fram með í gær, að her hans væri
nú að undirbúa orustu sem myndi
binda enda á hið 23 mánaða gamla
stríð milli íran og íraks.
*
Atta milljóna
ára gamalt
kjálkabein
Nairobi, Kcnya, 31. ájfúst. AP.
JAPANSKUR vísindamaður til-
kynnti í dag að fundist hefði í
Kenya steinrunnið kjálkabein
úr frummanni, sem gæti komið
til með að brúa bil í þróun
mannsins.
Tilkynnt var um fund
þennan á blaðamannafundi
er boðað var til í Samburu-
hæðum í N-Kenya á föstudag
og kom þar fram að vísinda-
menn þar í landi telja fund
þennan „gífurlega mikilvæg-
an“ og komið hefur fram í
aldursákvörðunargreiningu
að kjálkinn er að öllum lík-
indum um átta milljón ára.
Steingervingur þessi
fannst inni í sandsteini í
Samburu-hæðum, en þar
hafa ekki áður fundist forn-
minjar af þessu tagi. Unnið
verður næstu vikurnar á
sama stað í von um frekari
fundi.