Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982
38
„Sorglegur endir á leiknum"
sagði Jóhannes landsliðsþjálfari
„Ég ER mjög Ntoltur af strákunum. Þeir spiluðu skynsamlega allan leikinn,
og gáfu allt sem þeir áttu. Þeir gerðu allt sem fyrir þá var lagt nema að nýta
UekifKrin. Við fengum 6—7 dauðafteri til að skora þannig að endir leiksins
var mjög sorglegur,“ sagði Jóhannes Atlason, landsliðsþjálfari, eftir leik liða
íslands og Hollands undir 21 árs í Keflavík í gærkvöldi. Leikurinn, sem var
liður í Evrópukeppninni, endaði með jafntefli, hvort lið skoraði eitt mark og
jöfnuðu Hollendingarnir ekki fyrr en
Leikurinn fór fram við mjög
leiðinlegar aðstæður, nístings-
kuldi og hávaðarok var allan tím-
ann, og þá rigndi heiftarlega um
tíma í síðari hálfleiknum. Hol-
lendingar léku undan vindinum í
fyrri hálfleik og voru þá meira
með boltann. Islendingarnir vörð-
ust hins vegar vel og gáfu hvergi
eftir. Skyndisóknir þeirra voru
geysilega hættulegar þar sem þeir
voru mjög snöggir fram og skildu
miðjumenn Hollendinga iðulega
eftir.
Pieter van den Ven átti þrumu-
skot í þverslá íslenska marksins
fljótlega, en síðan áttu Hollend-
ingarnir varla færi allan hálfleik-
inn.
Islensku strákarnir náðu foryst-
unni á 13. mín. óli Þór Magnússon
frá Keflavík komst í gegn hægra
megin, fór alveg upp að endalínu
og sendi fyrir markið. Sigurjón
Kristjánsson skaut á markið en
markvörðurinn varði, Sigurjón
náði boltanum aftur og sendi hann
þá örugglega í netið af stuttu færi.
Eftir markið voru íslensku leik-
mennirnir mjög sprækir. Sigurjón
fékk gott færi til að bæta við
marki er hann komst einn inn
fyrir vörnina en skaut yfir og síð-
an fékk Sigurður Grétarsson
dauðafæri stuttu síðar. Hann
komst einnig inn fyrir vörnina eft-
ir mjög góða sókn, lék á markvörð-
inn sem kom langt út á móti, en
skot hans hafnaði í hliðarnetinu.
síðustu sekúndum leiksins.
Þrátt fyrir að íslenska liðið léki
á móti vindinum lofaði leikur
þeirra fyrir hlé mjög góðu. Hið
eina sem að var, var hversu oft
þeir lentu í rangstöðugildru Hol-
lendinga. í lok hálfleiksins náðu
þeir þó að sleppa við hana og
komst óli Þór þá í gegn. Mark-
vörðurinn kom langt út á móti
sem og oft áður og braut illa á Óla
fyrir utan teiginn og hlaut gult
spjald fyrir. Ragnar Margeirsson
skaut himinhátt yfir úr auka-
spyrnunni.
I seinni hálfleiknum kom í ljós
að vindurinn virtist vera of mikill
til að gott væri að spila undan
honum, þar sem Hollendingarnir
byrjuðu betur og sóttu stíft.
Fljótlega rönkuðu íslendingarnir
þó við sér og tóku að leika sama
leikinn og fyrir hlé; að skapa sér
góð færi, en því miður einnig að
misnota þau.
Óli Þór, Siggi Grétars og Helgi
Bents fengu allir góð færi en tókst
ekki að nýta þau. Nokkrum augna-
blikum áður en skoski dómarinn
Syme flautaði til leiksloka tókst
Hollendingunum síðan að jafna.
Sending kom inn á teiginn, Þor-
steinn hugðist hreinsa frá en hitti
ekki knöttinn. Johnny Van Het
Schip frá Ajax náði knettinum og
sendi hann með þrumuskoti fram-
hjá Ögmundi í markinu.
