Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 45 Til að vinna gegn ofbeldi: Góð byrjun ef fólk reyndi að sýna meiri tillitssemi Er ofbeldi að aukast á íslandi? Hörmuleg tíöindi hafa borizt austan úr Öræfasveit, sem slegið hafa öhug á landslýð allan. Tvær franskar stúlkur, sem gerðu ferð sína um landið, verða fyrir aðför, sem leiðir til dauða annarrar en stórmeiðsla á hinni. • Þessi sorglegi atburður, sem hér verður ekki fjallað um [ sérstaklega, vekur upp spurningu, sem gerzt hefurjáleitn- ísólfur Pálmarsson skrifar í Braunschweig 5. september: „Heiðraði Velvakandi! Eftir að hafa lesið forystugrein í Morgunblaðinu hinn 19. ágúst sl., um ofbeldi og afbrot, langar mig til að biðja þig að birta fáeinar línur. Spurningunni um það, hvort ofbeldi sé að aukast á íslandi hygg ég að hiklaust megi svara játandi. Erfiðara er að svara því, hvernig hægt sé að bregðast við því. Það eru vafalaust margar ástæður fyrir ofbeldi og erfitt að benda á eitt úrræði öðru fremur. Eitt er þó það kýlið sem hægt er að stinga á, sem sé áfengismálin. Oft hef ég heyrt, þegar árásar- eða önnur afbrotamál hefur borið á góma, að menn hafa sagt: „Hann var fullur, greyið." Það er þó vita- skuld engin afsökun, og sem betur fer held ég að tilraunir til slíkra afsakana séu orðnar sjaldgæfari en var fyrir fáum árum. En ég held að það væri góð tilraun að reyna að skapa sterkara almenn- ingsálit gegn áfengisneyslu, t.d. með meiri fræðslu um skaðsemi hennar. Annað sem þarna kemur við sögu er fíkniefnaneysla. Alllangt er orðið síðan fór að bera á þeim ófögnuði á íslandi. Það er orðið býsna algengt að lesa i blöðum að menn hafi verið teknir við komu til landsins, með svo og svo mikið af fíkniefnum á sér. Þá menn sem hafa það að féþúfu að eyðileggja líf annarra mað eiturlyfjasölu, má gjarna láta sæta þungum refsing- um, svo þungum að þeir hugsi sig tvisvar um áður en lagt er af stað í innkaupaferð til útlanda. Það er rétt sem í þessari forystugrein segir, að ekki sé í stuttu máli hægt að gera tæmandi úttekt á orsökum ofbeldis, en ég held að það væri góð byrjun, ef fólk reyndi almennt að sýna meiri tillitssemi hvert við annað, hvort sem um er að ræða ágreiningsmál eða það að fara eftir settum regl- um, jafnvel þótt fólk telji sér oft misboðið með setningu þeirra. Það eru yfirleitt gildar ástæður til þess að reglur eru settar. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, en tek undir það Ingi Ú. Magnússon gatnamála- stjóri skrifar í Reykjavík 10. september: „Varðandi fyrirspurn íbúa í Skerjafirði, í Velvakanda Morg- unblaðsins nýlega, um sam- gönguerfiðleika við hverfið fyrir flugbrautarendann, vegna þess að götulýsing er ekki fyrir hendi né fannfeykir í mikilli snjó- komu, skal eftirfarandi upplýst: Hreinsunardeildinni er ljóst af fenginni reynslu það hættu- ástand sem þarna getur skapast sem fram kemur í fyrrnefndri for- ystugrein, að skjótra viðbragða er þðrf. vegna snjóa. Skipulagsbreyt- ingar og nýtt vaktafyrirkomu- lag í vetrarviðhaldinu á að tryggja að þessi leið haldist opin sem aðrar vegna snjóa, enda hafa ekki skapast þarna neinir erfiðleikar eftir að því var kom- ið á. Hins vegar leyfa flugmálayf- irvöld ekki að reistir séu ljósa- staurar, af þeirri stærð að þeir komi að gagni til götulýsingar, eða sett verði upp snjógirðing við brautarendann, af öryggis- ástæðum vegna flugumferðar." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Það skeður ekki ósjaldan, að vinir verði sundurorða. Rétt væri: Það gerist ósjaldan, að vinum verði sundur- orða. Með þökk fyrir birtinguna." Skerfirðingi svarað: Skipulagsbreytingar og nýtt vaktafyrirkomulag tryggja að leiðin haldist opin Hvernig hefur Gísla líkaö rafvæðingin? Karl Sveinsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eins og flestir muna úr fréttum var rafvætt hjá honum Gísla á Uppsölum ekki löngu eft- ir að sjónvarpsþátturinn hans Ómars var sýndur í sjónvarpinu. Síðan hefur ekkert frést af þessu máli, en ég veit að þeir eru marg- ir sem fýsir að vita hvernig Gísla hefur líkað rafvæðingin, hvort hann er búinn að fá sér sjón- varpstæki eða önnur nútímaþæg- indi o.s.frv. Gísli á velvild og vin- arhug allra sem horfðu á sjón- varpsþáttinn forðum og þá lang- ar að frétta af því hvernig hon- um vegnar. Hvernig gengur med nýja Blá- fjallaveginn? Þá langar mig til þess að spyrja hvernig gengur með Blá- fjallaveginn, þ.e.a.s. veginn sem liggur frá Bláfjöllum og niður að Krísuvíkurvegi? Verður hann til- búinn til notkunar í haust? Dagurinn fær bjartari svip 2953-7305 hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Ég var að koma úr Lands- bankanum, Múlaútibúi, og mig langaði til að senda afgreiðslu- stúlku þar þakkir og kveðju. Hún tekur svo vel á móti manni, bros- ir glaðlega til manns og býður góðan dag, svo að jafnvel leiðin- legustu gíróreikningar verða léttbærari fyrir vikið og dagur- inn fær bjartari svip. Mikið vildi ég að fleira bankafólk og af- greiðslufólk yfirleitt væri svona broshýrt og lifandi, og léti okkur viðskiptavinina finnast við vera velkomnir á staðinn. Þá vil ég nota tækifærið og senda gömlu konunni sem gætir salernanna í Grjótaþorpinu kveðju mína og þakka henni fyrir aðstoðina við unglingana. Sumir gera bara það sem skyldan býður. Hún gerir langtum meira. Dagatal fylgiblaöanna AT.T.TAF Á ÞRIÐJUDÖGUM IH10TIA A0* ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM Alltaf á föstudögum ALLTAF A LAUGARDÖGUM ALLTAF Á SUNNUDÖGUM stóA OG EFNISMEIRA BLAÐ! Fimm sinnum í viku fylgir auka fróóleikur og skemmtun Mogganum þínum! JlfotgtiiiMjtfeffe

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.