Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 7 Tveir hestar týndir Rauöur hestur tvístjörnóttur (skipt blesa) og brúnn hestur, markaöur vaglrifaö framan vinstra, töpuöust frá Fossi í Grímsnesi í byrjun ágústmánaöar. Hest- arnir munu (sennilega) hafa sést hjá Ingólfsfjalli og í Ölfusi í ágúst. Þeir, sem veitt geta upplýsingar um feröir þessara hesta eöa vita hvar þeir eru niðurkomnir, eru beönir aö láta vita af því í símum 50005 eöa 43043, eöa hjá lögreglunni á Selfossi. Tökum upp á myndbönd: Fræðsluefni, viötalsþættir, kynningar á félags- starfsemi og fyrirtækjum o.m.fl. Klippum og lögum efnið til sýningar. Fjölföldun fyrir öll kerfin. Fullkominn tækjabúnaöur. Myndsjá S: 11777 ávaxtarþú sparifé þitt Þetta er mikilvæg spurning þegar leiðum til þess að verðtryggja fé hefur fjölgað og hægt er að velja mis- munandi ávöxtun. Leiðin sem hentar þér gæti m.a. verið: Verðtryggð spariskírteini Ríkissjóðs. Verðtryggð veðskuldabréf. Óverðtryggð veðskuldabréf. Happdrættisskuldabréf Ríkissjóðs. Við höfum víðtæka reynslu í verðbréfaviðskiptum og fjármálalegri ráðgjöf og miðlum þeirri þekkingu án endurgjalds. Viljir þú ávaxta sparifé þitt munum við ráðleggja þér hagkvæmustu ráðstöfun þess. Verðbréíamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lönaóarbankahúsinu Simi 28566 EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Brottför Steingríms vakti nndrun ráöherra Allir jafn undrandi Þegar frá því var skýrt hér í blaöinu sl. fimmtudag, að Steingrímur Hermannsson heföi yfirgefið ráöherrafund um vanda útgerðarinnar í skyndi til að fara til útlanda, var fyrir- sögnin sú sem hér er birt: Brottför Steingríms vakti undrun ráðherra. Síðan hafa allir verið jafn undrandi yfir þessari utanför — en til hennar var stofnað til þess að formaður Framsóknarflokksins gæti kynnt „íslenska efnahagsundrið" á fundi í Haag. Er ekki að efa, að áheyrendur hans þar hafi einnig orðiö undrandi, þegar þeir kynntust niðurtalningar- stefnunni og „árangri" hennar. Erindi Steingríms Fátt befur verið meira til umræðu manna á meðal siðustu daga en skyndileg utanfor Steingríms Her- mannssonar, sjávarútvegs- ráðberra, sl. miðvikudag. Ráðherrann hljóp út af rík- isstjórnarfundi rétt um há- degisbilið á miðvikudag til að ná í vél Arnarflugs til Amsterdam. Á ráðherra- fundinum var verið að neða vandamál sjávarút- vegs á íslandi en í Hol- landi beið ráðherrans fundur hjá forystumönnum frjálslvndra flokka í Evr- ópu og mun hann hafa komið þar fram sem for- maður Framsóknardokks- ins og rætt um „íslenska efnahagsundrið", en eins og framsóknarmönnum einum er Ijóst felst þetta „undur" í því að verðbólg- an hækkar þegar hún er talin niður samkvæmt efnahagsstefnu Framsókn- arflokksins. Er ekki að efa, að sjávarútvegsráðherra hafi einnig rætt um það „undur", að hann skyldi vera staddur á pólitískum fundi i Haag á meðan það verkefni beið hans heima á íslandi að koma í veg fyrir, að atvinnutækin sem eru forsendan fyrir efnahagsaf- komu íslendinga, fiskiskip- in, stöðvuðust. Hollenska veikin Á það hefur verið minnst fyrr hér í Staksteinum, að það hafi oftar en einu sinni gerst að málgagn fram- sóknarmanna, Timinn, hafi lýst framsóknarmenn sig- urvegara í kosningum viða um heim. Takist einhverj- um erlendum manni að ávinna sér vinsældir fær hann fljótlega á sig fram- sóknarstimpil á síðum Tím ans. Kemst blaðið átölu- laust upp með þetta vegna þess hve litla útbreiðslu það hefur erlendis — hin saklausu fórnarlömb frétta aldrei af því að þau hafi verið dregin í framsókn- ardilkin. Fyrir nokkrum mánuð- um birtist forystugrein í Timanum um „hollensku veikina“, en þetta hugtak hefur verið notað um þá innan Atlantshafsbanda- lagsins, sem eru tregir til stóriæða í varnarmálum, vilja ekki að SS-20-eld- flaugum Sovétrikjanna sé svarað með nýjum cld flaugum í NATO-ríkjunum oafrv. Mátti skilja forystu- greinina á þann veg, að höfundur hennar liti ekki á „hollensku veikina" sem mjög hættulega pest — hún væri eins konar fram- sóknarundur í öryggismál- um eins og niðurtalningin í efnahagsmálum. Gestgjafar Steingríms Sama dag og Steingrím- ur Hermannsson hélt til Hollands fóru þar fram þingkosningar. Sigurvegari í þessum kosningum var flokkur, sem kennir sig við stafina WD en þeir standa fyrir orðin Volkspartij voor Vrijheid en Democratie og mætti þýða: Þjóðarflokkur frelsis og lýðræðis. Þessi flokkur er talinn lengst til hægri af stóru flokkunum fjórum í Hollandi. Hann jók þingmannafjölda sinn úr 26 í 36 og var tvímæla- laust sigurvegari kosn- inganna. WD i Hollandi er frjálsyndi flokkurinn þar í landi og komu því innlendir gestgjafar Steingríms Hermannsson- ar í Haag úr honum. Hér er ekki ástæða til að skilgreina úrslit þingkosn- inganna í Hollandi eða hvaða áhrif þau hafi, ný ríkisstjórn hefur ekki enn verið mynduð. Hitt er Ijóst, að sigur WD í kosningun- um í síðustu viku er talinn vera öflugasta ráðið sem Hollendingar gátu sjálfir gripið til i því skyni að stöðva útbreiðslu „hol- lensku veikinnar" — Frjálslyndi flokkurinn í Hollandi hefur tekið skýr- ari afstöðu en nokkur ann- ar af stóru stjórnmála- flokkunum í landinu því til stuðnings, að Hollendingar standi við NATO-skuld- bindinguna frá 12. desem- ber 1979 þess efnis, að 48 bandarískum stýriflaugum með kjarnahleðslum verði komið fyrir á skotpölhim í Hollandi. Ráði stefna frjálslynda flokksins i nýrri samsteypustjórn í Hollandi mun „hollenska veikin" ekki lengur hrjá ráðherr- ana í henni. Fjölbreyttur vinahópur Vinahópur framsóknar- manna í útlöndum er mjög fjölbreyttur. Skilgreining á honum færir menn ef til vill nær skilningi á því, að í raun er Framsóknarflokk- urinn pólitiskt „undur": Hann vinnur oftar kosn- ingar í útlöndum en nokk- ur annar íslenskur stjórn- málaflokkur. Hann tekur þátt í samstarfl við hægri siruiaða frjálslynda flokka í Evrópu og hann telur sig í bræðraböndum við „Bændaflokkinn" í Búlg- ariu, sem er mannauð deild í kommúnistaflokki landsins. « Nýtt efni sem límir og þéttir í senn. T ré, plast, stál og steypu, úti og inni, - allan ársins hring. Pottþétt og auövelt í notkun. GLERBORG HF DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRCM - SÍMI 53333

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.