Morgunblaðið - 01.09.1982, Side 14

Morgunblaðið - 01.09.1982, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982 Lífeyrissjóður verslunarmanna gefur út upp- lýsingabækling LÍFEYRISSJÓÐUR verslunarmanna hefur, í samvinnu við samtökin Viðskipti og verslun, látið gera 16 síðna myndskreyttan bækling með upplýsingum fyrir sjóðfélaga sína. Þar er meðal annars gerð grein fyrir tilgangi sjóðs- ins, á hverju réttur til lána og lífeyris grundvallast, láns- kjörum, ávöxtun fjár og hverjir eru aðilar að sjóðnum. Þá er fjallað um lífeyrisréttindi almennt í íslensku trygginga- kerfi og í bæklingnum má einnig finna tölulegar upplýs- ingar varðandi starfsemi sjóðsins. Morgunblaðið hafði samband við Pétur Blöndal, framkvæmda- stjóra Lífeyrissjóðs verslunar- manna og spurði hann um til- drögin að og tilganginn með þessari útgáfu. Pétur sagði: „I okkar reglugerð er okkur gert skylt að upplýsa sjóðsfélaga um réttindi þeirra og skyldur við sjóðinn og til að uppfylla þessa skyldu gefum við út þennan bækling. Við höfum árlega gefið út skýrslu stjórnar, en hún hefur ekki farið mjög víða. Þessi bækl- ingur var hannaður með það fyrir augum, að vera til upplýs- ingar fyrir sjóðfélaga og veita þeim vitneskju um þau réttindi, sem þeir eiga hjá sjóðnum. Það er ljóst að lífeyrissjóðakerfið á íslandi er orðið ansi flókið og það er áberandi, að menn hafa ekki fullan skilning á þeim rétt- indum, sem þeir eiga hjá lífeyr- issjóðunum. Til þess að bæta úr því ástandi gefum við út þennan bækling. Það hefur verið allt of lítið um það, að lífeyrissjóðirnir gerðu sjóðfélögum grein fyrir réttindum þeirra. Reyndar má segja með minni sjóði, þar sem félagar eru kannski innan við hundraðið, að þá sé þetta í lagi, þar sem þá vita menn þetta yfir- leitt mjög vel. En þegar sjóðirnir eru farnir að stækka verður mik- il þörf á að upplýsa menn um réttindi þeirra, sérstaklega eftir að lífeyrissjóðakerfið varð svona flókið. I bæklingnum er auðvitað fyrst og fremst rætt um Lífeyr- issjóð verslunarmanna, en einn- ig um tryggingakerfið í heild og þá þætti þess sem snerta Lífeyr- issjóð verslunarmanna. Þar er lífeyririnn fremstur að sjálf- sögðu, en einnig er lánastarf- semin ekki lítill hluti af starf- semi sjóðsins og það er útskýrt fyrir mönnum hvernig sú starf- semi fer fram. Það er Ijóst að þegar sjóður verður svona stór, eins og Lífeyrissjóður verslun- armanna er orðinn, er hætta á að samband sjóðsins við sjóðfé- Ellilífeyrir Miðaó er vió að sjóöfölagar hetji tóku eíliilleyris vió 70 áta aidur. þö er sjóðfóiógum heimiil aó helja löku lífeyrís íyrr eda allt frá 65 ára aidri. en í>á lækkar iifeyririnn um 6S/s fyrir hverl ár Sömuieið:s er sjóóíéfógum heimUt að fresta töku fifeyrrs alit lil 75 ára alciurs og nækkar þð lifeyrirlnn um €*'?. fyrir hvertjir. Örorkulifeyrir Ef sjóófélag: vegna örork.u er ekkl iæi um aö gegna siarli þvt, sem hann hefur gegnt og vertir honum aörld aó sjóónum. á hann rétt á öforkuiifeyri, ef örorka hans er meiri en 40%. Meiri örorka gefur hiutfailsiega hærn ilfeyri. Upphæó föOH órorkulifeyris er reiknuó eins og