Ef litið er á heildina voru Is-
lendingarnir verulega óheppnir að
sigra ekki i leiknum og hefði mun-
urinn allt eins getað orðið 3—4
mörk ef ekki meira. Ögmundur
markvörður átti mjög náðugan
dag og þurfti sjaldan að beita sér,
en það sem hann gerði gerði hann j
vel. Besti maður íslenska liðsins
var Ragnar Margeirsson. Geysi-
lega sterkur og öruggur með
knöttinn, og skýlir honum vel. Þá
var Óli Þór ákveðinn í fyrri hálf-
leik en virkaði þreyttur eftir hinu
miklu törn Keflvíkinga undanfar-
ið. Annars átti allt liðið góðan
dag. Vörnm var mjög örugg, miðj-
an sterk og framlínan mjög
ógnandi þrátt fyrir lélega nýtingu.
Hjá Hollendingunum verður að
telja markvörðinn bestan en hann
bjargaði nokkrum sinnum mjög
vel. Liðið var annars jafnt að getu,
greinilega mjög efnilegt lið sem
Hollendingar eru bjartsýnir á að
eigi eftir að ná langt. Því ekki dón-
aleg úrslit eftir allt saman en
sorglegt að ekki tókst að leggja
liðið að velli. Til þess var vissulega
mikill möguleiki.
Hafþór Sveinjónsson fékk gult
spjald fyrir síendurtekin brot og
átti það skilið. Var hann leiðinlega
grófur á köflum, og virtist það al-
ger óþarfi.
Lióin vonj þannij; akipuð í gær. iHland: Og-
mundur Krintinmon Vikingi, Hafþór Sreinjíns-
uon Fram, Ómar RafnHUOD UBK, (Þorateinn Þor-
Hteinaaon Fram), Ólafur Björnaoon IÍBK, Erling-
ur Kriatjánaoou KA, Jón G. Berga Val, Sigurjón
Kriatjánaaon l'BK, Aóalateinn Aðalateinaaon
Víkingi, Ragnar Margeirason Keflavík, Óli Þór
Magnúsaon Keflavík, (Helgi Bentaaon IIBK),
Siguróur GréUraaon IIBK.
Holland: Sjaak Storm Eielaior, Pieter van den
Ven Roda, Fred Ruthen Twente, Heuk Dunt
Feyenoord, (I)anny Blind SparU), Konald Koe-
mann Groningen, Bennie van Aeree PSV,
Johnn; van het Sehip Ajai, Arne van BarUn
Ajax, Gert Kruya Etrecht, Rene Eykclkamp Go
Abead.
- SH.
Óii Þór Magnússon leikur hér á einn Hollendinginn í gærkvöldi. Óli var mjög sprækur í fyrri hálfleiknum og
gerði mikinn usla í hollensku vörninni. Hinir íslensku leikmennirnir á myndinni eru Ragnar Margeirsson,
besti maður liðsins, og Sigurður Grétarsson (nr. 6). Ljósmynd Kristján Einarsson.
Kristján og Haukur sigruðu á
Norðurlandsmótinu í golfi
Norðurlandsmeistaramótið í golfi
var haldið um síðustu helgi og var
leikið á golfvelli Ólafsfjarðar. Kepp-
endur voru 62 talsins, frá Akureyri,
Húsavik, Ólafsfirði og víðar. Leikn-
ar voru 36 holur bæði með og án
forgjafar.
Kristján Hjálmarsson, GH,
sigraði í karlaflokki án forgjafar,
lék á 158 höggum. Annar varð
Þórhallur Pálsson, GA, á 163
höggum og þriðji Haraldur Frið-
riksson, GSS, á 166 höggum.
Haukur Hilmarsson, GÓ, og
Grímur Þórisson, GÓ, háðu spenn-
andi keppni með forgjöf, báðir
léku á 138 höggum, en Haukur
hafði betur í bráðabana. Skammt
undan kom Arnór Þorgeirsson,
GA, á 139 höggum.
í kvennaflokki án forgjafar
sigraði Inga Magnúsdóttir, GA, á
171 höggi, Jónína Pálsdóttir, GA,
varð önnur á 182 höggum og þriðja
varð Sigríður B. Ólafsdóttir, GH,
á 201 höggi. Með forgjöf sigraði
Sigríður á 143 höggum, Inga varð
önnur á 145 höggum og Jónína
varð þriðja á 148 höggum.
Kristján Gylfason, GA, sigraði í
unglingaflokki án forgjafar, lék á
159 höggum. Ólafur Þorbergsson,
GA, varð annar á 166 höggum og
Óiafur Gylfason, GA, varð þriðji á
169 höggum. Með forgjöf sigraði
Kristján á 119 höggum, Ólafur
Þorbergsson varð annar á 130
höggum, en Ólafur Sæmundsson,
GA, þriðji á 137 höggum.
