Morgunblaðið - 01.09.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982
19
Þorskastríð í uppsiglingu
milli Dana og V-Þjóðverja?
Kaupmannahöfn, 31. ágúst. AP.
DANMÖRK og V-Þýskaland eiga nú
í crjum varðandi fiskveiðar við vest-
urströnd Grænlands.
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra, sagðist myndu senda harðorð
mótmæli til kanslara V-Þýskalands,
Helmut Schmidt og fiskveiðinefndar
Efnahagsbandalagsins, vegna þeirr-
ar undarlegu ákvörðunar að leyfa
þýskum togurum að veiða 2000 tonn
af þorski við Grænland sem tilheyrir
hinu danska konungsdæmi.
Nefndin neitaði að virða mót-
mæli Dana í gær og undrun þykir
sæta að leyfi þetta er veitt eftir að
Anker Jörgensen hafði gefið út þá
yfirlýsingu eftir fund með Helmut
Schmidt um helgina að „Schmidt
sýndi greinilegan skilning á við-
horfi Dana í þessu máli“, en Anker
Jörgensen var í V-Þýskalandi á
kosningaferðalagi með Helmut
Schmidt.
Anker Jörgensen sagði í dag að
gæsluskip hefðu fengið fyrirmæli
um að taka hvern þann þýskan
togara er gerði sig líklegan til
þorskveiða við vesturströnd
Grænlands.
Einnig hefur landstjóri Græn-
Anker Jörgensen sendi í dag mót-
mæli til Helmut Schmidt og fisk-
veiðinefndar Efnahagsbandalags-
ins.
lendinga, Jonathan Motzfeldt, hót-
að því að ef þýskir togarar láti sjá
sig á miðunum við Grænland muni
hann fresta áður boðaðri för sinni
til Bonn á fund Schmidt og sagði í
því smbandi: „Ef svo fer hef ég
ekkert við manninn að tala.“
Anker Jörgensen sagði að
stjórnvöld í Danmörku teldu leyf-
in ólögleg, þar sem fiskveiðinefnd-
in mun koma saman til fundar
þann 8. september næstkomandi
sérstaklega til að ræða fiskveiði-
málefni.
Vestur-þýskir sjávariíffræð-
ingar telja að veiða megi allt að
75.000 tonn af þorski árlega á
þessu svæði, en danskir starfs-
bræður þeirra telja að hámarkið
sé 62.000 tonn og Grænlendingar
veiða nú sjálfir um 50.000 til
60.000 tonn á svæðinu árlega.
í dag munu dönsku gæsluskipin
„Hvidbjörnen" og „Beskytteren"
ásamt þremur dönskum skipum
vera í viðbragðsstöðu á græn-
lensku miðunum og haft var eftir
talsmanni landbúnaðarráðuneyt-
isins í Bonn að þýskum togurum
hefðu verið gefin leyfi til að halda
á miðin samkvæmt heimild fisk-
veiðinefndarinnar nú í dag.
Magðalenu
haldið undir skírn
Olof Sundby, erkibiskup, blessar litlu prinsessuna við skírnarathöfnina, sem
fram fór i gær í konungshöllinni í Stokkbólmi. Henni var gefið nafnið MagðaÞ
ena Teresa Amelía Jósefína. Foreldrar hennar, Karl Gústaf Svíakonungur og
drottning hans Silvia, horfa á, en á milli þeirra stendur faðir Silvíu, Walter
Sommerlath. AP.
Veður
Akureyri 10 úrkoma
Amaterdam
Aþena
Barcelona
Berlin
Brtlaael
Chicago
Dyflinni
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
20 rignlng
34 heiðskirt
19 úrkoma
23 skýjað
18 rigning
25 skýjað
16 skýjað
vantar
25 haiðskírt
23 heiðskirt
17 heiðskirt
vantar
29 heiðskfrt
Jóhannesarborg
Kaíró
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mallorca
Mexfkóborg
Miami
Moskva
Nýja Delhí
New York
Osló
Parfs
Perth
Rio de Janeiro
Reykjavík
Rómaborg
San Francisco
Stokkhóimur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
vantar
33 heiðskfrt
21 skýjað
26 skýjað
28 heiðskfrt
18 skýjað
30 heiðskfrt
31 skýjað
30 lóttskýjað
25 skýjað
22 skýjað
31 skýjað
19 heiðskírt
34 skýjað
22 skýjað
14 skýjað
22 akýjað
vantar
34 heiðakfrt
8 úrkoma
30 heiðskfrt
22 heiðskfrt
19 haiðskfrt
19 rigning
31 heiðekfrt
31 rigning
19 skýjað
Noregur:
Mikil loðnu-
veiði við
Bjarnarey
Frá fréttariUra Mbl. í Osló, 31. ápjst.
GÍFURLEGA mikil loðnuveiði er
nú á miðunum við Bjarnarey og
ekki er óvanalegt að fá allt að
10.000 til 12.000 hektolítrum I
kasti, en það magn nægir til að
fylla tvo báta.
Hingað til hafa veiðst um 2,1
milljón hektolítra af loðnu, en
gæðin eru ekki eins mikil og í upp-
hafi.
STEINAKRÝL, nýja útimálningin frá Málningu h/f gerir
þér kleift að mála svo að segja á hvaða árstima, sem
er.
Fimm til sex stiga frost hefur ekkert að segja, ef þú ert
I hlýjum fötum. Þú getur málað með STEINAKRÝLI f
allt að 10 stiga gaddi.Málningin þornar meira að segja
I slydduskúr fljótlega eftir-fnálun. Þú færð þér bara
kaffibolla á meðan skúrin gengur yfir. Athugaðu málið
hjá næstu ferðaskrifstofu - og málaðu svo seinna með
STEINAKRÝLI.
Og hvað með þessa eilífu flögnun? - Með STEIN-
AKRÝLI geturðu málað beint á duftsmitandi flöt án
þess að eiga flögnun á hættu.
STEINAKRÝL hefur auk þess þann sérstaka
eiginleika að hleypa I gegnum sig raka úr múrnum en
er samt þétt fyrir rigningu.
Þú færð allar upplýsingar um STEINAKRÝL hjá
MÁLNINGU h/f og hjá öllum helstu málningarverslun-
um landsins.
STEINAKRÝL
- málningin sem andar
málninghlf
Hvemig vcen að bregða sér í sólarlandafeið
í októberog móla svo húsið þegar þúkemurheim!
»>•« •
•**♦<?• I
m** * % % s.m V*
*• • «•
5*!*; I ! ll
mws;i£ ;