upphæð eifllfleyrJs nema aö tii viöbótar áunnum stigum ieggsas* þau stig. sem ætia mætt» aó sióó- iétaginn helði áunniö sér tii 70 ára afrJurs {framreiknuö stig). Makaiifeyrir Maki íátins sjóðfétaga á rétt á makalifeyri. ef nann er fæýdur fyrir 1940. eóa ef hann er með börn á framfæri. eöa et hann er öryrki Barnalrfeyrir Börn og kjorbcm látins sjóófélaga og börn og kjörbórn eili- og örorkulifeyrispega. eiga réft á barnalifeyrí uns þau hafa náó 18 éra aldri. Sama gildir um fóslurbörn og stjúpbörn, sern sjóótélagi tramfæröi aó mestu eða oltu leyti. Upphæö barnalifeyris er helmingur af barnalffeyri almannatrygginga. {I rnaf 1982 krónur 462 fyrir hverf barn). laga minnki eða rofni og því miður er það alltof algengt, að menn viti ekkert um þá lífeyr- issjóði eða stéttafélög, sem þeir eru að borga til. Við höfum einnig haldið fundi með einstöku sjóðfélögum, en það hlýtur alltaf að vera mjög lítið sem hægt er að gera með því móti, þar sem 13—14 þúsund manns eru félagar í sjóðnum og auðvitað ekki vinnandi vegur að ná persónulegu sambandi við þá alla. Önnur kynningarstarfsemi á okkar vegum er meðal annars heilsíðuauglýsing, sem kemur alltaf einu sinni á ári í öllum dagblöðunum, þar sem birtir eru reikningar sjóðsins og í hvað lánin sem við höfum veitt hafa farið. Við birtum þar einnig út- drátt úr reglugerð sjóðsins og lánareglur. Þá sendum við alltaf út árlega upplýsingar til sjóðfélaga um greiðslur sem bárust vegna þeirra á árinu. Við vorum ein- mitt að auglýsa um daginn að þessar uplýsingar hefðu verið sendar út. Þetta höfum við gert í þrjú ár og það eru ekki margir sjóðir sem gera það, ég veit ekki til þess að nokkur annar lífeyris- sjóður gefi svo nákvæmar upp- lýsingar um iðgjaldagreiðslur. Þarna geta menn sem sagt feng- ið yfirlit um það, hvað hefur far- ið til sjóðsins og leiðrétt mistök, sem geta hugsanlega orðið. Þeir vita í öllu falli miklu betur hvað hefur verið bókað á þeirra nafni hjá sjóðnum. Þá byrjuðum við að senda fyrirtækjunum yfirlit yfir greiðslur þeirra til sjóðsins á síðasta ári. Bæklingurinn er gefinn út í samvinnu við samtökin Viðskipti og verslun, sem sáu um hönnun- ina, en við um textann. Þetta er hluti þeirrar viðleitni Viðskipta og verslunar að rétta hlut versl- unarinnar í hugum manna og benda á mikilvægi verslunar til jafns við aðra atvinnuvegi. Okkar sjóðfélagar eiga að sjálf- sögðu að vera sér meðvitaðir um það, að þeirra starf er ekki minna virði en starf annarra í þjóðfélaginu og að verslunin er ekki síður mikilvæg atvinnu- grein en aðrar atvinnugreinar í þjóðfélaginu," sagði Pétur Blöndal að lokum. Steinullarfélagið á Sauðárkróki: Hverfur ekki frá áætlunum um að reisa steinullarverksmiðju Sambandinu boðin hlutafjárþátttaka Gbir I Hefaason Ný dönsk mál- fræði á markað ÚT KR komin á vegum Iðunnar Dönsk málfræði og verkefni eftir Gizur í. Helgason kennara. I formálsorðum gerir höfundur m.a. svolátandi grein fyrir bók- inni: „Það er nú langt um liðið síð- an kennslubók í danskri málfræði hefur litið dagsins ljós hér á landi. Brýn þörf hefur verið fyrir slíka bók á