Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 21 • Víkingur varð um helgina íslandsmeistari í knattspyrnu. Á myndinni sem tekin var að leikslokum í búningsklefa Víkings má sjá hvar fyrirliði liðsins hampar sigurlaununum og leikmenn ásamt forystumönnum félagsins fagna sigrinum. Sjá fréttir af íslandsmótinu á blaðsíðum 23—24—25—26. Ljósm. KÖE. íslendingarnir iðnir að skora í Belgíu ÍSLENDINGARNIR í belgísku knattspyrnunni voru í sviðsljósinu er sjötta umferöin var þar á dagskrá um helgina. Magnús Bergs, Lárus Guðmundsson og Pétur Pétursson skoruðu allir fyrir félög sín í sigur- leikjum og Arnór Guðjohnsen átti enn einn stórleikinn fyrir Lokeren þó ekki tækist honum að skora að þessu sinni. Úrslit leikja urðu sem hér segir: Lokeren — Ghent 2—1 Antwerpen — Beveren 2—1 FC Liege — Kortrijk 1—0 Cercle Briigge — Waterschei 1—2 Molenbeek — Searing 1—1 Lierse — Anderlecht 0—2 Winterslag — FC Brugge 1—1 Waregem — Tongeren 0—2 Standard — Beerschot 1—2 Magnús Bergs skoraði annað mark sitt í jafn mörgum leikjum fyrir Tongeren og liðið hefur að- eins rétt úr kútnum, byrjaði illa, en hefur fengið þrjú stig af fjórum mögulegum eftir að Magnús kom til félagsins. Lárus skoraði annað af mörkum Waterschei gegn Sæ- vari Jónssyni og félögum hjá Cercle og Pétur Pétursson skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Antwerpen, vonandi batnandi tímar fram undan hjá honum. Staðan er þannig eftir sex um- ferðir, að Beerschot er efst með 10 stig, Anderlecht, Lokeren og FC Brugge hafa 9 stig og Beveren hef- ur 8 stig. Þá koma Standard, Wat- erschei og Antwerpen með 7 stig hvert félag. 200 manna klapp- lið með Sociedad Spænska knattspyrnu- meistaraliðið Real Sociedad, sem mætir Víkingi í 1. um- ferð Evrópukeppni meistara- liða annað kvöld, er lið ekki einsamalt. Með félaginu hingaö til lands koma 200 ákafir stuðningsmenn þess og koma þeir með einka- flugvél til landsins. Væntan- lega mun fara mikið fyrir klappliði þessu, því Spánverj- ar eru frægir fyrir eldheitan áhuga sinn á knattspyrnu og frægir fyrir allt annað en að sitja þegjandi yfir knatt- spyrnuleikjum. •• Magnús Bergs hefur leikið vel með hinu nýja liði sínu Tongeren og skor- að í báðum leikjum sinum með lið- inu. ÍBV mætir Lech Posnan í kvöld íþróttabandalag Vest- mannaeyja leikur fyrri leik sinn í Evrópukeppni bikar- hafa í knattspyrnu gegn pólska liðinu Lech Poznan á Kópavogsvellinum í kvöld og hefst leikurinn klukkan 18.00. Síðari leikurinn fer fram í Poznan eftir hálfan mánuð. ÍBV hefur leikið vel á ís- landsmótinu upp á síðkastið og aldrei að vita ncma liðið standi í pólska liðinu á heimavelli. Teflir liðið m.a. fram öðrum af tveimur markakóngum íslandsmóts- ins, Sigurlási Þorleifssyni, og mun væntanlega mæða mik- ið á honum. í pólska liðinu eru tveir mjög kunnir pólskir landsliðsmenn sem komu mikið við sögu á HM á Spáni í sumar. Eru það miðvallar- leikmaðurinn Januz Kupce- wicz sem þykir sérstaklega háli með útsmognar auka- spyrnur sínar. Hinn er markvörðurinn risavaxni Piotr Mowlik sem oft hefur staðið í pólska landsliðs- markinu. Koma vel birgir af matvælum fra Spáni ÞAÐ ER greinilegt á öllu að leik- menn og forráðamenn spænsku meistaranna, Real Sociedad, vita ekki mikið um ísland. Fréttaritari Mbl. í Burgos á Spáni, Helga Jónsdóttir, fékk fyrir helgina upphringingu frá formanni félagsins þar sem hann hafði stórar áhyggjur af því að leikmenn hans gætu ekki fengið neitt almennilegt að éta. Spurði hann í þaula um hvort maturinn hér væri ætur, hvort hér væri hægt að fá ávexti, kjöt og grænmeti. Var það ekki fyrr en hann hafði verið fullvissaður um að á íslandi fengi hann besta vatn í heimi, sömuleiðis bestu mjólkina og langbesta fiskinn, að hann ró- aðist. Til þess að vera nú alveg vissir í sinni sök koma forráðamenn liðs- ins með appelsínur, matarolíu og eitthvert úrvals kjöt, sem leik- menn ku alltaf borða. — SSv.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.