Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982 37 \fél?ÁKANDI SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI FÖSTUDA „Trúir E.E. því raunverulegm mð Rmgnmr Arnmlds hmfí ekki öðrum hnöppum mð hneppm en gluggm í skmttskýrslur einstmklingm og gefm fyrirskipmnir til skmttstjórm um hekkmnir skmtts eftir því sem honum sýnist? Og þm jmfnfrmmt mð hmnn hmfi vald eins og mustrænn einræðisherra?" skattpíningarstefnuna) öðrum augum, því nú er svo komið, að ekki er hikað við að tvöfalda skattana með árs millibili." Til- vitnun lýkur. Samkvæmt mínum skilningi á ofanritaðri tilvitnun í grein E.E., er hiklaust fullyrt að fjármála- ráðherra hafi gefið skattstjóra fyrirskipun um að tvöfalda allan skatt á einstaklingum. Þetta er ein sú furðulegasta fullyrðing, sem ég minnist að hafa heyrt um mína daga og kom mér til að stinga niður penna. Ég trúi því ekki að E.E. sé svo einfaldur.að hann trúi því að nokkur ráðherra hafi slíkt vald að hann geti leyft sér þetta, jafnvel þó vilji væri fyrir hendi. Eg þarf varla að endurtaka, að allir skattstigar eru ákveðnir með lög- um frá Alþingi. Hvað vakir þá fyrir E.E.? Er hann einn af þessum úrtölunáung- um, sem sí og æ eru að reyna að reyta æruna af öllum stjórnmála- mönnum með öllum meðulum, hversu ógeðfelld sem þau eru. Ég skal játa, að ég er orðinn hund- leiður á þessu eilífa nöldri um vonsku stjórnmálamanna okkar. En þetta nöldur og níð er svo út- breitt að mesta undur er að nokk- ur ærlegur maður skuli fást til þess að taka að sér þingmennsku, hvað þá ráðherradóm. En Eyþór birtir tölur um skattpíninguna máli sínu til stuðnings, það skal játað. En ég leyfi mér bara einfaldlega að taka þessar tölur hans ekki gildar, og miða þá við minar skattatölur, og ég vil i allri vinsemd benda E.E. á að fara hið skjótasta til einhvers, sem kunnugur er núverandi skattstiga og fá leiðréttingu á skattálagningu sinni i stað þess að hreyta út úr sér einhverjum óþverra um þann ágæta dreng Ragnar Arnalds, núverandi fjár- málaráðherra. Ég get upplýst Eyþór um það.að ég hafði hærri tekjur en hann á árinu 1981 og eftir því sem ég best veit jafnan frádrátt, en þó gert að greiða rúmlega helmingi minni skatt. Trúir E.E. því raunverulega að Ragnar Arnalds hafi ekki öðrum hnöppum að hneppa en glugga i skattskýrslur einstaklinga og gefa fyrirskipanir til skattstjóra um hækkanir skatts eftir þvi sem honum sýnist? Og þá jafnframt að hann hafi vald eins og austrænn einræðisherra? Því er sama, hvar borið er niður i umræddri grein Eyþórs, öll virð- ist hún byggð á misskilningi, að ég ekki segi öðru verra. Og svo að lokum með efnahags- lega öryggið, sem nálega sé engin leið að öðlast vegna núverandi skattalaga. Þar sem við E.E. erum á svipuðum aldri og sennilega uppaldir við lík skilyrði, þá undr- ast ég stórlega slíka fullyrðingu. Hefur nálega enginn Islending- ur nú sem stendur efnahagslegt öryggi? Hvernig getur maðurinn leyft sér slíka fullyrðingu? Lokar hann sig svo inni í sinni eigin skel, að hann sér ekkert i kringum sig? Ég vona bara að hann hafi horft á breskan sjónvarpsþátt um mis- skiptingu auðsins í heiminum eins og hann er nú. Hafi hann gert það, vænti ég hann öðlist það meiri sál- arró, að hann kveini ekki jafnsár- an um að ógerlegt sé að öðlast efnahagslegt öryggi í okkar landi. Ég held, að við Eyþór og okkar jafnaldrar ættum heldur á gamals aldri að þakka fyrir það ævintýra- lega efnahagsöryggi, sem við höf- um öðlast miðað við