framhaldsskólastigi og er hér gerð tilraun til úrbóta ... Bók þessi ætti að geta hentað vel í ní- unda bekk grunnskóla, jafnt sem á framhaldsskólastigi. í henni eru um 80 æfingar og 40 stílar, auk sýnishorna af prófstílum úr ýms- um framhaldsskólum. Með hæfi- legri yfirferð ætti hún að geta enst nemendum í sex annir. Góðar orðabækur eru hér grundvöllur náms. Reynt hefur verið að hafa æfingar misþungar og ættu nem- endur 9. bekkjar að geta ráðið við fyrstu æfingar hvers málfræði- þáttar." f fréttatilkynningu sem Mbl. hef- ur borist frá Steinullarfélaginu hf. kemur m.a. fram að fyrirtækið ætli ekki að hverfa frá þeirri hugmynd að reisa steinullarverksmiðju á Sauð- árkróki. I því skyni hafi verið ákveðið að auka hlutafé í 30.000.000 nú í sumar. Bæjaryfirvöld Sauðárkr- óks hefðu og lýst stuðningi sínum við þessa ákvörðun og lagt fram 6 millj. kr. til verksins. Ástæðan til þess að upphæðin hafi ekki verið hærri sé sú að bæjarráð taldi eðli- legt að einstaklingum og fyrir- tækjum sé gefinn kostur á að taka þátt í byggingu steinullarverk- smiðjunnar á Sauðárkróki. Nú lægju fyrir 60% af hlutafjárlof- orðum (12 millj. frá ríkissjóði og 6 millj. frá Sauðárkrókskaupstað). Þá hafi Samvinnugreyfingunni verið boðin þáttaka allt að 30% eða 9 millj. kr. í félaginu m.a. vegna strkrar stöðu hennar á markaðnum. Meginverkefnið nú væri að safna þeim 3 millj. af hlutafé sem ekki hafa verið boðin örðum sérstaklega. Samhliða söfnun hlutafjárlof- orðum sé hafinn tæknilegur og viðskiptalegur undirbúningur undir byggingu verksmiðjunnar. í fréttatilkynningunni er vikið að forsögu áætlunar um að reisa steinullarverksmiðju hér á landi. Þar er m.a. getið að auk Steinull- arfélagsins hf. hafi fyrirtækið Jarðiðnaður hf. sýnt því áhuga að koma upp slíkri verksmiðju í Þorl- ákshöfn. Einnig kemur fram að Jarðiðnaður hf. hfi hætt afskipt- um sínum af þessu máli fyrir skemmstu. Þá er fjallað um stofn- un nýs fyrirtækis Berguls hf. sem hafi áætlanir á um að reisa stein- ullarverksmiðju í Þorlákshöfn. OVERFÖRT. Síðan segir: „Af sjónvarpsfréttum að dæma veit þetta nýja fyrirtæki ekki (þ.e. Bergull hf) hvort það vill reisa litla eða stóra steinullarverksmið- ju. Fyrirtækið hefur safnað um 1% af hlutafé, en tekur síðan eigi að síður skóflustungu að verk- smiðjuhúsi. Stjórnarformaður upplýsir þó í viðtali að bygginar- framkvæmdir geti ekki hafist fyrr en gengið hefur verið frá fjár- hagslegum undirbúningi og réttur Sunnlendinga tryggður gagnvart lögum um steinullarverksmiðju, þ.e.a.s. þau réttindi sem Steinull- arfélaginu voru veitt með sam- þykkt ríkisstjórnar. Tímaeetning þessa fjölmiðlaviðburðar er grei- nilega miðuð við hlutafjársöfnun Steinullarfélagsins. Raunin er þó ins. Raunin er þó sú að þetta hefur aukið samstöðuna nyrðra og bragðið því misheppnast að því leyti." Sífellt fjölgar þeim þéttbylisstöðum þar sem lagt hefur verið bundið slitlag. Þessi mynd er tekin á Flúðum í Hrunamannahreppi i sumar þegar verið var að leggja slitlag fyrir framan félagsheimilið. Ljé«n. sig. sigm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.