Tak hf. á Akureyri gaf auka-
verðlaun fyrir að slá næst holu á
8. braut báða keppnisdagana.
Fyrri daginn sigraði Arnór Þor-
geirsson, GA, sló 2,47 m frá hol-
unni. Síðari daginn sigraði Krist-
ján Guðjónsson, GH, kúla hans
hafnaði 1,05 metra frá umræddri
holu. Þá gaf Álfhóll á Siglufirði
aukaverðlaun fyrir besta hring
með forgjöf síðari keppnisdaginn.
Hnossið hreppti Ólafur Þor-
bergsson, sem lék á 30 höggum.
Hann varð þó að kljást við Krist-
ján Gylfason í bráðabana áður en
hann gat hrósað sigri.
- gg
Sigurjón Kristjansson (Lh.) í baráttu við Hollendinginn Rene Eykelkamp í
leiknum í gærkvöldi. Sigurjón skoraði mark íslands í leiknum. Ljósmynd
Kristján Einarsson.
Evrópumeistarar Aston
Villa töpuðu 5—0
Nýliðarnir í 1. deildinni ensku í
knattspyrnu, Watford, komu heldur
betur á óvart í gærkvöldi er þeir
sigruðu lið Southampton 4—1, en
léku samt á útivelli. Gallaghan skor-
aði þrjú mörk fyrir Watford-liðið.
Steve Archibald og Garth Crooks
skoruðu stórglæsileg mörk er Tott-
enham sigraði Ipswich 2—1. Stærsta
sigurinn í gærkvöldi vann hinsvegar
lið Everton sem tók Evrópumeistara
Aston Villa i kennslustund á heima-
velli sínum og sigraði þá 5—0. Alls
fóru sjö leikir fram í 1. deildinni og
urðu úrslit þeirra þessi:
Arsenal — Norwich 1—1
Birmingham — Liverpool 0—0
Everton — Aston Villa 5—0
Ipswich — Tottenham 1—2
Luton — West Ham 0—2
Southampton — Watford 1—4
Swansea — Coventry 2—1
Ellert Schram:
„Fínn leikur“
„Þetta var flnn leikur og það kom
mér virkilega á óvart hve vel ís-
lenska liðið spilaði," sagði Ellert B.
Schram, formaður KSl, er blm.
spjallaði við hann eftir leikinn. „Það
var mikil barátta í liðinu og það er
greinilegt að við eigum þarna hóp
ungra stráka sem eiga eftir að kom-
ast í A-landsliðið áður en langt um
líður,“ sagði Ellert ennfremur.
- SH.
Enska
knatt-
spyrnan
2. deild
Chelsea — Wolverhampton 0—0
Rotherham — Leicester 1—3
Handknattleikur:
Dregið í
Evrópukeppnunum
í Sviss í dag
í dag verður dregið í Evrópumót-
unum í handknattleik. Eins og kunn-
ugt er taka íslandsmeistarar Víkings
þátt í meistarakeppninni, lið KR tek-
ur þátt í Evrópukeppni bikarhafa.
Búast má við að lið þeirra sitji hjá í
fyrstu umferð vegna þess hve lið
Þróttar stóð sig vel í þeirri keppni í
fyrra. Lið FH tekur svo annað árið í
röð þátt í IHF-keppninni.
— ÞR.
Getrauna- spá MBL. 1 1 S S»Bd*j Mirror I 1 5- 1 & 3 s i* 3 v_ e 5 z 1 SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Liverpool 2 X X X X X 0 5 1
Birmingh. — Stoke X 1 1 1 1 1 5 1 0
Everton — Tottenham 1 X X 2 X 1 2 3 1
Ipswich — Coventry 1 1 1 I 1 1 6 0 0
Luton — N. County 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Man. City —- Watford 2 1 1 X X 1 3 2 1
N. Forest — Brighton X 1 1 1 1 1 5 1 0
Southampt. — A. Villa 1 1 1 X 1 X 4 2 0
Sunderland — West Ham 1 X 1 2 X 1 3 2 1
Swansea — Norwich X 1 1 X 1 2 3 2 1
WBA - Man. Utd. 2 2 2 2 2 2 0 0 6
Leeds — Wolves X 1 2 X X 1 2 3 1