lífskjör for- eldra okkar, fremur en vera með sífelldar úrtölur, kvein og emjan um skattpínslu, kauprán og vonsku stjórnmálamanna." Vinsaelasta rokkhljómsveit Ameríka þessa dagana sUtíAor HEILDSOLUDREIFING SÍMAR 85742 og 85055 ©KARNABÆR ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM Viturlegasta tillaga sem fram hefur komið — að hætta við veginn á Steingrímsfjarðarheiði ísfirskur vegfarandi skrifar: „Kæri Velvakandi. Síðan ákvörðun var tekin um lagningu vegar yfir Steingríms- fjarðarheiði, milli ísafjarðardjúps og Steingrímsfjarðar, hafa menn deilt um notagildi þessa vegar fyrir ísfirðinga. Þó hafa enn há- værari raddir heyrst og lagt til að hætt yrði við vegagerð þarna, a.m.k. í þeirri mynd sem fyrirhug- að er að ráðast í. Hafa menn í því sambandi bent á möguleika þess að koma-á auknum bílaflutningum milli Brjánslækjar og Stykkis- hólms. Þetta er sannarlega athug- unarverð tillaga og sú viturlegasta sem fram hefur komið til þessa. Það verður nefnilega að segjast eins og er, að vegur yfir Stein- grímsfjarðarheiði kemur aldrei til með að hafa það notagildi, sem örfáir menn hafa haldið fram til þessa. Það hefur enda gerst með auknum vegaframkvæmdum í Barðastrandarsýslu, að íbúar á þessu svæði og ferðamenn úr báð- um Isafjarðarsýslunum hafa held- ur ekið svokallaða vesturleið og það mundi enn aukast til mikilla muna ef til kæmi bílferja yfir Breiðafjörð. Það mætti þó kannski segja, að það væri allt í lagi að hafa sæmi- legan veg af Þorskafjarðarheiði og norður af, þannig að allir bílar kæmust þar um yfir sumarmánuð- ina, en alls ekki að fara að leggja í stórframkvæmdir þess vegna, hvorki í Lágadal né annars staðar, á meðan vegir í ísafjarðardjúpi eru þannig á sig komnir, að þeir eru engum bjóðandi, og eru þeir þó mörgum sinnum lengur opnir og meira notaðir en Steingrímsfjarð- arheiði yrði nokkurn tíma. Þess vegna held ég því fram, að þeir peningar, sem eiga að fara í áðurnefndan veg, yrðu betur komnir í endurbætur á vegum um ísafjarðardjúp og vestur firði. Ég vona, að menn hætti nú brátt að láta sitja við orðin tóm í þessum efnum, heldur fari að láta hendur standa fram úr ermum, t.d. með því að stofna hlutafélag á Vest- fjörðum til rekstrar bílferju yfir Breiðafjörð, sem á veturna gæti orðið tengiliður milli Vestfjarða og Reykjavíkur. Ekki get ég látið hjá líða að þakka Vegagerðinni á ísafirði fyrir það, hversu mikið kapp hefur verið á það lagt að fegra og snyrta í kringum hús fyrirtækisins á Dagverðardal. Þó er ekki fyrir það að synja að mörgum finnst sem sú aukavinna, sem í það hefur verið lögð og þeir peningar sem það hef- ur kostað, hefði betur farið í lag- færingu á veginum á Kirkju- bólshlíð, en sá vegur hefur verið illur yfirferðar í allt sumar og nánast ófær. Hefur margur ferða- maðurinn haft á orði, að vegurinn um Isafjarðardjúp, og þó sér í lagi þessi kafli, sé sá allra versti sem fyrirfinnist á landinu." BROSTU! MYNDASÖGURNAR Vikuskammtur afskellihlátri «) jrf Litmyndir samdægurs Komdu meö filmuna fyrlr kl. 11 aö morgni og þú færö myndirnar tilbúnar kl. 5 síödegis. Skýrar og fallegar myndir, þriöjungi stærri en gengur og gerist. Afgreiöslustaðir okkar eru: Glögg mynd, Suöurlandsbraut 20, síml 82733, Glögg mynd, Hafnarstræti 17, simi 22580 og Magasín, Auöbrekku 44—46, Kópavogi, sími 45300. í LEIÐINNI BJÓÐUM VIÐ ÞÉR SAKURA- FILMUR MEÐ 50% AFSTÆTTI. VÖRULISTAVERSLUN, Auöbrekku 44—46, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.